Morgunblaðið - 21.10.1989, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 21.10.1989, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1989 B 7 barna- og unglingabækur. Fyrir hver jól gefst kærkomið tækifæri til að tala um nýju bækurnar. Slík kynning getur opnað glugga til frekari bóklesturs. Það er til höf- undamiðstöð sem sendir höfunda í skólana til bókmenntakynninga og mér finnst þessi þjónusta of lítið notuð. Það er ekki nærri allir skól- ar sem sinna þessum þætti. Ég hef sjálfur farið nokkrum sinnum í skóla til að kynna mín verk. Það eru einhveijar ánægjulegustu stundir sem ég hef átt. Krakkarnir hlusta mjög vel og samræður á eft- ir eru mjög líflegar og skemmtileg- ar, því þörn eru svo ófeimin við að spyija og spyija. Þetta er ekki síð- ur mikilvægt fyrir höfundana en börnin. Mér finnst að allir grunn- skólar eigi að taka þetta upp og það er ekkert flókið að hafa upp á þessari rithöfundamiðstöð, því hún er á skrifstofu Rithöfundasam- bandsins. En í sögustundunum mínum í Hlíðaskóla geri ég ýmist að lesa eða segja sögurnar. Það er ekkert síður vel þegið að maður segi sögur. Með því er hægt að gera stóra atburði stærri og sleppa smáatriðum. Það getur verið nauðsynlegt þegar mað- ur er með mjög ung börn, því þau hafa ekki þolinmæði til að hlusta á öll aukaatriðin. Hjá eldri krökkun- um þarf söguþráðurinn að vera ítar- ** legri til að auka spennuna og draga hana á langinn. Ef börnum er sagt eitthvað sem grípur þau, þá læra þau að hlusta. Það er nefnilega hægt að vera í skóla og hlusta ekki neitt — eða að minnsta kosti illa.“ - Heldurðu að fólk geri mikið af því að segja börnum sögur í dag? „Nei, ég held að fólk gefi sér alltof lítinn tíma til að lesa eða segja börnum sínum sögur. En for- eldrarnir fara sjálfir svo mikil á mis ... óg fyrr en varir eru börnin vaxin úr grasi og farin að heiman," segir Armann hugsi. Hurð heyrist skellt og stúlkurödd kallar: „Afi!“ Það er sjálf ömmustelpa sem er komin heim úr skólanum — nú orð- in sextán ára og býr hjá afa. „Hún kom til okkar fimm ára í pössun og ílentist," segir Ármann. En mað- ur er farinn að skilja hvers vegna það er alltaf er fullt af börnum í kringum hann. En það er ekki bara svo að verk hans séu hluti af uppeldi íslenskra barna, því bækur Ármanns hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál. „Niður um strompinnn" og „Vík- ingaferð til Surtseyjar" voru þýddar á rússnesku og seldust í 100.000 eintökum á einni viku. Þetta finnst Ármanni skemmtilegt og segir: „Maður veit að þetta er stórt land og þar búa margir, en samt er það er hálfgert sjokk að heyra svona tölur og ég hefði aldrei trúað þessu ef þýðandinn minn hefði ekki skýrt mér frá því bréflega. Mér fannst þetta mikið ævintýri. Myndin sem aldrei var máluð Árið 1964 var Víkingaferðin þýdd á norsku og fékk það ár „Sol- fugls-verðlaunin", fyrir þýdda barnabók og enn eru bækur Ár- manns að koma út í Noregi. í næsta mánuði er væntanleg ein nýrri bóka hans „Hundakofi í para- dís“. Það mun vera fimmtánda bók- in sem gefin er út í norskri þýð- ingu. Ég spyr Ármann hvaða áhrif öll hans verðlaun