Morgunblaðið - 03.04.1990, Blaðsíða 10
II
oeei jííma .8 íiuoAauuíiíW aiaAjanuoflOM
itHiimiii iiusmvimii n«i
10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRIL 1990
681066
Leitið ekki langt yfir skammt
Oskum eftir fasteignum á sölu-
skrá okkar. Sérstaklega vantar fyrir
ákv. kaupendur:
Einbýli i Setbergslandi, Hafnarfirði
2ja herb. íb. i miðbæ Rvíkur
3ja-4ra herb. ib. i Vesturbæ Rvikur
2ja-3ja herb. íHraunbæ m. stórri stofu
3ja-4ra herb. i Austurbæ Rvikur.
Garðabær - óskast
Höfum fjárst. kaupanda að einbhúsi i
Garðabæ. Mjög góðar greiðslur í boði.
Hraunbær
80 fm 2ja-3ja herb. íb. á 1. hæð með
suðursvölum. Ný teppi, nýmáluð. Laus
strax. Verð 4,5 millj.
Stóragerði
93 fm góð 3ja herb. íb. m/íbherb. i kj.
Baðherb. endum. Ákv. sala. Verð6,0rrr.
Ljósheimar
100 fm 4ra herb. íb. Áhv. hagst. lang-
tímalán. Útb. á árinu ca 2 millj. Laus
strax.
Öldutún - Hf.
140 fm 5-6 herb. efri sérh. með bílsk.
Verð 7,7 millj.
Þingholt
Til sölu nýl. einbhús með tveimur ib.
auk mögul. á lítilli íb. á jarðhæð. Tvöf.
innb. bílsk. Eignask. mögul. Verð 15
millj.
Grafarvogur - óskast
Höfum kaupanda að 4ra herb. ib. íGraf-
arvogi.
Engihjalli
100 fm 4ra herb. íb. á 5. hæð i lyftuh.
Vandaðar innr. Fallegt útsýni. Þvottah.
á hæðinni. Verð 6,2 millj.
Garðhús - raðhús
200 fm endaraðh. m/innb. bílsk. Afh.
fullfrág. að utan, fokh. að innan. Skipti
mögul. á 2ja-3ja herb. íb. Teikn. á
skrifst. Verð 7,0 millj.
Miðvangur - Hf.
Til sölu verslpláss i þjónustukjarna t.d.
fiskbúð, vefnaðarvöruversl. o.fl.
Leiðhamrar
Glæsilega staðsett einbhús m. innb.
bílsk. Mikið útsýni. Selst fokh. eða
lengra komið. Uppl. og teikn. á skrifst.
Eignask. mögul.
Söluturn
Til sölu góður söluturn i Hafnarfirði.
Velta ca 4 millj. á mánuði. Eignask.
mögul.
Vesturbær - verslun
Til sölu eða leigu matvöruverslun vel
staðsett í verslunarkjarna við Dunhaga.
Húnsæðið leigist eða selst með. Til
afh. strax.
Húsafell
FASTBGNASALA Langholtsvegi 115
(BæiarieiSahúsinti) Sáni: 681066
Þorlákur Einarsson,
Bergur Guðnason hdl.,
Þórey Aðalsteinsd.,
lögfræðingur.
Sjöundi ára-
tugurinn
________Myndlist______________
BragiÁsgeirsson
Á Listasafni íslands stendur yfir
samnorræn sýning sem hefur að
markmiði að vera úttekt á nývið-
horfum í myndlist sjöunda áratug-
arins. Þetta er umfangsmikil sýning
enda kemur það fljótlega fram að
'listasafnið er of lítið fyrir hana alla
og hefur því ékki í þessu tilfelli
sniðið sér stakk eftir vexti.
Maður verður fljótlega var við
að það vantar inn á sýninguna, ef
mark má taka á sýningarskránni,
en löngu fyrr tekur maður eftir því
hve margt vantar sem alls ekki sér
stað eða rétt er vikið að í sýningar-
skrá.
