Morgunblaðið - 16.03.1990, Síða 3

Morgunblaðið - 16.03.1990, Síða 3
MORGUNBLÁÐIÐ FÓSTUDÁGUR 16; MARZ 1990 B 3 Að horfa upp á nákominn ætt- ingja þjást af banvænum sjúk- dómi og deyja reynist hverjum aðstandanda sársaukafullt og þungbært. Umræða um dauðann og sorgina hefur verið að aukast síðustu ár og í kjölfarið er nú lögð æ meiri áhersla á stuðning við aðstandendur dauðvona fólks, en þeir ganga í gegnum miklar raunir og þurfa oft aðstoð fagfólks. Rúnar Matthíasson sálfræðingur er einn aðstandenda en eigin- kona hans, Berglind Bjarnadóttir söngkona, veiktist snögglega og lést úr krabbameini fyrir þremur árum. Rúnar var fús til að segja sögu sína hér í blaðinu, í þeirri von að sár en dýrmæt reynsla hans gæti ef til vill orðið öðrum til góðs. Rúnar Matthíasson Reyndum að finna ljósu punktana á tilverunni að var í október 1985 sem uppgötvaðist að Berglind var haldin banvænum sjúk- dómi en þá voru þau Rúnar við nám í Stokkhólmi. „Við vöknuðum einn morguninn eins og venjulega pg ætluðum á fætur,“ segir Rúnar. „Ég man að Berglind kvartaði undan því að hún væri eitthvað dofin í fótum en var viss um að hún hefði bara legið eittvað illa. En svo kom í Ijós að það var eitthvað annað og meira því hún gat ekki með nokkru móti stigið í fæturna. Hún reyndist vera lömuð frá brjósti." Hann segir vart hægt að lýsa áfallinu sem þau bæði urðu fyrir. Að liggja uppi í rúmi og geta sig allt í einu hvergi hreyft. Berglind var samstundis send í rannsókn og þá kom hið sanna í Ijós. Hún reyndist vera með æxli í læri og meinvarp í mænugöngum sem þrýsti á mæn- una og orsakaði lömun. Hún þarfn- aðist meðhöndlunar strax. „Við brotnuðum niður. Berglind, sem aldrei hafði orðið misdægurt, var allt í einu orðin alvarlega veik. Hún var tilfellið á sjúkrahúsinu, ég var eiginmaðurinn sem var fyrir." Las mértil um sjúkdóminn Berglind var samstundis lögð inn á sjúkrahús í Stokkhólmi og við tók löng og erfið lyfja- og geislameð- ferð. Rúnar segir að eftir að þau höfðu jafnað sig á mesta áfallinu hafi hans fyrsta verk verið að fara á bókasafn og taka út allt sem hann fann um krabbamein. „Ég vildi vita allt um sjúkdóminn þó að það væri sársaukafullt. Því las ég allt sem ég komst yfir og það hjálpaði mér. Berglind var sama sinnis. Hún vildi vita allt og spurði mikið. Oft spurði hún læknana sjálf, en stundum bað hún mig um það þegar henni fannst það of erfitt." Þegar Berglind veiktist var Rúnar rétt byrjaður að vinna lokaverkefni sitt í sálarfræði. Hann ákvað að leggja niður alla vinnu utan nokkra tíma, sem hann kenndi, og vera með konu sinni í veikindum hennar — dag og nótt. „Ég fékk að vera með Berglind á einbýli og það reyndist ómetanlegt. Eg flutti inn til hennar og við komum okkur vel fyrir, höfðum sjónvarp, myndbands- tæki og fleira og reyndum að gera eins heimilislegt hjá okkur og hægt var. Okkur fannst svo mikilvægt að fá að vera nálægt hvort öðru, geta snert hvort annað. Ég fékk oft að vera einn hjá henni þegar hún bað- aði sig og þvoði henni um hárið. Það voru dýrmætar stundir." Berglind var skorin upp um leið og hún var lögð inn á sjúkrahúsið og æxlin í læri og við mænu fjar- lægð. Þá tók við erfið lyfja- og geislameðferð og stöðugar æfingar sem miðuðu að því að koma henni á fætur á