Morgunblaðið - 17.10.1989, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1989.
B 5
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
Róbert Rafnsson, leikstjórnandi IR-liðsins, er hér búinn að lyfta sér vel
upp og síðan lá knötturinn í netinu hjá HK-mönnum.
Meistara
heppni?
KR-ingar héldu uppteknum
hætti þegar þeir léku gegn
meisturum Vals. Eins og gegn
Víkingum á dögunum náðu
KR-ingar að knýja fram sigur,
21:20, á spennandi lokamínút-
um. Valsmenn voru yfir, 19:20,
þegar þrjár mín. voru til leiks-
Íoka. Pálí Ólafsson (eldri) jafn-
aði, 20:20, en síðan mistókst
Valdimar Grímssyni að skora
úr vítakasti fyrir Val - skaut
framhjá þegar 1,55 mín. voru
til leiksloka.
Mikill darraðadans var stigin á
fjölum Laugardalshallarinn-
ar undir lokin og náði Stefán Kristj-
ánsson að skora sigurmark' KR,
■■■■■ 21:20, eftir send-
SigmundurÓ. ingu frá Páli Ólafs-
Steinarsson syni, þegar 1,18
skrifar mjn_ voru eftir.
Leikurinn var
köflóttur og náðu leikmenn liðanna
ekki að skora mark langtímum sam-
an. KR-ingar gerðu t.d. ekki mark
í níu mínútur þegar staðan var,
14:12, en Valsmenn skoruðu þá
fjögur mörk og komust yfir, 14:16.
Þá var komið að þeim að skora
ekki mark í 9,30 mín. og KR-ingar
náðu að jafna, 16:16. Eftir það var
jafnt á öllum tölum upp í 20:20.
Eftir leikinn varð einum að orði
að meistaraheppnin væri með KR.
Það getur vel verið að meistara-
keppnin sé nieð vesturbæjarliðinu.
KR-ingar hafa burði til að tryggja
sér Islandsmeistaratitilinn. Þeir
hafa tvo snjalla markverði, Leif
Dagfinnsson og Gísla Felix Bjarna-
son, sem hefur mikið að segja í
harðri baráttu. Páll Ólafsson (eldri)
hefur engu gleymt. Hann stjórnaði
sínum mönnum eins og hershöfðingi
og skoraði mjög þýðingarmikil
mörk. Konráð Ólavson var einnig
mjög góður, hreyfanlegur og fljót-
ur. Leifur Dagfinnsson varði vel
undir lokin - t.d. skot frá Brynjari
Harðarssyni, eftir hraðupphlaup.
Sigurður Sveinsson sýndi skemmti-
lega takta í horninu hjá KR.
Brynjar Ilarðarsson leikur lykil-
hlutverk hjá Val. Skorar mikið af
mörkum, en er stundum of bráður.
Sóknarleikur Vals er ekki nægilega
skipulagður. Of mikið er um hnoð
leikmanna. Þar af leiðandi eru
hornamenn Vals ekki eins ógnandi
og áður. Valsmenn skoruðu ekki
nema þijú mörk úr hornum.
HANDKNATTLEIKUR / SVIÞJOÐ
Saab og Drott ósigruð
Þorbergur Aðalsteinsson og félagar hans hjá Saab unnu góðan
sigur gegn Víkingana í Helsingborg, 23:18. Þorbergur skoraði
tvö mörk fyrir Saab, sem er taplaust ásamt Drott eftir tvær umferðir
í „Allsvenskan." Gunnar Gunnarsson og félagar hans hjá Ystad töp-
uðu, 15:21, fyrir GUIF í Eskilstruna.
Frábær sóknamýting
ÍR-ingar skoruðu tólf mörk úr þrettán sóknum þegar þeir slógu HK út af laginu og unnu, 30:22
Frosti Guðlaugsson Magnús Ólafsson. Matthías Matthías
son.
