Morgunblaðið - 21.10.1989, Síða 5

Morgunblaðið - 21.10.1989, Síða 5
4 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. OKTOBER 1989 MORGUNE íhOKTOBER 1989 B 5» Hvaöyiijum með listinni? Listamannaþing Bandalags íslenskra listamanna verður haldið næstkom- andi laugardag, undir yfirskriftinni „Listamaðurinn sem lærimeistari“. Verður þar fjallað um þær breytingar sem verða í menntun listamanna með tilkomu listaháskóla hér á landi. Brynja Benediktsdóttir, leikstjóri, var í sumar kjörin til að gegna starfi forseta Bandalags íslenskra listamanna. Er liún fyrsta konan sem því embætti gegnir, þótt saga bandalagsins nái aftur fyrir 1930. ,uff luin t ijfifiiffifiufutHU ! j Bi-ynja segir það hafa vafist lítillega fyrir sér hvort hún ætti að taka við þessu embætti, „en ég ákvað að „eyða“ mér í þetta embætti, sem er ekki svo lítii ákvörðun, ef maður ætlar að sinna því,“ segir Biynja. „Bæði er það að þetta er launalaust embætti og sem listamað- ur verður maður óvirkur á þeim tíma sem maður gegnir því. Ég hef getað hafnað verkefnum og ýtt öðrum á undan mér, frá því ég var kosin, 15. júní. Hef ég í staðinn reynt að sinna þessu embætti. Ég hef verið að lesa mér til, skoð- að sögu félagsins og tilgang, reynt að hugsa upp framtí- ðarstefnu. Samkvæmt lögum bandalagsins kemur tilgangurinn fram í þremur liðum. í þeim birtist mjög víðtækur skilningur: I fyrsta lagi, að styðja vöxt og viðgang íslenskra lista, bæði utan lands og innan. í öðru lagi, að gæta hagsmuna ísienskra listamanna og í þriðja lagi, að efla samvinnu með íslenskum listamönnum. Nú, frá því bandalagið var stofn- að, hefur það eflst — og ekki bara bandalagið, heldur hef- ur aðildarfélögum fjölgað. Þau eru nú níu með, hvert um sig um viðeigandi stjórnarskipulagi, sem sinna, að mínu áliti, fyrsta og öðrum lið. Svo ég fór að velta fyrir mér hvað væri eftir fyrir bandalagið sjálft. Mín niðurstaða er að það væru kannski fremur hugmyndafræðilegar og pólití- skar gerðir og um leið þriðji liðurinn; að efla samvinnu með íslenskum listamönnum. Kannski er það aðalmálið í dag, á þessum tímum sem fjölmiðlarnir hvolfa sér yfir listamennina og þeir jafnvel álpast til að skemma samvinnuna milli listgreina eða lista- manna, jafnvel með því að rægja hvern annan í glansmynda- blöðum. Maður hefur séð það gerast. Það er ægilegt að þeir skuli ekki skilja það að eini hugsanlegi hagnaðurinn að því kemur kannski fram í sölu blaðsins. Því miður virð- ist almenningur enn njóta þess að heyra fólk tala illa um hvort annað — svo ég orði það ljúflega. Það þarf líka sam- vinnu á milli listgreina. Grunnur leikhússins byggir á þess- arisameiningu, því þar koma svo margar listgreinar saman. í lögum bandalagsins segir að á tveggja ára fresti skuli efnt til þings. Þó ég sé ekki búin að vera nema tvo mán- uði, ætla ég ekkert að komast undan því, svo við verðum með þing núna 28. október. Þessi yfirskrift, „Listamaðurinn sem lærimeistari", kemur til af því að við verðum að skoða frumvarpið um listaháskóla og spurninguna í hverra hönd- um verður menntun og þjálfun listamannanna í framtíð- inni. Mér finnst sjálfri að hinir skapandi, fijóu listamenn, sem eru í fullu starfi, verði að hafa hönd í bagga