Alþýðublaðið - 10.01.1959, Blaðsíða 2
faugardagur
YEÐRlii í dag: N og NA. |
Skýjað,.írost. |
•k
6LYSAYARÐSTC>í’A Reykja
víkur í Slysavarðstofunni
er opin allan sólarhringinn.
Læknavörður L.R. (fiyrir
vitjanir) er á sama stað frá
kl. 8—18. Sími 1-50-30.
LYFJABÚÐIN Iðunn, Reykja
víkur apótek, Laugavegs
apótek og Ingólfs apótek
fylgja lokunartíma sölu-
búða. Garðs apótek, Holts
apótek, Austurbæjar apó-
tek og Vesturbæjar apótek
eru opin til kl. .7 daglega,
nema á laugardögum til kl.
4. Holts apótek og Garðs
apótek eru opin á sunnia-
dögum milli kl. 1—4. e. h.
EAFNARFJARÐAR apótek
er opið alla virka daga kl.
9—21. Laugardaga kl. 9—
16 og 19—21. Helgidaga kl.
13—16 og 19—21.
íKÓPAVOGS apótek, Alfhóls-
vegi 9, er opið daglega kl. |
9—20, nema laugardaga kl.
9—16. og helgidaga ki. 13—
16. Sími 23100.
KVENFÉLAG Óháða safnað-
arins: Jólafundurinn er
imánúdagskvöldið 12. jan.
— Skemmtiatriði: Kaffi-
drykkja. Takið með vkkur
' gesti.
'k
Dómkirkjan: Messa ki. 11 _
órdegis. Séra Óskar J. Þor-
láksson. Síðdegismessa kl.
5. Fermingarbörnum og að- .
standendum þeirra er þessi
guðsþjónusta sérstaklega
ætluð. Barnasamkoma í
Tjarnarbíói kl. 11 árdegis.
Séra Jón Auðuns.
Neskirkja: Báðar messur
falla niður á morgun. Séra
Jóri Thorarensen.
Kallgrímskirkja: Messa kl. 11
f. h. Séra Jakob Jónsson.
(Þess er vinsmal. óskað, að
, foreldrar fermingarbarna
komi með þeim til messu.)
Engin síðdegismessa.
L,angholtsprestakail: Messa í
Laiigarneskirkju kl. 11 f. h.
Séra Árelíus Níelsson.
Laugarneskirkja: Messa kl. 2
e. h. Séra Garðar Svavars-
oon. Barnaguðsþjónusta fell
ur niður.
Eáteigssókn: Messa i hátíða-
Gal Sjómannaskólans kl. 2.
Barnasamikoma kl. 10.30 ár
degis. Sr. Jón Þorvarðsson,
Eástaðaprestakall: Messa í
Kópavogsskóla kl. 2 eftir
hád.egi, (Þess er vinsamieg-
aist'óskað, að fermingarbörn
og aðstandendur þeirra
; ikomi til messunnar, ef hent
ugleikar leyfa.) Barnasam-
koma kl. 10.30 á sama stað.
Séra Gunnar Árnason.
Ksjiólska kirkjan: Lágmessa
IsLíií 8.30 árd. Hámessa og
prédikun kl. 10 árdegis.
'Aðvéntkirkjan: O. J. Olsen
talar í Aðventkirkjunni ann
■aðjkvöld kl. 20.30 um leið-
, ’uici: til betri og bjartari
, Cramtíðar, sjá auglýsingu í
■ blaðinu í dag. Sunnudaga-
i ,"kóli kl. .10.30 f. h. Allir
yelkomnir.
IFríkírkjan í HafnarfirSi: —
Messa á morgun kl. 2.
. (BÖrn, sem eiga að fermast
, 1959 og 1960, eru beðin að
i koma til viðtals eftir
. messu.) Séra Kristinn Stef-
ánsson.
i w—i ....... ...............
¥irlnlii ýf
ÚTFÖR Geirs G. Zoega, fyrr-
um vegamálastjóra, var gerð
frá Dómkirkjunni í gær að við
stöddu fjölmenni.
