Morgunblaðið - 28.07.1990, Síða 1
MENNING
USTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990
BLAÐ
Bíenalinn í Feneyjum, ein stærsta alþjóðlega myndlistarsýn-
ingin á Vesturlöndum, sem hófst í maílok, stendur fram í
október og búist við að hana skoði 300 þúsund manns.
Þessi sýning vekur ávallt mikið umtal. í dag birtum við inni
í blaðinu grein eftir Einar Guðmundsson um þcnnan tvíær-
ing, eins og sýningin er stundum kölluð á íslensku. Á und-
anförnum árum hafa Islendingar staðið fyrir sýningu í sér-
stökum skála og vakti íslenski þátttakandinn, listmálarinn
Helgi Þorgils Friðjónsson, mikla athygli. Fulltrúi franska
menningarútvarpsins, France Culture, tók svo til orða í
kynningu á Helga að honum fyndist framlag hans von sýn-
ingarinnar í Feneyjum. Hingað heim fréttist að allar mynd-
ir Helga Þorgils hefðu selst, flestar til tveggja listaverka-
safnara. En Helgi sýnir 10 málverk í íslenska skálanum.
Blaðamaður Morgunblaðsins leit því inn á vinnustofú Helga
Þorgils, þegar fréttist að hann væri komin heim eftir mánað-
ardvöl á Ítalíu, til að spyijast fyrir um þátttöku hans í
Feneyjasýningunni.
Vidtal vib
Helga Þorgils
Fribjónsson
Myndin Heilagur flugfiskur á sýningunni í Feneyjum. Ein af
þremur myndum sem galleríeigandi í Mílanó keypti.
Helgi Þorgils Friðjónsson í vinnustofú sinni. Morgunbiaðið/Þorkeii
elgi Þorgils var
að vinna við
trúarlega
mynd, sem
Biblíufélag í
Frankfurt
hafði pantað
hjá honum fyr
ír sýningu á verkum nútímalista-
manna, þegar okkur bar að garði.
Á léreftinu svífa englar kring um
mannsmynd, sem Helgi kvað vera
Móse og útskýrði það. Listfræðing-
ur frá Sviss hefði valið 30 listamenn
víðs vegar að til þess að leggja út
af textum úr bibl íunni fyrir þetta
Biblíufélag, sem hyggst koma upp
sýningu á þessum myndum í
klaustri einu. Auk Helga valdi hann
til verkefnisins annan íslenskan
myndlistarmann, Tuma Magnús-
son. Helgi Þorgils valdi sér að við-
fangsefni för Móses með ísraelslýð
til fyrirheitna landsins, yfir eyði-
merkur og höf, þar sem guð var
ávallt með þeim — á mynd hans í
líki engla.
egar vakið er máls á Feneyja-
sýningunni kveðst Helgi Þorg
ils mjög ánægður. Undirtektir hafi
verið umfram það sem hann gerði
sér vonir um á svo stórri samkomu,
þar sem mikill fjöldi listamanna er
samankominn. En hann biður. um
að gera ekki of mikið úr þessu, að
minnsta kosti vilji hann ekki tala
of mikið um sölu allra verkanna
fyrr en búið sé að hnýta þar alla
hnúta. Enda sé salan ekki aðalatrið-
ið í hans huga, heldur sá fjöldi
manna sem lýsti ánægju sinni með
verkin. Hins vegar sé það rétt að
tveir safnarar og einstaklingur hafi
borið víumar í öll málverkin. Ein-
staklingurinn, Jan Knapp, sem býr
í Modena á Ítalíu og er listamaður
sjálfur, hefur keypt eina myndanna.
Þá valdi safnari og eigandi sýning-
arsalar í Mílanó, Franco Toselli,
þijár myndir sem hann festi kaup
á. Þær bera heitin Heilagur flug-
fiskur, Ströndin og Þijár sítrónur
og þrír drengir. Þær verða í hans
einkasafni, en hann talaði um að
stefna að sýningu á verkum Helga
Þorgils á næstu árum. Sá var búinn
að velja sér myndir þegar hinn safn-
arinn, Carlo Catnani, sem á mikið
listaverkasafn á búgarði ekki langt
frá Mílanó, kom á vettvang og
kvaðst vilja festa kaup á öllum
myndunum sem eftir væru. Jafn-
framt biður hann listamanninn um
að fá, svo hann geti betur valið,
að sjá önnur verk sem hann á og
er að vinna að hér heima. Svo þau
myndakaup em ekki frágengin.
Fleiri töluðu einnig um myndakaup,
en Helgi Þorgils tekur fram að slíkt
sé oft nefnt án þess að nokkuð
verði af.
Yar Helga Þorgils boðið að koma
á búgarðinn, þar sem ítalinn
á geysimikið safn verka eftir lista-
menn frá aldamótum og fram á
þennan dag. Þar á hann verk eftir
mjög marga þá sem hæst hefur
borið í myndlist, m.a. mikið af
verkum bandarískra listamanna,
abstrakt og mínimallista. Við valið
gengur hann út frá trúarlegum for-
sendum af einhveiju tagi, sem þó
virðist vera í mjög víðum skilningi.
Sagði Helgi Þorgils að ef til vill
ættu einhveijir erfitt með að tengja
verk þessa manns eftir Mondrian,
Girico og Hermann Nitch einhveiju
slíku. Hann stefnir að samsýningu
á næsta eða þarnæsta ári og verða
einhver verk eftir Helga Þorgils á
þeirri sýningu.
Allar myndirnar sem Helgi Þor-
gils sýndi á Feneyjasýn ing
unni hafði hann málað á árinu og
hefur engin þeirra verið sýnd fyrr.
Vegna Feneyjasýningarinnar hafa
honum bæst tvö myndlistargallerí
á Ítalíu, sem munu hafa myndir
hans á boðstólum, í Mílanó og
Trento.
SJÁOPNU