Morgunblaðið - 21.01.1990, Síða 1

Morgunblaðið - 21.01.1990, Síða 1
HEIMILI \ýii’ lýsingar möguleiliar iwm * i WKm Reykjavík: Um helmingtir íbúöa 2-3ja herbergja Hátt í helmingur íbúða í Reykjavík voru 2-3ja her- bergja íárslok 1988. Það er mun hærra hlutfall en gilti fyrir íbúðarhúsnæði í öðrum sveit- arfélögum á höfuðborgar- svæðinu eins og sést á mynd- inni hértil hliðar. Þarsést greinilega hvernig íbúðabygg- ingar hafa þróast hér á höfuð- borgarsvæðinu hvað stærð snertir. Um 70% allra íbúða í Reykjavík eru 1-4 herbergja en 30% eru 5 herbergja eða stærri. í nágrannabyggðum Reykjavíkur snýst dæmið við þar sem einbýlishús og raðhús eru mun stærri hluti alls íbúð- arhúsnæðis. T.d. eru rúmlega 66% af öllum íbúðum f Garðabæ með 5 herbergjum eða fleirum. Bessastaða-, Kjal- arnes- og Kjósarhreppur sem teknir eru saman undir liðnum önnur sveitarfélög standa þó upp úr hvað stærð íbúðar- húsnæðis snertir enda lítið um fjölbýlishúsabyggð á þeim slóðum. SUNNUDAGUR 21. JANUAR 1990 BLAÐ IBUÐIR A HOFUÐBORGARSVÆÐINU Hlutfallsleg skipting eftir stærð (Samkvæmt lasteignamatsskrá 1988) □ 3 herbergi eða færri §§3 4 fterbergi ■ 5 herbergi eða fleiri Seltj. nes Onnursv.fél Reykjavík Kópavogur Hafnarfj. Garðabær Mosfellsbær ALLS 5 Fjöldi þeirra lampa, sem not- aðir eru á heimilinu, hefur margfaldazt frá því, sem áður var og um leið lýsingarmögu- leikarnir. í þættinum Híbýli/Garðurfjallar Helgi Kr. Eiríksson lýsingarhönnuður um innfellda lampa, en notkun þeirra hefur stóraukizt og vin- sældir innfelldrar lýsingar hafa aldrei verið meiri en nú. Þá er lítill hluti lampanna sjáanlegur en bæði þeir og annar búnaður felldir inn í loftið eða innrétt- inguna. Við hönnun lýsingar, þar sem innfelld Ijós eiga að vera, þarf að hafa í huga, að innfelld- ir lampar lýsa á allt annan hátt en lampar, sem settir er neðan á loft eða innréttingu. Þeir staðir, þar sem innfeild lýsing á rétt á sér, eru einkum stofan, þar sem oft þarf marga lampa til að lýsa upp og kalla fram þá hluti, sem eru sérstakir svo sem málverk og innréttingar. Fasteigna- markaóurinn Fasteignaverð virðist nú vera í nokkru jafnvægi á höfuð- borgarsvæðinu. Mikið framboð er af 2ja herbergja íbúðum og meira en undanfarin ár. Þá er Ifka töluvert framboð á stórum eign- um. íbúðakaupendur fara sér því yfirleitt hægt og taka sér góðan tíma. Það sem af er vetri hefur fast- eignamarkaðurinn einkennzt af því, að húsbréfakerfið hóf göngu sína. Það er líka að vinna á. Bæði kaupendur og seljendur eru smám saman að átta sig á þeim möguleikum, sem það felur í sér. — Mér finnst húsbréfakerf ið fara vel af stað, segir Þórólfur Halldórsson, formaður Félags fasteignasala f viðtali hér í blað- inu í dag. Þórólfur telur þó veru- lega tæknilega hnökra vera á húsbréf akerf inu fyrir fasteigna- sala. Það leggi þeim á herðar þá skyldu að afla margvíslegra upp- lýsinga um þær fasteignir, sem þeir fá til sölumeðferðar. Það sem vanti, er nútíma gagna- banki, þar sem fasteigna salar geti með tölvu tengingu fengið allar þessar upplýsingar beint. III M •••••

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.