Morgunblaðið - 16.03.1990, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 16.03.1990, Qupperneq 8
8s B MPKGUN'BLAUID KÖSTl^DAGyK 1,6.,MAfiZ.^p.O, DÆMISAGA ÚR DAGLEGA LÍFINU HANN hefur haft af mannlegum erfiðleikum að segja allt frá árinu 1963. Fyrstu kynni hans af „réttlætinu" í heiminum urðu um það leyti sem foreldrar hans létust, bæði á sama ári. Á sömu dögum og faðir hans var jarðsunginn, gerði hreppsnefnd staðarins sér lítiðfyrir, með fulltingi sýsluanns og tók hús gamla fólksins eignarnámi, án þess að bú hefði verið skrifað upp, eða nein slík aðgerð farið fram. Það tók hann nokkur ár að ná húsinu aftur úr höndum þessra dáindis- manna. Faðir hans hafði verið orðinn heilsulítill síðustu árin og hafði fengið smávægilegan styrk úr sveitarsjóði til að gera við einn vegg hússins. Þessi styrkur var óafturkræfur, en eftir lát eigendanna töldu hinir vösku hreppsnefndarmenn að sveitarfélagið ætti rétt á að fá þennan vegg aftur, ásamt með húsinu sem hann tilheyrði. Þessi styrk- ur mun hafa verið nærri tvennum mánaðarlaunum verkamanns. Fór að lesa lög Þessir atburðir urðu til þess að hann fór í tómstunum að kynna sér lög sem fjalla um réttarstöðu þeirra sem minna mega sín í þessu landi. Hann vildi vita hvað væri að gerast með þjóðinni. Síðan hafa skipst á skin og skúrir í lífi hans, en hann telur að erfiðleikarnir sem nú eru að enda með gjaldþroti, hafi byrjað árið 1985. Þá varð hann fyrir tvennum áföllum. í fyrsta lagi seldi hann hús norður í landi og var sveitarfélagið kaupandi. Ein- hverra hluta vegna komst sveita- stjórinn aldrei til þess að ganga formlega frá eigendaskiptum, yfir- taka skuldir o.þ.h. Þetta voru lán hjá Húsnæðisstofnun o.fl. Þetta hafði þær afleiðingar að hann fékk ekki lánafyrirgreiðslu hjá þeirri stofnun vegna kaupa á íþúð í Kópa- vogi. Þá hugðist hann selja bíl sem hann átti og bjarga sér þannig út úr vandanum. Þegar hann hins vegar var á leið til þílasölunnar þar sem ganga skyldi frá sölunni, þá var ekið á hann. Bifreið var ekið yfir Grensásveg á rauðu Ijósi og rakleitt í hlið hinnar og eyðilagði hana. Þrátt fyrir að hann væri á grænu Ijósi, en hinn á rauðu, var hann dæmdur í algjörum órétti. Málið veltist í kerfinu Mál þetta hefur nú verið að velt- ast í kerfinu allt frá 1985 og niður- staða er engin. Vitni kom fram, sem lýsti atburðum á þann veg að hinn bíllinn hefði verið á rauðu Ijósi. Ekki var talin ástæða til að taka mark á því. Núna, föstudaginn 16. febrúar 1990, erfyrst málflutn- ingur í þessu máli. Þetta varð til þess að hann tap- aði íbúðinni í Kópavogi og sat uppi með ein árslaun í lögræðikostnað og innheimtulaun. Ofan á það bætist svo ónýt bifreið, ef ekkert fæst út úr henni. Á þessum tíma hafði hann nokk- uð fengist við að aðstoða fólk sem í vanda rataði og vissi því að rétt- lætið er ekki alltaf það afl sem ferðinni ræður með þjóðinni. Hans eigin reynsla var aðeins frekari staðfesting á því. Hann fullyrðir að réttlætið sé heldur fáséð fyrir- bæri í íslensku réttarfari. Honum finnst að mál sem snerta lifandi fólk séu afgreidd fyrir dómi á líkan hátt og um dauða hluti sé að ræða og að meiri nærgætni ríki í um- fjöllun um fjármuni en fólk. Hann telur að dómstólar þessa lands dæmi frekar eftir rökflækjum en sannleikanum. í gegn um árin hefur hann safn- að að sér ótrúlega miklu af stað- reyndum úr dómskerfinu og hefur því úr miklu að moða. Hann bend- Ósýnilegur tepoki? Nei, en þó næstum því! Hárfínir, vart sjáanlegir þræðirnir í Braga tepokanum eru einstakir og ólíkir öðrum tepokum. Þeir hleypa hindrunarlaust í gegn öllu góða tebragðinu sem venjulegir tepokar drekka í sig. Með Braga tei verður tedrykkjan því ósvikin ánægja. Braga te fæst í tveimur ilmandi bragðtegundum, Ceylon