Morgunblaðið - 27.07.1990, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.07.1990, Blaðsíða 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990 DÆMISAGA U R DAGLEGA LIFINU Sendibréf frá Svíþjóö Svíþjóð, — fyrirheitna landið. Land sem oftlega heyrist nefnt í hópi þeirra sem íerfiðleikum eiga á Islandi og kannski að vonum. Ekkert skrítið að fólk sem er að kikna undan skuldabyrðinni hér heima, eða hefur hrakist frá einu leigu- húsnæðinu til annars, eftir geðþótta eða þörfum eigandans, hugsi til lands- ins þar sem fólk getur valið hvorn kost- inn sem er, íbúðarkaup eða leiguhús- næði á viðráðanlegu verði til svo langs tíma sem verða vill. Sjálfur hef ég lengi haldið þvífram að húsnæðismálin séu aðal máln hjá þessari þjóð. En hvers vegna fer fólk til Svíþjóðar? Er þetta sú paradís sem af er látið? Nýlega fékk ég sendibréf yfir hafið. Sendibréf ásamt korti með mynd af landifyrirheitanna. Þakklæti fyrir lífið Konan sem ritar bréfið segist senda mér það vegna þess að hún hafi átt við mig gott símtal snemma í vor. Ekki man ég glöggt eftir því símtali, enda síkjaftandi í síma. Og þakklæti konunn- ar segir mér margt um það hve oft þarf lítið að gera fyrir þá sem eru á barmi örvæntingarinnar, til þess að árangur verði að. Jafnvel hafa örfá hvatningarorð stundum orðið til þess að fólk hefur endurnýjast í lífsviljanum og baráttuþrekinu. Hins vegar þekki ég einnig mörg dæmi um menn sem hafa þóst geta og vilja gera alla skapaða hluti fyrir svona fólk: „Ekkert mál vinur, ég redda þessu:“ Síðan gerist ekki neitt. Þetta virkaralveg á öfugan veg. Fólk treystir þessu og trúir því. Það telur sig loksins hafa fundið hina hjálpandi hönd sem það hefur leitað svo lengi. Léttirinn yfir því að hafa nú einhvern bakhjarl er mikill, en niðurbrotið þeim mun meira þegar bjargvætturinn er aðeins tálsýn, líkt og „fatha morgana" í eyðimörk. En við vorum að fjalla um konuna sem fór til Svíþjóðar. Endalaus harmsaga Líkt og öfugmæli, hefjast þessar hremmingar á gleðitíðindum. Konan komst að því að hún var barnshafandi. þau hjónin höfðu um nokkurt skeið rek- ið söluturn í Reykjavík og gekk það til- tölulega vel. Saman höfðu þau unnið að þessum rekstri og höfðu alla tauma í eigin hendi, eins og affarasælast er þegar um viðkvæman rekstur er að ræða. En þá fór hún að verða óeðlilega veik. í byrjun apríl 1987 varð hún að hætta vinnu vegna veikindanna. Við athugun kom í Ijós að hún gekk með tvíbura, og einnig það að annað barnið óx ekki samkvæmt „kúrfu". Og þegar með- gangan hafði varað í 24 vikur varð hún að leggjast í rúmið. Ástandið var mjög tvísýnt og álagið á alla fjölskylduna mikið. Hún fékk enga heimilishjálp fyrr en á síðasta mánuði meðgöngunnar og þá aðeins að hluta. Þetta leiddi til þess að maðurinn varð í auknum mæli að taka frífrá störfum og leggja reksturinn á annarra herðar. Þessi auknu útgjöld þoldi reksturinn ekki. Einnig fór nú velt- an að minnka og skuldirtóku að hlað- ast upp. Um það leyti sem tvær stúlkur litu dagsljósið fyrsta sinni var fyrirtækið sett á söluskrá. Sala tókst ekki fyrr en að sjö mánuðum liðnum, og var verðið langt undir sanngirnismörkum. Þetta var þvinguð sala, — vegna aðstæðna. Mikil veikindi Skemmst er frá því að segja að saga þessarar fjölskyldu hefur að stofni til verið saga veikinda og hörmunga allar götur síðan. Annar tvíburinn fékk mikið krampakast eftir að hafa verið tvo sólar- hringa heima. Of langt mál er að rekja í stuttri blaðagrein, í hverju veikindin felast, en skilja má á bréfinu frá Svíþjóð að lítil von er um varanlegan bata. Lengi vel gat móðirin aðeins sofið í 'Aklst. í senn, vegna þess hve þörfin fyrir umönnun