Morgunblaðið - 14.10.1989, Page 1
o
MENNING
LISTIR
B
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
LAUGARDAGUR 14. OKTOBER 1989
BLAÐ
Lokið hryssurnar inni
— og hleypið folanum lausum
Hús Bernörðu Alba a Akureyri
Spænska leikritaskáldið
Lorca var um margt
óvenjulegur höfundur. Fyr-
ir utan að vera óvenjulega
afkastamikill, var yrkisefni
hans aðallega konur — eða öllu held-
ur þær aðstæður sem konur bjuggu
við. Verk hans eru suðupottur
mannlegra tilfinninga og hvað
lengst gengur hann í ólgunni í Húsi
Bernörðu Alba, sem frumsýrit verð-
ur hjá Leikfélagi Akureyrar í kvöld.
Verkið lýsir heimili frú Bernörðu
Alba og dætra hennar fimm. Yngsta
dóttirin er gjafvaxta og sú elsta
nánast miðaldra. Allar eru systurn-
ar ógiftar og hefst leikurinn þar sem
mæðgurnar koma heim frá jarðar-
för heimilisföðurins. A heimilinu eru
einnig tvær vinnukonur, ein ung,
önnur gömul og öldruð móðir Bern-
örðu, sem er lokuð inni.
Það er ljóst strax í upphafí að
Bernarða er „einræðisherra" á bæn-
um. Allar konurnar sitja og standa
eins og hún vill og það hefur alltaf
verið þannig. Bernarða skipar átta
ára sorgartímabil vegna dauða eig-
inmannsins og setur dætrunum það
fyrir að sauma heimanmundinn sinn
—jafnvel þótt enginn maður sé þeim
boðlegur. Þær systur fá ekki að fara
út og enginn fær að koma inn á
. heimilið. Bernarða virðist hafa sömu
afstöðu til karlmanna og til graðfola
síns, sem er ólmur inni í stalli og
berst um og sparkar, og hún segir:
„Lokið hryssurnar inni og hleypið
folanum lausum.“
sjá síðu 2
Sigríður
Hagalín
í hlutverki
Bernörðu Alba
Kínverski
píanóleikarinn
Xiao- Mei Zhu,
hélt tónleika
hér á landi
í síðustu viku
á vegum
Evrópusambands
píanókennara.
Hún segir okkur
lítillegafrá
srkennilegu
lífi sínu
i blaðinu
í dag
A Kjarvals-
stöðum
stendur yfir
sýning á
málverkum
eftir Stefán Axel
Valdimarsson.
Stefán
býrnú
í Rotterdam
og segir okkur
frá flökkulífi
sem hann
hefur lifað
frá blautu
barnsbeini