Séra Bjarni Jónsson, víxlu-
biskup, predikaði og Páll ís-
ólfsson lék einleik á orgelið og
stjórnaði kirkjukórnum. Félag-
ar úr Oddfellowreglunni stóðu
heiðursvörð í kirkjunni og nú-
verandi ráðherrar og fyrrver-
andi báru kistuna í kirkju.
Geir G. Zoega var fæddur
28. sept. 1885. Hann var sonur
hjónanna Geirs T. Zoega, rekt-
ors og Bryndísar Sigurðardótt-
ur, Johnsens kaupmanns í Flat
ey. Geir G. Zoega lauk prófi
frá Lærðaskólanum í Reykja-
vík árið 1903. Geir lauk síðan
prófi frá Kaupmannahafnarhá-
skóla í verkfræði árið 1911.
Hann var skipaður vega-
málastjóri árið 1917 og gegndi
því vandasama embætti til árs
ins 1955. Var hann rómaður
fyrir röggsemi í starfi og var
einn þeirra manna, sem setti
svin á samtíð sína.
Geir G. Zoega var kvæntur
Hólmfríði dóttur Geirs Zoega,
kaupmanns og útgerðarmanns.
Hún lifir mann sinn.
Börn þeirra hjóna eru Helga
Landhejgin
Framhald af 12. síðu.
tímabilinu 26. desember til 8.
ianúar sl., en á þeim tíma voru
' þrezkir togarar djúpt út af
Austurlandi, 20—30 sjómílur
frá landinu.
ÓLÖGLEGAR VEIÐAR Á NÝ.
í fyrrakvöld hófu brezkir
togarar svo ólöglegar veiðar á
ný á tveimur stöðum við land-
ið, út af Vestrahornl og við
Ingólfshöfða, og nutu herskipa
verndar. Er þetta í fyrsta skipti
sem vart verður brezkra tog-
ara að veiðum við Suðurland
síðan snemma í september í
fyrra, enda hafa brezku her-
skipin ekki haft verndarsvæði
fyfr á þessum slóðum.
í gær voru 2 brezkir togarar
að,'ólög1egum veiður út af Ing-
ólfshöfða, ásamt freigátunni
Russell, og við Vestrahorn
voru 3 brezkir togarar að veið-
um innan markanna. Þar voru
og freigáturnar Dunean og
Palliser, og ennfremur birgða-
skip brezku flotadeildarinnar.
Þess má geta, að út af Ing-
ólfshöfða eru nokkrir belgískir
togarar að veiðum utan Fisk-
veiðitakmarkanna.
FramShald af 1. síðu.
Fiskverðið hefur verið sam-
þykkt með fyrirvara.
ievklawík
REYKJAVÍK
R.óðrar eru byrjaðir úr Rvík.
-Er blaðinu kunnugt um 3 báta,
sem byrjaðir eru róðra. Eru
það: Guðmundur Þórðarson og
Hélga, sem eru útilegubátar og
Svanur, sem leggur upp hjá
Fiskiðjuverinu.
HÖFN í HOENAFIRiÐI
Bátar í Höfn í Hornafirði eru
byrjaðir róðra. Samningar hafa
AJLÞYÐUBLAÐIÐ
Otgrefandi: Alþý'ðuflokkurinn. Ritstjórar: Gísli J Á.stþ6rsson og
Helgi Sæmundsson (áb). Pulltrúi ritstjórnar: Sigvaldi Hjálmars-
son Préttastjóri: Björgvin Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Pét-
ur Péturssori. Ritstjórnarsímar: 14901 og 14902 Auglýsing-asími:
i490fi Afgreiðslusími • 14900. Aðsetur: Alþýöuhúsið Prentsmiðja
Alþýðublaðsins Hverfisgötu 8—10
Óframkvœmanlegur
TÍMINN vill ekki fallast á þá ályktun Alþýðublaðsins,
að m/yndun þjóðstjórnar muni hafa verið óframkvæmanleg
vegna afstöðu Framsóknarfiokksins og Sjálfstæðisflokksins
í kjördæmamálinu, og setur fram sjónarmiÖ sín í forustu-
grein í gæ:r. Þar er lögð áherzla á að fresta hafi átt af-"
greiðslu kjördæmamálsins til loka yfirstandandi kjörtíma-
bils og mynda þjóðstjórn, svo að unnt yrði að leysa efna-
hagsmálin til frambúðar.
