Morgunblaðið - 21.08.1990, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 21.08.1990, Qupperneq 8
ÍÞfémR KNATTSPYRNA / BIKARURSLIT KVENNA Bikarinn afturað Hlíðarenda ------------------------------ ¥ Morgunblaðið/Einar Falur Ragnheiður Víkingsdóttir, fyrirliði Vals, heldur hér á lofti sigurverðlaunun- um eftir að lið hennar hafði sigrað ÍA í úrslitaleik bikarkeppninnar. VALUR og ÍA léku til úrslita í bikarkeppni kvenna ífimmta sinn á sunnudag. Skagastúlk- um tókst ekki þrátt fyrir góðan leik að losa það tak sem Vals- stúlkur hafa haft á þeim í þess- um úrslitaviðureignum og misstu titilinn til þeirra rauð- klæddu. Arney Magnúsdóttir gerði sigurmark Vals um miðj- an fyrri hálfleik. Þetta er í sjötta sinn sem Valur vinnur titilinn. ÍA varð bikarmeistari í fyrra, en Valur fimm árin þar á undan og er það því sem næst orðin hefð að þessi lið leiki til úrslita um bikarinn. Leikurinn fór fram við góðar aðstæður á aðalleikvangi Laug- ardalsvallarins. Strax í upphafi leiks skall hurð nærri hælum við Valsmarkið þegar Katrín Skagastúlkur fengu Friðriksen hornspymu eftir. skrifar góða sókn. Boltinn barst fyrir markið og eftir darraðadans í teignum rúll- aði boltinn eftir marklínunni. Skagastúlkur voru of seinar að átta sig og varnarmönnum Vals tókst að bægja hættunni frá. ÍA var sterkara liðið í byijun, en þegar á leið sótti Valsliðið sig og leikurinn jafnaðist. Mikil barátta var í leiknum og oft brá fyrir fallegu spili, en sóknar- leikur liðanna var ekki mjög beitt- ur. Marktækifæri sást ekki fyrr en á 26. mínútu þegar Arney skoraði. Eftir skemmtilegt samspii Bryndís- ar Valsdóttur og Ragnheiðar Víkingsdóttur fengu Valsstúlkur hornspyrnu. Ingibjörg Jónsdóttir spyrnti boltanum beint á höfuð Ameyjar Magnúsdóttur sem stökk manna hæst í vítateignum og skall- aði knöttinn örugglega neðst í markhornið, óveijandi fyrir Ragn- heiði Jónasdóttur í marki LA. ÍA pressaði en Valsvörnin hélt Síðari hálfleikur byijaði líkt og sá fyrri með dauðfæri hjá ÍA. Að þessu sinni var það Júlía Sigursteinsdóttir sem skallaði naumlega yfir Vals- markið þegar hún stóð ein og óvöld- uð fyrir miðju marki á markteig. Valsliðið dró sig nokkuð til baka á vellinum og ætlaði greinilega að halda fengnum hlut. Það tókst hjá þeim því þó að pressa Skagaliðsins væri mikil tókst liðinu ekki að skapa sér hættuleg færi ef undan er skil- ið gott skot Rögnu Lóu Stefáns- dóttur um miðjan hálfleikinn, en það fór rétt framhjá marki Vals. Vörn Valsliðsins var sterk í leiknum og náðu þær að halda sóknarmönn- um ÍA vel niðri. Guðrún Sæmundsdóttir átti góð- an leik sem aftasti maður Valsvarn- arinnar og Védís Ármannsdóttir var einnig sterk í vörninni. Á miðjunni barðist Ragnheiður Víkingsdóttir vel að vanda og Hera Ármanns- dóttir kom vel út á kantinum. Þá áttu Arney Magnúsdóttir og Ingi- björg Jónsdóttir góða spretti en duttu niður þess á milli. Vörn ÍA var líka örugg með írisi Steins- dóttur sem besta mann. Ragna Lóa var örugg, en þó hefur oft borið meira á henni. Á miðjunni var Karít- as Jónsdóttir sterk og Magnea Guð- laugsdóttir átti mjög góðan leik. „Þurftum að