Morgunblaðið - 15.10.1989, Side 11

Morgunblaðið - 15.10.1989, Side 11
fiEÉt MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER B 11 Við Hringbraut Vorum að fá í sölu tveggja hæða hús ásamt kjallara. í húsinu eru tvær sérhæðir og tvær litlar íbúðir í kjallara ásamt innbyggðum bílskúr. Húsið getur selst í einu lagi eða sem tvær einingar. Útborgun 30-50%. Eftirstöðvar til lengri tíma. Fasteignasalan Hátún, Suðurlandsbraut 10, sfmar 21870,687828 og 687808. Nú er að hefjast lóðaúthlutun í nýju hverfi, svonefndu Rimahverfi, sem er í Borgarholti norðan við Foldahverfi. Þar verður úthlutáð í fyrsta áfanga 10 lóðum undir fjölbýlishús með 217 íbúðum og enn- fremur 19 einbýlishúsalóðum, 11 tvíbýlishúsalóðum og 6 raðhúsalóðum auk 38 íbúða í verkamannabú- stöðum. í^málaraðs og borgarminja- varðar. \Ef leyfi fæst til að rífa húsið og byggja nýtt, þá er viðkom- andi samt bundinn af samþykktu skipulagi og ef því er ekki til að dreifa, þarf að leggja málið fyrir skipulagsnefnd áður en hægt er að samþykkja byggingarleyfið í bygg- ingarnefnd. Gatnagerðargjöld af slíkum hús- um er reiknað þannig, að frá rúm- máli nýja hússins dregst rúmmál þeirra bygginga sem fjarlægðar Íiafa verið af lóðinni. Það er því eingöngu greitt gatnagerðargjald af raunverulegri stækkun bygging- ar á lóðinni. Á eignarlóðum og á leigulóðum, sem hefur verið úthlut- að fyrir maí 1984 greiðist núna aðeins hálft gatnagerðargjald og þannig verður það til 1. júlí 1990 en eftir þann dag greiðist fullt gat- nagerðargjald af þessum lóðum eins og nýjum lóðum. En gerum ráð fyrir, að einhver hafi verið búinn að sækja um lóð og greiða gatnagerðargjöldin, en vilji nú hætta við allt saman. Hann þarf kannski að flytja út á land eða sér einfaldlega, að hann hefur ekki efni á húsinu. Fær hann þá það endurgreitt, sem hann er búinn að borga?— Já, að sjálfsögðu, segir Ágúst.— Samkvæmt reglum um gatnagerðargjöld ber þá að endur- greiða þau ásamt vöxtum og þá er miðað við skuldabréfavexti. Ágúst minnir á, að borgarráð úthlutar byggingarréttinum til til- tekins aðila og honum er óheimilt að framselja þann rétt. Ef hann vill hætta við, verður hann að skila lóðinni og fá þá gatnagerðargjöldin endurgreidd eins og áður sagði. Hafi hann verið búinn að láta teikna hús, þá fær hann þann kostnað ekki bættan. Borgin leysir ekki til sín teikningar, enda á næsti lóðar- hafi að vera óbundinn af þeim. Hafi framkvæmdir verið hafnar t.d. búið að steypa sökkla og jafn- vel plötu, er þarmeð komið varan- legt mannvirki á lóðina. Borgarráð hefur þá heimilað viðkomanda að selja framkvæmdirnar og þar með byggingarréttinn, en þó skal alltaf bjóða borginni að neyta forkaups- réttar. Ef borgin leysir til sín slíkar lóðir, þar sem einhverjar fram- kvæmdir eru hafnar, grunngröftur eða þaðan af meira, þá bætir borg- in slíkan útlagðan kostnað, ýmist eftir mati eða eftir framlögðum reikningum. Lóð er mannréttindi Sú var tíðin, að það þótti mikill ávinningur að fá lóð í Reykjavík. Lóðaskorturinn var það mikill, að margir sáu í því mikla hagnaðarvon að fá úthlutað lóð hjá borginni og þar af leiðandi komust á kreik mikl- ar sögusagnir um brask með þær. En er það liðin tíð?— Þetta er alger- lega úr sögunni, segir Ágúst.— Fólk á þess alltaf kost nú að fá lóð undir íbúðarhús. Það eru ávallt ein- hveijar lóðir í boði, en síðan er það umsækjenda að vega og meta, hvort þeir vilja þær eða ekki. En það er ekki um það að ræða að fá neitt gefins, því að allir borga fullt gatna- gerðargjald sem önnur gjöld. Að fá lóð er hins vegar sjálfsagður hlut- ur, sem allir eiga jafnan kost á án tilíits til búsetu. Viðhorfið er þannig nú, að lóð sé mannréttindi. En er lóðaframboðið orðið slíkt, ekki bara í Reykjavík, heldur einnig í nágrannabæjunum, að það sé bók- staflega af ásettu ráði verið að keppa um fólkið með lóðafram- boði?