með að sinna listnemum framtíðarinnar. Breytingar eru svo örar á okkar tíma — fjölmiðlafár, gervihnettir og tölvuvæðing hellast yfir okkur. Þessvegna, kannski, eru tímamótin svo skörp. Við verðum að endur- skoða svo marga hluti og horfa til framtíðarinnar. Ég held að það sem geti bjargað okkur frá því að drukkna í öllu þessu flóði, sé einmitt að sinna listum og efla þær. Banda- lagið ætti einmitt að vera það tæki sem við getum notað til að efla baráttuna fyrir því að listamaðurinn verði álitinn meira virði í þessu þjóðfélagi; litið verði á hans framlag sem verðmætasköpun. Til þess þarf hann að geta, af al- hug, sinnt listgrein sinni. Frumherjarnir hafa sannarlega lagt gundvöllinn að þessu öllu, en nú verðum við að hugsa upp á nýtt; stokka upp og finna nýjar leiðir." Þetta komandi listamannaþing verður haldið úti í Viðey. Ég vona að við getum eflt samvinnu milli listamanna og hinna ýmsu listgreina. Gamlar aðferðir, með alls kyns yfir- lýsingum og auglýsingum um málefni, virðast ekki fá hljóm- gninn. Við höfum ekki komið þeim hugmyndum að, sem við teljum eiga erindi í blöðin. Við verðum að finna aðra leið til að koma hugmyndum okkar á framfæri. Þá erum við náttúrulega komin að verkefnum okkar.“ - Hvers vegna er þingið úti í Viðey? „Kannski hugsa ég það eins og leikstjóri. I þessu emb- ætti haga ég mér eftir þeim forsendum sem ég get byggt á. Annars er það nú svo að ég er í þremur af þeim aðildar- félögum sem standa að Bandalagi íslenskra listamanna: Fyrir utan að vera í leikskáldafélaginu, er ég í leikarafélag- inu, leikstjórafélaginu og auka-aðili í Félagi kvikmyndagerð- armanna. Kannski er ég manneskjan sem ætti að geta komið á einhvers konar samstarfi milli listgreina. Eftir bátsferð út í eyjuna um morguninn verður aðalfund- ur bandalagsins. Við fáum að skoða húsið og ég þarf ekki að leita langt yfir skammt, því einn af félögum okkar, Þorsteinn Gunnarsson, leikari og arkitekt, mun segja okkur frá innviðum þess. Annar félagi, Ragnar Arnalds, mun segja okkur frá frumvarpi til listaháskóla, en hann var formaður nefndarinnar sem samdi það. En hann kemur ekki sem stjórnmálamaður, heldur sem félagi í Rithöfunda- sambandinu. Ég vona að þetta geti orðið skemmtilegt og gagnlegt þing — og ekki of alvarlegt, þótt ég voni að heit- ar umræður verði milii listamannanna.“ Starfsemi bandalagsins „í fyrsta lagi höfum við komið okkur upp aðstöðu. Rætt við Brynju Benediktsdóttur forseta Bandalags íslenskra listamanna um menntun, sköpun og endursköpun listamannsins Menntamálaráðuneytið afhenti herbergi á Laugavegi 24. Þar er ágætt gagna- og upplýsingasafn, sem listamenn hafa aðgang að. Skrifstofan hefur verið opin og verður opin fram að þingi í tvær klukkustundir á dag. Ég býst við að eftir það nægi að hafa hana opna tvo tíma í viku fyrir bandalagsfélögin, frá 14-16 á miðvikudögum. Þangað geta aðildarfélögin og aðrir leitað. Þegar ég var að lesa mér til um sögu félagsins frá fyrri árum, fann ég heilmikið af hugmyndum, sem margra hluta_ vegna hefur ekki verið hægt að hrinda í framkvæmd. Ég hef alltaf sagt í sam- bandi við leikstjórnina að það sé enginn vandi að fá góðar hugmyndir, en það er vandi að velja þær úr og fylgja