Að sjálfsögðu er það góðra gjalda
vert að gera úttekt á þessum við-
burðaríka áratug sem mikil og hröð
uppstokkun einkenndi — sennilega
meiri og hraðari en nokkru sinni
fyrr á öidinni.
Svo mikið var að gerast að jafn-
vel hefði verið æskilegt að skipta
sýningunni í tvennt og gera fyrri
helming áratugarins ítarleg skil, en
taka síðan fyrir seinni helminginn.
Það má og strax koma fram að
maður furðar sig á að sýningin
skufi ná fram á áttunda áratuginn
eða til 1972, og jafnvel hafa ein-
stakar myndir ártalið 1973!
Þá fer maður að hugieiða til-
ganginn og grunar fljótlega að hér
sé meira verið að koma að vissum
miðstýrðum einkaviðhorfum og for-
sjárhyggju, en að bregða upp sann-
verðugri mynd af þróuninni og því
sem umræðu vakti á tímabilinu í
hveiju landanna fyrir sig.
Þetta er víst í stíl við þá vísu
landsfeður sem þykjast vera færir
um að framlengja jólunum og þá
sólhvörfunum um leið!
Víst kannast maður við heilmikið
af því sem til sýnis er frá sýning-
um, sýningarskrám norrænna sýn-
inga, tímaritum og bókum frá ára-
tugnum, en það er mun meira sem
maður kannast lítið við og ekki
vakti athygli nema í mjög þröngum
hópi innvígðra.
Mikil áhersla er lögð á hið svo-
nefnda neðanjarðartímabil eða frá
Bítlum til hippa og þannig er hin
svonefnda hasskynslóð ríkulega
kynnt, en margir aðrir atkvæða-
miklir listamenn tímabilsins, sem
ekki ánetjuðust hassi, fíkniefnum
neins konar, austurlenzkum trú-
argrillum og tötrasósíalisma eru
sem statistar.
Tímabilið einkenndist vissulega
að hluta til af blómabörnum, bítlum
og hippum og þeirra hlutur skal
ekki fyrir borð borinn því að margt
merkilegt kom þar fram. í upphafi
virtist allt í sómanum hjá þessum
náttúrubörnum en afleiðingarnar
voru hrikalegri en þeir svartsýnustu
létu sér detta í hug. Leitin að friði
og lífshamingju í Indlandi kostaði
hundruð þúsunda unglinga og ann-
að fólk lífið og flest af því endaði
sem betlarar, tannlaust og rænu-
laust í rennusteininum. Afleiðing-
arnar hlóðu á sig og menn eru enn-
þá að berjast við vandamálin sem
tímabilið skapaði varðandi neyslu
fíkniefna og ræktun þeirra víða um
heim.
Ekki er mögulegt að kenna end-
urreisn mannlífs né myndlistar við
þetta fólk, en öllu frekar upplausn,
eins og t.d. er öll tæknibrögð voru
bannlýst, klaufinn og klastrarinn
ieiddur til öndvegis, og flóð af léleg-
um og innihaldslausum málverkum,
rýmisverkum og ljósmyndum fyllti
sýningarsali undir hugtakinu list.
Það er óhætt að skilgreina þenn-
an áratug sem tímabil algerrar upp-
stokkunar gilda í iistinni en hér var
það sjálft neysluþjóðfélagið, ný-
tækni og auglýsingaiðnaðurinn sem
lögðu þyngsta lóðið á vogarskálina.
Þá var þetta einnig tímabil meiri
markaðssetningar myndlistar en
nokkru sinni fyrr oggrundvöllurinn
að síðari tíma þróun og öfgum lagð-
ur. Þar voru á ferð fjármálafurstar
markaðsþjóðféiagsins, en síst af
öllu eignalausir hippar. Án þessara
manna og stuðnings þeirra við list-
ir hefði þróunin orðið önnur, því öll
list er háð fjármagni og listmiðlur-
um eigi hún að lifa.