ný. Starfsfólk sjúkrahúss- ins beitti ákveðnum aðferðum við það að snúa henni í rúminu en hún var ósátt við þær og fannst þær oft sársaukafullar. Hún og Rúnar eyddu miklum tima í að finna í sam- einingu bestu leiðina til að snúa henni og tókst það að lokum. Þeirra aðferð var að vísu tímafrekari — en langtum þægilegri fyrir Berglindi. Tók virkan þátt í umönnun „Berglind var látin gera erfiðar æfingar til að styrkja og þjálfa líkam- ann og ég var alltaf með henni og hjálpaði til," heldur Rúnar áfram. „Starfsfólk sjúkrahússins var fyrst ekkert of hrifið af því hvað ég tók mikinn þátt í meðferðinni, fannst ég greinilega stundum full afskipta- samur og oft fyrir. En svo sá það að Berglind leið betur að hafa mig hjá sér og okkur gekk vel að gera æfingarnar saman. Við eyddum mikilli orku og tíma í þessar æfing- ar, fundum jafnvel upp okkar eigin aðferðir. Við höfðum líka erindi sem erfiði því Berglind komst loks á fætur á ný eftir fimm mánaða legu." Að sögn Rúnars lögðu þau Berg- lind mikla áherslu á að temja sér jákvætt hugarfar. Að reyna að minnsta kosti að finna Ijósu punkt- ana, broslegu hliðarnar á lífinu. „Allan þann tíma sem Berglind var Rúnar Matthíasson skýrir frá reynslu sinni en hann missti eiginkonu sína úr krabbameini fyrir þremur árum veik var hún dugleg og sterk og alltaf jafn gefandi þrátt fyrir vanlíð- an. En það var eitt sem hún óttað- ist mikið og það var að missa hár- ið. Hún kaus þó sjálf að reyna lyfja- meðferð, sem var mjög erfið og olli hármissi. Fyrst var hún niður- brotin en svo jafnaði hún sig. Hún fékk hárkollu með stuttu, Ijósu hári. Okkurfannst hún skondin og kölluð- um hana Doris Day-húfuna. Berg- lind var samt ekki nógu ánægð með hana og fékk síðar nýja. Sú var dekkri og fór vel. Og þá þurfti auð- vitað að finna nýtt nafn og kölluðum við hana Jane Fonda-húfuna. Spauguðum við óspart með húfurn- ar og var það aðeins eitt dæmi af mörgum um það hvernig við reynd- um að létta okkur lífið." Þrír ómetanlegir mánuðir Eftir margra mánaða rúmlegu komst Berglind sem fyrr segir á fætur á ný. Öll merki um æxlið voru horfin og Berglind var orðin ein- kennalaus. Hún var því útskrifuð af sjúkrahúsinu og vonin um bata vaknaði. Þau voru létt í spori, hún og Rúnar, þegar þau yfirgáfu sjúkra- húsið og vonuðu að sjálfsögðu að þangað ættu þau ekki erindi aftur. Við tóku þrír mánuðir sem Berglind var frísk — þrír ómetanlegir mánuð- ir sem Rúnar lítur ekki á sem neitt annað en gjöf. „Þetta var yndislegur tími. Berg- lind leið vel og fór aftur í söngtíma. Og ég hafði aldrei heyrt hana syngja betur. Við nutum lífsins í orðsins fyllstu merkingu þessa þrjá mán- uði, gerðum margt sem okkur lang- aði til. Borðuðum góðan mat, fórum i leikhús og ferðuðumst. Nutum þess að vera til." En svo kom annað áfallið. Berg- lind varð aftur veik. Lamaðist að nýju. Fundist höfðu ný meinvörp og Ijóst þótti að ekkert væri lengur hægt að gera. Þeim var sagt að vonin væri úti. Nú væri það aðeins spurning um vikur. „Við grétum í heila viku," segir Rúnar. „En svo ákváðum við í sam- einingu að halda áfram að lifa. Ég tók mig til og bað Berglindar og við létum gifta okkur á sjúkrahúsinu. Hún lá í rúminu með blómsveig um höfuðið. Ég hafði aldrei séð hana fallegri." Berglind vildi fá að eyða