Morgunblaðið - 15.08.1990, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990
29
fclk f
fréttum
Hannes Jón trúbador og Finnur
harmonikkuleikari léku undir
(jöldasöng veislugesta um borð
í P.H. Viking. Til vinstri er eig-
andi bíitsins, Páli Helgason.
sem í framtíðinni yrði perla Eyj-
anna, en það væri á framtíðarplan-
inu og kæmi á næstu árum.
Matarveislurnar um borð í P.H.
Viking eru haldnar í samvinnu Páls
og veitingastaðarins Við félagarnir
sem sér um veisluföng.
Þrátt fyrir austan þembing í
veðrinu og pus er siglt var út víkina
var ágætt inni í hellinum. Þar var
boðið upp á sjávarréttahlaðborð,
ofandekks, sem var hlaðið kræsing-
um úr hafinu. Gellur, grálúða, ýsa,
karfi, lax, humar og margt fleira
var borið fram og smakkaðist hvert
öðru betur. Það var ævintýralegt
að standa við veisluborð þetta inni
í Klettshelli og þrátt fyrir leiðinda
veður úti fyrir var blíða inni í hellin-
um. Hellirinn lýstist upp með Ijósum
frá bátnum en Páll sagði að ætlun-
in væri að hengja upp kyndla í
hellinum þegar svona veislur yrðu
haldnar í framtíðinni og slá þannig
Morgunblaðið/Grimur Gíslason
enn meiri ævintýraljóma á veislu-
höldin.
Eftir að máltíðinni lauk var siglt
inn á höfnina í Eyjum þar sem siglt
var um. Þjónustufólk bar fram veit-
ingar og trúbadorinn Hannes Jón
og Finnur harmonikkuleikari léku
undir fjöldasöng hjá veislugestum.
Páll sagði að víða erlendis tíðkað-
ist það að fara í bátsferðir um hafn-
ir þar sem slegið væri upp veislum
um borð. Þær hafnir væru að vísu
margfalt stærri en Vestmannaeyja-
höfn en það væri einfalt mál að
sigla bara fleiri hringi.
Gestir um borð í P.H. Viking
þetta kvöld skemmtu sér konung-
lega og söngurinn frá bátnum
hljómaði út yfír höfnina. Það var
því ánægður hópur sem steig á land
eftir skemmtilegt ævintýrakvöld
um borð í P.H. Vikng.
Grímur
VEISLA
Ævintýrakvöldverður
1 Klettshelli
Páll Helgason, ferðamálafröm-
uður í Eyjum, er ávallt vak
andi fyrir að finna nýjar leiðir til
að krydda tilveru þeirra er Vest-
mannaeyjar sækja heim og eins
þeirra sem þar búa. í vor kom Páll
með nýjan bát, P.H. Viking, til
Eyja og hefur farið skoðunarferðir
á honum kringum Vestmannaeyjar
í sumar. Nú ætlar Páll að bjóða upp
á nýjan valkost um borð í bát sínum
og er það ævintýrakvöldverður í
Klettshelli.
Fyrir skömmu var fyrsta matar-
veislan haldin í Klettshelli. Farið
var frá bryggju í Eyjum laust eftir
klukkan átta. Siglt var út Víkina
og inn í Klettshelli. Páll bauð gesti
velkomna um borð og rakti hvernig
rekstur bátsins hefði gengið það
sem af er sumri. Um 9.000 gestir
hafa farið í ferð með bátnum frá
því hann var afhentur í vor. 1.500
gestir í Hafnarfirði, þar sem hann
var smíðaður, og aðrir 1.500 í Eyj-
um, þegar hann kom þangað til
hafnar í fyrsta sinn. Síðan hafa um
6.000 farþegar farið í skoðunar-
ferðir með bátnum. Páll sagði að
allt hefði gengið vonum framar og
væri hann mjög ánægður með bát-
. inn. Hann vildi þó vera vakandi
fyrir að stofna til nýjunga og því
ætlaði hann að bjóða upp á matar-
veislur þessar fyrir hópa sem pönt-
uðu þær. Reyndar sagði Páll að á
áætluninni hjá sér væri að byggja
myndarlegt veitingahús í Klettsvík,
Hlaðborðið með kræsingum úr hafinu vakti aðdáun veislugesta.
