Morgunblaðið - 03.04.1990, Side 33
OÖÖI JfíiaA l: SiU
MORGDNBLAÐIÐ
VTÐSKEPTIAIVINNUIÍF
íMí:fÍ5I ii wafj/'JosiOM
ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1990
33
wmm —
*
Islensk fyrir-
tækikomin út
Sparisjóðir
Hagnaður SPRON varð 34,5
milljónir króna
HAGNAÐUR Sparisjóðs I en var 31,7 milljónir króna
Reykjavíkur og nágrennis var 1988. Fyrir skatta nam hagnað-
34,5 milljónir króna á liðnu ári, | urinn 72,3 milljónum króna.
Tryggingar
SÍT óskar ekki eftír sérstök-
um hömlum vegna erlendra
vátryggingarfyrirtækja
====== Efnahagsumrœðan =====
1. Leiðir álver til lakari bfskjara 7
Hofundur: Jöhann Rúnar Ðjörgvinsson
= Efnahagsumrsðan =
Á AÐALFUNDI Sambands
islenskra tryggingafélaga (SIT),
sem haldinn var fyrir nokkru var
fjallað um þróun vátrygginga og
vátryggingastarfsemi í Evrópu.
Flutti dr. John van Waterschoot
formaður UPEA, belgískra syst-
ursamtaka SÍT, erindi um vá-
tryggingamarkaðinn i Evrópu
eftir 1992 og afstöðu Belga í því
sambandi.
í frétt frá SÍT segir að um þess-
ar mundir séu rétt 30 ár frá stofn-
un Sambands íslenskra trygginga-
félaga. Hlutverk félagsins sé að
gæta hagsmuna vátryggingafélag-
anna í sameiginlegum málum þeirra
og m.a. að annast upplýsingagjöf
af ýmsu tagi, jafnt út á við sem inn
á við. Megi í því sambandi nefna,
að SIT rekur Tryggingaskólann,
sem veitir starfsfólki vátrygginga-
félaganna fræðslu um vátryggingar
og rekstur. Aðildarfélög SIT eru
nú 14.
Afstaða SÍT til sameiginlegs
markaðar í ríkjum EB og þátttöku
EFTA-ríkja í markaðssvæðinu, að
því er að vátryggingum lýtur, er
eftirfarandi, að því er segir í frétt
frá SÍT:
1. Almennt ber að auka frelsi í við-
skiptum og hverfa frá höftum.
2. Ekki er ástæða til að lýsa yfir
efnislegum fyrirvörum eða óska
eftir sérstökum hömlum varð-
andi vátryggingastarfsemi, t.d.
um starfsemi erlendra vátrygg-
ingafélaga hér á landi.
3. Það , er pólitísk ákvörðun
íslenskra stjórnvalda, hvað þau
vilja gera, t.d. varðandi vátrygg-
ingafélög, sem starfa samkvæmt
sérstökum lögum og annast ein
ákveðnar vátryggingar, en
ástæða er til að ætla að löggjöf
af slíku tagi gæti gengið í ber-
högg við EB-réttinn.
4. Ljóst er að í hugsanlegum samn-
ingum milli EFTA og EB verða
fyrirvarar af hálfu EFTA fyrst
og fremst að vera fáir og varða
grundvallaratriði. Fyrirvarar af
hálfu íslenskrar vátrygginga-
starfemi yrðu því þeir einir,
a.m.k. að svo stöddu, að vá-
tryggingafélögin fengju aðlög-
unartíma með svipuðum hætti
og gerðist varðandi einstakar
iðngreinar hér á landi, þegar
ísland varð aðili að EFTÁ upp
úr 1970.
Einar Sveinsson, sem hefur verið
formaður SÍT undanfarin 2 ár lét
af formennsku og voru honum
þökkuð mikil og sérstaklega farsæl
störf. Núverandi formaður er Ingi
R. Helgason. Aðrir í stjórn eru Jó-
hann E. Björnsson, Gísli Ólafsson
og Bjarni Þórðarson. Varamenn eru
Axel Gíslason og Páll Sigurðsson.
Aðalfundur SPRON var haldinn
síðastliðinn föstudag, en í árs-
skýrslu sparisjóðsins kemur fram
að eigið fé var í árslok 332,2 millj-
ónir króna og jókst um 86,8 millj-
ónir á árinu. Eiginfjárhlutfallið var
10,2%, en það má vera lægst 5%
samkvæmt lögum. Hins vegar var
hlutfall fasteigna og búnaðar
72,3% í árslok og lækkaði úr
80,7%. Þetta hlutfall má ekki vera
hærra en 65% af eigin fé en bank-
ar og sparisjóðir hafa aðlögun-
artíma fram til 1. janúar' 1991 til
að uppfylla þetta ákvæði.
