Morgunblaðið - 08.10.1989, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.10.1989, Qupperneq 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER VALHÚS FASTEIGINIASALA Reykjavíkurvegi 62 S:6511SS HRAUNBRÚN - RAÐH. 6 herb. 148 fm raðh. þar með talinn bilsk. Teikn. og myndir á skrifst. VALLARBARÐ —'EINB. Glæsil. pallbyggt einb. Mögul. á séríb. á jarðhæð. KLAUSTURHV. - RAÐH. Gott 225 fm endaraðhús ásamt innb. bilsk. Verð 10,2 millj. SUÐURGATA HF. - EINB. Snoturt eldra einb. Góð staðs. Laust strax. Verð 4,5 millj. STUÐLABERG - í BYGG. 150 fm parhús á tveimur hæðum ásamt bílsk. Afh. á fokheldisst. Verð 5,5 millj. ERLUHRAUN Vel staðsett 5 herb. 128 fm nettó einb. auk bílsk. Góö lóð. SELVOGSG AT A — HF. Vorum að fá í einkasölu 5 herb. mikið endurn. einb. ásamt bílsk. Nýtt húsnæöismálalán. TUNGUVEGUR - HF. Mjög snoturt 4ra herb. 86,3 fm nettó einb. á einni hæð. Bílsk. Vel gróin lóð. Laust 15. nóv. Verð 5,9 millj. SUÐURGATA - EINB. Eldra 50 fm einb. Verð 4,3 millj. HRAUNKAMBUR Gott eldra einb. ásamt nýl. bilsk. Verð 6,2 millj. BRATTAKINN - PARH. 3ja herb. 70 fm parhús auk herb. á jarð- hæð. Verð 5 millj. REYKJAVÍKURVEGUR 5 herb. 88 fm einb. á tveimur hæðum. Bílsk. Vinnuaðstaða. Laust strax. Verð 5,8 millj. HVERFISGATA - HF. 7 herb. 160 fm einb. ásamt bilsk. Verð: Tilboð. KVÍHOLT - SÉRH. Góð 5 herb. 145,6 fm neðri hæð. Bílsk. Verð 8,9 millj. skipti æsil. á 3ja herb. íb. HVERFISGATA - HF. 6 herb. 137 fm hæð og ris. Verð 6,5 m. BREKKUBYGGÐ - GBÆ Gott 90 fm raðh. á 2 hæðum. Bilskúr. HRAUNBRÚN 5 herb. 123 fm hæð auk 36 fm bílsk. Til afh. tilb. u. trév. Teikn. á skrifst. MELÁS - NÝ HÚSNLÁN Góð 5-6 herb. 138,9 fm sérhæð. Innb. bílsk. Verð 8,2 millj. KELDUHVAMMUR Falleg 4ra herb. 126,4 fm íb. á jarð- hæð. Nýtt parket og flisar á gólfum. Bilsk. Góð áhv. lán. Verð 7,2 millj. HJALLABRAUT - HF. Góð 5-6 herb. 120 fm íb. á 3. hæð. Tvennar svalir. Verð 6,5 m. REYKJAVÍKURVEGUR 5 herb. 120 fm hæð og ris, vinnuað- staða. Verð 5,9 millj. HÓLABRAUT - LAUS 5 herb. 125 fm sérhæð auk 50 fm í risi. Bílskr. Góð staðsetn. þ.e. stutt í sund, smábátah., dagheimili, golf o.fl. ÁLFASKEIÐ Vorum að fá i einkasölu fallega og bjarta 5 herb. 114 fm nettó endaíb. á 2. hæð. Bilskplata. Verð 6,5 millj. BREIÐVANGUR Vorum að fá í einkasöiu fallega 4ra herb. íb. á 2. hæð á góðum útsýnis- stað. Góð sameign. Verð 6,5 millj. ÁLFASKEIÐ - M/BÍLSK. Góð 3ja-4ra herb. íb. á 3. hæð. Bílsk. HJALLABRAUT Góð 3ja herb. 96 fm íb. Verð 5,3 m. ÁLFASKEIÐ - M/BÍLSK. Góð 4ra herb. 110 fm íb. Bílsk. Laus 20. okt. Verð 6,1 millj. SMYRLAHRAUN Góð 3ja herb. 85 fm endaíb. á 2. hæð. Rúmg. bílsk. Verð 5,7 millj. ÁLFASKEIÐ 3ja-4ra herb. 90 fm íb. á 2. hæð. Nýtt gler. Sérinng. af svölum. Verð 5,0 millj. LAUFVANGUR Góð 60,9 fm nettó ib. á 3. hæð. Verð 4,5 millj. HVAMMABRAUT Góð 2ja herb. 54 fm (netto) ib. á jarðh. Nýtt hússtjl. Verð 4,5 millj. MIÐVANGUR - LAUS Góð 2ja herb. 60 fm íb. á 3. hæð í lyftu- húsi. Verð 4,2 millj. BERGÞÓRUGATA Mjög snotur en ósamþ. ein- staklíb. Laus. Verð 2,2 millj. HRAUNBRÚN 2ja herb. 60 fm ib. Til afh. strax tilb. undir trév. og máln. Gjörið svo vel að líta inn! jé* Sveinn Sigurjónsson söiustj. Valgeir Kristinsson hrl. Skipulag er ekki bara stjómtæki ylirvalda Thors, $klpulags§ljóri rildsins — §cgir Stefán I fyrra urðu þáttaskil hjá Skipulagi ríkisins. Þáflutti'stofh- unin frá sínum gamla stað að Borgartúni 7 í Reykjavík að Laugavegi 166. Þröngt húsnæði og léleg aðstaða hafði um árabij háð starfsemi stofnunarinnar. A nýja staðnum fékk hún aftur á móti 400 fermetra nýinnréttað húsnæði til umráða