Morgunblaðið - 21.08.1990, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990
ÚRSUT
Víkingur - Fram 0:1
Víkingsvöllur, íslandsmótið í knattspyrnu,
1. deild — Hörpudeild — mánudaginn 20.
ágúst 1990.
Mark Fram: Guðmundur Steinsson (63.)
Gult spjald: Janni Zilnic, Víkingi. Kristján
Jónsson, Jón Erling Ragnarsson og Viðar
Þorkelsson, Fram.
Rautt spjald: Ekki gefið.
Áhorfendur: 650 seldir miðar.
Dómari: Bragi Bergmann.
Línuverðir: Pjetur Sigurðsson og Engilbert
Runólfsson.
Víkingur: Guðmundur Hreiðarsson, Helgi
Björgvinsson, Helgi Bjamason, Ólafur Ól-
afsson (Björn Bjartmarz 73.), Einar Einars-
son, Atli Helgason, Janni Zilnic, Trausti
Ómarsson, Hörður Theódórsson (Sveinbjörn
Jóhannesson 84.), Atli Einarsson, Goran
Micic.
Fram: Birkir Kristinsson, Jón Sveinsson,
Viðar Þorkelsson, Kristján Jónsson, Kristinn
R. Jónsson, Pétur Amþórsson, Pétur
Ormslev, Steinar Guðgeirsson, Baldur
Bjamason, Guðmundur Steinsson, Jón Erl-
ing Ragnarsson (Ríkharður Daðason 87.).
ÍA-ÍBV 3:4
Akranesvöllur, íslandsmótið 1. deild
(Hörpudeild), mánudagur 20. ágúst 1990.
Mörk ÍA: Karl Þórðarson 2 (55., 80.), Sig-
ursteinn Gíslason (59.).
Mörk ÍBV: Hlynur Stefánsson (10.), Tómas
Ingi Tómasson 2 (43., 74.), Jerina (88.)
Dómari: Gylfi Orrason.
Línuverðir: Egill M. Markússon og Guð-
mundur Jónasson.
Gult spjald: Þórhallur Jónsson, Sigurður
B. Jónsson, Alexander Högnason, lA. Tóm-
as I. Tómasson, Heimir Hallgrimsson, IBV.
Áhorfendur: 517.
ÍA: Gísli Sigurðsson, Bjarki Gunnlaugsson,
Þórhallur Jónsson, Alexander Högnason,
Sigurður B. Jónsson, Brandur Siguijónsson,
Karl Þórðarson, Sigursteinn Gíslason, Amar
Gunnlaugsson, Guðbjörn Tryggvason, Har-
aldur Ingólfsson.
IBV: Adólf Óskarsson, Friðrik Sæbjöms-
son, Heimir Hallgrímsson, Elías Friðriksson
(Ólafur Árnason 5.), Jón Bragi Arnarsson,
Bergur Ágústsson, Andrej Jerina, Ingi Sig-
urðsson (Huginn Helgason 87.), Hlynur
Stefánsson, Tómas Ingi Tómasson, Sigurlás
Þorleifsson.
FH-KR 1:3
Kaplakrikavöllur, Islandsmótið í knatt-
spymu, 1. deild — Hörpudeild — mánudag-
inn 20. ágúst 1990.
Mark FH: Hörður Magnússon (vsp. 24.).
Mörk KR: Pétur Pétursson (25. og 58.) og
Rúnar Kristinsson (88.).
Gult spjald: Birgir Skúlason, FH.
Rautt spjald: Ekki gefið.
Áhorfendur: Um 250.
Dómari: Óli Ólsen.
Línuverðir: Ólafur Hákonarson og Jón Sig-
uijónsson.
FH: Halldór Halldórsson, Birgir Skúlason,
Guðmundur Hilmarsson, Bjöm Jónsson,
Kristján Gíslason,(Hallsteinn Arnarson
78.),Þórhallur Víkingsson, Magnús Pálsson,
(Kristján Hilmarsson 74.), Ólafur Kristjáns-
son, Guðmundur Valur Sigurðsson, Andri
Marteinsson, Hörður Magnússon.
KR: Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björg-
vinsson, Jóhann Lapas, (Þorsteinn Halldórs-
son 57.), Þormóður Egilsson, Gunnar Odds-
son, Rúnar Kristinsson, Hilmar Bjömsson,
Gunnar Skúiason, Ragnar Margeirsson,
Atli Eðvaldsson, Pétur Pétursson.
KA - Stjarnan 0:3
Akureyrarvöllur, íslandsmótið í knatt-
spymu, 1. deild — Hörpudeild — mánudag-
inn 20. ágúst 1990.
Mörk Stjörnunnar:Ámi Sveinsson (10.),
Lárus Guðmundsson (78.), Valdimar Kri-
stófersson (86).
Gult spjald:Kjartan Einarsson KA.
Rautt spjald: Ekki gefið.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson, dæmdi vel.