Heildarinnlán námu 3.108 millj-
ónum króna í lok síðasta árs og
jukust um 30,1%. Útlán, án af-
skriftarreiknings og útlána Veð-
deildar, námu 2.652 milljónum
króna og jukust um 42,3%. Með
útlánum Veðdeildar voru heildar-
útlán 3.059,6 milljónir króna.
Liðlega 29 milljónir króna voru
lagðar á afskriftarreikning útlána
og í árslok voru 62,6 milljónir
króna á reikningnum.
Rit nr. 4
Reykjavlk - Mars 1990
RITIÐ — Fjórða hefti Efna-
hagsumræðunnar er nýkomið
út.
Efiiahagsum-
ræðan komin út
FJÓRÐA ritið a'f Efnahagsum-
ræðunni, hagíræðiriti sem fjallar
um ehiahagsmál líðandi stundar,
er komið út. Höfundur er Jóhann
Rúnar Björgvinsson þjóðhag-
fræðingur.
Að þessu sinni er spáð í líklega
atvinnu- og efnahagsþróun á þess-
um áratug, hvernig ál- og orku-
framkvæmdir muni falla að þeirri
þróun, og í líkleg efnahagsáhrif
þeirra framkvæmda.
BLAÐA— OG BÓKAÚTGÁFAN
Fróði hf. hefur sent frá sér bókina
„íslensk fyrirtæki 1990“. Hefur
bókin verið gefin út árlega í 20
ár. í frétt frá Fróoða segir að lögð
sé áhersla á að allar upplýsingar
í bókinni séu ítarlegar og áreiðan-
legar og í því skyni sé hafit sam-
band við öll starfandi fyrirtæki á
iandinn og leitað upplýsinga.
Bókin skiptist í sex meginkafla.
í fyrsta kafla eru upplýsingar fyrir
útflytjendur. í öðrum kafla er útflytj-
endaskrá, þ.e. skrá yfir fjölda
íslenskra útflytjenda og þær vörur
sem þeir flytja út. í þriðja kafla er
vöru- og þjónustuskrá. Er hún flokk-
uð niður í þeim tilgangi að gera al-
menningi auðveldara að nota hana
og finna hvar ákveðna vöru eða þjón-
ustu er að fá. í fjórða kafla er um-
boðaskrá. í fimmta kafla, sem jafn-
framt er veigamesti og stærsti kafli
bókarinnar er fyrirtækjaskrá. I hon-
um er að finna upplýsingar um flest
starfandi fyrirtæki, félög og stofnan-
ir á íslandi, að því er segir í frétt
frá Fróða. í síðasta kaflanum er
skipaskrá, og er þar m.a. að fínna
farsímanúmer, upplýsingar um út-
gerðaraðila o.fl.
«wSSii'»W®eH
u»SSZsssss!sr^
Hjá okkur sitja gæöin í fyrirrúmi.
FAG Kúlu- og rúllulegur
TIMKEN Keilulegur
Ásþétti
opúbéit (ontÍlHMlfdl Viftu- og ti'mareimar
precision Hjöruliðir
■f SACHS Höggdeyfar
a , og kúplingar
Bón- og bílasnyrtivörur
Þekking Reynsla Þjónusta
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SiMI 84670
• Hreinsiefni • Pappír • Vélar • Ahöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • O.fl. o.fl.
REKSTRARVÖRUR
Réttarhálsi 2,110 Rvík. - símar 31956-685554-Fax 687116
KYHHIHG t K.E.W. HAÞRYSTIDÆLUM - MARGAR GERÐIR
Sérfræðingar K.E.W. verda ó staðnum 3. og 4. apríl fró kl. 14.00-18.00 bóða dagana
* Hobby heimilisdælan lítil handhæg og þægileg * Stærri og kraftmeiri dælur fyrir fyrirtæki og stofnanir
* Eins fosa, þriggja fasa og bensíndrifnor dælur * Mikið úrval fylgi- og aukahluta
* Góð viðgerðar- og varahlutaþjónusta Kynningarverð á Hobby dælu
• Hreinsiefni • Pappir • Vélar • Ahöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • Q.fl. o.fl.