og eru að- stæður þar allar mjög góðar. En það er vissulega annmörkum háð að fylgjast með skipulags- og byggingarmálum í öllum sveitar- félögum landsins og vera einungis með skrifstofu í Reykjavík. Því var opnuð skrifstofa Skipulags ríkisins á Akureyri og er hún í húsi Lands- virkjunar við Gler- árgötu. Þar er um tilraun að ræða til tveggja ára, en ef vel tekst til, verður skrifstofan þar áfram og hugsanlega á fleiri stöð- um. — Það eru að verða miklar breyt- ingar á allri vinnu við skipulags- gerð. Fram að þessu hefur hún mikið farið fram hjá ríkinu, en nú eru verkefnin óðum að færast út til sveitarfélaganna sjálfra, sagði Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkis- ins í viðtali við Morgunblaðið.— Annað hvort ráða þau til sín sér- menntað fólk, eða þau leita til sjálf- stætt starfandi ráðgjafa. Hér hjá Skipulagi ríkisins starfa aðeins 12 manns og það segir sig sjálft, að með ekki fjölmennara starfsliði ráð- um við ekki við að vinna aðalskipu- lag fyrir öll þéttbýlissveitarfélögin, sem eru um 70 talsins. Þá þyrftu að vera hér 30-40 manns í það minnsta. Við reynum samt enn að leysa þessi verkefni fyrir þau sveit- arfélög, sem vilja leita hingað. Fyr- ir þá þjónustu þurfa þau að greiða helming kostnaðar. Ef þau vilja leita til sjálfsstætt starfandi ráð- gjafa, höfum við greitt helming kostnaðar samkvæmt fyrirfram gerðum samningi. Stefán Thors telur þetta eðlilega þróun.— Bæði ábyrgð og vald með tilliti til skipulags eiga að vera í höndum sveitarfélaganna sjálfra, segir hann.— Hlutverk ríkisins á að vera fólgið í því að hafa með höndum ráðgjöf við undirbúning undir gerð skipulags og eftirlit. Þessi ráðgjafastarfsemi á að snúa að sveitarstjómum en einnig og ekki síður að hinum almenna borg- ara. Nú fáum við hér meiri tíma til að sinna þessum verkefnum. Þetta er áherzlubreyting, sem hefur verið að eiga sér stað undanfarin 5-10 ár og á enn eftir að taka mikið stökk á næstu árum. Stefán er sonur Björns Thors blaðamanns og Helgu Valtýsdóttur leikkonu, en hún lézt 1968. Kona Stefáns er Guðrún Gunnarsdóttir veflistarkona og eiga þau tvö börn. Stefán varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1969, en fór síðan til náms við Arkitektaskólann í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan sem arkitekt með skipulag sem sérsvið árið 1976. Lokaverk- efni hans þar var landsskipulag fyrir Færeyjar. Stefán kom heim þetta sama ár og fór þá til starfa hjá Skipulagi ríkisins, þar sem hann vann til árs- ins 1979, en flutti þá með Ijölskyldu sína til Egilsstaða, þar sem hann gegndi stöðu forstöðumanns skipu- lagsstofu Austurlands í tvö ár. Síðan stofnaði hann sína eigin stofu og vann að ýmsum skipulagsverk- efnum fyrir ríki og sveitarfélög til 1. desember 1985, en þá var hann skipaður skipulagsstjóri ríkisins og hefur gegnt því embætti síðan. Fækkun sveitarfélaga á Norðurlöndum En hvernig er ástandið á þessu sviði á hinum Norðurlöndunum?— Það má segja, að við séum á þessu sviði eins og mörgum öðrum 10-15 árum á eftir, segir Stefán.