Morgunblaðið - 09.09.1990, Síða 2

Morgunblaðið - 09.09.1990, Síða 2
2 B Símatími kl. 1-3 Seljendur athugið! Vegna mikillar sölu vantar eignir á söluskrá. Austurbrún - 2ja 2ja herb. falleg íb. á 4. hæð í lyftuh. Suðursv. Laus strax. Verð 4,2 millj. Æsufell - 2ja 2ja herb. góð íb. á 2. hæð. Fallegt útsýni. Laus. Sanngjarnt verð. Stóragerði - bflsk. 3ja-4ra herb. 97 fm mjög falleg endaíb. á 3. hæð. Suðursvalir. Bílskúr. V. 7,0 m. Kleppsvegur - 4ra Ca 100 fm góð íb. á 1. hæð. Þvottaherb. í íb. Danfoss. Suð- ursv. Einkasala. Verð ca 6 millj. Hraunbær - 4ra 90 fm falleg íb. á jarðh. 3 svefnh., þvottah. í íb. Verð ca 6,0 millj. Digranesvegur - 4ra Falleg 4ra herb. íb. á 2. hæð. Sérhiti. Suðursv. Bílskúrsréttur. Einb. v/Lækinn Hf. Mjög fallegt ca 135 fm einbh. á tveimur hæðum v/Tjarnarbraut Hf. Bílsk. fylgir. Húsiö er mikiö endum. Falleg eign á eftírsóttum stað. Birkigrund - endaraðhús 206 fm fallegt raðhús, kj. og tvær hæð- ir. Bílskréttur. Reykjafold - einbhús Óvenju glæsil. 197 fm einbh. á einni hæð. Innb. bílsk. Gjafa- og listmunaversl. Þekkt gjafa- og listmunaverslun á besta stað v/Laugaveginn. Byggingarlóðir 1288 fm lóð við Hegranes, Arnarnesi, 1000 fm lóð við Reykjabyggð, Mosbæ. k Agnar Gústafsson hrl.,J Eiríksgötu 4 Málflutnings- og fasteignastofa MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 Vaxandí starfsemí hjá Húsnæöismióliiii stúdenta Offramboó á hcrbergjum en skortur á ibúöum Hjónagarðar stúdenta við Suðurgötu Morgunblaðið/Börkur STARFSEMI Húsnæðismiðlunar stúdenta fer vaxandi, enda komin á hana nokkur reynsla. Frá því í apríl sl. hefur hún miðlað 160 húseiningum til stúdenta og er þá átt við bæði herbergi og íbúð- ir. Þetta er mun meira en undan- farin ár, en húsnæðismiðlunin miðlaði 60 einingum á sama tíma í fyrra og 30 árið þar áður. Andri Þór Guðmundsson, starfs- maður stúdentaráðs sagði, að töluvert umframframboð væri af einstökum herbergjum en skortur á stúdíóíbúðum og 2ja og 3ja herb. íbúðum. — Það er einkum stúdentar utan af landi, sem eiga við hús- næðiserfiðleika að etja, segði Andri Þór. — Til þess að aðstoða þá útbú- um við lista yfir laust húsnæði, sem við sendum þeim. Þrátt fyrir mikið framboð á her- bergjum höfum við ekki merkt neina teljandi lækkun á þeim en það er greinilegt, að framboð á ein- stökum herbergjum t. d. inn af íbúð hefur aukizt talsvert, þannig að það er orðið meira en eftirspurnin. Al- gengt verð á herbergjum er 10.000-15.000 kr. á mánuði, en það er þó misjafnt og fer eftir stað og eftir aðstöðu t. d. því, hvort her- bergið er með aðgangi að eldhúsi, hitunarhella er í herberginu og að- gangur að baði. Verð á herbergjum getur þó farið allt upp í 20 000 kr. á mánuði, en svo dýr herbergi ganga ekki út hjá okkur. Talsvert er um það, að í staðinn fyrir pen- ingagreiðslu vilja leigusalar fá greiðslu í formi heimilisaðstoðar, barnapössunar, aðstoðar við viðhald á húsnæðinu o. fl. af því tagi. Þá nefndi Andri Þór, að tekin hefði verið upp ábyrgðartrygging fyrir stúdenta, sem fá leighúsnæði og sagði: — Leigusalinn verður að biðja um þessa tryggingu, en við seljum leigutakanum hana. Þá er leigusali tryggður fyrir skemmdum af völdum leigutaka allt upp, að 400.000 kr. Þessi ábyrgðartrygging er ódýr og kostar ekki nema 2.000 kr, á ári og er fengin hjá Sjóvá- Almennum. Þetta hefur reynzt mjög vinsælt á meðal leigusala. Reyndar hafa stúdentar reynzt góð- ir leigutakar og það hefur ekki reynt á þessar tryggingar þau tvö ár, sem þær hafa verið við lýði. Andri Þór sagði ennfremur, að flestir þeirra, sem sæktust eftir húsnæði, vildu vera sem næst há- skólasvæðinu. Um 2/3 af öllum stúdentum sæktu nám í byggingar á háskólalóðinni en um 1/3 stúd- enta væri dreifður út um borgina t. d. hjúkrunamemar og líffræði- nemar. Húsnæðismiðlun fer fram á veg- um stúdentaráðs. Þar er ekki um sjálfstæða stofnun að ræða með eigin starfsfólki, heldur annast starfsmenn stúdentaráðs þessa starfsemi. — Við erum nánast ein- göngu í þessari húsnæðismiðlun á haustin, þegar eftirspurnin er mest en sinnum henni einnig yfir vetur- inn samhliða annari starfsemi fyrir stúdéntaráð, sagði Andri Þór. í desember í fyrra voru teknar í notkun síðustu íbúðirnar af 90 í nýjum hjónagörðum, en alls búa 400-500 manns á stúdentagörðun- um öllum. — Þetta hefur létt svol- ítið á leigumarkaðinum, sagði Andri Þór að lokum. — Á teikniborðinu eru ný parhús og er þar er um að ræða stærstu byggingarfram- kvæmdir, sem Félagsstofnun stúd- enta hefur nokkru sinni ráðist í. Þetta eru áform, sem ná allt til ársins 2000, um að byggja í áföng- um stúdentagarða í landi okkar í Vatnsmýrinni, sem háskólinn færði okkur að gjöf á síðasta ári. Þama eiga eftir að rísa um 150 íbúðir með um 500 íbúum. Þetta á að sjálf- sögðu eftir að bæta mjög úr hús- næðisþörf stúdenta. Við vonum, að fyrsta skóflustungan verði tekin í vetur, en það fer að sjálfsögðu eft- ir lánum frá Byggingasjóði ríkisins, hve hraðar þessar byggingarfram- kvæmdir verða. SMIÐJAIM AÐ VIIIJA ÍBÚÐ í SÍÐUSTU smiðjugrein nefndi ég nokkra liði til minnis, þegar skoðuð er íbúð með kaup í huga. Ég ætla að halda áfram í dag og bæta dálitlu við þær hugleið- ingar. að er mikið í húfi þegar gerður er samningur um svo kostnað- arsöm kaup, svo að það getur reynst kaupanda íbúðar algjörlega um megn að standa við fjárhagslegar skuldbindingar, ef ofan á kaupverð og afborganir af því, bætist mikill viðgerðarkostnað- ur. Má þá ekki fresta þeim fram- kvæmdum og við- gerðum? kann ein- hver að spyrja. Stundum má fresta slíku, en ef um er að ræða íbúð í húsi sem fleiri eiga íbúðir í, geta aðrir eigendur talið viðgerð áríðandi strax og þá getur nýr eigandi, sem keypt hefur lítinn hluta hússins, ekki frestað viðgerðum á sameign. Hvaða þættir eru það helst sem um er að ræða í slíkum tilvikum? Þakviðgerð: Við skulum byrja efst á húsinu og leita okkur upplýsinga um ástand þaksins. Það kann að vera orðið aðkallandi að mála þak húss- ins, ásamt tilheyrandi undirbún- ingsvinnu, svo sem að skrapa ryð- bletti og grunnmála blettina með sérstakri málningu o.s.frv. Við skul- um vona