Morgunblaðið - 05.01.1990, Page 6

Morgunblaðið - 05.01.1990, Page 6
6 B MORGÚNBLAÐÍÐ PÖSTUDAGUR 5. JÁN'ÚaR 1990 — segir sr. Gunnar Rúnar Matthíasson sjúkrahúsprestur viö Northwestern Memorial-spítalann í Chicago af lækningunni Erumhluti Eitt fyrsta embættisverk hr. Ólafs Skúlasonar sem biskups var að vígja tvo nýja presta. Það vakti athygli að annar hinna nývígðu hafði ekki verið kallaður til lítils prestakalls úti á landi, eins og vant er, heldur til þjónustu á Minnjngarspítalanum íChicago. Harla óvenjulegt fyrir ungan íslending. Sá sem hleypti svo rækilega heimdraganum heitir Gunnar Rúnar Matthíasson. Hann hefur undanfarin tvö ár lært til sjúkrahúsprests hér vestanhafs og starfar nú við Northwestern Memorial-spítalann f miðborg Chicago. Lffið í dauðanum er hans daglega brauð. Vinur að atvinnu Það er kannski tímanna tákn að sr. Gunnar hefur það að starfi sem flest okkar flokka undir einkalífið: að vera vinur í raun. „Rök okkar fyrir því að hafa sjúkrahúspresta eru þau að sjúklingurinn eigi meiri batamöguleika ef fengist er við alla hluta persónunnar í einu. Það er samhengi milli þess hvernig manni líður andlega og líkamlega — ef manni líður illa andlega hefur það áhrif á líkamann og öfugt. Við reynum því að vera hluti af lækn- ingunni með því að létta eitthvað örlítið á með sjúklingnum andlega. Þessi mannlegi þáttur hefur nefni- lega viljað tapast með allri tækni- þekkingunni í læknavísindunum — sjúklingar kvarta mikið undan því að það setjist enginn niður til að spjalla við þá. Sem sjúkrahúsprest- ur reyni ég að bæta úr þessum skorti með því að bjóða mig fram sem vin, því eina tækið sem ég hef við mína vinnu er ég sjálfur. Það kemur mörgum á óvart að einungis lítill hluti tímans fer í að Mig langaði til að læra meira í ráð- gjöf,“ segir Gunnar Rúnar um tildrög þess að hann ákvað að verða sjúkrahúsprestur. „Ég hugsaði til þess hvað ég þyrfti að fást við sem prestur og fannst ég ekki hafa fengið nógu góðan undir- búning í Háskóla íslands; guð- fræðideildin hefur hunsað grund- vallaratriði í samræðu- og ráðgjaf- artækni, þótt hún sé góður grunn- ur fyrir sálgæslu. Ég komst síðan í kynni við forstöðumann þjálfunar- deildar fyrir sjúkrahúspresta og ákvað upp úr því að láta slag standa." En hvað skyldi fá ungan mann til að sinna svona starfi og það í erlendri stórborg? „Heiðarlegasta svarið sem ég get gefið er að þetta gefur mér möguleika á að hitta fólk,“ segir Gunnar þar sem hann situr á skrif- stofu sinni á 17. hæð spítalans. Hann er borgaralega klæddur og ekkert sem minnir á stöðu hans nema nafnspjaldið í barminum. „Ég hef gaman af fólki. Annars væri ég sennilega ekki í þessu starfi." „Hér væntir fólk þess aö kirkjan sinni því þegar þaö er á spítala." Gunnar á tali viö sjúkling. biðja með fólki, þó ekki megi gleyma því að trú og sjúkdómar hafa alltaf verið nátengd. Það kemur fólki líka oft á óvart að ég vinn jafn mikið með aðstand- endum og sjúklingunum. Stund- um, sérstaklega á gjörgæsludeild- um, vinn ég meira með aðstand- endum, þar sem sjúklingurinn er iðulega nær ófær um að tjá sig. Nærvera aðstandenda þykir hér sjálfsögð og aðbúnaður í samræmi við það.“ Sviptur persónunni „Fólk þarf að glíma við mikla niðurlægingu þegar það leggst á spítala," segir Gunnar þar sem við göngum af stað um sjúkrahúsið. „Það byrjar með því að menn eru afklæddir í eiginlegum og óeigin- legum skilningi og þannig sviptir því sem er þeirra. Mitt fyrsta verk er þess vegna að reyna að kynn- ast fólkinu, komast að því hvert það er og hvað er að gerast innra með því.“ Við erum komnir á gjörgæslu- deildina. Sjúklingarnir, sem flestir virðast rænulitlir, hverfa næstum í tækjahafið. Gunnar segir marga þessara sjúklinga hafa mikla þörf fyrir að hann biðji með þeim. Sum- GENGIÐ A STEINSTEYPU í KÚREKASTÍGVÉLUM Einu sinni tilheyrðu þau kúrekum Vesturheims, sem riðu um víðlendar sléttur, ráku kúahjarðir og mun- duðu byssur á báða bóga í kvikmyndum. Núna snara menn sér ekki lengur á hestbak f kúreka- stígvélum, heldur rölta eftir gangstéttum Reykjavik- ur í þeim. Og ekki bara þar, kúrekastígvél hafa átt miklum vinsældum að fagna í heimi tískunnar að undanförnu og þá fyrir bæði kynin. Þau eru notuð við gallabuxurnar, leðurbuxurnar, sfð piis og stutt pils. Einföld í útliti eða marglit og útsaumuð, úr leðri eða rúskinni. Það gengur allt. Lítum hér á nokkrar útgáfur af þessum skófatnaði kúrekanna ígegnum tíðina. VE

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.