þeim eftir. Vonandi eflumst við svo við getum sinnt ýmsum hugmyndum, eins og hugmyndinni um listaverkamiðstöð, sem er upphaflega frá Thor Vilhjálmssyni, þáverandi for- seta BÍL. Hún gengur út á það að bandalagið starfi sem einhvers konar umboð bæði við dreifingu og útfiutning á listaverkum. Þá á ég ekki bara við myndlist, heldur leik- list, ritlist og svo framvegis, fyrir öll aðildarfélögin." Útgáfa tímarits „Síðan erum við núna að kanna möguleikana á að gefa út faglegt tímarit, sem allar greinar eiga aðgang að — li- statímarit, um menningarmál. Hvert aðildarfélag gefur út sitt fréttabréf og það verður áfram. En þetta er spurning um umfjöllun um menningu, listir og pólitík og þá um leið upplýsingar um hvað er helst á döfinni. Við stefnum að því að gefa tímaritið út 3-4 sinnum á ári. Ef við höfum virka ritstjóm, hef ég engar áhyggjur af efninu. Það eru tæplega 1.500 manns í aðildarfélögunum, ef ég tel auka- aðildina með, þannig að það er stór hópur sem hefur áhuga á svona fagtímariti, bæði að skrifa í það og til að fylgjast með. Þetta er ekkert ný hugmynd, því ég held að öll fagfé- lögin hafi fóstrað hana. En ég held við yrðum sterkari ef wwwwiwfwiw við gæfum-fgffff* út sameiginlega." - Heldurðu að hér sé fjárhags- legur grandvöllur fyrir tímarit af þessú tagi? „Já, ef við náum til dæmis skylduáskrift, auk þess sem það yrði. selt í lausa- sölu.“ Listin sem verðmæta- sköpun - En þegar þú talar um alla möguleikana í sambandi við bandalagið, verð- ur manni hugsað til þess sem allir listamenn virðast sammála um, að hér sé svo harður markaður að fást við, að þeir megi hafa sig alla við í vinnu og útsjón- arsemi til að láta enda næstum ná saman. Verður hægt að fram- kvæma eitthvað? „Við búum við mjög frumstæða menningar- pólitík. Að við skulum ekki skilja hvílíka verðmætasköpun listamenn geta búið þjóðinni. Það er allt metið til peninga — og fyr- irgefðu — maður ólst upp við það að ein af sjö dauðasyndunum væri græðgi. Nú heitir hún ekki lengur græðgi, heldur frjáls- hyggja — og telst dyggð. Ef við viljum læra eitthvað af öðrum þjóðum, þá er nærtækt að líta til Finnanna sem halda uppi öflugri menning- arpólitík, enda hirða þeir flest verðlaun, þegar efnt er til alþjóð- asamkeppni. Nú, í sambandi við iðnað og útflutn- ing er þetta geysileg lyfti- stöng, vegna þess að listamennirnir koma þar að gagni, til dæmis í sambandi við hönnun og mark- -aðssetningu. Við höfum ver- ið að skoða listamannalaunin og ég hef þingað með formönn- um og stjórnum listgreinanna og það eru allir sammála um að leggja listamannalaun niður, í-þeirri mynd sem þau eru, því þau eru á vissan hátt niðurlægjandi og gangslaus. Þarfir listgreinanna eru mjög ólíkar. Leikarar geta ráðið sig við stofnanir og sinnt sinni list á launum, en rithöfund- ar, tónskáld og myndlistarmenn hafa enga staði til að leita til og kannski aðrar þarfir. Ég get nefnt Listskreytingasjóð sem dæmi. Hér hafa stjórnmálamenn verið að btjóta lög á listamönnum árum saman. Það hefur verið ákveðið að viss prósenta fari í List- skreytingasjóð á hveiju ári og það er 'efnt til samkeppna meðal myndiistarmanna um umhverfisverk. Síðan eru af- hent verðlaun, en aldrei hægt að reisa verkið því peningarn- ir sem eiga að fára í sjóðinn, fara. ekki þangað. Þeir fara allt annað. Þessir hlutir mæta alltaf afgangi.