Morgunblaðið - 22.05.1990, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.05.1990, Blaðsíða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1990 GAROABJBl KJÓSENDUR á kjörskrárstofni í Garðabæ eru 4.869 og hefur (jölg- að um 15% frá kosningunum 1986. 7 fulltrúar eru kjörnir í borgar- stjórn og eru 4 listar í framboði, hefur fækkað um einn frá 1986. í sveitarstjómarkosningunum 1986 voru 4.137 kjósendur á kjörskrá. 3.349 greiddu atkvæði og var kjörsókn 81,0%. Auðir og ógildir seðlar vom 91, en úrslit urðu þessi: Listi Atkvæði % fulltrúar A - Alþýðuflokkur 564 17,3 1 B - Framsóknarflokkur 352 10,8 1 D - Sjálfstæðisflokkur 1.725 52,9 4 G - Alþýðubandalag 562 17,2 1 M - Flokkur mannsins 55 1,7 0 Kosningu hlutu: Af A-Iista: Helga Kristín Möller. Af B-lista: Einar G. Þorsteinsson. Af D-lista: Lilja Hallgrímsdóttir, Agnar Friðriksson, Dröfn Farestveit og Benedikt Sveinsson. Af G-lista: Hilmar Ingólfsson. Sjálfstæð- isflokkur skipar meirihluta bæjarstjórnar. Bæjarstjóri er Ingimundur Sig- urpálsson. FRAMBOÐSLISTAR A-listi, Alþýðuflokkur: 1. Helga Kristín Möller kennari. 2. Gizur Gottskálksson læknir. 3. Gestur Geireson st. Bandal. ísl. skáta. 4. Ema Aradóttir fóstra. 5. Stefán Hrafn Hagalín nemi. 6. Sjöfn Þórarinsdóttir sjúkraliði. 7. Svend-Aage Malmberg haffræð- ingur. D-listi, SjálfstæðLsflokkur: 1. Benedikt Sveinsson hæstarétt- arlögm. 2. Laufey Jóhannsdóttir skrifstofu- maður. 3. Erling Ásgeirsson framkvæmda- stjóri. 4. Sigrún Gísladóttir skólastjóri. 5. Andrés B. Sigurðsson fram- kvæmdastjóri. 6. Bjarki Már Karlsson kerfisfræð- ingur. 7. Sigurveig Sæmundsdóttir kenn- ari. E-listi, Alþýðubandalag, Fram- sóknarflokkur, Kvennalistí og aðrir: 1. Valgerður Jónsdóttir hjúkrunarfr. 2. Hilmar Ingólfsson skólastjóri. 3. Ella Kristín Karlsdóttir húsmóðir. 4. Hilmar Bjartmarz sölustjóri. 5. Sigurður Björgvinsson kennari. 6. Hafdís Bára Kristmundsdóttir kennari. 7. Eyjólfur V. Valtýsson vélfræð- ingur. A-listinn D-listinn E-listinn Helga Kristín Möller „Við leggjum áherslu á bætt umhverfi, betra mannlíf. Við teljum að á næsta kjörtímabili þurfí að gera áætlun um fleiri valkosti í húsnæðismálum. Það er að segja um uppbyggingu félagslegra íbúða og kaupleiguíbúðir til að fullnægja vaxandi þörf í bænum. Það vantar fleiri leiguíbúðir til að leysa vanda fólks, sem er í tímabundnu húsnæðishraki eða hefur ekki tök á að eignast eigin íbúðir. Það er misskilningur að hér búi eingöngu íbúar við mikla velmegun. Við erum farin að fínna fyrir vaxandi þörf á félagslegri hjálp. Umhverfísmál og umhverfísvemd eru ofar- lega á lista. Við látum allt, sem lýtur að ásýnd bæjarins og því umhverfí sem fólk lifir og hrærist í, okkur varða. Þá skiptir öryggi í umferðarmálum miklu máli. Við látum málefni flölskyldunnar okkur miklu varða, en velmegun og öryggi byggist á að allir hafí atvinnu. Því teljum við að hér þurfi að fara að huga betur að atvinnumálum, skapa fleiri atvinnutækifæri í bænum með því að laða að ný fyrirtæki og búa vel að þeim sem fyrir eru. í skólamálum viljum við færa grunnskólann til nútíðar. Að búið verði að húsnæði hans þannig að allir geti haft þar samfelld- an vinnudag. Jafnframt verði nemendum búin aðstaða til að geta matast í skólanum. Við leggjum einnig áherslu á skóladag- heimili, sem ekki hefur verið til hér, að hafín verði bygging nýs húsnæðis fyrir Hofstaðaskóla og að Fjölbrautaskólanum verði sköpuð betri aðstaða í eigin húsnæði. í dagvistarmálum leggjum við áherslu á að uppbygging