Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR1990 B 3 Heimilisbókhaldið hefur reynst mörgum gagnleg leið til að skipu- leggja betur rekstur heimilisins. Fyrir þá sem stefna að því marki er jaf nframt ýmislegt annað sem komið getur að góðu gagni og vert er að gefa gaum að. Hér á eftir er drepið á nokkrum nytsam- legum atriðum. Raggý Guðjóns- dóttir gaf Morgunblaðinu góð ráð en einnig er hér að hluta stuðst við upplýsingar úr máigagni Neyt- endasamtakanna, Neytendablað- inu, 2.tbl 1988. Matvörukaup í asanum við matarinnkaupin gleyma margir að gæta að því hvort síðasti söludagur matvæla sé runninn út og lenda því stund- um í því að kaupa matvæli sem samkvæmt neytendamerkingum eru ekki lengur neysluhæf. Mat- vörur eiga að vera merktar með síðasta söludegi og það erfljótlegt að ganga úr skugga um það hvort að varan er neysluhæf eða ekki. Fjölskylduverslunin Matvara er dýr á íslandi og hún er stærsti útgjaldaliðurinn hjá flestum fjölskyldum. Mörgum er því vafalaust umhugað að gera hagstæð matarinnkaup, en ein leiðin til þess er sú að versla ávallt í sömu matvöruversluninni. Með því móti eykst verðskyn neytenda og þeir eiga hægara um vik að gera verðsamanburð. Staðgreiðsluafsláttur Margir nýta sér sjaldan eða aldr- ei rétt sinn á staðgreiðsluafslætti verslana. Þegar keyptir eru stórir hlutir út í hönd, t.d. þvottavél, sjón- varp eða ísskápur, á neytandinn rétt á 5 til 10% staðgreiðsluaf- slætti. Full ástæða er til að nýta sér rétt sinn í þessum efnum. Neytendasamtökin líta svo á að þeir sem staðgreiði vöru eigi ætíð rétt á afslætti, þar sem greiðslu- kortanotkun sé orðin mjög al- menn. Gera verði greinarmun á þeim sem staðgreiði og hinum sem fái allt að sex vikna greiðslu- frest. Gölluð vara Samkvæmt lögum er ársábyrgð á öllum seldum vörum. Þannig má skila vöru sem reynist gölluð, inn- an árs frá því að hún var keypt, og krefjast ógallaðrar vöru í stað- inn eða riftunar kaupa. Af þessum sökum er brýnt að fá kvittanir fyrir þeim vörum sem keyptar eru <?g geyma þær a.m.k. í eitt ár. Án kvittunar getur reynst örðugt að færa sönnur fyrir því hvar varan var keypt og þar af leiðandi erfitt að fá henni skipt. Meðferð á fatnaði Það er gott ráð að kaupa aldrei fatnað sem er án þvottaleiðbein- inga. Það hefur enginn gaman af því að eyðileggja dýra flík í þvotti eða efnalaug, af því að leiðbeining- ar vantaði og flíkin var því ekki meðhöndluð á réttan hátt. Stundum kemur reyndar fyrir að flíkur eyðileggjast í þvotti, þó jjeim fylgi þvottaleiðbeiningar. Ástæðan er þá sú að fólk kann ekki að nýta sér leiðbeiningarnar. í því sambandi skal hér bent á handhægan þvottabækling Kven- félagasambands Íslands, sem inni- heldur nákvæmar útskýringar á öllum þvottamerkingum. Og enn um meðferð á fatnaði. Það er ekkert gamanmál að fá Ijóta bletti í föt og þurfa ef til vill að leggja flík til hliðar af því að blettur næst ekki úr. Á vegum Kvenfélaga- sambandsins hefur verið gefinn út ,bæklingur um blettahreinsun sem inniheldur góð ráð og leið- beiningar um það hvernig unnt er að ná blettum úr fatnaði, gólftepp- um o.fl. Þegar færa skal heimilisbókhald er ákjósanlegast að notast við þar til gerðar bækur, en þær eru staðlaðar og fást bæði hjá Neytendasamtökunum og í bóka- búðum. Einnig erfáanlegur*sérstak- ur hugbúnaður fyrir bókhald hjá flestum tölvufyrirtækjum. Hentugast og árangursríkast er að færa heimilisbókhaldið daglega. Til að fá sem besta yfirsýn yfir rekst- ur heimilisins er ráðlegast að taka fyrir einn mánuð í senn. Þannig eru í upphafi