Morgunblaðið - 03.03.1990, Síða 3

Morgunblaðið - 03.03.1990, Síða 3
Morgunblaðið/Bjami VIÐTAL VIIIÞÓRUNNIVALDIMARS- DÓTTUR, SAGNFRflEÐING var með það að ég færi með söguna ofan í skítinn." „Þegar svona er staðið að málum, þarf mikla frumrannsókn og kannanir á bréfum, sem ekki hafa áður verið nýtt við að skrifa söguna. Áður en þessi sagnfræði kom til voru það skáld- in ein sem urðu til þess að skrifa þetta um hversdagslíf, í formi sögulegra skáldsagna. Við að kynna mér Snorra fann ég skjöl sem gerðu mér kleift að lýsa hversdagslífi. Þá nálgast þessar tvær greinar, sagnfræði og bókmennt- ir, sem voru skildar að þegar sagn- fræðin verður vísindagrein á 19. öld. Áður var minni togstreita milli sann- leika og skáldskapar. Gott dæmi um það eru íslendingasögumar. Nú hafa menn komist að þeirri niðurstöðu um íslendingasögurnar að líta beri á þær sem heimiidir um ritunartímann, sem geymir hugmyndir um það sem gerðist einhverntíma áður. Þá höfðu menn frelsi til að lita myndina. Það er í raun- inni dálítið hlálegt að í samtímanum mega sagnfræðingar ekki ijúga, en þeir sem gera kvikmynd hafa um það frjálsar hendur. Samt sjá miklu fleiri kvikmyndirnar“, bætir Þórunn við. Við færum talið nær Snorra á Húsa- falli og aðferð Þórunnar við að segja sögu hans.„Ég byggi sögu Snorra ein- göngu á heimildum. En ég nota til hennar heimildir frá samtíma hans, 18. öldinni. Reyni að klæða fólk alltaf rétt, hafa rétt matarræði og nota lýs- ingar á húsum og siðum sem til eru. En með orðalagi gef ég til kynna að ég sé ætíð að þreifa á sannleikanum. Læt lesandann vita að þar sé um að ræða leit og að ég sé að reyna að nálgast sannleikann. Allt sem ég byggi verkið úr er í tilvísunum. Þannig að sagnfræðingar geta þá ætíð fundið hvaðan það er. Og mér finnst ævisag- an vera rétta formið til þess að láta sagnfræði verða eins og bókmennta- lega frásögn. Leitun á betri leiðsögn en Snorra En af hvetju valdi hún einmitt Snorra á Húsafelli til þess að verða burðarásinn í sögu 18. aldarinnar? Þórunn svarar einfaldlega:„Af því að ég var beðin um það“ Og bætir við: „Eg held að ég hefði ekki getað fund- ið betri leiðsögn gegn um öldina, því það er svo mikið til um Snorra. Til er eftir hann veraldlegur skáldskapur og sálmar, rímur og leikrit. Þar sem hann var prestur eru heimildir um hann sjálfan og sóknarfólk hans. Þá eru ótaldar þjóðsögumar sem mynduðust um hann. Og Snorri lifði nær alla öld- ina, frá 1710 til 1803. Það er leitun á manni, sem er eins gott fórnarlamb fyrir svona verk.“ Snorri á Húsafelli er mikið eljuverk og Þórunn var í því í fullri vinnu í þtjú ár samfleytt.„Nýlega sá ég á Stöð tvö fræðslumynd sem segir frá ævi- sögu Bernhards Shaw. Höfundur hennar, Michael Holroyd, hafði unnið að verkinu í 10 ár. Hann sagði þar frá því að þegar hann settist við skriftir þá rak hann eiginkonuna út. Hann talaði um þetta eins og hjónaband. Nei, nei, ég rak eiginmanninn nú aldr- ei út, þótt furðulegt megi virðast. Son- inn ekki heldur. En ég var með honum Snorra í þtjú ár, eins og ég hefí stund- um sagt. Eg var öll í 18. öldinni og þar átti ég sálufélag með Snorra. Maður vinnur við þetta einn og getur ekki talað um það við nokkurn mann. Er einn í sínum heimi. Ævisagnaritar- ar eru dálítið eins og sníkjudýr. Maður lifir sig inn í fórnarlambið." Náði Snorri sambandi við hana? „Ég reyndi að ná sambandi við hann strax - huglægt. Hann skrifaði Æviraunir, kvæði um ævi,sína, sem varð til hjálp- ar. Ég sá strax að ég yrði að krukka varlega í hann, þannig að ég geri hon- um