Morgunblaðið - 17.10.1989, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞRÖTTIR ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1989
--------------------------,-----Ui.-iM-fMl.J,-,----:------:--
B 3
KARATE / NORÐURLANDAMÓTIÐ
Halldór Svavarsson fyrsti ís-
lenski Norðurlandameistarinn
HALLDÓR Svavarsson varð á
laugardaginn fyrsti íslending-
urinn til að vinná IMorðurlanda-
meistaratitil íkarate. Halldór,
sem fyrir skemmstu varð tvö-
faldur íslandsmeistari í kumite,
sigraði einnig nú í kumite, í
mínus65 kg flokki.
Halldór mætti Finnanum Ari
Rasanen í úrslitabardaganum.
Hvorugur náði að skora áður en
glímutíminn var liðinn, þannig að
framlengja varð.
Skapti Þulur mótsins til-
Hallgrfmsson kynnti áhorfendum
skrifar sem fyrrj yrði
til að skora yrði
Norðurlandameistari. Og viti menn:
Halldór var það sem náði höggi á
Finnann, svokölluðu Urakan þar
sem slegið er með handarbakinu frá
hlið í andlit andstæðingsins, og
mikilþ fögnuður braust út í Höll-
inni. íslenski þjóðsöngurinn hljóm-
aði fljótlega í fyrsta skipti á Norður-
landamóti, Halldór stóð á efsta palli
með gullverðlaunin og menn voru
greinilega hrærðir af gleði. Sannar-
lega söguleg stund í sögu karate
íþróttarinnar hér á landi.
Sölvi Rafnsson varð þriðji í þess-
um flokki; tapaði 6:2 fyrir Halldóri
og 5:2 fyrir Rasanen. Aðeins þrír
keppendur voru í flokknum.
Ánægja
Islendingar voru ánægðir með
árangurinn að þessu sinni. „Þetta
var mjög gott í heildina hjá okkur,“
sagði Jónína Olesen, en hún náði
einmitt þeim glæsilega árangri að
hreppa silfurverðiaun í kata, þar
sem keppendur sýna staðlaður
hreyfingar.
Sveitakeppninni vilja íslendingar
að vísu eflaust gleyma sem fyrst
því þar tókst þeim satt að segja
ekki vel upp. Töpuðu öllum sínum
viðureignum og lentu í neðsta sæti,
bæði í karla- og kvennaflokki. Karl-
arnir töpuðu t.d. 0:4, öllum bardög-
unum, gegn Dönum í síðustu viður-
eigninni, en fram að því höfðu Dan-
ir einnig tapað öllum sínum viður-
eignum. Meiðsli settu strik í reikn-
inginn hjá íslendingum — aðeins 4
af 7 gátu klárað sveitakeppnina,
þrír voru meiddir.
Birtir til
Silfrið
góð
afmælis-
gjöfti! Bn/marc
BJtB jf m aJCmm O „ÉG náði þriðja sæti á Norð-
urlandamótinu fyrir tveimur
árum, en keppti ekki í fyrra.
Þetta er meiriháttar árangur
núna, ég var búin að gera
mér vonir um að ná þriðja
sætinu og því er þetta framar
nir ’ ■■■t4í 4dlfÍl|-> • ,s• ■ • .. /•; öllum vonum,“ sagði Jónína
Olesen, kampakát, eftir að
hafa tekið við silfurverðlaun-
um íkata.
.. , , - m C ins og Jónína nefndi keppti C hún ekki í fyrra, var þá í
mm::.
barnseignarhléi og Brynjar sonur
hennar Konráðsson varð einmitt
gjf. 10 mánaða á laugardaginn. Móðir hans hélt því upp á daginn á eftir-'
minnilegan hátt. Sá litli var auð-
Fwr^4 ^ • InUj vitað í Höllinni með foreldrum
sínum, en faðirinn Konráð Stef-
ánsson nældi í brons í mínus 75
« kg flokki í kumite.
