Morgunblaðið - 16.03.1990, Síða 6

Morgunblaðið - 16.03.1990, Síða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1990 GLASAFRJÓVGUN hefur á sl. áratug verið að þróast og náð útbreiðslu sem lækning við ófrjósemi. Þessi aðferð er ein meðal nokkurra svokallaðra „tæknigetnaða", en þeir eiga það allir sammerkt að samræði kynjanna er með öllu ónauðsynleg forsenda fyrir getnaði og þungun. íslendingum hefur gefist kostur á slíkri meðferð um nokkurt skeið. Þannig hefur tæknisæðing (eða tæknifrjóvgun) verið stunduð hér um árabil og glasafrjóvgun hefur verið sótt til útlanda síðastliðin tvö ár. Nú stendur til að flytja þessa meðferð hingað heim. Það er ætlunin með þessari grein að iýsa f örstuttu máli ófrjósemi, það er helstu tegundum hennar og viðeigandi lækningu, bæði hefðbundinni og hinum nýja sið tækninnar. Þá verður bent á að tæknigetnað má nota í þeim tilgangi að koma íveg fyrir arfgenga sjúkdóma og raunar er f sjónmáli, vegna framfara íerfðagreiningu, að útrýma vissum banvænum sjúkdómum úr íslenskum ættum. Enda þótt hér verði dvalið við hinar jákvæðu hliðar þessa máls, er ekki ætlunin að draga fjöður yfir ýmis álitaefni, sem upp koma við tilurð tæknigetnaða. Æskilegt er að þau mál verði kynnt og rædd opinberlega, en það mundi sprengja ramma þessara stuttu blaðagreinar að fara nánar út f þá sálma hér. arnleysi merkir, að hjónum verður ekki auðið barns þrátt fyr- ir ásetning og er þá miðað við eitt til tvö ár. Þetta er nánar til- tekið óviljandi þarn- leysi, til aðgreiningar frá hinu, sem er viljandi og hefur verið tíska nú um sinn, langt fram eftir frjósemis- skeiði fólks. Óviljandi barnleysi stafar oftast af ófrjósemi, en sjaldnar er það vegna endurtekinna fósturláta, ut- anlegsfóstra eða andvana fæð- inga. Að meðtöldum arfgengum sjúkdómum og meðfæddum göll- um er ófrjósemi í víðasta skilningi allt það sem á einhvern hátt dreg- ur úr hæfni mannsins til þess að flytja heilþrigt líf frá einni kynslóð til annarrar. Ófrjósemin verður mörgum áfall, meira en ýmsir gera sér Ijóst, sem vanir eru að hafa áhyggjur af hinu gagnstæða. Eitt er það, að áfallið kemur á ungum aldri, þegar yfirleitt ríkir bjartsýni á framtíðina. Sumum veitist erfitt að tjá sig um þessi mál, samlíf getur truflast og sambúðir rofnað. Það kemur því í hugann, sem spakir menn hafa forðum sagt, að börn eru þarfari foreldrum, heldur en foreldrar börnum. Vandi ófrjósemi í samfélaginu miklast af þvi hversu algeng hún er, svo algeng að nálgast faraldur. Ætla má að um tíunda hvert par sé ófrjósamt um lengri eða skemmri tíma. Það hefur allar götur verið hljótt um þessi mál, enda hafa þolendur trauðla þorið þau á torg. Þá er að verða breyting á, sumpart vegna nýstárlegra aðferða til að leysa vandann, en einnig vegna vaxandi Nýjo línan frá MATIN BLEU mynduó á Islandi Skúli Björnsson, eigandi Sport- þjónustunnar, var einn af fyrstu við- skiptavinum Matin bleu. „Hann trúði á það sem við vorum að gera og við höfum átt mjög gott sam- starf við hann síðustu fimm ár. Svo langaði okkur líka til að kynnast þessu landi, sem okkur finnst eftir daginn í dag vera alveg stórkostlegt og mjög heillandi." Hin taka undir það, enda ekki hægt að segja ann- að en þau hafi verið ótrúlega hepp- in með veður, miðað við veðurfarið almennt undanfarnar vikur, því það var bæði logn og heiðskírt daginn sem þau komu. „Tilgangur ferðar- innar er ekki aðeins sá að taka myndirnar því okkur langar líka til að kynna löndin þar sem þær eru teknar með því að skrifa um þau í bæklinginn." Þó ekki séu nema fimm ár síðan Marion Muslin byrjaði að hanna fatnað undir merkinu Matin bleu er hún langt frá því að vera ný í faginu. Hún segist alltaf hafa verið dugleg að sauma og hanna fatnað fyrir sig og 18 ára gömul opnaði hún sína fyrstu tískuvöruverslun í París ásamt eiginmanni sínum. I fyrstu seldi hún aðeins fatnað frá öðrum, en þar sem hún var alltaf að sauma og hanna hvatti eigin- maðurinn hana til að setja eitthvað af því þeim fötum sem hún gerði sjálf í búðina. Viðbrögð viðskipta- vinanna voru það góð að brátt fór hún að selja eingöngu eigin fatnað og var það upphafið að fyrirtæki þeirra, sem var stofnað fyrir 20 árum og nú framleiðir fatnað undir merkinuMatin bleu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Pierre Jean Rey, Nicole Jamet og Marion Muslin. „Fyrstu árin vorum við aðeins með tískufatnað fyrir konur, en tók- um svo að okkur að hanna barna- fatnað fyrir Marita og Francois Gir- baut (þau framleiða tískufatnað undir merkinu Closed; innskot blm.) og síðar einnig hátískufatnað. Við vorum því búin að vera í þessu í fimmtán ár áður en við byrjuðum með Matin bleu,“ segir Marion og útskýrir hvers vegna þau hafi breytt um stefnu og stíl. „Okkur langði til að hanna sport- fatnað sem væri öðruvísi en það sem fyrir var á markaðnum. Við vild- um tengja hannmeiratískunni, sem var kannski eðlilegt þar sem við höfðum aðallega fengist við að hanna tískufatnað, en hafa hann um leið þægilegan." Ég spyr Marion hverju hún þakki helst hversu vel þeim hefur tekist að selja þennan fatnað. „Ég held það sé margt sem vinnur saman eins og stíll og litasamsetning. Það er líka frumlegt að móta nýja línu fyrir hverja árstíð þegar um íþrótta- fatnað er ræða og það er líka ný- breytni að hanna iþróttafatnað sem er um leið tískufatnaður. Það hefur líka haft sitt að segja að formlegur klæðnaður er ekki lengur eins mikið notaður, ekki einu sinni á vinnustöðum eins og skrif- stofum. Fólk klæðir sig nú orðið í mun einfaldari og þægilegri fatnað, jafnt heima hjá sér sem annars staðar. Lífsstíll fólks hefur því breyst og var að byrja að breytast um svipað leyti og Matin bleu kom á markaðinn. Ég held að það sé skýringin á velgengninni." MEO

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.