barnanna var mikil, einkum þess sem var veikt. Hún bað um heimil- ishjálp, en fékk hana ekki fyrr en stúlk- urnar voru orðnar 3ja mánaða og þá aðeins hálfan daginn. Þessi hjálp var síðan smátt og smátt minnkuð niður í ekki nitt. Enga aðstoð var að hafa hjá ættingjum eða vinum. Maðurinn varð að hætta allri vinnu, því vakta þurfti sjjuklinginn allan sólarhringinn. Þau fóru fram á að fá tæki sem gefur hljóð- merki þegar öndun stöðvast, en aðeins tvö slík tæki reyndust vera til í Reykjavík og bæði í notkun á Vökudeild. Hins vegar var þeim bent á að þau gætu keypt slíkt tæki frá útlöndum, en það kostaði bara hundrað þúsund þrónur, hundrað þúsund krónur sem þau áttu ekki til og höfðu enga möguleika á að eignast. Vinkonafrá Chile Það var erfið ákvörðun þegar stefnan vartekin á Svíþjóð. En þau sáu enga aðra leið, skuldirnar voru miklar og þrátt fyrir loforð um greiðsluerfiðleikalán frá Húsnæðisstofnun, sem síðarreyndist vera tálvon, hefðu þau ekki haft fyrir brýnustu nauðsynjum. Sýnt var að mað- urinn gat ekki unnið meira en í mesta lagi átta tíma á dag, vegna veikinda litlu stúlkunnar og átta tíma vinna er einfald- lega vonlaust dæmi fyrir stóra fjölskyldu á Islandi, um það þarf ekki að ræða. Hin þjáða móðir segir í bréfinu frá Svíþjóð: „Eg á 13 ára vinkonu frá Chile, sem býr i næsta húsi, en hún er bekkjasyst- irsonarokkar. Hún hefurýmislegt reynt á sinni stuttu ævi og hefur hún sagt mérfrá lífi fólksins íChile. Ég hef oft hugsað um hversu miklu auðveldara það er fyrir móður hennar að útskýra fyrir börnum sínum hvers vegna þau þurftu að flýja heimalandið. Þetta er ekki eins auðvelt fyrir mig, þegar sonur minn spyr: „Hvers vegna, mamma?! Að gefast upp Eftir að fjölskyldan flutti til Svíþjóðar hefur hún einu sinni komið heim, aðal- lega til að reyna við lausn á fjárhags- vandanum hér, en einnig til að leita læknisaðstoðar fyrir manninn, þar sem það var erfitt ytra vegna tungumálaerf- iðleika. Einnig vildu þau leita félagslegs stuðnings hjá ættingjum og vinum. Þau gerðu sér ékki grein fyrir því, fyrr en við læknisrannsókn, að maðurinn var algjörlega óvinnufær vegna hins mikla andlega álags umliðinna ára. Niður- staða læknanna var sú að hann þyrfti hvíld, og þegar hann færi aftur af stað yrði hann að fara mjög gætilega. Þessu marki hefur nú verið náð og hefur hann fengið vinnu við sitt hæfi í Svíþjóð. íbúðin þeirra var seld á nauðungar- uppboði, það var óumflýjanlegt. Greiðsluerfiðleikadeild Húsnæðisstofn- unar gerði það sem hún gat, en það var allt um seinan. Fljótlega verður maðurinn úrskurðaður gjaldþrota og stór hluti skuldanna lendir á ættingjum og vinum. Og konan segir, í sendibréf- inu frá Svíþjóð: „Börnin eru ánægð hér og þeim sem eru ískólagengurvel. Þau hafaeign- ast vini og vita að hér mun okkur ganga vel. Ég hef ekki lengurtölu á þeim íslensku fjölskyldum sem flust hafa hingað til Halmstad síðan við komum hingað 1988, en þær eru ekki færri en tuttugu. Allt þetta fólk hefur gefist upp heima, öllum vegnar vel og enginn á leiðinni heim. hálsklúturinn Elnett H A R L A K K ft nægir að fá sér nýjan hálsklút eða hatt til að gamla flíkin verði sem ný. Hálsklúturinn hefur verið vin- sæll hér á landi síðustu árin, enda hægt að fá hann í öllum litum og gerðum, bæði ódýran og rándýran. Hálsklúturinn getur gert konur dömulegar, virðulegar eða stelpu- legar, allteftirþví hvers þær óska hverju sinni, en ekki eru allir jafn leiknir við að hnýta hann. Á myndunum sést glöggt hversu listi- lega klúturinn dreg- ur að sér athyglina og skýringamyndirn- ar ættu að auðvelda rétta hnýtingu. L'ORÉAL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.