Morgunblaðið - 03.04.1990, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1990
55
Barist um heildarsigurvegara.
Guðmundur Bragason og Ivar
Hauksson spenna vöðvana fyrir
dómara, en Kjartan Guðbrands-
son, Hreinn Vilhjálmsson og
Gestur Helgason bíða átekta
eftir úrslitunum.
fínpússa þá vöðva sem ég er komin
með, en ætla ekki að bæta á mig
vöðvum, halda kvenleikanum."
sagði Inga í samtali við Morgun-
blaðið. „Ég byijaði fyrst að æfa
vegna bakmeiðsla sem ég hlaut í
djassballett, sem ég hafði æft í tíu
ár. Fyrir tveimur árum ákvað ég
svo að snúa mér að vaxtarræktinni
og hef æft með unnusta mínum,
Guðmundi Bragasyni. Þegar ég var
búin að vinna kvennatitilinn, þá
þorði ég ekki að vona að hann ynni
í karlaflokki, það var svo ótrúiegt,
því andstæðingar hans voru allir
nijög góðir. Draumurinn rættist þó
og við munum tvíeflast við æfíng-
arnar ef að líkum lætur,“ sagði
Inga.
Keppni í flokki Guðmundar
Bragasonar var mjög jöfn. Fyrri
Islandsmeistari, Hreinn Vilhjálms-
son, var í góðu formi, var vöðva-
meiri, en Guðmundur þótti hafa
betra samræmi milli einstakra
vöðva og líkamshluta. Sama var upp
á teningnum þegar keppt var um
heildarsigurvegara. Þá bættist ívar
Hauksson úr þyngsta flokknum í
hópinn, auk sigurvegara úr öðrum
þyngdarflokkum karla. ívar var
næstur því að mati dómara að slá
Guðmundi við, en Hreinn var valinn
sá þriðji besti yfir heildina.
„Ég átti aldrei von á þessu, bjóst
við að Kjartan Guðbrandsson eða
Hreinn bæru sigur úr býtum,“ sagði
Guðmundur. Sex ár eru síðan hann
byijaði að þjálfa líkama sinn og
hann byrjaði að keppa fyrir fjórum
árum. „Ég gekk inn á líkamsrækt-
arstöð horaður og renglulegur, með
tnikla minnimáttarkennd vegna
vaxtarlagsins. Eftir fyrsta árið sá
ég mikinn mun og þá varð ekki
aftur snúið, síðar sneri ég mér að
hreinni vaxtarrækt í stað líkams-
fæktar. Þetta krefst mikils sjálfs-
aga, ekki síst í mataræði og fyrir
keppnina var ég farinn að sjá pyls-
ur og ís í hillingum síðustu dagana.
Slíkur matur hefur verið á bann-
hsta í nokkurn tíma. Titillinn var
óvæntur glaðningur, ég gat ekkert
sofið nóttina eftir keppnina, adrena-
línið var enn á fullu yfir þessum
óvænta árangri,“ sagði Guðmund-
ur.
■ SHARPM Thompson, óperu-
söngkona, hélt tónleika í Húsavík-
urkirkju á dögunum við undirieik
manns síns David B. Thompson,
sem jafnframt lék nokkur verk á
orgel. Voru tónleikarnir vel sóttir
og listafólkinu vel fagnað með lófa-
taki og blómum. Thompsonshjónin
hafa í tvö ár verið kennarar við
Tónlistarskóla Húsavíkur og
hann jafnframt verið organisti
Húsavíkurkirkju og hún söngstjóri
kirkjukórsins. Þetta er mjög mennt-
að tónlistarfólk. Frúin hefur lokið
BA-prófi í tónlistarkennslu og
meistaragráðu í söng við háskólann
í Suður-Karólínu og verið söng-
kennari við þekkta háskóla. Hennar
er getið í bókinni „Who’s Who in
Music“. Sérgrein Davids er píanó-
leikur og stjórnun tónlistar við
Land míns íoður, sem frumsýna á
hjá Leikfélagi Húsavíkur um næstu
helgi. Þessi hjón hafa hlotið al-
menna hylli tónlistarunnenda á
Húsavík og vildu Húsvíkingar hafa
þau sem lengst, en þau fara vestur
til frekara náms á komandi hausti
og verður þeirra hér saknað.