„STRÁKARIMIR léku vel. Það
var góð barátta og stemmning
hjá þeim. Við vissum að HK er
mikið baráttulið. Því ákváðum
við að berjast enn meira en
þeir. Það tókst og við náðum
að slá leikmenn HK út af laginu
í byrjun seinni hálfleiksins,"
sagði Eyjólfur Bragason, þjálf-
ari ÍR, eftir að skemmtilegt ÍR-
lið hafði unnuð góðan sigur,
30:22, áHK.
Leikmenn ÍR-liðsins fóru oft á
kostum í Ieiknum og þá
sérstaklega 'í upphafi seinni hálf-
leiksins. IR yar yfir, 13:10, í leik-
■■■ hléi. Þegar ÍR-ingar
SigmundurÓ. settu á fulla ferð í
Steinarsson seinni hálfleik stóð
sknfar ekki steinn yfir
steini í vörn HK og
fljótlega mátti sjá stöðuna, 18:11.
ÍR-ingar léku leikmenn HIÍ grátt
og skoruðu mörk í öllum regn-
bogans litum. Sóknarnýting ÍR var
frábær fyrstu 20 mín. í seinni hálf-
leik. ÍR-ingar skoruðu þá tólf mörk
úr þrettán sóknarlotum, sem er
92,3% nýting. Eftir þennan sprett
var staðan_ orðin, 25:17.
Nýting ÍR-inga var góð í leikn-
um. Þeir skoruðu 30 mörk úr 46
sóknarlotum, sem er 65,2%. í fyrrri
hálfleik skoruðu þeir þrettán mörk
úr nítján sóknum, sem er 68,4%
nýting. í seinni hálfleik var nýting-
in 62,9%. Sautján mörk voru skoruð
úr 27 sóknarlotum. ÍR-ingar áttu
aðeins eina feilsendingu í seinni
hálfleik og einu sinni var dæmd töf
á þá.
ÍR með skemmtilegt lið
ÍR-liðið, sem er skipað ungum
og góðum leikmönnum, er mjög
skemmtilegt. Leikmenn liðsins leika
fjölbreyttan handknattleik og skor-
uðu falleg mörk af línu, úr hornum,
með gegnumbrotum og úr hrað-
aupphlaupum. Það sem vantar
einna helst hjá IR er öflug lang-
skot. Hornamenn liðsins Matthías
Matthíasson og Frosti Guðlaugsson
léku mjög vel - voru hugmundarík-
ir. Matthías skoraði sex mörk og
þá fiskaði hann fjögur vítaköst, sem
gáfu mörk. Magnús Ólafsson var
sterkur á línunni - skoraði §ögur
mörk úr fjórum skotum. Ólafur
Gylfason og Róbert Rafnsson voru
vakandi fyrir utan og þá gerði Orri
Bollason ágæta hluti.
„Það eru margir góðir leikmenn
í okkar herbúðum, en okkur vantar
fleiri reynda leikmenn. Við höfum
nú stuttan tíma til að brosa. Leikum
gegn Stjörnunni í Garðabæ á mið-
vikudaginn," sagði Eyjólfur Braga-
son, þjálfari ÍR.
HK-Hðið náði ekki eins góðri
nýtingu og IR. Leikmenn liðsins
skoruðu 22 mörk úr 47 sóknarlot-
um, sem er 48,8% nýting. Of mikið
var um feilsendingar hjá leikmön'n-
um HK, eða alls þrettán í leiknum.
Magnús Sigurðsson og Róbert Har-
aldsson voru bestu leikmenn HK-
liðsins. Baráttan var góð hjá HK
framan af, en greinilegt er að
reynsluleysi háir leikmönnum Hðs-
ins. Það vantar meiri yfirvegun í
sóknaraðgerðir þeirra.
ÍHémR
FOI_K
■ MIKIL stenmming var í Selj-
arskóla þegar ÍR og HK mættust.