“ Skapandi og endurskapandi listamenn „Annars er eitt sem hefur alltaf farið í taugarnar á mér. Það er skilgreiningin á hinum skapandi og túlkandi listamanni. Ég held að við íslendingar séum dálítið aftur úr, því það er eins og eitthvert virðingarleysi felist í orðinu túlkandi, að túlkandi listamaður sé einhver annars flokks listamaður,- Ástæðan fyrir þessari skilgreiningu er barátta Jóns Leifs. Hann skipti þessu niður í þessa tvo flokka. Á þeim tíma var það nauðsynlegt, því tónskáld og rithöfund- ar náðu ekki inn launum fyrir verk sín, vegna þess að þeir voru ekki á staðnum við flutning þeirra. Aftur á móti leikarinn, söngvarinn og hljóðfæraleikarinn, sem komu á staðinn, fengu borgað sem performerandi listamenn. Því varð Jón að hafa þennan háttinn á, til að vekja skilning á því meðal almennings að vinnu rithöfundar og tónskálds yrði að launa. í dag mundi ég vilja kalla þessa tvo hópa skapandi lista- menn og endurskapandi, því sá leikari, til dæmis, sem W ékkf' skapandi í list sinni, er enginn leikari. Leikarinn heldur áfram að skapa og kannski er þetta allt endurskap- að. Hvaðan fær til dæmis höfundur hugmyndir sínar? Oft úr raunveruleikanum, en byggir líka alltaf á gamalli hefð eða fyrri verkum.“ Verksvið íramtíðarinnar „Virðisaukaskatturinn. Það er mál sem er mjög alvarlegt og er virkilega framtíðaianál bandalagsins. Ég vil virkja formenn aðildarfélaganna betur en verið hefur og að þeir komi meira inn í stjórn bandalagsins, ásamt forseta. Það tekur enginn að sér formennsku í fagfélagi nema afþví hann ætlar að sinna því um tíma og ég held að það sé miklu sterkara að þeir sitji í stjórn bandalagsins. Ef hug- myndir og ákvarðanir, sem teknar eru um sameiginlega hagsmuni listamanna, eiga að skila sér vei inn í aðildarfé- lögin, held ég að þetta sé nauðsynlegt ásamt útgáfu mál- gagns. Enn eitt atriði er þessi tortryggni sem ríkir milli lista- manna og almennings og milli Reykjavíkur og landsbyggð- arinnar. Ef við tökum Þjóðleikhúsið sem dæmi, þá er það leikhús allrar þjóðarinnar og auðvitað eigum við sem störf- um þar að hafa fjármagn til þess að vinna út um landið — fara með sýningar um allt. En það er varla að hægt sé að reka húsið eins og það er, hvað þá að efla aðra þætti, því miður. Þetta býður Reykvíkingum upp á viss forrétt- indi sem öll þjóðin borgar. En ég á mér eina hugmynd, sem ég ætla að reyna að koma í framkvæmd. Við, þessi siglingaþjóð, eigum fullt af kvótalausum skipum og skipum sem við vitum ekkert hvað við eigum að gera við. Því ekki að taka eitt af þess- um skipum og gera að einhvers konar „listagaleiðu" sem færi á hafnir í kringum landið. í áhöfninni yrðu fulltrúar allra listgreina, með undirbúnar sýningar. Við byijuðum á bryggjunum, færum síðan inn í félagsheimilin og þá staði sem um væri að ræða. En dagskráin byijaði í bæjunum, listafélögin og skólarnir á hveijum stað undirbyggju einnig sín prógröm, þannig að úr þessu yrðu menningarleg og listræn samskipti á báða bóga. Það er endalaus mötun í þessu þjóðfélagi og allir eru þiggjendur. En ef við gætum skiptst á að