og viðurkenningar hafa haft á hann. „Það má kannski segja að ég hafi notið mikillar velgengni og þar kom að ég fór hugsa um hvaða til- gangi ég þjónaði sem rithöfundur. Og ég á mér einn draum. Hann er sá að mín ritstörf verði öðrum hvatning til að skrifa bækur fyrir börn og unglinga og ég velti því lengi fyrir mér hvað ég gæti lagt af mörkum til þess. Þegar ég varð sextugur, ætlaði fjölskyldan að láta mála af mér mynd, en það varð ekkert úr því. Þegar ég varð sjötugur kom þettá sama vandamál upp, en þá fékk ég þessa hugdettu; að stofna til barna- bókaverðlauna í sambandi við eitt- hvert forlag. Markmiðið með þess- um verðlaunum var að stuðla að auknu framboði á góðu íslensku lesefni fyrir börn og unglinga. Fjöl- skyldunni leist vel á þéssa hugmynd og árið 1985 voru þessi verðlaun stofnuð í samvinnu við Vöku/ Helgafell. Síðar kom Barnabókaráð til liðs við okkur, íslandsdeild IBBY-samtakanna, Barnavinafé- lagið Sumargjöf og menntamála- ráðuneytið. Þessi keppni hefur farið fram úr mínum-glæstustu vonum. Nú þegar hafa fjórar bækur hlotið verðlaun og verið gefnar út. Þetta eru allt fyrstu bækur höfundanna; fyrsta bókin var Emil og Skundi eftir Guðmund Ólafsson, árið 1986. Næsta ár á eftir skrifaði Kristín Steinsdóttir Franskbrauð með sultu og vann. Þriðja bókin var Fugl í búri eftir Kristínu Loftsdóttur og síðastliðið vor vann Heiður Baldurs- dóttir verðlaunin fyrir Álagadalinn. Og nú þegar eru handrit farin að berast í næstu keppni." - Hvað er það helst sem gerir barnabók góða? „Mér finnst þurfa skemmtilega atburðarás, sem er svona hæfilega margslungin og að í sögunni sé eitt- hvað sem höfðar til lesandans, það er að segja, að efni bókarinnar veki hann til umhugsunar. Þó er ég al- veg á móti því að bækur feli í sér einhvern siðaboðskap, því krakk- arnir verða sjálfir að læra að draga ályktanir af atburðum sögunnar." - En að lokum Ármann, ég man eftir framhaldsleikriti í útvarpinu eftir þig, Árni í Hraunkoti, og þú hefur öðru hveiju fengist við leikrit- un. Nú hef ég heyrt að þú sért búinn að skrifa nýtt unglingaleik- rit. Um hvað er það? Ármann setur upp leyndardóms- fullan svip og segir: „Ætli það sé ekki óhætt að segja að krassandi atvik, sprell og undarlegar uppá- komur séu rauði þráðurinn í leikrit- inu. Persónurnar eru sóttar til nem- enda, kennara og annars starfsfólk í skólum. Ég skrifaði þetta leikrit fyrst og fremst með það markmið fyrir augum, að vekja gleði og kátínu áhorfenda. En hvort það hefur tekist verða aðrir að dæma.“ Það er ljóst að Ármann kærir sig ekki um að of mikið sé sagt frá efni leikritsins að svo stöddu, en þar sem mér finnst þetta undarlega þunn lýsing, vélaði út úr honum handritið og ætla' að leyfa mér að segja að þetta er lifandi gamanleik- ur um nákvæmlega það fólk- sem Ármann talaði um; nemendur, kennara og annað starfsfólk í skóla. Þetta er hið skrautlegasta „gengi“. Þótt Ármann segist gerast gamall, er þess ekki að merkja á þessu nýjasta verki hans, því honum tekst jafnvel og áður að skapa hrek- kjalóma, ólátabelgi, skvísur og dísir og málfar unglinga þekkir hann eins og handarbakið