leik- skóla með sveigjanlegum dvalartíma verði hraðað og aldurstak- mark bama verði tveggja til sex ára. Jafnframt verði athugaðir möguleikar á að taka yngri böm foreldra úr forgangshópum t. d. böm námsmanna og einstæðra foreldra. Við höfum líka litið á það sem okkar hlutverk að vera forystu- afl í því að veita sjálfstæðismönnum aðhald við stjóm bæjarins." Benedikt Sveinsson „Við fylgjum svipaðri stefnu og við höfum gert á undanf- örnum árum. Við leggjum áherslu á traustan ijárhag bæjar- ins, hóflegar álögur. Helstu málin sem við verður að fást á næsta kjörtímabili eru skólamálin og æskulýðs- og íþrótta- mál. Við höfum lagt þeim mikið lið á undanförnum árum og munum gera það áfram. Framundan er stórátak í um- hverfismálum þar sem við ætlum að hreinsa fjömr og sjó í Arnarnesvogi. Við höfum verið að úthluta lóðum í vor — nýtt hverfi er að byggjast upp. Verið er að hefja framkvæmdir við leikskóla, sem verður tekinn í notkun á næsta ári. Einnig er verið að heíja byggingaframkvæmdir við viðbyggingu Flataskóla. Verið er að fara af stað með 10 kaupleiguíbúðir í hlutaféiags- formi, en bærinn er aðalstuðningsaðili þess máls. í félagsmálum þurfum við að sinna þeim sem minna mega sín. Þetta er bæjarfélag sem hefur vaxið mikið á undanförnum ámm og við ætlum að reyna að láta það dafna og blómstra áfram en ekki með neinum hraðvexti — gerum ráð fyrir að úthluta lóðum fyrir 60 hús eða íbúðir á ári og mörkum okkur þar með vaxtarmörk. Síðast en ekki síst stefnum við að því að halda hér meiri- hluta, sem við höfum alltaf haft.“ Valgerður Jónsdóttir „Baráttumálið er að koma holræsagerðinni í gang, að gengið verði frá holræsinu. Eins að þegar verði hafíst handa við að byggja nýjan gmnnskóla, ljúka við Garðaskóla, byggja nýjan fjölbrautaskóla. Að gengið verði frá skipulagi í iðnaðar- hverfínu svo hægt verði að úthluta þar lóðum til fyrirtækja. Við leggjum mikla áherslu á að svo verði gengið frá gangstíg- um að fólk komist hindmnarlaust á milli hverfa og að gangstíg- ar verði upplýstir. Þá em göng undir Hafnar- fjarðameg mikilvæg. Gróðursett verði töluvert mikið af ttjám og útbúin útivistarsvæði svo fólk geti dvalið þar sér til skemmtunar og hressingar. Við viljum efla mjög atvinnulíf í bænum og breyta viðhorfí til fyrirtækja. Við leggjum áherslu á aukna félagslega þjónustu, bæði við aldraða og fatlaða, en það vantar mikið á hér í bænum að þessu sé sinnt. Við viljum líka að eftirspum eftir húsnæði verði full- nægt, allir geti fengið húsnæði við hæfí og framboð af lóðum verði stöðugt. Það þarf að hlúa vel að öllum greinum íþrótta- og æskulýðs- mála. Eftir á að ganga frá nýja íþróttahúsinu og umhveifí þess. Við viljum að það verði ekki eins og með Garðaskóla sem hefur staðið ókláraður í 18 ár. Við viljum að gengið verði frá því sem er byijað á. Við viljum fá lifandi miðbæ. Ljúka við uppbyggingu hans og tengingu hans við önnur hverfi — fá líf í bæinn." FRAMBOÐSLISTAR MOSFELLSBÆR KJÓSENDUR á kjörskrárstofni í Mosfellsbæ eru 2.744 og hefur fjölg- að um 20% firá kosningunum 1986. 7 fulltrúar eru kjörnir í bæjar- sfjórn og eru tveir Iistar í framboði, en voru fimm 1986. í sveitarstjórnarkosningunum 1986 voru 2.225 kjósendur á kjörskrá í Mosfellshreppi. 