gefa og þiggja, held ég að það breytti miklu. Þó þetta væri ekki nema einu sinni á ári, til dæmis að vori fyrir Listahátíð og við mundum enda í Reykjavík við opnun hennat'. Þetta er vel gerlegt og þetta væri skip sem sigldi með vei'ðmæti. Þetta er auðvitað spurning um í hvað við viljum eyða fjármagni. Viljum við eyða því í að rækta garðinn um allt Íand? Listin er ekki hluti af lífinu hérna, ekki einu sinni í Reykjavík. Það hefur orðið aðskilnaður milli listsköpunar- innar og annarra félagslegra þátta. Sá sem ákveður að verða listamaður, velur sér hart líf, hann malar ekki gull. Listámcnn hér hafa verið kallaðir afætur, hér ríkja ölmusu- sjónarmið og talað er um aðstoð við listamenn. Þetta verð- ur að breytast — fólk verður að skilja að hér er um verð- mætasköpun að ræða. Og kannski er listin það eina sem getur bjargað okkur og er einhvers virði. Það að búa úti á landi kemur ekki í veg fyrir að menn geti verið virkir listamenn. Samgöngur og tölvuvæðingin sjá fyrir því. Þegar ég var að alast upp, fannst manni maður vera fæddur á hjara veraldar og lifa í ægilegri einangrun í óbyggilegu landi. En tímarnir eru svo breyttir að allt þetta sem við töldum til ókosta eru nú álitnir kostir, jafnvel þeir hlutir sem við seljum ferðamönnum; að slást við rigninguna og náttúruöflin.“ - Nú Ijallar komandi listamannaþing um frumvarp um listaháskóla. Það vekur upp hjá manni spurningar um hvað þér finnist um listauppeldi hér, fram að háskólastigi, og hvort þú álítur Bandalag íslenskra listamanna geta unnið að breytingum til batnaðar? „Þetta er allt samhangandi. Þessvegna finnst mér svo góð hugmynd formanns framkvæmdastjórnar Listahátíðar að efna til samkeppni meðal barna og unglinga um listsköp- un, bara það að fá þau til að sinna listuin. Þegar verið er að tala um tortryggni landsbyggðarinnar gagnvart Reykvíkingum, þá á hún sér auðvitað orsakir. Við hér í Reykjavík búum betur að því að geta sinnt þess- um þörfum. Það er alveg voðalegt og þarf að breytast. Við getum auðvitað sagt að landsbyggðin hafi mjög margt fram yfir okkur; það er hreina loftið, þögnin, náttúrufegurð- •in og margt annað — landsbyggðin er laus við bílafargan- ið og lætin. Landsbyggðin hefur óendanlega margt fram yfir Reykjavík.“ - En fyrir þá foreldra sem vilja að börnin þeirra hljóti eitthvert listauppeldi, til dæmis leiklist og listdans, dugar þetta ekki til- „Nei, það er rétt. Ef fólk á landsbyggðinni vill mennta börnin sín, verður það að senda þau í burtu, vitandi að þau koma ekki til baka, því það eru engir atvinnumögúleikar. Ef jafna á möguleika barna um landið til að eiga aðgang að listauppeldi, verður að gera listamönnum kleift að vinna út um allt land. Þeir möguleikar eru ekki fyrir hendi í dag. Það er ljóst.