Morgunblaðið - 04.08.1990, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 04.08.1990, Qupperneq 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MENNING LISTIR LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990 BLAÐ Gerður af Sigurði Guðmundssyni Na út onlhutllne bíklJVtn prlrues JntUná tn kumtr naar Sl(urdur Gudtnuiuio'n het i ! noœenl (/o/o Ui áe MttlUr) IPrinses Juliana onthulde , oorlogsmonuinent Middelburg MIDUEUIURG - 1‘rlmes Juliann beeft don- . Voorufgaand onn de onthuIUns voi derdmj In Mlddelburg ren otlogunonument denkingiplechtlgbeld plaats tn i ÉSÉSSfils Fjögurra metra stríðs- ninnisvarði úr ivörtu graníti og íeðst skel úr jronsi. \ minnisvarð- inum stendur: Verkið leitast við ið vera storknuð ninning. Júlíana prinsessa og fyrrum Holl andsdrottning afhjúpaði 17. maí stríðsminnisvarða í bænum Middleburg við hátiðlega at- höfn, að viðstöddum stjórn- málamönnum, borgarstjóra, stríðshetjum og fleiri gestum. Þennau dag fyrir 50 17. maí 1940, lá þetta svæði í landi hennar undir gífurleg- um loftárásum þegar Þjóð- verjar réðust inn í Holland. Til að gera þetta minnismerki völdu Hollendingar íslenska myndlistarmanninn Sigurð Guðmundsson. Hann hefur búið í Hollandi í allmörg ár og hefur gert þar marga út- iskúlptúra. Stríðsminnis- merkið, sem drottningarmóð- irin afhjúpaði, er úr svörtu graníti með bronsundirstöðu og vegur 6 tonn. Er það mik- ill heiður fyrir listamanninn að hafa verið valinn til þessa verks og í frásögnum hol- lensku blaðanna var frá því sagt að það væri eftir íslend- inginn Sigurð Guðmundsson. Frétt í blaðinu Nieuwe Ze- euwse 18. maí 1990. Ámynd- inni er Júlíana fyrrum Hol- landsdrottn- ing með lista- manninum Sigurði Guð- mundssyni við stríðs- minnis- merkið. Minnisvarðinn stendur í Zeeland ná- lægt strönd inni. Voru flóðgarð- arnir sprengdir í innrásinni og fólkið leið mjög í stríð- inu. Til minningar um þessa orustu lét hollenska ríkið og Zeeland-sýsla nú gera minnisvarða þegar hálf öld var liðin frá atburðinum. Sigurður lét sækja til Svíþjóðar þetta granít, sem hann kveður fal- legustu og hörðustu graníttegund sem til er. Þegar það er slípað verð- ur það fallega svart. Þessi tegund fmnst aðeins í Svíþjóð og eitthvað Suður-Ameríku. Þessu bergi kynntist Sigurður þegar hann bjó í Svíþjóð o g hefur unnið úr því skúlpt- úra í 8-9 ár. Það finnst ekki langt frá þeim stað á Skáni, þar sem Sig- urður á hús og þar eyðir hann helm- ingnum af sínum vinnutíma. Skelin, sem er hluti af stöplinum, er úr bronsi. í bæklingi um verkið hefur lista- maðurinn skrifað: Minnisvarðinn er ekki endurspeglun af at- burðum sem ég hefí upplifað sjálfur. Svo margt hefí ég ekki reynt Verkið er ekki myndræn þýðing á þekk- ingu, sem ég hefí aflað mér Svo mikla þekkingu hefí ég ekki Verkið er persónuleg minning um atburð, sem ég hefi ekki uppiifað Verkið leitast við að vera storknuð minning, þar sem atburðimir minnast síns sjálfs Er áletrunin á minnisvarðanum tekin úr síðustu setningunni. Á hann er letrað: Verkið leitast við að vera storknuð minning. Sigurður Guðmundsson er um þessar mundir í sumarleyfi heima á Islandi. Hann kom með Norrænu, feijunni frá Bergen, þar sem hann mun í næsta mánuði setja upp verk eftir sig úr svörtum granítsteini og gleri við listamiðstöð í bænum. En hann vinnur mikið og jöfnum hönd- um á Norðurlöndum og í Hollandi. Ekki hafði Sigurður mörg orð um það, þegar við spurðum hvað hann væri annars að gera um þessar mundir. „Þetta venjulega, að búa til myndlist," sagði hann aðeins. En stöðugt berast fréttir af sýningum á verkum hans í Hollandi. Þar opn- ar hann sýningu í Amsterdam 2. september næstkomandi. Útgáfufyrirtæki í Hollandi er að ganga frá listaverkabók um Sigurð Guðmundsson og verk hans. Fer hún í vinnslu í október og kemur út í vetur. Þetta er þykk og mikil bók, þar sem verða myndir af öllum hans verkum, sem hann hefur unnið frá 1966 og fram á þennan dag. Hefur undirbúningurinn verið mikið verk. íslendingum gefst væntanlega kostur á að sjá verk þessa þekkta landa síns, Sigurðar Guðmundsson- ar, að ári liðnu, því áformuð er yfir- litssýning á verkum hans í Lista- safni íslands. Texti: Elín Pálmadóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.