Skilin á milli sjötta og sjöunda
áratugarins voru svo mikil að þau
minna meira á aldaskil, því að slík
var uppstokkunin, og því skiljanlegt
að margur sat eftir í þróuninni eða
skildi hana alls ekki.
Menn voru furðu fljótir að taka
við sér á Norðurlöndum og um sumt
t.d. mun fyrr en þeir í París, sem
missti við það forustuna, sem hún
hefur nú fyrst möguleika til að
hrifsa til sín aftur vegna mikilla
fjárframlaga til menningar hin
síðari ár, frjálslyndis stórhug og
Málverk og svartkrít
Myndlist
Bragi Asgeirsson
í listhúsinu einn einn að Skóla-
vörðustíg 4 sýnir Krístbergur Pét-
ursson málverk og svartkrítar-
myndir fram til 4. apríl.
Kristbergur er aðallega þekktur
fyrir framiag sitt á sviði grafík-
Matvöruverslun - Austurbær
Til sölu mjög góð matvöruverslun miðsvæðis í Austur-
bænum. Stuttur opnunartími. Góð velta miðað við verð.
Verð 9 millj. Eignaskipti möguleg.
Húsafell ^
FASTEKjNASALA Langhoitsvegi 115 Þorlákur Ernarsson,
(Baeiarteiðahúsmu) Smii:681066 Berflur Guana60n hdU
Þórey Aðalsteinsdóttir
lögfræðingur.
lista, en hann mun fyrst og fremst
menntaður á því sviði. Það má og
strax kenna grafík- listamanninn á
myndunum á sýningunni, sem allar
eru í dökkum tónum og margar
hveijar frekar þungar í viðkynn-
ingu.
Einkum á þetta við um krítar-
myndirnar en formin í þeim eru
yfírleitt þung, stíf og óvægin og
lítið um ávalar, spengilegar línur
og fjörlega og blæbrigðaríka grá-
tóna.
Það er þannig ekki mögulegt að
kalla þetta lifandi og skemmtilega
list þótt að myndrænt séð kunni
þær fyllilega að standa fyrir sínu
og umgerð þeirra gerir þær og ekki
léttari, en á líkan veg römmuðu
menn einmitt inn grafískar royndir
í gamla daga og þótti sígilt.
Ég er þess fullviss að með létt-
ari umgerð kæmist boðskapur
Kristbergur Pétursson
myndverkanna betur til skila — að
því er virðist hinn harði og óvægi
boðskapur.
Það er mun léttara yfir málverk-
unum og í þeim meiri lífrænn hrynj-
andi og satt að segja þóttu mér þær
myndir á sýningunni áhugaverðast-
ar, sem búa yfir mestu innbyrðis
spili og lífsmögnum. Ég er nefnilega
ekki á því að persónueinkenni Krist-
bergs séu einmitt falin í þessum
þungu og eintóna formum heldur
frekar í dulmögnuðum kyngimætti,
og sá er annað og meira en einung-
is svartir og harðir skuggar. Einnig
dýpt, sveigjanleiki og lifandi blæ-
brigði.
Er gjaldkerastarfið flókið?
Við greiðum úr því.
Æði margir gjaldkerar húsfélaga og félagasamtaka
vita hvernig það er að sitja fram á nótt við að reikna út
greiðslur og skrifa gíróseðla eða kvittanir. Vera svo
jafnvel andvaka yfir öllu saman.
Núna höfum við hjá sparisjóðunum endurbætt
félaga- og húsfélagaþjónustuna. Við reiknum
saman gjöld og skiptum þeim niður á greiðendur,
skrifum gíróseðla með fullum upplýsingum og sjáum um
innheimtu.
Með tengslum við Símabanka sparisjóðanna
er hægt, hvenær sem er, að fá upplýsingar um reikninga
félagsins, hreyfingu o.fl.
»
SPARISJÓÐIRNIR -