“ - Þegar við tölum um „listauppeldi“ er líka ljóst að hin- um skapandi þörfum er ekki sinnt í skólakerfinu hér. Það þykir ekki eins sjálfsagt að börn læri tónlist, leiklist, list- dans og myndlist eins og til dæmis stærðfræði, landafræði eða mannkynssögu. Til þess að hljóta þetta listauppeldi verða foreldrar að senda börn sín í sérskóla, sem oftar en ekki eru rándýrir. Er þetta ekki misrétti barna til náms — eða hvaða tekjuhópur er það sem getur staðið undir þessu uppeldi og getur bandalagið unnið að breytingum á þessum málum? „Bandalagið hefur endalaust verið með góðar tillögur um þessi mál, en hefur talað fyrir daufum eyrum. Við vei'ð- um að finna nýjar aðferðir til að hafa áhrif, því það er greinilegt að gamlar baráttuaðferðir duga ekki lengur. Það er ekki lengur nóg að fá góðar hugmyndir og koma með tillögur. Það þarf að fylgja öllu svo miklu fastar eftir í dag, því við erum að drukkna í tillögum um alla mögulega hluti. Þegat' við tölum um menningarpólitík og stefnu stjórn- valda í menningar- og menntunarmálum, eru það nákvæm- lega þessir hlutir sem við erum að tala um, en ekki ölmus- ur og greiðasemi og forræði. Við þurfum að fara að svara spurningunum um hvað við viljum með listinni, hveijir eiga að stunda hana og hverjir eiga rétt á á njóta hennar.“ Viðtal: Súsanna Svavarsdóttir Einat Gnðniundssnn skiiiai fiá Amsterdam: GENGH) A KÍNAMÚRINN T Listamannatvíeykið Ulay/Mar- ina Abramovic kemur fram und- ir hollenzku flaggi; hann (Uwe Laysiepen) er þýskur en hún júgóslafhesk, og hafa þau starfað saman síðan 1976; stór nöfn í Hollandi, sem náð hafa út fyrir þarlenda landsteina. Á þrammi um áströlsku eyðimörkina, 1980/81, fengu þau hugmyndina að ganga úr sitthvorri áttinni eftir og meðfram Kínamúrnum til að mætast á miðri leið. Þau höfðu heyrt, að eina mannvirkið sem geimfarar á tunglinu gátu greint á jörðu niðri væri Kína- múrinn. Göngunni ætluðu þau að gera skil með myndlistarsýn- ingu, kvikmyndum, myndbönd- uin og bók. — Árangurinn er nú sem sagt kominn í ljós; það var í Stedelijk Museum — aðrir við- komustaðir sýningarinnar eru Antwerpen í Belgíu, Sydney í Ástralíu, Diisseldorf, París og Montreal í Kanada, nær þetta sýningarhald fram til ársins 1991. Sýningin er kölluð „Elsk- endurnir“. il að hrinda hug- mynd sinni í fram- kvæmd höfðu Ulay og _ Marina Abramovic sam- band við Stedelijk- Museum-forkólfa. Og þar sem þau voru stjörnur í hollenzku listalífi á þeim tíma, 1983, leiddi það til þess, að sérstök stofnun var sett á lagg- irnar, Amphis Foundation, málefn- inu til fjárhagslegs stuðnings og annars halds. Málið þróaðist jafn- framt upp á það stig, að hollenzka ríkisstjórnin tók það upp á sína arma. Brinkmann, þá- og núver- andi menntamálaráðherra (mennta-, heilsu- og velfarnaðar- málaráðherra á hollenzku), impraði á möguleikanum, í opinberri heim- sókn. Að sögn Hollendinga stendur vagga skrifræðisins í Kína. I kínverska menntamálaráðuneytinu hittu Hollendingar fyrir afar vin- gjarnlega Kínverja, er brosandi sögðu þvert'nei við málaleitan. En á endanum reyndust vera króka- leiðir og smugur fyrirfundust. Það tókst með naumindum að koma á sambandi við Hið kínverska félag til stuðnings alþjóðlegri vináttu; hófust þá samningaviðræðuf, m.a. um fjármálahliðar þar sem græðgin í Kínveijum gekk alveg fram af Hollendingum — má þarna kannski segja að skrattinn hafi hitt ömmu sína. „Það voru miklir kynninga- rörðugleikar", skrifaði Frank Lubbers fyrir hönd Amphis Found- ation í myndarlega sýningarbókina, sem ber heitið The Lovers á frum- málinu. En eftir fimm ára langar umleitanir gátu Ulay og Marina Abramovic loksins hafizt fóta. Frá 30. marz til 