HERMENNSKA
Fyrsta kon-
an í West
Point
dúxaði!
1187 ára sögu bandaríska herskól-
ans fræga, West Point, hafði
kvenmaður aldrei stigið inn fyrir
dyr sem nemandi. En vígin hafa
fallið hvert af öðru á þessum síðustu
jafnréttistímum og það hlaut að
koma að því að West Point lenti í
hringiðu breytinganna. Nú hefur
fyrsta stúlkan útskrifast þaðan og
það með slíkum yfirburðum að hún
hefur nú yfirumsjón með þjálfun
4.400 foringjaefna skólans. Ýmsir
fyrirrennarar hennar í starfi eru
frægir síðari tíma herforingjar og
má nefna Black Jack Pershing,
Douglas MacArthur og William
Westmoreland. Stúlkan heitir Krist-
en Baker og er 21 árs gömul.
Hermennska er fjölskyldu Krist-
en í blóð borin, en hún segir marga
hafa latt sig til að sækja um í
West Point og haldið að hún væri
að spauga. Það hefði komið henni
á óvart er hún fékk inngöngu, en
það væri til marks um breytta og
batnandi tíma. „Nú hef ég verk að
vinna og ætla mér að skila því óað-
finnanlega," segir Baker höfuðs-
maður. Iiún segir einnig að hún
hafi gert sér grein fyrir því er hún
dúxaði í herskólanum og fékk um-
sjónarstöðuna eftirsóttu að alltaf
væri talsverð andstaða við þróun
og breytingar. Hún hefði hins vegar
fengið meiri stuðning samstarfs-
manna en mótspyrnu og hefði það
komið þægilega á óvart.
Kristen Baker höfuðsmaður í
fullum skrúða.
Það orðspor fer af Kristen, að
hún sé eitilharður hermaður og ein-
beiting hennar og agi séu óaðfinn-
anleg. 'Hún viðurkennir hins vegar
fúslega að hún Iíkist ekki beinlínis
hermanni. Hún er frekar smávaxin
og mjög kvenleg. Þegar færi gefast
þá sé hún eins og hver önnur
„venjuleg“ stelpa sem notar farða,
setur hárið upp, fylgir stuttu
tískunni og hefur gaman af því að
fara út að borða og skemmta sér
með vinum og kunningjum og ekki
síst kærastanum sem kvartar ekki
enn sem komið er að minnsta
kosti . . .
Björn og kona hans.
SKULDIR
Borg lét sig
hverfa frá
argaþrasinu
Fyrrum tennisstjarna og við-
skiptajöfurinn Björn Borg
lét sig hverfa frá argaþrasi nauð-
ungaruppboða og gjaldþrota-
skipta fyrir skömmu. Hann sólar
sig í staðinn í Forte di Marmi við
Ítalíuströnd og býr í sumarhöll
vinar síns. Heima í Svíþjóð sitja
fógetinn, seðlabankinn og 300
aðilar sem Björn er talinn skulda
alis 900 milljónir króna.
Haft hefur verið eftir Birni
Borg að hann viti ekki hvort hann
ráði við að borga allar skuldir
sínar, stórhýsin hans tvö séu veð-
sett og launin dugi nú rétt fyrir
lífsviðurværi. Auk þess skuldi
hann ekki nándar nærri eins mik-
ið og menn segja og lögfræðingur
hans, Per Sjöström, tekur undir
það og segir áð deila megi í upp-
gefna skuldatölu með þremur.
Ekki er reyndar deilt um kjarna
málsins og hann er sá, að Borg
er sannarlega á hausnum.
Þvottavélar
Þurrkarar
Örbylgjuofnar
Gœðatœki fyrir
þig og þína!
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Höfdar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!