Línuverðir: Guðmundur Haraldsson og
Marínó Þorsteinsson.
KA: Haukur Bragason, Bjarni Jónsson,
Steingrímur Birgisson, Halldór Halldórsson,
Heimir Guðjónsson, Erlingur Kristjánsson
(Þórður Guðjónsson 57.), Hafsteinn Jakobs-
son, Gauti Laxdal (Ámi Hermannsson 70.),
Ormarr Örlygsson, Kjartan Einarsson, Jón
Grétar Jónsson.
Stjarnan: Jón Otti Jónsson, Magnús Bergs,
Birgir Sigfússon, Bjarni Benediktsson,
Sveinbjöm Hákonarson, Láras Guðmunds-
son, Ingólfur Ingólfsson, Árni Sveinsson,
Ragnar Gíslason, Valdimar Krístófersson,
Valgeir Baldursson (Heimir Erlingsson 62.).
Rúnar Kristinsson, KR. Karl Þórðarson, ÍA.
Tómas Ingi Tómasson, ÍBV.
Andri Marteinsson, Guðmundur Hilmars-
son, Bjöm Jónsson, Þórhallur Víkingsson,
Hörður Magnússon, FH. Ólafur Gottskálks-
son, Hilmar Bjömsson, Ragnar Margeisson,
Pétur Pétursson, KR. Bjarki Gunnlaugsson,
Þórhallur Jónsson, Amar Gunnlaugsson,
Guðbjörn Tryggvason, ÍA. Heimir
Hallgrímsson, Bergur Ágústsson, Andrej
Jerina, ÍBV.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Nýir búningar reynast KR
ingum vel í Kaplakrika
KR-INGAR virðast hafa eitt-
hvert tak á FH-ingum og á því
varð engin breyting í gær-
kvöldi. KR-ingarmættu til leiks
i nýjum gulum búningum og
gafst það vel. í fyrra vígðu
þeir gul/svart röndóttar treyjur
í Kaplakrika með góðum ár-
angri og svo var einnig f gær-
kvöldi.
Leikurinn lofaði góðu strax í
upphafi. Andri Marteinsson
komst einn í gegnum vörn KR en
Olafur Gottskálksson varði vel. Hin-
um megin má segja
SkúliUnnar að menn hafi vaðið
Sveinsson f færum. Ragnar
skrifar Margeirsson skall-
aði framhjá af
markteig og átti síðan laglegt skot
rétt framhjá. Rúnar Kristinsson og
Pétur Pétursson komust í færi en
tókst ekki að skora.
Heimamenn komust yfir á 24.
mínútu. Hörður Magnússon skoraði
úr vítaspyrnu eftir að Gunnar Odds-
son hafði fellt hann innan vítateigs.
Hörður fékk laglega sendingu frá
Þórhalli Víkingssyni, sem var pott-
urinn og pannan í leik FH, og stakk
sér framhjá KR-ingum.
FH-ingar voru enn að fagna þeg-
ar Pétur Pétursson jafnaði. Rúnar
tók aukaspyrnu og sendi beint á
kollinn á Pétri sem sneiddi hann í
netið. Mikilvægt mark á góðum
tíma fyrir KR.
Guðmundur Valur fékk tvívegis
dauðafæri, sem nýttust ekki og
Ólafur Kristjánsson átti gott skot
sem nafni hans í marki KR varði
mjög vel.
Pétur skoraði annað mark sitt
og KR á 58. mínútu með skoti af
stuttu færi, eftir sendingu frá
Ragnari. Eftir þetta mark dofnaði
yfir annars fjörugum leik.
Rúnar skoraði síðan þriðja mark
KR á 88. mínútu og var það glæsi-
lega gert. Hann fékk boltann á
miðjum vallarhelmingi FH, renndi
sér skemmtilega framhjá tveimur
varnarmönnum og skoraði.
Þórhallur Víkingsson var bestur
FH-inga. Guðmundur og Björn léku
ágætlega í vörninni og frammi voru
Andri og Hörður hættulegir.
Hjá KR var Rúnar sterkastur.
Ólafur markvörður stóð sig vel og
Hilmar Bjömsson átti skemmtilega
spretti upp hægri kantinn. Ragnar
og Pétur stóðu sig einnig vel.
Morgunblaðið/Einar Falur
Rúnar Kristinsson, KR-ingur var besti leikmaður vallarins þegar KR sigraði FH 3:1 á Kaplakrikavelli í gærkvöldi.
Hann sést hér á fullri ferð með boltann og FH-inginn Magnús Pálsson á hælunum.
Stefni á parið
-segir Hörður Magnússon marka-
kóngurinn frá því í iyrra
Hörður Magnússon skoraði
sitt tólfta mark í 1. deild í
gærkvöldi og er nú markahæsti
leikmaður deildarinnar. Hann
varð markahæstur í fyrra og á
því möguleika á að verða fyrstur
til að fá gullskó Adidas tvö ár í
röð, en hann var fyrst afhentur
hér á landi árið 1983.