— Fréttaritari
■ KAÞARSIS-leiksmiðja frum-
sýnir gamansjónleikinn Sumardag
eftir Pólverjann Slavomír Mrozek
mánudaginn 9. apríl. Á íslandi er
Mrozek fyrst og fremst þekktur
fyrir sjónleiki sína, svo sem Á
rúmsjó (Þjóðleikhusið 1966),
Tangó (Leikfélag Reykjavíkur
Skúli Gautason, Bára L. Magnús-
dóttir og Ellert A. Ingimundar-
son í hlutverkum sínum í Sumar-
degi.
1967) og Vatslaw, en hann er einn-
ig virtur smásagnahöfundur. Gam-
ansjónleikurinn Sumardagur segir
frá konu og tveimur karlmönnum
sumardag einn, þau hittast og hafa
örlagarík áhrif hvert á annað með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Ka- •
þarsis-leiksmiðja er hópur atvinnu-
fólks, sem samanstendur af 6 leik-
urum, leikstjóra, raddkennara og
framkvæmdastjóra. Leikarar í
Sumardegi eru þau Bára L. Magn-
úsdóttir, Skúli Gautason og Ellert
A. Ingimundarson sem er gestur
hópsins í þessari uppsetningu. Þór-
arinn Eldjárn hefur þýtt leikinn
úr sænsku og leikstjóri er Kári
Halldór. Sýningar Kaþarsis á Sum-
ardegi verða í Leikhúsi frú Em-
ilíu, Skeifunni 3C í Reykjavík. 1
■ FRAMBOÐSLISTI Alþýðu-
flokksins á Eskifirði fyrir komandi
bæjarstjómarkosningar hefur verið
birtur. I efsta sæti listans er Guð-
mundur Svavarsson málarameist-
ari. í öðru sæti listans situr Ás-
björn Guðjónsson bifvélavirki, í
þriðja sæti Bjarnrún Haraldsdótt-
ir skrifstofumaður, fjórða sæti
Benedikt Hilmarsson húsgagna-
smiður, fimmta sæti Jón Trausti
Guðjónsson sjómaður, sjötta sæti
Aðalheiður Dóra Sigurðardóttir
verzlunarmaður og í sjöunda sæti
Grétar Rögnvarsson skipstjóri.
Alþýðuflokkurinn á nú einn fulltrúa
í bæjarstjórn Eskifjarðar, Guð-
mund Svavarsson.
HAJ
■ FUNDUR fiskframleiðenda og
útflytjenda haldinn 18. mars síðast-
liðinn á Hótel Sögu lýsir yfir
ánægju sinni með það að utanríkis-
ráðherra skuli hafa leyft útflutning
á léttsöltuðum fiski. Bann sjávarút-
vegsráðherra við framleiðslu á
ferekum, flöttum fiski og flökum
ógnaði atvinnuöryggi fjölda fjólks
og skapaði hættu á að starfsemi
margra framleiðenda yrði lögð í
rúst. Heimild utanríkisráðherra
tryggir áframhaldandi starfsemi
þessara aðila. Fundurinn skorar á
utanríkisráðherra að leyfa útflutn-
ing á léttsöltuðum fiski að minnsta
kosti út vetrarvertíðina. Jafnframt
skorar fundurinn á sjávarútvegs-
*? háðhérríí áðléýfa þegat í Stáð’fráftí-'!
leiðslu á ferskum unnum físki á ný
undir ströngu gæðaeftirliti. Tækni-
framfarir og hraðari flutningar gefa
sífellt aukna möguleika á útflutn-
ingi á unnum ferskum fiski í ýmsu
formi. Það er nú einmitt sú vara
sem neytandinn kaupir hæsta verði.