síðustu vikum ævi sinnar á íslandi í nánd við fjölskyldu sína og vini. Var flog- ið með hana í sjúkraflugi í septem- ber 1986 og hún lögð inn á Land- spítalann. Þar lést hún í desember- mánuði, þá 29 ára að aldri, eftir 14 erfiða mánuði. Tókum út sorgina saman Rúnar segir þann tíma sem Berg- lind var veik hafa verið erfiðan og sársaukafullan fyrir þau bæði. „En við gerðum eitt sem auðveldaði okkur mjög að taka á málinu og það var að gráta sorgina út saman. Ég held að ef maður tekur á sorginni þegar hún er hvað sterkust, talar um hana, sýnir tilfinningar og syrg- ir, þá sé eftirleikurinn mun auðveld- ari. Við töluðum mikið saman um lifið og endalokin hjá öllum, dauð- ann. Reyndum við að forðast alla feimni. Að mínum dómi er svo mikilvægt að sjúklingar og aðstandendur séu opinskáir, tali og taki út sorgina saman. Byrgi ekki inni tilfinningar sínar og leiki ekki hetjur þegar þess gerist ekki þörf. Það gerðum við Berglind aldrei. Þó var það svo að þegar hún dó, þá heltók mig tóm- leiki og sár söknuður. En mestu sorgina var ég búinn að taka út." Hann segist í fyrstu hafa verið óhemju reiður yfir óréttlætinu en segist nú vera orðinn tiltölulega sáttur við lífið, og dauðann. „Auðvit- að er enginn sáttur við að missa ástvin. Og að sjálfsögðu er ég von- svikinn yfir því að við Berglind skyld- um ekki fá að vera lengur saman. Og að hún skyldi ekki fá að þroska betur hæfileika sína. En ég er ekki bitur." Sár en dýrmæt reynsla Rúnar segist eiga auðvelt með að tala um dauða Berglindar. Síðasta sumar var hann aftur i ná- lægð við dauðann er móðir hans lést, einnig úr krabbameini. í annað sinn var hann staddur við dánarbeð og segir hann það ómetanlegt að fá að vera með ástvini á dauða- stund. „Þegar mér bauðst að taka þátt í námsstefnunni sem haldin var á dögunum velti ég þvi fyrir mér hvað ég hefði til málanna að leggja. Að hugsuðu máli fannst mér reynsla mín svo dýrmæt að það væri eigin- girni að deila henni ekki með öðr- um. Sérstaklega ef vera kynni að hún gæti orðið einhverjum til góðs og ef til vill reynst aðstandendum dauðvona fólks hjálp. Að missa ástvin er erfið lífs- reynsla. En jafnvel þó það reynist erfitt og sársaukafullt þá hlýtur maður að draga af því einhvern lærdóm þegar fram líða stundir. Ég vona í það minnsta að þessi reynsla mín hafi gert mig að heillegri og skilningsríkari manneskju." - BF Aóyfirvinna óttann Orðið dauði vekur ótta hjá mörg- um enda tengist það oftast frá- falli einhvers nákomins og veldur bæði söknuði og sorg. Sigurður Árnason krabbameinslæknir við Landspítalann telur að hjálpa megi fólki að glíma við óttann við dauðann með ýmsum hætti, tii dæmis með þvf að fela hann ekki fyrir börnum og auðvelda þeim þannig að takast á við dauða og sorg síðar á lifsleiðinni. Sigurður segir að fólki sé meðfæddur ótti við að lífinu Ijúki og þegar það komist í nánd við dauðann á einhvern hátt beiti það ýmsum aðferðum til að bægja óttanum frá. Þannig afneiti margir dauðanum — neiti hrein- lega að horfast í augu við óum- flýjanlegar staðreyndir. „Þegar um sjúklinga með sjúk- dóma á lokastigi er að ræða er oft hætt við að þeir, aðstandendur og jafnvel læknar og hjúkrunarfólk grípi til þess ráðs að blekkja sjálft sig,“ segir Sigurður. „Sjúklingum finnst oft