— Það er auðvitað oft erfitt að þurfa að viðurkenna í samstarfi okkar við aðrar þjóðir, að við séum á sama stigi og þau lönd, sem eru stimpluð vanþróuð, en það að vera á eftir, hefur samt þann kost, að við ættum að geta lært af reynslu þeirra. í kringum 1970 hófst mikil þróun í þá átt að sameina sveitarfélög á Norðurlöndum, þannig að þar átti sér stað veruleg fækkun sveitarfé- laga nema þá helzt í Finnlandi, þar sem þessi þróun gekk hægar fyrir sig. Afleiðingin varð sú, að sem ein- ingar urðu sveitarfélögin miklu öflugri en áður. Þar við bættist svo, að þar eru lén og ömt sem millistig í stjórnsýslunni, en þau höfum við ekki hér og sú ábyrgð og eftirlit, sem ríkið hefur hér á landi, var flutt til þeirra. Um leið tóku þessar héraðsstjórnir skipu- lagsmálin í sínar hendur og sveitar- félögin urðu jafnframt miklu sjálf- stæðari, enda er meðalstærð á sveitarfélagi sums staðar þar svipuð og allt ísland, hvað íbúaijölda snert- ir. Engu að síður eru í öllum þessum löndum mjög öflugar ríkisstofnanir á þessu sviði með 100-200 starfs- mönnum. í Danmörku er það svo- nefnd „Plansstyrelse", í Svíþjóð „Boverket" og svo ráðuneytisdeildir í Noregi og Finnlandi. Þessir aðilar sinna ekki skipulagsgerð fyrir sveit- arfélögin en úrskurða um ágrein- ingsmál, komi þau upp. Hlutverk þeirra er fyrst og fremst ráðgjöf, leiðbeiningar og stefnumörkun og ennfremur að gæta hagsmuna ríkis, tryggja samræmingu áætlana og öryggi borgarana. Um þessar mundir á sér stað mikil umræða á Norðurlöndum um að einfalda lög og reglur og alla málsmeðferð á þessu sviði. Inn í þessa umræðu blandast efasemdir um, að rétt hafi Morgunblaðið/Þorkell Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins verið að koma upp þremur stjórn- sýslustigum. Stefán telur, að tækniþjónusta utan þéttbýlustu svæðanna og eftir- lit með byggingar- og skipulags- málum þar, sé eitt helzta vandamál- ið, sem Skipulag ríkisins standi frammi fyrir.— Þetta kemst ekki í lag fyrr en sveitarfélögin verða annað hvort stækkuð eða stofnuð svokölluð byggðasamiög um tækni- þjónustu, um byggingareftirlit og um byggingarfulltrúaembætti. Þetta er raunar þegar komið á í Eyjafirði, Skagafirði, Snæfellsnesi og nokkrum sveitarfélögum í Ar- nessýslu. Þar er einn byggingarfull- trúi, sem þjónar fleiri byggingar- nefndum og er gott samstarf milli þeirra og okkar starfsfólks. Með þessu verður öll meðferð bygging- armála miklu markvissari. Svo eru enn aðrir staðir, þar sem bygging- arfulltrúar eru í þessu starfi aðeins nokkra klukkutíma á viku. Slíkt er að sjálfsögðu ófullnægjandi. eftir Mognús Sig- urðsson C B FASTEIGNASALAN BORG HE) Armúla 19, 108 Reykjavík. Símar: 686535, 680510 og 680511. Við Birkihlíð í Fossvogi Vönduð sérhæð auk kjallara með sérinng. Áhv. ca 2,5 millj. Verð 9,6 millj. í Mosfellsbæ Einbýlishús með bílskúr og plötu undir sólstofu. Selst fullfrág. að utan eða lengra á veg komið. Á Álftanesi Nýlegt vandað einbýlishús 5-6 herb. ca 230 fm með tvöf. bílskúr. Áhv. ca 5,0 millj. Verð 9,0 millj. Við Frakkastíg 2ja herb. íb. í ágætu standi. Lítið áhv. Verð 2,6 millj. Við Hjallaveg Vönduð sérhæð í gömlu húsi. Allt endurnýjað. 3 herb. Sérlega góð greiðslukjör. Áhv. ca 2,8 millj. Verð 4,9 millj. Við Ásbúð Vandað raðhús á tveimur hæðum með tvöföldum bílskúr. íbúð ca 210 fm, bílskúr ca 45 fm. Hagstæð lán. Áhv. ca 2,5 millj. Verð 11,4 millj. í Garðabæ 100 fm sérhæð með sérinng. Áhv. ca 1,6 millj. Verð 5,6 millj. í Kópavogi 2x200 fm atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum. Verð sérlega hagstætt. Lokað á sunnudögum en opið á laugar- dögum frá kl. 13-15 Sölustjóri: Ólafur Granz, byggingameistari. Lögmaður: Barði Þórhallsson, hdl. FASTEIGN ER FRAMTÍÐ Hlíðargerði Til sölu vandað mjög gott steinhús ca 194 fm, kj., hæð og ris. Kjallari: 2 herb., þvottaherb. o.fl. (getur verið sér einstaklingsíbúð). Aðalhæð + ris: Góð forstofa, hol, stofa, borðstofa, eldhús, snyrtiherb. og lítið herb. í risi: Sjónvarpshol, 3 svefnherb. og bað. Bílskúr 26 fm. Blómaskáli 23 fm. Góð eign í góðu hverfi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.