Utflutningsbannið einangrar Island
frá þátttöku í markaðssetningu á
fullunnum ferskum flökum á borð
hins erlenda neytanda. Fundurinn
krefst nýrrar markaðsstefnu og al-
gjörs fijálsræðis í útflutningi á unn-
um ferskum fiski. Hann mótmælir
jafnframt miðstýringu og vald-
boðsstefnu.
Tónleikar verða í sal Tónlistar-
skóla Kópavogs 4. og 7. apríl.
■ PÁSKATÓNLEIKAR Tónlist-
arskóla Kópavogs verða haldnir í
sal skólans, Hamraborg 11,3. hæð,
miðvikudaginn 4. apríl ki. 19.00 og
laugardaginn 7. apríl kl. 11.00.
Fjölbreytt efnisskrá. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Skálholt
■ KYRRÐARDAGAR í Skál-
holtsskóla verða haldnir um bæna-
dagana. Þeir hefjast á miðvikudags-
kvöldi, 11. apríl, og lýkur á laugar-
degi fyrir páska. Kyrrðardagar eru
íhugunar-, bæna- og hvíldardagar.
Þátttakendur hverfa frá skarkala
hveredagslífsins og ganga á vit
iVartnan ' ftl’ll olllim
opnir og henta þeim, sem leita slök-
unar, vilja rækta sinn innri mann
og stunda íhugun í anda kirkjunn-
ar. Sigurbjörn Einarsson, biskup
hefur með höndum alla fræðslu.
Skráning fer fram á Biskupsstofu
í Reykjavík.
(Fréttatilkytining frá Skálholtsskóla)
Morgunblaðið/Þorkell
Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, klippir á borða við vígslu
viðbyggingar Háskólabíós.
Sumarbæklingur Ferðaskrif-
stofii stúdenta kominn út
SÖNGSVEITIN Boney M kemur
fram á svonefiidri dans- og
músikhátíð í Danshöllinni um
næstu helgi.
í frétt frá Danshöllinni segir, að
á hátíðinni verði rifjuð upp dansár-
in 1975-1980. Boney M hafi þar
leikið aðalhlutverkið, til dæmis með
lögunum Ma Baker, Daddy Cool,
Rivers of Babylon o.fl. Á fyrstu hæð
Danshallarinnar verður diskótek, á
annarri hæð verða Boney M með
sýningu og dúettinn Þú og ég, sem
er skipaður Jóhanni Helgasyni og
Helgu Möller, syngur nokkur lög.
Hljómsveitin Sambandið ieikur
síðan fyrir dansi. Á þriðju hæðinni
verður hljómsveit Stefáns P. með
Ara Jónsson söngvara innanborðs.
Þá segir í fréttinni, að sérstaklega
verði vandað til matseðils á þessum
kvöldum. Kynnir verður Þorgeir
Ástvaldsson.
Yiðbygging Há-
skólabíós vígð
SUMARBÆKLINGUR Ferðaskrif-
stofu stúdenta er kominn út og
það sem ferðaskrifstofan hyggst
leKgja mesta áherslu á í sumar
eru námsmannafargjöld, ævin-
týraferðir, Interrail og málaskól-
ar.
Námsmannafargjöldin hafa lang-
an gildistíma og farseðlum má
breyta. Hægt er að fljúga til einnar
borgar og frá annarri heim fyrir svip-
að verð og ef ferðast er til og frá
sömu borg.
Interrail-kortin sem Ferðaskrif-
stofa stúdenta hefur til sölu eru 30
daga lestarkort sem gilda í flestar
lestir V-Evrópu auk Marokkó og
Tyrklands. Interrail-kort geta allir
keypt þar sem þau eru ekki 'engur
bundin við að fólk sé yngra en 26 ára.
Ferðaskrifstofa stúdenta hefur um
alllangt skeið selt ferðir um Evrópu
í tveggja hæða strætisvögnum. Þessi
óvenjulegi ferðamáti er mjög vinsæll
og í sumar er boðið upp á 5 mismun-
andi ferðir.
