Morgunblaðið - 21.08.1990, Page 5

Morgunblaðið - 21.08.1990, Page 5
h MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990 B 5 Metþátttaka í Reykjavíkurmaraþonhlaupinu: Hlaupið um götur Reykja víkur í brúðkaupsferð METÞÁTTTAKA var í Reykjavíkurmaraþoninu, sem fram fór á sunnudag sjöunda árið í röð. Alis munu 1.510 hafa tekið þátt, þar af um 60 í maraþonhlaupinu, á þriðja hundrað í hálfmaraþoni og um 1.200 í skemmtiskokkinu. Hlaupið fór fram við bestu aðstæður en brautarmetin stóðu samt óhögguð. Segja má að Reykjavíkurm- araþon sé vasaútgáfa af stór- hlaupum, sem fram fara í helstu borgum heims. Þannig ber nú á ýmiss konar uppátækjum í hlaup- inu. Einn keppandi velti t.a.m. stærðar hjólbarða á undan sér hálfa maraþonlengd, eða 21 km, og hafði safnað áheitum til styrkt- ar líknarstarfi. Nokkrir ýttu á undan sér barnavög'num og a.m.k. tveir útlendingar gerðu Reykjavíkurmaraþonið að lið í brúðkaupsferð. Þá tóku þátt út- lendingar sem „safna“ maraþon- hlaupum, t.d. hljóp Belgíumaður að nafni Harry Smedts sitt 26. hlaup ár árinu en hann hefur lagt 136 maraþonhlaup að baki á nokkrum árum. Nær fimmtugur Svisslendingur, Karl E. Waegeli, hljóp sitt 10. maraþon á árinu, hið fyrsta í Hong Kong í janúar- lok, síðan tvisvar í Suður-Afríku, þá Boston og loks víðs vegar í Evrópu. Fyrra laugardag keppti hann í fyrsta alþjóðlega maraþon- hlaupinu í Moskvu og þaðan lá leiðin til Reykjavíkur. Fyrsti íslendingurinn á mark í maraþonhlaupinu var Sighvatur Dýri Guðmundsson ÍR á 2:36,04 og er það fjórða árið í röð að hann vinnur það afrek. Sjónvarps- maðurinn Ingólfur Hannesson varð annar íslendinga og er það frumraun hans í þessari þrekraun, en alls luku 13 Islendingar ma>-a- þonhlaupinu. Elstur þeirra var Jón Guðlaugsson sem hljóp á 3:52,28 og var því við sinn besta árang- ur, sem er frá árinu 1968. Hlaupið fór vel fram en þegar á daginn var liðið og ekki allir komnir á mark var ekið um braut- ina og þeim hægförnustu boðið bílfar til síns heima. Ástralinn Stephen Partic O’Callaghan og ítalinn Simone Ravazzolo voru ekki á þeim buxum og komu í mark á sjötta tímanum en hlaupið hófst stundvíslega á hádegi. Ravazzolo var síðastur á 5:41,36 klst. „Enginn rak migáfram - sagði breska stúlkan Susan Shields Það var gaman að hlaupa hér en ég vildi að lokatíminn hefði verið betri því ég hef náð 17 mínútum betri tíma í ár. Mig vantaði alla keppni til að gera betur en sigurinn skiptir mig miklu máli því það er ekki hægt að gera betur þegar maður keppir í fyrsta sinn í breska landsliðsbúningnum," sagði breska stúlkan Susan Shields. Susan hafði mikla forystu eftir fyrri hring maraþonsins en önnur bresk hlaupakona, Carolyne Boyd, dró á hana eftir því sem á leið. Lokatími Susan varð 2:59,58 klst en Boyd var nákvæmlega þrem- ur mínútum á eftir henni í mark. „Það var enginn sem rak mig áfram. Ég var lengst af ein á báti og þá er tilhneigingin rík til að slaka á og láta sig líða áfram án mikilla átaka,“ sagði Susan Shields, þrítug hlaupakona frá háskólabænum Durham í norðausturhluta Eng- lands. *u V-*' Susan Shields varð sigurvegari í maraþonhlaupi kvenna. Hún hljóp í fyrsta sinn í landsliðsbúningi Breta. Morgunblaðið/KGA Reynslan skilaði sér - sagði Sigurður P. Sigmundsson, sigurvegari í hálfmaraþon „Ég er mjög ánægður með sig- urinn og tímann í hlaupinu. Gömul reynsla og góður bak- grunnur í hlaupunum kom að miklu gagni,“ sagði Sigurður Pétur Sigmundsson UFA eftir sigur sinn í hálfmaraþoni karla en sigrinum fylgir íslands- meistaratitill fþeirri grein. Hljóp hann á 1:10,28 klst. en aðeins hann sjálfur (1:07,09) ogJón Diðriksson ÍR (1:09,13) hafa hlaupið hraðar. Eg hef ekki hlaupið nema tæpa 90 km á viku lengst í ár sem telst ekki mikið fyrir langhlaupara en margra ára reynsla og mikil þjálfun skilaði sér. Ég reyndi að halda aðeins aftur af mér í byijun og átti því nokkuð til góða seinni hluta hlaupsins,“ sagði Sigurður Pétur. Um tíma var hann 20-30 sekúndum á eftir Jóhanni Ingi- bergssyni FH en með vel útfærðu hlaupi sínu náði hann forystu af Jóhanni eftir 11 km. Jók hann síðan forystu sína jafnt og þétt og sigr- aði með yfirburðum. Varð Jóhann annar á 1:13,14 og Jóns Stefánsson UFA þriðji á 1:14,54. „Ég hef hreint ekki haft tíma til að æfa meira að undanförnu," sagði Sigurður Pétur en hann er fram- kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjaijarðar og tími hans og kraftar að miklu leyti farið í þær tilraunir Eyfirðinga að hreppa álver það sem rætt er um að Atlantal-hópurinn reisi hér á landi. Morgunblaðið/KGA Sigurður P. Sigmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.