Morgunblaðið - 10.11.1989, Síða 8

Morgunblaðið - 10.11.1989, Síða 8
8 D MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989 HEILSA Birtaerallt semþarf Hver sá sem hefur ferðast flugleiðis um langan veg kannast við hversu erfitt getur verið að yf irvinna tímamismuninn og suma tekur allt upp í tvo sólarhringa að jafna sig eftir flugferð t.d. frá Tókíó til Lundúna. En við sáum það nýlega í bresku tímariti að banda- rískir vísindamenn við Harvard-háskólann telja sig vera búna að finna lausnina á þessu vandamáli — lausn sem þeir fundu reyndar við rannsóknir á svefnerfiðleikum manna. Niðurstaðan var sú að fengi fólk mikið og sterkt Ijós í fimm klukkustundir, á þeim tíma sem það vanalega væri sofandi, myndi líkaminn jafna sig og starf- semi hans verða í samræmi við daglegt vökuástand. Meðal ann- ars breytist starfsemi þvagfær- anna við þessa birtu úr því lág- marki sem hún er í þegar við erum sofandi. Og þá er bara fyrir þreytta ferðalanga sem eiga í vandræð- um með að aðlagast breyttum tíma sólarhringsins eftir stremb- ið ferðalag, að óá sér í sem mesta birtd og það sem fyrst eftir lendingu. Drífa sig helst beint af flugvellinum og á strönd- ina sé hægt að koma því við. í hnotskurn Mér finnst lífið hafa verið gott og ríkt þó það hafi oft verið svo (erfitt að„maður hafi varla getað hugsað sér næsta dag. Ég gifti mig í þriðja sinn hér á Húsavík. Það var átta ára gömul telpa sem leiddi okkur saman, mig og mann- inn sem ég átti þá. Þessi litla telpa sótti mikið til mín og það endaði með því að ég lofaði að sjá til með heimili föður hennar um tíma en giftist honumsvo. Ég hafði þá enn trú á því að hægt væri að byggja hjónaband á gagnkvæmu trausti og vináttu. En þarna datt ég í éinn pottinn enn og og vínið átti enn sinn hlut í því. Það ætti að vera óieyfilegt einni manneskju að leggja of mikið á sig en þetta gera því miður flestar konur sem búa með drykkjumönnum. Þetta hjóna- band varaði í þrjú ár. Þá var það ekki hægt meir og þyngst féll mér að skilja við telpuna. En hún hefur verið mér trygg og hefur alltaf samband við mig, hún er tvítug núna. Það þýðir svo lítið að skipu- leggja í þessu lífi, það er eins og það sé togað í streng. Ég held að manni séu gefin ávkeðin spil á hendur en maður geti svo að ein- hverju leyti ráðið hvernig spilast úr þeim. Það er ekki aðalatriði hverju maður mætir í lífinu heldur hvernig maður tekur því og hvað maður gerir sér úr þyí. Ég hef þrátt fyrir allt verið lánsöm, ég hef það gott í dag og bý með góðum og traustum manni, Helga Héðins- syni. Ég hef ákaflega gaman af að ferðast og hef nú á síðustu árum getað látið það eftir mér. Ég gæti, best trúað að ég fái mér aldrei nýja eldhúsinnréttingu í gamla húsið mitt hér á Húsavík, ég held ég ferðist fyrir peningana. Það er nefnilega svo margt sem hægt er að njóta og hafa gaman af. Tilvera mín hefur veri marg- breytileg og ég hef stundum séð ýmislegt sem aðrir ekki sjá, svo sem framliðið fólk. í litlu húsi sem ég bjó í á Akranesi sá ég t.d. mjög oft gömul hjón sem mér þótti orð- ið vænt um. Ég lýsti þeim fyrir séra Jóni Guðjónssyni og hann þekkti þau mæta vel af lýsingunni. Mér er minnisstætt hvað konan gekk létt um. Einnig verð ég vör við einhvers konar orkustrauma í kringum mig og get stundum áttað mig á skapgerð fólks eftir þessum sveiflum. Oft hef ég fengið hugboð um ef eitthvert mótlæti er í vænd- um, bæði í einkalífi og í starfi. Fyr- ir þessu eru engin rök en þetta er reynsla mín. Á svona lífsreisu verður maður kannski brot af sál- fræðingi ef maður hefur einhvert innsæi til að bera. Maður verður kannski líka svolítið brot af skáldi. Ég hef alltaf haft gaman af Ijóðum og fyrir tæpum tíu árum tók ég að mér að hafa fastan vísnaþátt í Víkurblaðinu. Það hefur gengið bærilega og veitt mér ánægju- stundir. Árið 1984 gaf Víkurblaðið út eftir mig Ijóðabókina Hraun- gróður. Hún er fyrsta bókin sem er algerlega unnin hér heima í héraði“ Að skilnaði gaf Brynhildur Bjarnadóttir mér Ijóðabók sína Hraungróður. Ég lýk þessum skrif- um með hluta af Ijóði hennar Á hljómleikum. Frá uppsprettu voldugri ymur um salinn ástriða, fegurð, hryggð og gleðin. Svo hljóðnar og hljómsprotinn fellur., , Undarlegt bergmál. - Þú skynjar að allt sem þú hlustaðir á var endurkast þinna eigin sálarstrengja. Ólgandi hljómkviða úr hjarta þíns dýpstu leynum. Öldurót, brimgnýr, blátærir dagar. Líf þitt i hnotskum. Guðrún Guðlaugsdóttir SIMYRTING Nýtt f rá Biodroga Nýlega kom á markað Biodroga No 1, nokkurskon- ar gel sem á að vera fyrir- byggjandi gegn hrukkum og mýkja djúpar hrukkur og fínar línur. Biodroga No 1 inniheldur engin litarefni og er ofnæm- isprófað. Hæfir bæði ungum og rosknum og má nota kvölds og morgna undir dag- eða næturkrem. HYDRA SWISS með kavíar Fyrir skömmu var kynnt hér á landi krem frá La Pra- irie í Sviss sem heitir HYDRA SWISS. Kremið lítur út eins og kavíar, þar sem efnaþætt- irnir eru varðveittir í perlu- laga gelatínhjúpi. Reyndar er líka að finna kavíarupplausn í HYDRA SWISS. Kremið á meðal annars að styrkja húðina, gera hana stinna og endurbæta blæ hennar og lit, Mælt er með því að kremið sé notað á morgnana undir farða. Svitalyktar- eyðir fyrir herra í vor kom á markað Ben- etton-herralína. Fram til þessa hefur verið haégt að fá rakspíra, Eau de toilette, svitalyktareyði í úðabrúsa og líkamssápu. Nú fyrir skömmu bættist við fyrir herra svitalyktareyðir í föstu formi. Þar sem alkó- hólmagn er mjög lítið á það að koma í veg fyrir ertingu. % 50 o ----------1 I I l , ,J J I 16-24 24-29 30-34 35-39 40-49 50-64 65 + PARAGRAPHICS Lyktarskyn kvenna Fyrir nokkru var í Bandaríkjunum gerð rannsókn á lyktarskyni kvenna. í Ijós kom að konur á fertugsaldri hafa hvað næmast lyktarskyn. Kannrki er þetta ástæðan fyrir því að svo margar ungar kon- ur úða á =:g alltof miklu ilmvatni?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.