Stuttar ævintýraferðir með Enco-
unter Overland eru farnar yfir sum-
artímann og má benda á ferðir í
Tyrklandi og margar mismunandi
ferðir í S-Ameríku, M-Ameríku og
Afríku. Einnig er boðið upp á fjöl-
breytt úrval af ferðamöguleikum inn-
an Bandaríkjanna. Til sölu eru 30
og 60 daga flugpassar með banda-
ríska fiugfélaginu Delta. í boði eru
fjölmargar ævintýraferðir innan
Bandaríkjanna þar sem ferðast er
um í smárútum og gist í tjöldum.
Þá er boðið upp á málanámskeið
víða um heim. Námskeiðin eru fyrir
fólk á öllum aldri með kunnáttu á
öllum stigum.
(Fréttatilkynning)
Boney M í Danshöllinni
VIÐBYGGING Háskólabíós var
vígð síðastliðinn laugardag að
viðstödduin forseta Islands, frú
Vigdísi Finnbogadóttur, og öðr-
um gestum. Heildarstærð við-
byggingarinnar er um 4000 fer-
metrar og lætur nærri að með
tilkomu hennar sé um tvöfoldun
á húsrými Háskólabíós að ræða.
í viðbyggingunni verða fjórir sal-
ir til viðbótar stóra sal Háskóla-
bíós, og hafa þrír þeirra nú verið
teknir í notkun, en sá síðasti verður
tekinn í notkun um næstu áramót.
Með byggingunni hefur verið bætt
úr þörf Háskólabíós fyrir minni
sýningarsali, og Háskóli íslands
hefur fengið verulega bót á biýnni
þörf fyrir fyrirlestrarsali. Þá hefur
öll aðstaða til ráðstefnuhalds gjör-
breyst, og er hún nú í samræmi við
þær kröfur sem gerðar eru til ráð-
stefnuaðstöðu. Séretakur hljóðbún-
aður fyrir heyrnarskerta er í nýju
sölum hússins, og er Háskólabíó
fyret kvikmyndahúsa til að taka
tillit til þarfa heymarskertra með
sérstöku hljóðkerfi fyrir þá.
Byggingarnefnd vegna viðbygg-
ingar Háskólabíós var skipuð 1985
og voru hönnuðir þá ráðnir til verks-
ins. Forseendur viðbyggingarinnar
voru samnýting hú'snæðisins fyrir
kennslu, kviukmyndasýningar og
ráðstefnur. Einnig komu fram óskir
frá Landsbanka Islands um aukið
húsnæði í Háskólabíói, en bankinn
hefur leigt hluta af anddyri Há-
skólabíós í 28 ár. Niðurstaðan varð
sú að ekki væri hægt að minnka
anddyri bíósins meira en gert hafði
verið, og var því ákveðið að taka
tillit til þarfa bankans við hönnun
á nýju húsnæði.
Formaður fyrstu byggingar-
nefndar viðbyggingarinnar var Jón-
atan Þórmundsson prófessor, en
Þórir Einarsson prófessor tók við
af honum. Auk hans eru í bygging-
arnefndinni Bi-ynjólfur I. Sigurðs-
son prófessor, Friðbert Pálsson
framkvæmdastjóri Háskólabíós og
Karl B. Guðmundsson fulltrúi
Landsbanka íslands. Arkitektar
byggingarinnar eru Guðmundur K.
Kritstinsson og Ferdinand Alfreðs-
son, og hönnuðir burðarvirkis eru
Bragi Þorsteinsson og Eyvindur
Valdimareson. Verkfræðistofa Guð-
mundar og Kristjáns hannaði lagnir
í byggingunni, verkfræðistofan
Rafhönnun hannaði raforkuvirki og
Níels Jordan hljóðtækni. Hönnuður
lóðar er Reynir Vilhjálmsson. Gunn-
ar Torfason og Koibeinn Kolbeins-
son önnuðust verkefnisstjórnun.