ekki upp hugsanir. Ég byggi á heimildum. Það sem ég geri er fyrst og fremst að sviðsetja og lífga. Brýt sagnfræðilega hefð með því að klæða hann og sjá hann fyrir mér. Lesandan- um er þó ljóst að sannleikurinrt ér horfínn og engin leið er að finna hann. Samt rífur maður ekki eið sagnfræð- ingsins með svona leik, þ.e. að ljúga ekki og segja hvaðan maður fær hvað eina. Og nú þegar bókin hefur verið lesin og fólk reyndist vilja lesa hana, hefí ég náð þeim tilgangi að almenn- ingur missi ekki tengslin við þessa fortíð, af því að sagnfræðin sé svo þung.“ Flytur sig öld aftur á bak Og nú er þetta stóra verk að baki. Hvað tekur þá við hjá Þórunni? „Næst vil ég skrifa verk sem er bara ætlað fræðingum. Mig langar til þess að skrifa um hugmyndafræði galdraaldar og hefi sótt um Vísindasjóðsstyrk til þess. Enginn skilur hvemig stóð á þessum ósköpum. Til þess þarf að skilja forsendur aldarinnar, þeirrar sautjándu. Og mér finnst ágætt að færa mig eina öld aftur á bak, taka eina tröppu í einu. Upphaflega langaði mig mest í miðaldirnar, en Björn Þor- steinsson vildi að ég skrifaði um bú- skap í Reykjavík. Það endaði með því að ég gerði það sem mér var sagt og treysti hans dómgreind. Hann hafði rétt fyrir sér. Seinni hluta þessa árs ætla ég að vinna að þessu verki og nú vil ég láta málið hafa sinn gang, ekki binda það við einhvern lokatíma. “ Hafði heimildasöfnunin um öld Snorra, sem m.a. þjónaði lengi á Vest- fjörðum, áhrif á þetta val? „Það má segja það“, svarar Þórunn.„Ég leit þá á rit sem nefnist Gandreið eftir Jón Daðason. Hann var’ lærður klerkur og skrifaði þetta rit um dulspeki og stjömuspeki, sem mér finnst skemmti- legt rugl, og ég ætla að byija á því að fara svolítið ofan í það.“ „Eftir Snorra fínnst mér nú að ég sé búin að fá of stóran skammt af íslenskri menningu “, segir Þómnn undir lok samtalsins.„Maður einangr- ast. Mig þyrstir eins og eftir eyði- merkugöngu eftir því að komast til útlanda." Áður en hún sökkti sér svona ofan í fræðin var Þómnn í listaskóla í Mið- Ameríku og enn fyrr við sagn- fræðinám í Lundi.„Annars er ég búin að vera dauðhrædd á ferðalögum er- lendis, allt frá því ég fór með Hamra- hlíðarkómum til Walles og gleymdi þar vegabréfínu mínu á hótelherbergi, svo að Þorgerður varð að láta kórinn syngja mig út úr landinu á Lundúna- flugvelli. Og nú er ég spennt yfír því að eiga að fara að hitta Indjána í White Horse, skammt frá Klondike í Yukon í Bandaríkjunum. Þar er haldin rithöfundasamkoma og ég á að fara þangað í maí og segja Indjánum sögur án hljóðnema. Þangað hafa áður farið tveir íslendingar, Sjón og Eyvindur Eiríksson. Þetta er mikið æfintýri. Og ég vona að ég geti hreinsað af mér Snorra í Klettafjöllunum. Síðan fer ég á Heimsmót sagnfræðinga í Madrid, sem einmitt hefst á afmælisdaginn minn 25. ágúst. Svona er ég blessuð í bak og fyrir, og ég veit að þetta verður hvort tveggja skemmtilegt, ef ég kemst yfir þessa sveitamannslegu hræðslu við að týna vegabréfinu, “ segir Þórunn að lokum og erum við þá komnar býsna langt frá Snorra á Húsafelli og 18. öldinni hans. Vonandi tekst Þórunni með þessum ferðalögum að fjarlægja Snorra, áður en hún tekur til við aðra öld og nýja karla. Að lokum skal þess getið að á morg- un, sunnudag kl. 3, mun Þórunn Valdi- marsdóttir_ flytja erindi í Listasafni Sigutjóns Ólafssonar i Laugarnesi, þar sem hún talar um landamæri sagn- fræði og skáldskapar. Leikarar lesa óbirtan kafla úr sögunni um Snorra á Húsafelli. E.Pá. Tate virðist hafa gert ráð fyrir að áheyrendur væru