— Nei, svarar Ágúst.— Það er bara af hinu góða, að fólk geti valið hvar það fær lóð. Það getur síðan gert upp hug sinn, hvort það vill heldur byggja í Reykjavík eða annars staðar. Eftirspurn eftir lóð- um hér sýnir samt, að þeir eru margir, sem vilja byggja í borginni og þó að eftirspurn hafi ef til vill eitthvað dregist saman á síðustu mánuðum, þá er ekki þar með sagt að menn vilji t. d. heldur byggja í Kópavogi eða einhverjum öðrum stöðum fremur en í Reykjavík. Þróun í húsagerð er mikil nú á tímum og sumir farnir að velta fyr- ir sér nýjum tegundum húsa, sem þurfa miklu stærri lóðir en tíðkazt hefur. Á meðal þessara húsagerða eru svonefndir veðurhjúpar af einni eða annarri gerð. Ágúst var spurð- ur að því, hvort fram hefðu komið lóðaumsóknir fyrir slík hús og hvort borgin væri farin að móta afstöðu sína til þeirra og svaraði hann þá: — Þess eru tvö nýleg dæmi, þar sem sótt var um lóð í því skyni að byggja þar íbúðarhús með gler- byggingu yfir lóðina og utan um íbúðarhúsið eða hluta þess og fá þannig yfirbyggðan garð. Þá hafa Ííka komið fram hugmyndir um gleryfirbyggingar yfir göngugötur eða torg. Við smíði íbúðarhúsa með gler- byggingu að auki þyrftu lóðar- hafarnir að greiða býsna há gatna- gerðargjöld, að minnsta kosti að óbreyttum reglum. Það er hins veg- ar i athugun hjá borginni hvernig með skuli fara, þegar sett er gler- yfirbygging yfir götur og torg, sem eru þá að minnsta kosti að ein- hveiju leyti opin almenningi. Sam- kvæmt reglugerð á að greiða gatna- gerðargjöld í samræmi við rúmmál húsa og rúmmál af svona glerbygg- ingum er oft æði mikið og kannski hlutfallslega mjög mikið miðað við flatarmál. Að óbreyttum reglum er það ekki mjög fýsilegur kostur að byggja yfir götur og torg, svo að ekki sé talað um ibúðarhús með yfirbyggðri lóð. Engin þörf á skýjakljúfum Ágúst Jónsson var að lokum spurður að því, hvort hann teldi vel að Reykvíkingum búið varðandi byggingarlóðir og sagði hann þá, að svo mætti hiklaust telja og raun- ar á höfuðborgarsvæðinu öllu.— Innan marka Reykjavíkur er enn til mikið byggingarland. Það er því engin nauðsyn á að hefja smíði á skýjakljúfum- hér líkt og í New York eða Tókío, enda lítið sambæri- legt með Reykjavík og þessum borgum. Benda má samt á, að þeg- ar Skúlagötusvæðið var skipulagt, var þar gert ráð fyrir miklu hærri húsum en voru fyrir. Þar er að finna gott dæmi þess, að gamall borgar- hluti er skipulagður að nýju og þá gert ráð fyrir meiri landnýtingu, það er fleiri íbúðum á hektara en áður. s Einbýlishús á sunnan- verðu Seltjarnarnesi Sjávarlóð Glæsilegt 300 fm einbýlishús á 1500 fm sjávarlóð á eftirsóttum stað á sunnanverðu Seltjarnarnesi. Stór bílskúr. Húsið skiptist m.a. í glæsilegar stofur, stórt bókaherb. og 4 svefnherb. Hér er um að ræða eittglæsi- legasta einbýlishús sem nú er í boði á fasteignamark- aðnum í dag. Teikn. og allar nánari uppl. á skrifst. EIGNAMIDUJNIIV 2 77 11 if Þ I NCHOLTSSTRÆTI 3 Sverrir Kristinsson, sölustjóri - Þorleifur Guðmundsson, sölum. Þórólfur Halldórsson, lögfr.—Unnsteinn Beck, hrl., sími 12320 Bilaborgarhúsið við Fossháls er til sölu Hér er um aó ræóa nýtt, glæsilegt hús. Flatarmál er 7340 fm. Eignin hentar vel fyrir ýmis konar atvinnustarfsemi. Skipulag hið innra býður upp á margs konar nýtingu. I húsinu eru bæði innréttaðir, glæsilegir sýningasalir, verkstæði, auk skrifstofurýmis. Húsið er einnig fullbúið að utan og lóð er frágengin, en þar eru m.a. 150 bílastæði með hitalögn. Húsið selst í einu lagi eða hlutum. Teikningar og allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni (ekki í sfma). EiGnamiÐLunin ÞINGHOLTSSTRÆTI 3, SÍMI 27711 SverrírKristjánssonsölusstjóri - ÞorleifurGuðmundsson sölumaður- Unnsteinn Beck hrí. - Þórólfur Halldórsson lögfræðingur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.