27. júní 1988 þreyttu þau gönguna. Hún gekk frá Gula hafinu en hann lagði upp frá Góbí- eyðimörkinni. Múrinn teygir sig yfir rúmlega 4.000 kílómetra og þessari vegalengd' skiptu þau á milli sín. Farangur var þeim ekki til trafala, því kínverskir fylgdar- menn sáu um þá hlið. í fréttatilkynningu frá Stedelijk Museum sagði orðrétt þetta, innan gæsalappa: „Samkvæmt kínversk- um goðsagnafræðum er Múrinn dreki, er táknar kraft yfirborðs jarðar. Höfuð drekans, karllegi Ulay: Yfirlit, Elskendurnir. parturinn (eldur) er við Gula hafið, og halinn, kvenleikinn (vatn) er í Góbí-eyðimörkinni. Hinn mikli Múr fylgir leið drekans umhverfis jörð- ina. Á nútíma vísindavísu er Múr- inn byggður á kraftlínum. Lista- mennirnir tveir vildu gefa sig á vald þessum kröftum til þess að kanna hver áhrif Múrinn mikli hefði á þau.“ Um listamennina er það að segja að í Hollandi voru nöfn þeirra nefnd með lotningu er undirritaður dvaldi fyrst að ráði í Amsterdam, 1983. Þau koma úr performansgeiranum, eðli verka hafði með innbyrðis tengsl þeirra að gera, og jafnframt það að reyna á þolrif til hins ýtrasta. Til að mynda sátu þau saman, bak í bak, fléttuð saman á hárunum í sautján klukkustundir samfleytt. Öðrum klukkustundum samfleytt stóðu þau nakin í dyra- gátt, svipbrigðasnauð á meðan sýn- ingargestir þurftu að komast leiðar sinnar á milli þeirra. Þau voru tvisvar valin til þátttöku á Doku- menta í Kassel, árin 1977 og 1982; er þarna komin skýring á því hversu mikið hollenzkir hafa látið með þau. Fyrir Hollendinga skiptir það afar miklu máli, að; eignast stjörnur á heimsmælikvarða og er miklum fjármunum til kostað ár- lega. Kínamúrnum viðkomandi er það helzt að segja, að elztu lilutar hans eru taldir hafa verið reistir á fimmtu öld fyrir vestrænt tímatal. Frumástæða var, að skilja í sundur þrætugjörn, heimarík kínversk hér- öð, en svo fór þetta út í það, að verða varnarveggur gegn útlenzk- um djöflum (aðallega mongólum). — Seinni tíma saga Múrsins er að hluta til sú, að í menningarbylting- unni var hvatt til niðurrifs og al- múganum sagt að nota múrstein- ana til þess að reisa ný fjölskyldu- • hús. Það var því gengið á Múrinn. En svo fór Richard Nixon, Banda- ríkjaforseti tii Kína á sínum tíma. Hið útlendingafælna Kína hóf að opnast gagnvart umheiminum. Og þurfti þá að fylla upp í eyður hér og þar — sums staðar var það gert með frauðplasti svo sýna mætti erlendum ferðamönnum múrinn sem heillegastan. Kínveijar voru Ulay: Aukalit, Elskendurnir. áfjáðir í þann erlenda gjaldeyri sem ferðaþjónustuiðnvæðingu hlaut að fyigja. Andy Warhol lét það orð falla við vegginn, að hann væri „nice“. Hver áhrif Kínamúrinn hafði á listafólkið var sýningunni í Sted- elijk Museum ætlað að leiða í ljós. Sýningin fól í sér þáttaskilin^sem orðið höfðu í lífi listaparsins á langri leið frá fæðingu hugmyndar- innar til útfærslunnar. Elskendurn- ir voru hættir að elskast þá loksins er þau gátu hafizt handa um að ljúka verkefninu. Hollenzk gyllini, nokkrar milljónir að miklum líkind- um, þvinguðu skötuhjúin til þess að fara alla leiðina. Um var að ræða e.k. hjónaskilnaðarsýningu; einstaklingsbundin verk þeirra voru í aðskildum sölum. Marina Abramovic nefnir sitt tillegg Boat Emptying, Stream Entering og í greinargerð frá Sted- elijk Museum segir: „ . . . allri kjöl- festu hefur verið varpað útbyrðis, öilum ónauðsynjum fleygt fyrir borð, efnisþátturinn er í lágmarki þess sem komast má af með til þess að hleypa inn streymi nýrrar orku. Þessi upplifun nýrrar orku- hleðslu býður Marina sýningargest- um að njóta í formi objekta úr sér- lega eðlisleiðandi (varma-, raf- magnsleiðandi, o.s.frv.) efnurn sem eru kopar og kvarz.