Við þetta ér það að athuga, að Sjáifstæðisflokkurinn.
vildi afgreiðslu kjördæmamálsins strax á þessu ári, en
FramsóknarfLdkkurinn léði ekki máls á stjórnarþátttöku
nema henni yrði frestað til 1960. AlþýðuFokkurinn hlaut
þess vegna að álykta svo, að ógerlegt væri að mynda þjóð-
stjórn vegna ósamfeomulags tveggja stærstu flokkanna
um afgreiðslutíma kjördæmamálsins. Auk þess var frest-
unarkrafa Framsóknarflokksins varla við það miðuð, að
undirfoúningur málsins sætti nánari athgun eins og Tím-
irin heldur fram. Þjóðin hefur ekki hugmynd um, hver er
stefna Framsóknarflokksins í kjördæmamálinu. Hann við-
urkennir, að núveraudi kjördæmaskipun sé úrelt og rang-
iát. Hins vegar leggst hann á móti tillögum Alþýðuflokks-
ins um nýja kjördæmaskipun, en gerir engar tillögur
sjálfur. Slíkt er, auðvitað að rígbinda sig við núverandi
kjördæmaskipun. Þess vegna er frestunarhugmynd Fram-
sóknarflokksins í kjördæmamálinu fjarri öllu lagi. Hún.
kemur því aðeins til greina, að hann setji fram í málinu
tillögur, sem líklegar séu ti.1 samkomulags. Það gerist ekki?
ro.eðan Framsóknarflokkurinn er stefnulaus í málinu.
Hin hugmyndin er út af fyrir sig athyglisverð að
mynda hafi átt þjóðstjórn til að leysa efnahagsmálin. En
hvers vegna gci'ði ekki Framsóknarfiíokkurinn þá til-
raun? Hermann Jónasson baðst lausnar fyrir sig og ráðu-
neyti sitt vegna ágreinings Alþýðubandalagsins annars
vegar og Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins hins
vegar um lausn efnahagsmálanna. Taldi Hermann Jónas-
son möguleika á samkomulagi við Alþýðubandalagið um
efnahagsmlálin, ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði líka komið
til sögu landsstjórnarinnar? Hafi liann verið þeirrar
skoðunar, þá bar honum skylda tij að reyna þjóðstjórn-
armyndun. Hann lét það tækifæri framihjá sér fara, svo>
að hér er við formann Framsóknarflokksins að sakast,
ef Tíminn trúir á þjóðstjórnarhugmynd sína í raun og
veru. Alþýðuflokkurinn áleit myndun þjóðstjórnar ó-
framkvæmanlega eftir að foringjar tveggja stærstu flokk-
anna höfðu gefizt upp við stjórnarmyndun. Kjördæma-
málið réði vissulega þcirri niðurstöðu, en Alþýðuflokk-
urinn sá heldur elcki möguleika á samkomulagi við AI-
þýðubandalagið um efnahagsmálin eftir að samstarf fyrr-
verandi ríkisstjórnar hafði rofnað vegna þeirra. Þess
vegna er sama hvernig á málið er litið: Þjóðstjómarhug-
myndin var óframkvæmanlegur óskadraumur.
Hitt er þó kannski aðalatriði miálsins, að Framsóknar-
flokkurinn hafði ósköp lítinn áhuga á þjóðstjórn fyrr en.
eftir að Alþýðuf’ okknum hafði tekizt myndun minnihluta-
stjórnar. Slík vinnubrögð eru ekki líkleg tip árangurs. Her-
mann Jónasson gat haft forustu um myndun þjóðstjórnar.