að ástandið sé ekki það slæmt að þakið leki. Samt er nauð- synlegt að spyija seljandann um alla slíka þætti og öruggast er einn- ig að spyija aðra eigendur hússins um þakið, einkum þann sem á efstu íbúðina. Hann verður fyrst var við þakleka. Þá er ekki úr vegi að að- gæta þakrennurnar og niðurföll af þakinu, því þessa þætti þarf að endurnýja með fárra ára millibili. Veggir utanhúss: Hvort sem umér að ræða timbur- hús eða steinhús, getur verið þörf á all dýrum viðgerðum á útveggjun- um. Se húsið timburhús þá er líklegt að það sé klætt með bárujárni, sem e.t.v. er farið að ryðga. Vatnsbretti undir gluggum athugisx. og einnig hvort einhvers staðar er fúi. Við getum einnig spurt hvort nauðsyn- legt muni vera að mála húsið að utan og á það auðvitað einnig við um steinhús. Alkunna er að miklu er kostað til um þessar mundir, til að gera við útveggi steinhúsa. Sem betur fer eru steinhús misjafnlega þurf- andi fyrir dýrar viðgerðir á útveggj- um. Það er þó athyglisverð stað- reynd að elstu steinhúsin eru ekki verst, heldur hús sem byggð hafa verið á vissu tímabili, þegar stein- steypa var ekki eins góð fyrir íslenska veðráttu og hún hefði þurft að vera. Frá öllum árum steinsteypunotk- unar eru þó auðvitað til bæði heilleg og góð hús, steypt úr sterkri steypu, en einnig lakari hús og eru þá sum hver það illa farin að hluta þeirra er nauðsynlegt að steypa að nýju. Má nefna hluta eins og útitröppur, svalir, skyggni yfir dyrum eða vatnsbretti undir gluggum o.s.frv. Sprunguviðgerðir á útveggjum geta verið nauðsynlegar á húsum sem eru innan við tíu ára gömul. Dreinlögn: Ef raka verður vart í kjallara- gólfí eða veggjum, sem eru neðar en jarðyfirborðið utan við veggina, þá er engum blöðum um það að fletta að grafa þarf skurð umhverf- is húsið og setja niður góða drein- lögn, sem ganga skal frá eftir rétt- um aðferðum. Skiptir þá ekki máli hvort dreinlögnin hefur áður verið lögð í kringum húsið. Hún getur verið biluð, eða ónýt. Það er mikill munur á því hvað skemmdir verða miklu meiri í undirstöðum og kjöll- urum húsa sem byggð hafa verið á mýrarsvæði, eða þar sem vatn sígur að grunninum. Þá er ekki nóg að grafið hafi verið fyrir undirstöðum alveg niður á klöpp. Þar sem svo hagar til, getur komið fyrir að end- urnýja þurfi og lagfæra dreinlögn við hús með 12 til 15 ára millibili. Rafkerfið: Ég nefndi aðeins í greininni fyrir viku, að rafkerfið gæti þafnast við- gerða. Sé um gamalt húsnæði að ræða er e.t.v. þörf á að endunýja rafþræðina í lögnum hússins og á það jafnt við um sameignina og sjálfa íbúðina. Þá þarf trúlega um leið að endurnýja tengla og rofa. Hitalögnirt: Hið sama getur gilt um hitakerfi íbúðar og sameignar. Ef húsið er orðið gamalt getur verið full þörf á að hreinsa hitunarkerfi hússins, skifta um ofnkrana eða jafnvel ofna o.fl. lagfæringar kann að vera nauðsynlegt að gera á vatns- og hitakerfinu. Ef raka verður vart í kjallara, þarf að athuga dreinlögn, eða að leggja dreinlögn. eftir Bjama Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.