“ Meintir obj- ektar, um 30 talsins, voru festir upp á veggi þriggja sýningarsala og gestum boðin afnot af þeim, standandi, sitjandi eða liggjandi, til orkuhlcðslu . . . Þá var hún og með vídeóuppsetningu, þar sem minna var um að ræða abstrakta upplifun Kínamúrsins. „Ulay gefur sínum hluta sýning- arinnar yfirskriftiná The Wall, The Walk, The Alien, er skírskotar til vitundai' um verund hans á múrn- um, gönguna og framandleika í kínversku umhverfi. Nokkrir sýn- ingarmuna eru relief, rismyndir jákvæðra og neikvæðra -forma. Hann hefur einnig sett upp verk, sem byggir á eigin ljósmyndum teknuin á göngunni. Loks er lit- skyggnufrásögn af gönguferðalag- inu.“ (Tilvitnun er sótt í greinar- gerð frá SM.) Haustið 1988 héldu Mariná Abramovic og Ulay aftur til Kína tii þess að gera tvær kvikmyndir, sviðssetningar áður afrekaðrar Kínamúrsgöngu. Þessar tvær kvik- rnyndir voru svo sameinaðar í eina útgáfu; titillinn The Lovers — sýn- ingartími 52 inínútur. — Þar sem um ræðir leikna kvíkmynd, er helzti gallinn náttúrulega sá, að myndin var ekki gerð fyrir breiðtjald heldur tekin á 16 mm filmu. Vitaskuld hvarflar að manni, að óðum nálgist sá góði veðurdagur í Hollandi, þegar sagan af „Gömlu fötum keisarans“ verður skráð. En grófi dráttur sögunnar þeirrar er sá, að keisarinn klæddist svo gat- slitnum fötum, að um föt var naum- ast að tala, Tízkusérfræðingarnir sögðu hins vegar, að þetta væri einmitt móðurinn; „yðar keisara- lega hátign, þér eruð hæstmóðins og aðeins fífl sjá það ekki,“ sögðu ráðgjafarnir. Gömlu fötin keisarans voru svo gatslitin, að í rauninni stóð hann aðeins uppi á nærkiæð- unum. En enginn sagði neitt. Allir dáðust að gömlu fötum keisarans. Saklausum börnum var haidið inni á lokuðum dagvistunarstofnun- um . . . Af Kínvetjum er annars það að segja, að þeirra stjórnvöld hafa á sumrinu 1989 þvegið af sér þróun í lýðræðisátt með blóðbaði á Torgi hins himneska friðar, í Peking. Þessi stærsta þjóð heims, með stærstu dagblöð í heimi, er svo hrædd við erlend menningaráhrif (þeir taia um vestræna menning- armengun og miðla ekki því sem er að gerast í franskri myndlist eða þýzkum bókmenntum), að hún iok- ar gluggum og reisir um sig ósýni- léga varnarmúra; hin bendandi ör vísar því eðiilega í áttina til stein- aldarstigsins, vegna þess að aliur þvingaður menningarlegur sam- dráttur leiðir til hnignunat'. — En svo eru Kínvetjar vísast óskiljan- legir eins og íslendingar. Kínveijar geta ekki verið án dollara (erlendir ferðamenn gefa af sér 2,2 milljarða dollara og eru helzta tekjulind út- lends gjaldeyris), svo aldrei er að vita nema þeir geri út á hið ósýni- lega, eins og svo margar aðrar þjóðir. Ping-pong.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.