auðveldasta leiðin að einblína á lyfja- eða geislameðferð og læknum reynist oft auðveldast að taka ákvörðun um að veita slíka meðferð. Spurningin er aftur á móti sú hvort hún sé endilega sú rétta. Oft er Ijóst að lyfja- og geisla- meðferð hefur enga þýðingu. Samt sem áður er oft hætta á að gripið sé til þeirrar meðferðar, af því hún vekur mestu vonirnar. Þær geta þó oft reynst vera mestu falsvon- irnar., Læknar vilja sjúklingum og aðstandendum þeirra að sjálf- sögðu vel og það er afar mikilvægt að viðhalda voninni. En það verður þó að vera gert af raunsæi." Þjónusta í heimahúsum mikilvæg Sigurður segir það að sjálfsögðu mikilvægast af öllu að lækna sjúkl- inginn en sé það ekki unnt sé mikil- vægast að láta honum líða vel. „Ein leiðin er að mínu mati heima- hlynning sem miðar að því láta sjúklingnum líða eins vel og hægt er í sínu eigin umhverfi. Krabba- meinsfélagið kom á fót heima- hlynningu fyrir krabbameinssjúkl- inga fyrir þremur árum og þá kom strax í Ijós að þörfin fyrir slíkt er mikil." Þess má geta að Sigurður er annar tveggja lækna er starfa á vegum heimahlynningarinnar. Að sögn Sigurðar er of mikil til- hneiging til þess að leggja dauð- vona sjúklinga inn á sjúkrahús í stað þess að auðvelda þeim sem geta að dvelja heima. Sömuleiðis sé það algeng skoðun meðal fólks að sjúklingum hljóti að vegna miklu betur á sjúkrastofnunum. „Ég vil taka það skýrt fram að það starf sem unnið er á sjúkrahúsum hér er ómetanlegt. En sem betur fer er skilningur manna á mikilvægi vistunar sjúklinga í heimahúsum sífellt að aukst og æ fleiri kjósa nú að dvelja heima fram í andlátið. Dauðvona sjúklingum líður í mörgum tilfellum betur að fá að vera heima; á sínu heimili, í sínum fötum, með sinni fjölskyldu og síðast en ekki síst með því að fá að halda virðingu sinni til hinstu stundar. Þannig ná sjúklingar oft betur að yfirvinna óttann við dauð- ann og dauðinn verður þeim og fjölskyldunni eðlilegri. Og sá sem getur dáið heima í faðmi fjölskyld- unnar skilur oft eftir sig meiri Morgunblaðið/Emilía Sigurður Árnason þroska en sá sem deyr annars staðar." Börn yfirvinni óttann í æsku Að sögn Sigurðar fara börn að velta fyrir sér dauðanum við tveggja til fjögurra ára aldur og þegar þau eru níu til tíu ára eru hugsanirnar orðnar nokkuð skýrar Rætt vió Sigfurd Árnason krabba- meinsiækni og þau farin að gera sér grein fyr- ir því að mamma og pabbi verði ekki alltaf hjá þeim. Ef þau alist ekki upp við öryggi og/eða þeim sé hlíft við öllu sem viðkomi dauða geti þau átt á hættu að lenda í meiri erfiðleikum með að takast á við hann síðar. „Þegar einhvern deyr innan fjöl- skyldunnar er afar mikilvægt að hafa auga með börnunum á heimil- inu. Ég er þeirrar skoðunar að þau eigi að taka þátt rétt eins og aðrir á heimilinu, vera við dánarbeðinn, kistulagninguna, jarðarförina o.s.frv. Margir hugsa sem svo að það sé best að hlífa þeim við öllu þessu en ég held að það sé ekki rétt. Vitanlega á ekki að þvinga barn að dánarbeði, ef það vill verja sig og neitar því er ekkert við því að gera. En börn eru fljót að að- laga sig og þau eiga mun auðveld- ara með að skilja og takast á við dauða og sorg á lífsleiðinni ef þau kynnast þessu strax í æsku." - BF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.