Sérstaklega voru stuðningsmenn
HK líflegir - klæddir í skrautlega
búninga, með fána og lúðra. Einn
var mættur með bandaríska fán-
ann. Hvers vegna er ekki vitað.
■ AFTUR á móti setti einn stuðn-
ingsmanna ÍR leiðinlegan blæ á
leikinn. Hann var mættur á staðinn
með bílaflautu sem ver tengt raf-
geymi. Flautaði maðurin í tíma og
ótíma og var eins og maður væri
staddur í umferðahnút í Seoul, en
ekki í íþróttahúsi. Ekki virtist mað-
urinn fylgjast með leiknum, heldur
kom hann á svæðið með þær hvat-
ir og hrella aðra með flautu sinni.
Hávaðinn var óbærilegur. Húsvörð-
ur verður að stöðva þessa þróun í
Seljaskólanum. Banna stuðnings-
mönnum IR að að mæta með bif-
reiðavarahluti til leiks. Þessi óbæri-
legi hávaði er frekar til að fæla
handknattleiksunnendur frá heldur
en að laða að.
Erlingur Kristjánsson skoraði tíu
mörk gegn Víkingum.
Víkingar
vinna
nyrðra
VÍKIIMGUR vann nauman sigur
á KA á Akureyri, 23:22, eftir
að staðan hafði verið jöfn í
hálfleik, 12:12. Fyrri hálfleikur
bauð upp á ágætan handknatt-
leik, þar sem knötturinn var
látinn ganga meðan síðari hálf-
leikur var hins vegar lengst af
hálfgerður farsi og munar þar
kannski mestu að dómarar
leiksins, Egill Markússon og
Kristján Sveinsson, misstu öll
tök á leiknum.
Það var jafnræði með liðunum.
upphafsmínúturnar uns Erl-
ingur þjálfari Kristjánsson hóf stór-
skotaárás sína og breytti stöðunni
úr 4:4 í 8:4 á 5
Magnús Már mínútna leikkafla.
skrifar Heimapiltar virtust -
fráAkureyri vera na tökum á
leiknum en óþarfa
fljótfærni þeirra ásamt baráttu
Víkinga gerði þau áform að engu,
Víkingar jöfnuðu á lokasekúndu
hálfleiksins með marki Bjarka úr
horni.
Síðari hálfleikur hófst með tveim-
ur þrumufleygutn Erlings en eftir
það var leikurinn Víkinga, þeir
komust í 19:15 um miðjan hálfleik-
inn og þó ekki skildi nema eitt.
mark í lokin var sigurinn tiltöluiega
öruggur. Leikur KA fór nefnilega
alveg úr böndum í takt við mistök
dómarattna, kollegar þeirra úr
Víkingi kláruðu sig betur og héldu
höfði.
Leikur þessi var ekkert augna-
yndi, að stórleik Erlings undan-
skildum. Hann hélt liði sínu á floti,
en eftir því sem kraftar þurru var
enginn til að taka eftir og liðið tap-
aði afar mikilvægum leik heima.
Víkingar státa af meiri breidd með
Bjarka sem aðalmann og fór vel á
að sami maður gerði einmitt hitt
mikilvæga 23. mark Víkings.
V-ÞYSKALAND
Bjami
markahæstur
Bjarni Guðmundsson var marka-
hæstur hjá Wanne-Eicke! með
fjögur mörk, er liðið tapaði 20:18
(11:11) heima gegn Grosswallstadt
um helgina. Michael
Root gerði átta
mörk fyrir gestina.
Gummersbach er
enn án sigurs og
gerði 15:15 jafntefli við Lemgo, en
þetta var fyrsta stig heimamanna.
Dusseldorf sigraði loks, vann
Fredenbeck 20:16. Kiel vann
Dormagen 29:24, Essen — Sehutt-
ewald 23:21 og jafntefli varð hjá
Milbertshofen og Weiche-Handew-
itt, 20:20.
Frá
JóniHalldóri
Garðarssyni
ÍV-Þýskalandi