bjarga andlit- inu“ sagði Ragnheiður Víkingsdóttir, fyrirliði Vals „ÞAÐ var að duga eða drep- ast í þessum lelk. Við þurft- um að bjarga andlitinu, en iiðið hefur ekki verið sann- færandi í sumar,“ sagði Ragnheiður eftir leikinn, en neitaði því jafnframt að nokkur þreyta væri farin að segja til sín í Valsliðinu sem hefur verið á toppnum und- anfarin ár. Við erum ekkert að dala held- ur höfum við verið mjög óheppnar með meiðsii og annað í sumar. Við áttum sigurinn fyllilega skilið enda erum við búin að fara erfiða leið í þennan úrslitaleik og unnum meðal ann- ars íslandsmeistara Breiðabliks. Mér fannst Valsliðið ákveðn- ara í fyrri hálfleik, en eftir mark- ið freistuðumst við til að bakka og reyna að halda fengnum hlut. Liðið barðist mjög vel og það er langt síðan að það hefur ver- ið svona gaman við vinna titil, sagði Ragnheiður. Fyrsta markið í sumar „Það er eins gott að hafa þetta eftirminnilegt loksins þegar markið kemur,“ sagði Ámey Magnúsdóttir, en hún skoraði sigurmark Vals í leiknum og jafnframt hennar fyrsta mark í sumar. „Þetta var góður leikur og mér fannst við vera sterkari nema í lokin þegar þær pressuðu stíft á okkur. Það hefur vantar neistann i leik Valsliðsins í sum- ar, en við vorum harðákveðnar í því að vinna þennan leik,“ sagði Arney. Reynslan skipti sköpum Ragna Lóa Stefánsdóttir, þjálf- ari ÍA og einn leikreyndasti leikmaður liðsins sagði eftir leikinn að það hefði öðru fremur verið reynsla Valsliðsins sem færði þeim sigurinn. ‘Þær mættu til leiks fullar baráttu rétt eins og við bjuggumst við. Skagaliðið er mjög ungt að árum og þess tími kemur. Það sem hefur háð okkur í sumar er að í lið- ið vantar tilfinnanlega markaskor- ara, færin vantar ekki. Við áttum ekkert minna í leiknum og yfirspil- uðum þær oft , en á meðan að liðið skorar ekki verðum við að kyngja svona úrslitum þó maður sé alls ekki sáttur við það,“ sagði Ragna Lóa. Skemmtilegur úrslitaleikur „Leikurinn var jafn og ágætlega leikinn. Það kom í ljós í þessum leik eins og svo oft áður hjá okkur að við eigum erfitt með að ná tökum á leiknum ef við fáum mark á okk- ur snemma,“ sagði Jónína Víglunds- dóttir, fyrirliði IA eftir leikinn. ’Liðið er enn það ungt að margir leikmenn eiga érfitt með að skila sínu undir þeirru pressu að vera marki undir. Ef við hins vegar náum að skora í byijun smellur yfirleitt allt saman,“ sagði Jonína sem var sammála Rögnu Lóu í því að reynsla Valsliðs- ins hefði gert útslagið í leiknum. Morgunblaðið/Einar Falur Valsstúlkur, bikarmeistarar 1990.Í efri röð frá vinstri eru Helgi R. Magnússon formaður knattspymudeildar Vals, Guðbjörg Petersen liðsstjóri, Ragn- hildur Skúladóttir, Helga Jónsdóttir, Arney Magnúsdóttir, Guðrún Sæmundsdóttir, Bryndís Valsdóttir, Kristín Briem, Anna Gísladóttir, Siguijón Elíasson þjálf- ari liðsins. í neðri röð frá vinstri eru Sirrý Haraldsdóttir, Soffía Ámundadóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Ragnheiður Vikingsdóttir fyrir- liði, Guðbjörg Ragnarsdóttir, Védís Ármannsdóttir, Erla Sigurbjartsdóttir, Hera Ármannsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.