gagnkunnugir frásögn Vigils um Dido og Aeneas og þjapp- ar því söguþræðinum miskunnarlaust saman og stjdtir hann að geðþótta. Irauninni byijar óperan í sögunni miðri. Dido, sem er drottning í Karþagóborg, á erfítt með að játa ást sína til Aeneasar, en lætur loks tilleiðast fyrir tilstilli Aene- asar sjálfs og vina sinna. En Dido á sér óvini. Það eru nornir, sem vilja koma henni á kné og þrá ekkert heitar en sjá Karþagóborg þurrk- aða út af yfirborði jarðar. Þær eru valdar að miklu óveðri, sem neyðir Aeneas til að leita skjóls í helli, þar sem nornaáhrif ráða ríkjum. Ein nornanna bregður sér í gervi guðsins Merkúrs og 'í því dular gervi minnir hún Aeneas á, að honum beri skylda til að hverfa aftur til Ítalíu og koma þar nýrri Tróju á stofn. Aeneas lætur blekkjast en nornirnar hugsa sér gott til glóðarinn ar. Þær ætla sér DIDO OG AENEAS. að láta Aeneas og föruneyti hans farast á hafi úti en Karþagóborg brenna til kaldra kola strax daginn eft- ir. Aeneas fer loks að gruna, að ekki sé allt með felldu, en Dido, sem hefur séð í gegnum brellurnar frá upp- hafi, vill engin frekari af- skipti af honum hafa og seg- ir honum að hverfa á brott. Við svo búið sviptir hún sig sjálfa lifi. jr Ahrifa „masque“-hefðar- innar gætir í öllum þeim dönsum, sem óperan býður upp á, sem og í þeirri tónlist sem tengist nornunum og athæfí þeirra. En að öðru leyti brýtur óperan hefðina. JT 1„masque“ er venjulegast um að ræða átök á milli tveggja and stæðra afla, venjulega á milli óumbreyt- anlegrar skipan guðlegrar forsjónar og neikvæðra aflaj sem beijast gegn henni. I frásögn Vigils eru það guð- irnir sjálfir, sem kalla Aen- eas heim, en í óperunni lætur Aeneas gabbast og trúir því að norn i dularklæðum sé sjálfur Merkúr og hikar ekki við að svíkja Dido í tryggðum fyrir bragðið. agan af Dido og Aeneas hefði auðveldlega getað orðið lof söngur til ástarsambánds karls og konu, en skyndilega tekur hún allt aðra stefnu, þar sem ill öfl í dularklæðum góðra afla fara með sigur af hólmi. jr Ifyrstu trúir Dido því, að Aeneas sé hetja og jafn einlægur og óeig in gjarn í ást sinni og hún sjálf. En hún sviptir sig ekki lífi vegna þess að hún gæti ekki beðið eft ir að Aeneas sneri til baka að loknum skyldustörfum á fjarlægum slóðum, heldur vegna þess að hann hefur blekkt sjálfan sig og aðra með því að þykj- ast bera tilfinningar í bijósti, sem engin innstæða var fyr- ir, þegar á hólminn var kom- ið. Hún sviptir sig lífi, þegar henni verður ljóst, að þessum manni er fyrir mun- að að elska á sama hátt og hún sjálf. Elin Ósk Óskarsdóttir og Sigurður Bragason. Aeneas ásakar guðina fyrir það, hvernig komið er. Dido ásakar hvorkí einn né neinn. Hún biður þess ein- ungis, að hennar verði minnst og það gerir hún í j einni fegurstu aríu allra tíma: „When I am laid in earth“ (þegar ég verð lögð til hinstu hvílu). Það er vitað, að langur inn- gangur eða prologus fylgdi frumflutn ingi á Dido og Aeneas og líklegast var einhver eftirmáli. En óvíst er, hvort Purcell átti þar hlut > að máli og alla vega hefur ‘ hvort tveggja glatast. Eftir stendur óvefengjanleg- ur hlutur Henrys Purc ells, þar sem allt er nær full- komnun að jafnvægi. Sér- hver persóna er skarpt dreg- in í tónum og öll blæbrigði og stemmningar skila sér af . snilld, þannig að hver at- burður fær sitt rétta vægi. . 011 áferðin er meistaraleg og engum, sem á hlýðir, dylst, að óperan Dido og Aeneas er ómengað meist- araverk frá upphafí til enda. Halldór Hansen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.