Morgunblaðið - 09.09.1990, Síða 1

Morgunblaðið - 09.09.1990, Síða 1
HEIMILI fHttgmi&UiMí 307,4 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 Verómætl íbúóar- húsa 300 milljaróar VERÐMÆTI íbúðarhús- næðis var rúmir 300 millj- arðar í lok ársins 1989 saman- borið við 237,7 milljarða í lok ársins 1980 miðað við núgild- andi verðlag. Er það um 27% raunaukning þegar miðað er við hækkun framfærsluvísitölu. í Hagtölum mánaðarins sem Seðlabanki íslands gefur út er að finna yfirlit yfir þjóðarauð íslendinga síðustu ár og ára- tugi. Jafnframt er sýnt hversu mikið verðmæti hefur verið fólgið í íbúðarhúsnæði á hverj- um tíma. Myndin hér að ofan sem unnin er út frá þessum tölum sýnir verðmætaaukning- una sem orðið hefur á hverjum áratug frá 1950 bæði hvað varðar þjóðarauðinn og íbúðar- húsnæði. Kemur í Ijós að vöxt- ur þjóðarauðs og verðmæta- aukning í ibúðarhúsnæði var langmestátímabilinu 1970- 1979. Þjóðarauðurinn hefur áttfaldast að raungildi frá árinu 1950 til loka árs 1989. Verð- mæti íbúðarhúsa er hinsvegar 6,7 falt hærra að raungildi. Verðmætaauknlng íbúðarhúsnæðis og vöxtur þjóðarauðs 1950-1 989 í milljörOum kr. (veröiag ágúst 1990 m.v. f ramfærsl uvísitölu) pjÓðaraUÖS Verðmætaaukning íbúðarhúsnæðis 88,7 1960- 1970- 1980- 1969 1979 1989 Skoóunar- slcylda lcaupanda ÞAÐ er mikið í húf i, þegar gerður er samningur um svo kostnaðarsöm kaup sem íbúðarkaup og það getur reynzt kaupanda algjörlega um megn að standa við fjárhags- legar skuldbindingar sínar, ef ofan á kaupverð bætist mikili viðgerðarkostnaður. í þætti sínum Smiðjan fjallar Bjarni Ólafsson í dag um þá þætti, sem helzt er um að ræða í slíkum tilfellum. Hann byrjar á þakviðgerðum og segir það nauðsynlegt fyrir kaupanda að spyrjast rækilega fyrir um hugsanlegan þakleka. A veggjum utanhúss getur ver- ið þörf á aildýrum viðgerðum, hvort sem um er að ræða timb- urhús eða steinhús. Ef raka verður vart í kjallaragólfi eða veggjum neðar en jarðyf irborð- ið utan við veggina, þá er eng- um blöðum um það að fletta, að grafa þarf skurð umhverfis húsið og setja niður góða drenilögn. 2 Orlofshús á Spáni IEÐ f rjálsari gjaldeyris- reglum, sem gengu í gildi hér á landi um síðustu mán- aðamót, má búast við því, að ásókn íslendinga í íbúðir og húseignir erlendis aukist veru- lega, ekki hvað sízt á sóiarl- andinu Spáni. Til þessa hafa hér einungis félög með eigi færri en 50 meðlimum mátt eiga fasteignir erlendis. Eftir- leiðis mega jafnt einstaklingar sem félög eiga slíkar eignir. Þetta kemur fram í viðtali hér í blaðinu í dag við Guðmund Óskarsson, forstjóra Orlofs- húsa sf., en það fyrirtæki hefur umboð fyrir fasteignir á Spáni og hefur selt íslendingum yf ir 70 íbúðir og hús á undanf- örnum fjórum árum. — Salan hefur farið vaxandi ekki hvað sízt á þessu ári, segir Guð- mundur. — Eftir því sem við höfum selt islendingum fleiri eignir, hefur tortryggnin hér farið minnkandi. Hann segir jafnframt, að íbúðar kaupá Spánisé góð fjárfesting og fasteignaverð þar hafi farið hækkandi á undanförnum árum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.