„Auðvitað sé ég möguleika á
að verða markahæstur í ár og ég
stefni að því að ná mér í skó á
hinn fótinn. Það er fínt að eiga
eitt par af gullskóm,“ sagði Hörð-
ur eftir leikinn við KR.
Hörður-hefur gert fjögur marka
sinna úr vítaspyrnum og þrívegis
hefur það verið eftir að brotið
hafði verið á honum sjálfum.
Guðmundur Steinsson, Fram,
hefur skorað 9 mörk og Tómas
Ingi Tómasson, ÍBV, hefur skorað
átta mörk.
Fj. leikja u j T Mörk Stig
FRAM 15 10 1 4 28: 11 31
VALUR 14 9 2 3 25: 15 29
KR 15 9 2 4 23: 16 29
IBV 15 8 4 3 27: 27 28
STJARNAN 15 7 2 6 20: 17 23
VÍKINGUR 15 4 7 4 16: 15 19
FH 15 6 1 8 20: 24 19
KA 15 5 1 9 15: 20 16
ÞÓR 14 2 2 10 7: 21 8
ÍA 15 .2 2 11 16: 31 8
í kvöld
Síðasti leikur 15. umferðar
1. deildarinnar er á dagskrá
í kvöld. Valsmenn fá Þórsara
frá Akureyri í heimsókn að
Hlíðarenda. Leikur liðanna
hefst kl. 19.
Ótrúleg óheppni Skagamanna:
Stangir Eyjamanna nötr
uðu þrisvar á Akranesi
Skagamenn héldu uppi látlausri sókn að marki Eyjamanna, en máttu þola tap, 3:4, í ævintýralegum leik
ÞAÐ er sem æðri máttarvöld
séu búin að dæma Skagamenn
niður í 2. deild. Þrátt fyrir að
þeir hafi leikið besta leik sinn
á heimavelli í sumar og sótt
nær látlaust að marki Eyja-
manna máttu þeir þola tap,
3:4, í skemmtilegum leik sem
var ævintýri líkastur. Þrisvar
nötruðu stangir Eyjamanna og
hvað eftir annað skall hurð
nærri hælum við mark þeirra.
Eftir þennan leik liggur það
fyrir Skagamönnum að falla,
en Eyjamenn sem gáfust aldrei upp
og börðust sem grenjandi ljón gegn
ofurefli, eru enn
með í meistarabar-
áttunni og það var
sem meistaraheppn-
in væri í herbúðum
þeirra.
Eyjamenn skoruðu mark úr
fyrstu sókn sinni í leiknum, Hlynur
Stefánsson á tíundu mín. og síðan
bættu þeir öðru marki við: Tómas
Ingi Tómasson, á 43. mín. úr ann-
ari hættulegu sókn liðsins. Bæði
mörkin komu þvert á gang leiksins,
sem var eign heimamanna. Áður
en Tómas Ingi skoraði - eftir að
hafa brunað fram sem elding og
þrumað knettinum í þaknetið, höfðu
stangir Eyjamanna nötrað tvisvar.
Sigþór
Eiríksson
skrifarfrá
Akranesi
Karl Þórðarson og Sigursteinn
Gíslason áttu stangarskotin.
Skagamenn gáfust ekki upp við
mótlætið heldur mættu tvíefldir til
leiks í seinni hálfleik og á 55. mín.
náðu þeir að koma knettinum í net
Eyjamanna. Karl Þórðarson skoraði
með föstu skoti og aðeins fjórum
mín. síðar var Sigursteinn búinn
að jafna metin, 2:2.
Skagamenn héldu síðan áfram
hverri stórsókninni á fætur annari,
en enn skoruðu Eyjamann þvert á
gang leiksins. Tómas Ingi var rétt-
ur maður á réttum stað og hamraði
knöttinn í netið. Skagamenn héldu
síðan áfram að sækja og náði Karl
Þórðarson að jafna, 3:3, á 80. mín.
með glæsilegu marki - einu því
fallegasta sem hefur sést á Akra-
nesi. Hann vann knöttinn við miðju,
brunaði fram, lék á einn Eyjamann
og sendi knöttinn með þrumufleyg
af 30 m færi að marki Eyjamanna.
Adólf Óskarsson, markvörður
þeirra, átti ekki möguleika á að
verja knöttinn, sem þandi út neta-
möskvana. Og enn sækja Skaga-
menn - og enn skoruðu Eyjamann!
Þeir fengu skyndisókn og náði
Júgóslavinn Jerina að skora fjórða
markið, 3:4. Þær tvær mín. sem
voru til leiksloka sóttu Skagamenn
og átti Ingólfur Haraldsson þá skot
á stöng úr dauðafæri. Oheppnin
elti Skagamenn frá byrjun til enda,
en Eyjamenn fögnuðu sigri.