Morgunblaðið - 15.10.1989, Qupperneq 1
Lóóaútr-
Iiliitaiiir
Fram til 1. október sl. var
búið að úthluta lóðum undir
115 einbýlishús í Reykjavík á
þessu ári auk lóða undir 45
rað- eða parhús. Þá hefur einn-
ig verið góð eftirspurn eftir lóð-
um undir fjölbýlishús. Ljóst er
þó, að lóðaúthlutun hjá borg-
inni verður ekki eins mikil á
þessu ári og í fyrra, enda
óvenjulega mikill fram-
kvæmdahugur í fólki þá bæði
í Reykjavík og annars staðar á
höfuðborgarsvæðinu.
í viðtali hér í blaðinu í dag
ræðir Ágúst Jónsson, skrif-
stofustjóri borgarverkfræð-
ings, um lóðaúthlutun. Þar
kemur m. a. fram, að allir eiga
að geta fengið lóð hjá borg-
inni, svo framarlega sem þeir
uppfylla tilskílin
skilyrði. Viðhorfið er
afdráttarlaust: Lóð er
mannréttindi.
10
<$■
SUNNUDAGUR 15. OKTOBER
Sliipling
félags-
legra ibúöa
Lánveitingarfyrir árin 1988
og 1989 úr Byggingarsjóði
verkamanna og vegna al-
mennra kaupleiguíbúða eru til
samtals 1.237 íbúða. Þaraf er
lánað til byggingar 675 íbúða í
Reykjavík og á Reykjanesi en
562 íbúða föðrum kjördæmum.
Þetta kemur fram í nýju frétta-
bréfi Húsnæðisstofnunar þar
sem birt er greinargerð stofn-
unarinnar vegna gagnrýni á
lánveitingar til félagslegra
íbúðabygginga í júlí á þessu
ári. Gagnrýnin fólst í að taumur
höfuðborgarsvæðisins væri
dreginn um of í þessu efni.
Hér á myndinni til hliðar má
sjá hvernig fjöldi félagsiegra
íbúða skiptist á einstök kjör-
dæmi miðað við hverja eitt
þúsund íbúa um síðastliðin
áramót. í greinargerð Hús-
næðisstofnunar, segir að þörf-
in fyrir byggingu íbúðarhús-
næðis haldist ekki í hendur við
íbúafjölda. Þegar fækkun verði
á höfuðborgarsvæðinu leiði
það af sjálfu sér að þar þurfi
minna að byggja. Þá segir enn-
fremur: Samkvæmt íbúðaspá
Byggðastofnunar fyrir árin
1989 til 1994 kemur f ram að
miðað við óbreytt ástand sé
þörfin fyrir nýbyggingar á
landinu 1.442 íbúðir á ári, þar
af í Reykjavík og Reykjanesi
1.221 íbúð en í öðrum kjör-
dæmum 221 íbúð á ári.
34.8
29.4
BLAÐ
Fjöldi félagslegra íbúða
á hverja 1000 íbúa
l.jan 1989
Mildó er
spiirt 11111
hnseign-
ir Viflll-
feUs Iifl.
Mikið hefur verið um fyrir-
spurnir hjá Eignamiðlun-
inni um húseignir Vífilfells hf.
við Hofsvallagötu og Nesveg,
sem auglýstar voru til sölu í
Morgunblaðinu sl. sunnudag.
Þórólfur Halldórsson, lögfræð-
ingur hjá Eignamiðluninni sagði,
að fyrirspyrjendur væru yfirleitt
aðilar, sem hefðu hug á að
kaupa annað hvort húsið í heilu
lagi, ef til kæmi.
Þórólfur sagði ennfremur, að
verð hefði enn ekki verið ákveð-
ið, en Ijóst væri af viðbrögðum
markaðarins, að þessar hús-
eignir færu á tiltölulega góðu
verði.— Ég á alveg eins von á
því, að þessar húseignir seljist
fljótlega, sagði Þórólfur.