1.877 greiddu atkvæði og var kjörsókn 83,4%. Áuðir og ógildir seðlar voru 85, en úrslit urðu þessi: Listi Atkvæði % fulltrúar A - Alþýðuflokkur 240 13,4 1 B - Framsóknarflokkur 194 10,8 0 D - Sjálfstæðisflokkur 979 54,6 5 G - Alþýðubandalag 357 19,9 1 L - Flokkur mannsins 22 1,2 0 Kosningu hlutu: Af A-lista: Oddur Gústafsson. Af D-lista: Magnús Sig- steinsson, Helga Richter, Óskar Kjartansson, Þórdís Sigurðardóttir og Þengill Oddsson. Af G-lista: Aðalheiður Magnúsdóttir. D-listi er einn í 'meirihluta. Bæjarstjóri er Páll Guðjónsson. D-listí, Sjálfstæðisflokkur: 1. Magnús Sigsteinsson bútækniráðunautur. 2. Helga A. Richter kennari. 3. Hilmar Sigurðsson viðskiptafræðingur. 4. Þengill Oddsson heilsugæslulæknir. 5. Guðbjörg Pétursdóttir markaðsráðgjafí. 6. Guðmundur Davíðsson vélsmiður. 7. Valgerður Sigurðardóttir auglýsinga- og mark- aðsráðgjafí. E-listi, Eining: 1. Halla Jörundardóttir fóstra. 2. Oddur Gústafsson deildarstjóri. 3. Gylfí Guðjónsson ökukennari. 4. Kristín Sigurðardóttir skrifstofukona. 5. Jónas Sigurðsson húsasmiður. 6. ólafur H. Einarsson húsasmíðameistari. 7. Sveingerður Hjartardóttir bókari. D-listinn E-listinn Magnús Sigsteinsson „Við leggjum áherslu á trausta fíármálastjóm og hag- kvæmni í rekstri bæjarfélags- ins. Við munum stilla opinber- um gjöldum í hóf. Helstu verk- efni sem við viljum vinna að er að ljúka byggingu íbúðar- húss fyrir aldraða og taka íbúðimar og þjónusturýmið í notkun 1992. Við ætlum að leggja göngu- stíga á milli íbúðarhverfa og miðbæjarsvæðis. Ganga frá götum í iðnaðarhverfi. Halda áfram átaki í tijárækt og frágangi opinna svæða — leggjum mikla áherslu á umhverfismálin. Halda áfram uppbyggingu á miðbæjarsvæði. Þar kem- ur m.a. húsnæði fyrir bókasafn, menningarmið- stöð og bæjarskrifstofur. Við erum að fara í gang með úthlutun lóða á nýju íbúðarsvæði. Við viljum halda áfram uppbyggingu leiksvæða. Við viljum efla atvinnustarfsemi og auka atvinnu- möguleika skólafólks á vegum bæjarfélagsins. Við viljum halda áfram með uppbyggingu íþrótt- amannvirkja og styðja við bakið á öflugu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Við viljum öflugt skólastarf í grunnskóla og tónlistarskóla og blóm- legt menningarlíf í bæjarfélaginu. Varðandi félagslegar íbúðir þá leggjum við áherslu á íbúðabyggingar á vegum bæjarfélags- ins, að bæjarfélagið eignist leiguíbúðir einungis til að mæta brýnni, tímabundinni þörf fólks.“ Halla Jörundardóttir „Stefnumálin hjá okkur eru húsnæðismálin. Áð bæta úr þeim. Hér er mjög lítið til af hentugu húsnæði fyrir ungt fólk, gamalt fólk, efnalítið fólk. Hér er lítið af félagsleg- um íbúðum miðað við lands- meðaltalið og við stefnum á að auka það og styðja við fé- lagasamtök eins og Búseta. Við leggjum mikla áherslu á atvinnumálin, að auka fjölbreytni. Mörg fyrir- tæki hér hafa farið á hausinn og atvinnuástand- ið versnað, en við erum í alfaraleið og auðvelt ætti að vera að auka og efla atvinnulífíð. Við erum mjög mikið á móti urðun í Álfsnesi og vinnum af öllum mætti gegn henni. Við leggjum áherslu á þarfir bama, sem er stórt atriði, að aukin verði þjónusta við böm. Markmiðið með framboðinu er að skapa hér samfélag félagslegrar velferðar í manneskjulegu umhverfi með virkri lýðræðislegri þátttöku íbú- anna í málefnum bæjarfélagsins. Við viljum opna stjómkerfið frekar — gera bæjarbúum kleift að fylgjast með málefnum bæjarins með til dæmis útgáfu fréttabréfa og opnum bæjarmálafundum. Það þarf að breyta í öllum málaflokkum og við emm alls staðar með áherslubreytingar. Við leggjum mikla áherslu á að fá skóladagheimili, sem ekki er til í bænum, og auka dagvistarrými. Það er ekkert dagvistariými fyr- ir böm yngri en tveggja ára.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.