og Earl Grey. Kaffíbrennsla Akureyrar hf. ir á að í afgreiðslu mála þeirra sem lenda í óhöppum í umferðinni, séu til úrskurðaraðilar sem geri eigur manna upptækar, utan við lög og rétt. Þar á hann við lögmenn trygg- ingafélaganna. Hann hefur undir höndum bréf frá dómsmálaráðu- neytinu dags. 7. apríl 1986, sem staðfestir að þessir aðilar hafi enga heimild til að kveða upp þá úrskurði sem þeir láta frá sér fara. Starfaði í banka Um tíma starfaði hann í einum bankanna og kveðst þá hafa orðið mikið var við fjárhagsvanda hjá fólki. í bankanum gerði hann mikið af því að aðstoða fólk við að endur- skipuleggja skuldastöðu sína. Það sem hann telur sammerkt með öllu þessu fólki, er það að hvergi mætti það skilningi eða velvilja í öllu kerfinu. Hann fullyrðir að í bönkum þessa lands sé litið niður á þá sem ekki geta staðið í skilum, burtséð frá því hverjar ástæður liggja þar að baki. Hann bendir á að nú hafa laun verið óverðtryggð um langan tíma. Hins vegar eru í öllum skuldabréfum ákvæði um það að bankanum sé heimilt að breyta vöxtum hvenær sem er, þannig að honum er í sjálfsvald sett hvenær hann kippir fótum undan greiðslugetu fólksins. Hann segir orðrétt: „í bankakerfinu er ákveðið tekju- myndunarhugtak, sem mætti kalla að fólk sé í hæfilegum vanskilum. Þar á ég við það, að bönkunum er einstaklega hagstætt að fólk sé svo sem tveim mánuðum á eftir með greiðslur sínar. Þá eru bank- arnir að fá dráttarvexti á allar greiðslurnar. Að miklu leyti er gengið út frá þessum formerkjum í bönkunum, því stór hluti af af- komugrundvelli þeirra eru van- skilavextir. Þessum þætti hefur aldrei verið skilað inn í umræðuna um vaxtamálin af nógu miklum þunga. Fólk er beinlínis neglt upp við vegg, í því skyni að bankarnir fái þessar tekjur." í starfi hjá G-samtökunum Nú hefur þessi maður tekið til starfa á skrifstofu G-samtakanna, þar sem hann situr frá morgni til kvölds og vinnur fyrir vanskilafólk við að endurskipuleggja fjármál þess og leita samninga fyrir það. Þetta gerir hann þrátt fyrir að eng- in trygging sé fyrir því að hann fái laun sín greidd. Hvatinn að öllu þessu segir hann vera margra ára reynslu af ranglæti þessa þjóð- félags og löngun til að rétta hag þeirra sem verða undir í frumskógi mannlegs samfélags. Þetta starf er hafið að fullu og verður ekki svo auðveldlega stöðvað. Grétar Kristjónsson, formaður G-samtakanna. Sumarlitir f rá Dior Nýjar snyrtivörurfrá Christian Dior fyrir sumarið eru nú komnar í versl- anir. Af nýjungum má nefna vara- litablýanta sem eru einnig með penslum og yddara sem fylgir. Lit- irnir eru átta talsins. Þá eru einnig komnir nýjir augn- skuggar, fimm saman í pakkningu eða tveir saman í öskju. Samsvar- andi varalitir og naglalökk fylgja að sjálfsögðu með í sumarlínunum. Nýtt f rá Babor Babor International, hefur ný sent frá sér tvennskonar litalínur fyrir sumarið og er þær að finna í augn- skuggum, kinnalitum, naglalökk- um, varalitum og öðru sem við- kemur snyrtingunni. Annars vegar byggja litirnir á fjólurauðum tónum og hins vegar ferskjulitum. Náttúrulitir f rá Boots Náttúrulitir einkenna nýjustu snyr- tivöruframleiðsluna frá Boots. Augnskuggar, kinnalitir, varalita- gloss og naglalökk í litum jarðar og og náttúru fyrir sumarið. Húövörur f rá Biodroga Nú hefur verið bætt við húðsnyrti- línuna frá Biodroga. Má þar nefna hreinsivörur, sem ekki ganga á rakabirgðir húðar- innar. Hréinsilínan samanstendur af hreinsimjólk, hreinsigeli, sápu og tvenns konar andlitsvatni. Þá er einnig komið svokallað „Contouring gel“ sem er ætlað að vinna gegn appelsínuhúð, en gelið er framleitt í svokaðri „Body form- ing“ línu. Það ber að nota í 14 daga í senn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.