hvers mánaðar færð inn föst útgjöld þess mánaðar, t.d. af- borganir af lánum. Hér á eftir er útskýrt á sem ein- faldastan hátt hvernig færa skal heimilisbókhald og því til hliðsjónar er sýnt í töflu bókhald yfir einn mánuð. Miðað erviðfjögurra manna fjölskyldu. Fyrst eru mánaðartekjur heimilis- ins reiknaðar út og færðar í dálk I., þ.e. dálkinn „reiknaðar mánaðar- tekjur — samtals l“. Hafa ber í huga hugsanlegar breytingar á tekjum milli mánaða. Þá eru föst útgjöld heimilisins reiknuð út, það er að segja útgjöld einu sinni (mánuði eða sjaldnar. Heildartalan er færð í dálk II. eða „samtals II". Ef þessi útgjöld eru dregin frá tekjum sést nákvæm- REIKNAÐAR MÁNAÐARTEKJUR Fyllið út að eigT vai Dagiega^ Dags. neysiuvorjf 6,Tr»'.3 Tó^K,.^.r Gjóid samiais. SAMTALS I: Ho.ooo-kr.! ÚTGJÖLD sem eru einu sinni í mánuði eða sjaldnar Sjónvarp, útvarp. I.O:>a lb.215- l.5»~- a.ooo- Dagblöð, simi. Rafmagn, hiti. ~ Tryggingar. Lán (afborganir vextir). B^.Or. Annað. H. Ooo ~ lo- 4io- ^ Q? g.- II-BUq- 1 1 Ooo- í 3.000 - Gjöld | ' | ! 1 samtals|5M.'2.e\5-! iol "í>Vl - llO.ooo- 1 SAMTALS II.M’V.l'3'o’ kr. NIÐURSTÖÐUR 1 - 11 MÁNAÐARINS iHpcookr. Niðurstaða q.iHs-to, Heimilisbókhald fjögurra manna fjölskyldu yfir einn mánuð. Tölurnar skipta að sjálfsögðu engu máli hér, heldur að bókhaldið sé fært rétt. lega hvað mikið er aflögu til annarra neysluþarfa heimilisins. Regluleg útgjöld, þ.e. oft i mán- uði, skal færa daglega í viðeigandi dálka. í dálkinn fyrir daglegar neysluvörur er færðar bæði matvör- ur og hreinlætisvörur. Dálkana sem fylla á út að eigin vali er hentugt að nota fyrir ákveðna kostnaðarliði sem hver og einn vill fylgjast með, t.d. rekstur bifreiðar, tóbaksreyking- ar eða skemmtanir, svo dæmi séu tekin. í lok hvers mánaðar eru þessi daglegu eða tíðu útgjöld reiknuð saman og færð í dálk III. Og þá er aðeins eftir að reikna út niðurstöðu mánaðarins, en það er gert þannig: Útgjöld, einu sinni í mánuði eða sjaldnar (dálkur II), eru dregin frá tekjum (dálkur I) og frá þeirri tölu eru dregin útgjöld sem eru tíð (dálkur III). Talan sem þá kemur út er þá „niðurstaða mánað- arins". VETRARDAGSKRA DANSSTÍDÍÓ SÓLEYAR ÁRIÐ 1990 Jazzballet Motiern Jazzfunk Sýningardansar 12 vikna námskeið fyrir stelpur og stráka, byrjendur og framhaldshópa Kennarar: Ástrós Gunnarsdóttir Bryndís Einarsdóttir Jón Egill Bragason Sóley Jóhannsdóttir Cornell E. Ivey gestakennari frá New York Jazzballetskoli fyrir börn Skóli fyrir stelpur og stráka á aldrinum 5-12 ára með áherslu á leikræna tjáningi meðal annars við dansa úr þekktum söngleikjum. Púl, sviti, teygjur og þrek. Skemmtilegir og hressir tímar fyrir þá, sem vilja vera í góðu formi i vetur. * Timar fyrir byrjendur og framhald * Púltímar * Brennslutímar * Karlatímar á öllum altiri Hanna Ólafsdóttir Forrest verður með 7 vikna námskeið. Hanna er áhugafólki um líkamsrækt kunn, jafnt hérlendis sem í Bandaríkjunum, þar sem hún hefur séð um sjónvarps- leikfimi í 33 fylkjum um 18 ára skeið, gefið út heilsuræktarrit og myndbönd, sem selst hafa í milljónatali og rekur þar að auki eigin líkamsræktarstöð í Ohiofylki. Tímar bæði fyrir og eftir hádegi. Tímar strax eftir hádegi og á kvöldin Kennarar: Emilía Jónsdóttir, Árný Helgadóttir, Sóley Jóhannsdóttir W VEGGTEHHIS Tímabilið hefst 3. janúar. Nokkrir lausir tímar eftrr. ATH! Skólaafsláttur á tímabilinu 13.15-17.00 alla virka daga 9.30-16.00 laugardaga Aðeins 250 kr. á mann. J Innritun hafin í símum 687701-687801.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.