á sér. „Veistu," spyr Ármann þegar ég er að kveðja hann. „Ein bóka minna heitir „Mamma í uppsveiflu". Aðal- efni sögunnar eru krakkar í grunn- skóla sem fá þá hugdettu að stofna og starfrækja leikhús til að safna peningum í sérstöku augnamiði. Með brennandi áhuga og aðstoð kennara síns og fleiri góðra manna tekst þeim að hrinda hugmynd sinni í framkvæmd. Drýgstan hlut að máli á borgarstjórinn í Reykja- vík. Og barnaleikhúsið tekur til starfa með pomp og prakt. Það hefur lengi verið draumur minn að áhugafólk og leikarar taki höndum saman og stofni slíkt leik- hús. Ég er sannfærður um að það mundi örva til dáða, og þá ekki síst ungt fólk og ég skil ekki afhveiju hér er ekki starfrækt barna- og unglingaleikhús. En ég vona að ég fái að sjá slíkt leikhús verða að veruleika, áður en langt um líður.“ Viðtal: Súsanna Svavarsdóttir Frá opnun Baselmessunnar. Einar Gubmundsson skrifarfrá Munchen: OKT,- NÓV,- DES. Það eru ávallt langlokumál þar sem verið er að telja upp marga ólíka hluti. í þessu tilviki eru það helztu myndlistarsýningar vest- ur-evrópska svæðisins sem komast á blað, og það eru þrír lokamánuð- ir ársins 1989 er njóta heiðursins. Amsterdam. Frá 24. okt. til 25. febr. er Amsterdams Historisch Museum með sýningu er Qallar um sögu homma og lesbía í Hollandi. Stedelijk museum: U-ABC, Urugu- ay, Argentíná, Brasílía og Chile; ungir listamenn frá þessum svo- nefndu löndum hins þriðja heims — til 12. nóv. — Rijksmuseum Vinc- ent van Gogh: Til 10.12. — Frank Auerbach, málverk og teikningar; listamaðurinn vann til gullljóns, ásamt Sigmar Polke, á Feneyja- bíennal ’86. Baden-Baden. Að lokinni sýn- ingu Donalds Judds tekur við mál- ari tréskurðarverkanna, Stephan Balkenhol og stendur hans sýning yfir frá 28.10. til 3.12. Basel. Baðendurnir; Poul Céz- anne, til 10.12. Cézanne er nefndur faðir nútímalistarinnar. í ár eru 150 ár liðin frá fæðingu hans, og því eru 150 málverk, vatnslitamyndir og teikningar af baðandi fólki úr opinberum söfnum og einkasöfnum Evrópu, Sovét- og Bandat’íkjun- um, Japan og Ástralíu. Berlín, gervihjartað, dettur út að þessu sinni. Bern. Kunsthalle: Michelangelo Pistoletto, 21.10. til 3.12. Brussel í Belgíu er haldin hátíð- arveiru sem brýst út á tveggja ára fresti. Nú í ár er Japan miðpunktur svonefndrar „Eurófalíu“ — það eru um það bil 40 japanskar listsýning- ar í gangi fram til 15. des. þar sem verið er að kynna föstu liðina í fari listfengis hinnar skáeygðu þjóðar. Darmstadt. Frá Warhol til Basel- itz, grafík til 19.11. Dusseldorf. Kunstsammlung N.ordrhein-Westfalen: Til 29. okt. eru til sýnis málverk eftir Spán- veijann Antoni Tapies, og þar á eftir frá 18.11. — 7. jan. ’90 eru skúlptúrar eftir Tony Cragg. — Það er engin ástæða að nefna hvað er að gerast hjá dr. Svetska í Kunst- verein, en Stadtische Kunsthalle (tvær listastofnanir undir sama þaki) er með yfirlitssýningu á verk- um eftir Richard Artschwager, sem stendur til 12. nóv. Eindhoven/Holland. Van Abbe Museum: améríski listruglarinn All- an McCollum sem býr til verk er samanstanda af tíu þúsund inn- Josef Felix Muller: „An titils" Ixindon — eftir Köln fer hún til Mílanó og Parísar. Stendur þessi sýning frá 21. nóv. ’89 til 11. febrúar 1990 í Museum Ludwig. — Á tímanum frá 16. til 22. nóv. fer fram hinn 23. listamarkaður, Art Co- logne. 