Jónína keppti einungis í kata
að þessu sinni. „Kata er orðabók-
; IhIHL - HMft idÉB - H . in í karate,“ sagði hún — menn
- r | Ifgr *** ‘ " sýna staðlaðar æfingar. „Það er
jafnvægi, öndun og snerpa sem
dómararnir horfa fyrst og fremst
á. Þá þarf að vera taktur í æfing-
unum, hrynjandi — ef hún er flöt
■ 1 er hún leiðinleg á að horfa.“
Jónína sagðist hafa tekið til
. ... æfingar á ný þremur mánuðum
eftir að Brynjar fæddist. „Ég fór
rólega af stað og það var ekki
fyrr en fyrir um einum mánuði
sem mér fannst ég vera orðin góð
aftur. Fyrir hálfum mánuði fór
ég svo að æfa á fullu fyrir mótið. Ég ætlaði ekki að keppa; fannst ég andlega ekki nógu vel stemmd,
Morgunblaðiö/Sverrir
Jónína Olesen ásamt syninum Brynjari Konráðssyni, sem átti tíu mánaða afmæli á laugardaginn. Sá.Iitli virð- ekki nogu orugg. En eg se svo
ist kunna vel að meta verðlaunagrip móður sinnar en tekur þó öllu með stóískri ró. sannarlega ekki eftir þvi.
Síðan birti til í íslenska hópnum
— þegar kom að úrslitum í kata
og einstaklingskeppninni í kumite:
Jónína var í öðru sæti eftir undanúr-
slitin í kata, og hélt því sæti, og
munaði litlu á henni og sigurvegar-
anum. Anna Carlsdóttir og Hildur
Svavarsdóttir kepptu báðar um
brons í kumite-keppninni, hvor í
sínum flokki, en urðu reyndar báðar
að sætta sig við tap. Halldór Sva-
varsson gerði sér hins vegar lítið
fyrir og nældi í gull, sem fyrr seg-
ir, Helgi Jóhannesson hlaut silfur
og Sölvi Rafnsson og Konráð Stef-
ánsson hlutu bronsverðldun.
Iielgi og Konráð voru í -75 kg.
flokki. Helgi fékk silfur án þess að
vinna glímu; sá sem hann átti að
mæta fyrst mætti ekki þannig að
hann komst beiht í úrslit þar sem
hann tapaði, 0:4, fyrir Hannu Hak-
ala frá Finnlandi. Konráð tapaði í
byijun fyrir Hakala, en fékk upp-
reisnarglímu. Sigraði þá Jens P.
Jenssen frá Danmörku, 3:2, og náði
þriðja sætinu. Var það vel að verki
staðið hjá Konráð, því Jens þessi
hafði tapað naumlega fyrir Hakala,
6:5.
■ Úrslit/B 6.
„Allt gengið upp í ár“
Með gull í hendi!
Morgunblaðiö/Sverrir
Halldór Svavarsson á efsta verðlaunapalli, fyrstur íslendinga á Norðurlanda-
móti. Honum á hægri hönd er Sölvi Rafnsson sem varð í þriðja sæti og Halldóri
á vinstri hönd, á palli númer tvö, er Finninn Ari Rasánen, sem var lagður að velli
í lokabardáganum.
- sagði Norðurlandameistarinn Halldór
Svavarsson að loknum frækilegum sigri
„ÉG vonaði auðvitað að ein-
hver okkar næði að vinna gull,
en hugsaði þó ekkert sérstak-
lega um það. Ég stefndi bara
að því að gera mitt besta,“
sagði Halldór Svavarsson, ný-
bakaður Norðurlandameistari í
kumite, í samtali við Morgun-
blaðið eftir að hann hafði tekið
við gullverðlaununum á laugar-
daginn.
Flemming landsliðsþjálfari þurfti
að hverfa af landi brott á laug-
ai'dagsmorgun, vegna vinnur sinnar
í Skotlandi. Sagði Halldór það hafa
haft slæm áhrif á hópinn — „það
sló ntenn út af laginu. Enda gekk
okkur hroðalega í liðakeppninni.
Við erum reyndar allir svo litlir, það
eru yfirleitt stærri menn í liða-
keppni því hæð og þyngd hjálpar
þar mikið til. Okkar stóru menn eru
annað hvort meiddir eða að draga
sig í hlé frá keppni. Þetta var eigin-
lega nýtt lið sem við vorum með.“
Halldór var að vonum ánægður
með árangur sinn, en þó hógvær:
„þetta gekk ágætlega hjá mér! Fyr-
ir keppnina stefndi ég að því að
gera mitt besta. Spila af fingrum
fram, en liugsaði ekki um neitt
ákveðið sæti. Nú vona ég að þetta
fari að ganga hjá mér. Ég hef ekki
unnið markvisst að keppniskarate
nema síðasta árið. Það hefur nú
skilað-árangri og ég er auðvitað
mjög ánægður. Eg hef alltaf æft
vel en einhvern veginn hefur mér
samt ekki gengið vel á mótum fyrr
en nú að undanförnu. Andlega hlið-
in hefur oft brugðist hjá mér, en
allt gengið upp í ár,“ sagðiHalldór.