Hvers vegna lét hann tækifærið framhjá sér fara? Glöggt
svar við þeirri spurningu er miklu tímabærara en tilefn-
islaus þykkja í garð Alþýðuflokksins vegna þess að hann,
hljópst ekki burt frá vandanum á örlagastund og reyndi
að bjarga því, sem bjargað verður.
Geir G. Zoega.
(látin), Bryndís, forstöðukona,
Geir Agnar, vélfræðingur,
Gunnar, cand. oecon., Áslaug
og Ingileif Sigríður, kennari.
tekizt um fiskverð og kjör að
öðru leyti. Eru nokkrir bátar
þegar byrjaðir róðra.
„á&L
Orindavík
Einn bátur rær frá Grinda-.
vík. Er það Sæborg, er hefur
aflað alivel. Annars bíða
Grindavíkurbátar þess, að for-
mennirnir komi úr Sjómanna-
skólanum um miðjan mánuð-
inn. Ekki hefur verið geng'ið
frá .sammngunum.
Um Þorlákshöfn er það að
segja, að þaðan eru róðrar hafn
ir, en ósamið er enn.
VesfMr
Fregn til Alþýðublaðsins.
ÍSAFIRÐI í gær.
AFLI' línubátanna hefur ver-
ið frekar tregur þangað til í
dag, að hann var heldur betri,
a>Ut upp í 8 tonn. Bátar er.u
byrjaðir róðra uni' alla Vest-
firði, 10—15 stöðum.
Stjórn ASV og menn frá
ýmsum- nágrannáþorpum koma
saman á sunnudaginn til þess
að fjalla um kj airasamningana,
bæði línusamninga og neta-
samninga, sem ekki hafa verið
gerðir hér fyrr. Einnig verða .
teknir upp samningar um hand
færaveiðar.
Slífla breslur
••’ramhaW s*f 12. síðu,
af stað til Rivadelago með
sjúkrabíla og flutningabíla
hlaðna mat og fatnaði.
í þorpinu eru 600 íbúar, að-
allega landbúnaðarverkamenn
og flestir byggingaverkamenn-
irnir eru frá Orense-héraði.
Afli Akurejrar-
togara nam 19Vi
millj. kg. 1958.
AKUREYRI í gær.
AFLI Akureyrartogaranna
síðastliðið ár, — karfi óslægð-
ur, annar fiskur slægður með
haus og þyngd á saltfiski upp
úr skipi er tvöfölduð, — var
samtals 19.505.383 kg.
Skiptist aflinn þannig milli
(togaranna: Kaldbakur 4.790.611
kg. í 18 veiðiferðum, Svalbalt-
ur 4.746.068 kg. í 24 veiðiferð-
um, Harðbakur 5.030.156 kg. í
21 veiðiferð og Sléttbakur 4.-
938.55.2 kg. í 22 veiðiferðum.
— B.S.
DÓMUR í BANASLYSMÁLI.
NÝLEGA féll dómur í saka-
dómi Reykiavíkur út af bana-
slj'si, er ölvaður maður var
valdur að aðfaranótt 16. júlí sl.
Slysi þetta varð á Reykjanes-
braut norðan Hafnarfjarðar.
Orsök þess voru þau, að lítill
fólksbíll lenti á mikilli ferð út
af veginum með þeim afleið-
ingum að kona, sem var far-
þegi í bifreiðinni lézt af völd-
um meiðsla, er hún hlaut við
veltuna.
Sannaðist að Ökumaðurinn
hafði verið undir áhrifum á-
fengis við stýrið. Var maður-
inn dæmdur í 4ra mánaða varð
hald og sviftur ökuleyfi ævi-
langt og dæmdur til að greiða
allan sakarkostnað.
NICOSIA: Grískur Kýpur-
búi, sem var pólitískur fangi,
'komst í dág á brott úr sjúkra-
húsi hér, aðeins tveim dögum
eftir að hann gekk undir upp-
skurð. Gekk hann út í hvítum
samfesting og með þvottakörfu
á höfði, þrátt fýrir sérstakan
vörð um stofuna.
10. jan. 1959 — Alþýðublaðið