185 gallerí taka þátt; sérlegir gestir eru 30 ung, alþjóðleg gallerí. Föstudag- inn 17. nóv. eru öll helztu gallerí borgarinnar með opn- anir á myndlistarsýningum í óbeinum tengslum við list- messuna; má kannski telja upp sem örfæst dæmi úr aragrúa: Galerie und Editi- on Hundertmark sýnir Arnulf Rainer — Paul Maenz er með Anselm Kiefer — Michael Werner verður með verk eftir Marcel Broodthaer. — í Köln- ischer Kunstverein, frá 12.11. til 7.1. ’90, eru valin verk frá 25 ára ferli galleristans Rolf Ricke, en hann skartar nöfn- um eins og Artschwager, Judd, Nauman, Gerhard Richter, Rosenquist, Ruckriem, Serra ... nokkrir upptaldir af 35 listamönn- um. London. Serpentine Gallery: 12.12. ’89 til 28.1. ’90, Alexander Rothchenko. Maastricht/Holland. Bonnefant- enmuseum: Robert Mangold, ný málverk, til 28.1. ’90. Munchen. Kunsthalle der Hypo- Kulturstiftung: Egon Schiele og samtíð hans, til 7.1. ’90. Lenbach- haus: Karl Schmidt-Rottluff (1884-1976), yfirlitssýning, til 3. des. Neue Pinakothek: Hollenskar teikningar frá 16. öld, 22.11. til 21.1. ’90. París. Centre Georges Pompidou: Bram van Velde, 19.10. til ára- móta. Musée d’Art de la Ville de Paris: Til 31.10. stendur sýning Nam June Paik (innan ramma samnings við Parísarborg vegna tvö hundruð ára afmælis frönsku byltingarinnar). Frá 27.10. til 28.1. ’90 stendur yfirlitssýning á fyrir- bærinu konseptlist. Rotterdam. Museum Boymans- van Beuningen: Gerhard Richter, fimmtíu nýleg málverk, 14.10 til 3.12. Schaffhausen/Sviss. Hallen fur Neue Kunst: Sammlung CREX, • Dan Flavin, eldri verk, og Robert Mangold, nýjar myndir, til 31.10. og tekur þá við vetrarfrí. Stokkhólmur. Moderne Museet: Til 20.11. Earth and Freedom — Latin American Art from 1820-1970. Kandinsky og Svíþjóð — Malmö 1914, Stokkhólmur 1916, 26.12. til 18.2. ’90. Hilma af Klint: •Secret Painting, 26.12. til 18.2. ’90. Stuttgart. Staatsgalerie: 150 ár ljósmyndunar, 11.11. til 14.1. ’90. Vín. Wiener Secession: Daniel Buren, intallasjón í 600 rúmmetra salarkynnum, 10.11. til 17.12. C.O. Paeffgen: „Helmut Kohl kanzlari og eiginkona Zurich, sem upphaflega er komin frá Stuttgart, hvar metaðsóknin fór yfir töluna kvartmilljón. Köln. í Museum Ludwig er senni- lega viss hápunktur í sýningahaldi meginlands Évrópu á síðustu þrem- ur mánuðum ársins. Það er um að ræða fyrstu stóru yfirlitssýningu á verkum Andy Warhol, en hann lézt árið 1987. Þessi sýning kemur frá Museum of modern art í New York; var í Chicago og nú síðast í Zurich. Kunsthaus: Yfirlitssýn- ing á verkum Salvadors Dali lýkur þann 22. okt. Frá 13. okt. til 12. nóv. er „Video-Skulptur, retro- spektiv und aktuell". Þessi sýning var upphaflega sett saman í Köln og hefur þegar birzt grein um hana í Lesbók Morgunblaðsins. Frá 17. nóvember til 18. febrúar næstkom- andi er yfirlitssýning á verkum Wols.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.