Morgunblaðið - 09.09.1990, Side 16

Morgunblaðið - 09.09.1990, Side 16
16 B MORGUNBLAÐÍÐ FASTEIGNIR nutíti; AGUR 9. SEPTEMBER 1990 ■+ Einbýlis- og raðhús Birkihlíð — haeð og ris. Glæsil. sérbýli á 2 hæðum. 156 fm ásamt 28 fm upph. bílsk. 4-5 svefn- herb. Gestasnyrt. og baðherb. 2 stofur. 20 fm suðursv. m. glæsil. útsýni. Eign í sérflokki. Verð 13 millj. Frostaskjól — Einb. Glæsil. 225 fm einbh. á tveimur hæðum m. innb. bílsk. Samþ. teikn. af 20 fm garðstofu fylgja með. Skipti mögul. á 4ra-5 herb. íb. í Vesturbæ eða bein sala. Frakkastígur. Parhús, 116 fm, 3 svefnherb., einnig gott rými í kj. Góð- ur garöúr. Verð 7,9 millj. Seljahverfi. Fallegt 300 fm keðju- hús ásamt 30 fm bílsk. 4 svefnh. Tvenn- ar svalir. Fallegt útsýni. Suðurgarður. Sór 2ja herb. íb. á jarðh. Klapparstígur. Fallegt timbur- hús, kj., hæð og ris á stórri eignarlóð. Nýklætt utan, endurn. lagnir. Skuld- laust. Verö 13 millj. Stykkishólmur. Húsm.tveimur íb. 3ja-4ra herb. íb. á efri hæð. 2ja herb . íb. á neðri hæð. Mikið endurn. Tilvalið sem sumarhús. I smíðum Gerðhamrar Fallegt 170 frrt éinbh. m. 30 fm btlsk. Til afh. nú þegar fokh. m. pípulögn. Gert er ráð fyrir 4 svefnh., stórum stof- um, sjónvholi. Stakkhamrar Glæsilegt einbhús 140.fm ásamt 27 fm bílsk. Gert ráð fyrir 4 svefnherb. Skilast fullfrág. að utan en fokh. eða tilb. u. trév. aö innan. Verð 8,3-10,7 millj. Byggingaraðilar Hannes Björnsson og Einar Þór Ingvason. Klukkurimi Fallegt 196 fm parh. á tveimur hæðum m. innb. bílsk. Skilast fokh. innan, fullfrág. utan. Verð 6,9 millj. Byggaðili: Húsbyrgi hf. Grafarvogur. Glæsil. 3ja og 4ra herb. íb. í tveggja hæða húsi v/Spor- hamra. Skilast tilb. u. trév. eftir 2 mán. Einnig bílsk. Byggingaraðili: Jón Hannesson hf. Rimahverfi — Grafarv. Til sölu glæsil. parh. á tveimur hæðum 180 fm m. innb. bílsk. 4 svefnh., sjón- vhol, gestasnyrt. og baðherb. Skilast fullfrág. aö utan, fokh. eða tilb. u. trév. að innan. Verð 6,9-8,9 millj. Byggað- ili: Ágúst og Magnús sf. Einkasala. Álagrandi. Glæsil. íb. í smíðum. Sér þvottaaðstað í hverri ib. og stórar suðursvalir. Afh. tilb. u. tréverk. í mars 1991. Byggingaraðili Húni sf. Dalhús. Glæsilegt 206 fm raðh. á tveimur hæðum með bílsk. Gert er ráð fyrir arni, garðstofu, 4. svefnherb. Skil- ast fokh. að innan frág. að utan. Bygg- ingaraðilar Húsbyrgi hf.___________ 4-5 herb. íbúðir Þingholtin. Falleg íb., hæð og ris, í þríb. 4-5 svefnh. Eignin er á úrvals- staö. Sörlaskjól. Falleg 4ra herb. íb. á 2. hæð í þríbh. við sjávarsíðuna. Nýtt gler. Nýl. pípulagnir. Laus fljótl. Glæsil. útsýni til sjávar. Verð 7,0 millj. Hringbraut. Falleg 4ra herb. íb. á 1. hæð í þríb. 2 stofur m. parketi, 2 rúmg. svefnh., endurn. bað. V. 6,5 m. Kleppsvegur. 4ra herb. 100 fm íb. á 3. hæð. 2 svefnherb. og 2 stofur. Stórar suðursv. Skuldlaus. V. 6,5 m. Vesturberg. Falleg 4ra herb. íb. á 3. hæð. 3 svefnh. Sjónvhol og stofa. Fallegt útsýni. Suðurhlíöar — Kóp. Glæsil. 4ra herb. íbúðir í nýju fjölbh. Til afh. nú þegar, tilb. u. trév. Verð 7,2-7,6 millj. Einnig mögul. á bílskúrum. Kjörnar íb. fyrir handhafa lánsloforða. 3ja herb. ibúðir Frakkastígur. 3ja herb. 80 fm íb. á 1. hæö í timburh. Skipti óskast á 2ja herb. íb. á 1. hæö. Hringbraut. Falleg 3ja herb. endaíb. á 2. hæð í þríb. Suðursv. Par- ket á stofu. Verð 6,0 millj. Stóragerði. Falleg 3ja-4ra herb. 97 fm íb. á 3. hæð með tvennum svöl- um. 2-3 svefnh. Bílskúr. Verð 7,0 millj. Smáíbúöahverfi. Falleg 87 fm íb. á 1. hæð í þríb. ásamt 39 fm upph. bílsk. Verð 7,3 millj. 2ja herb. íbúðir Grettisgata. Falleg 44 fm íb. á 1. hæ<5 í steinh. m. sérinng. Skuldlaus. Yerð 3,7 millj. SKÓLAVÖRÐUSTÍG 38A, _ VIÐAR FRIÐRIKSSON, - LÖGG. FASTEIGNASALI, HEIMASÍMI 27072. Frjálsarí gjaldeyrisreglur ■ Lækkandi fargjöld í framtióinni ■ Trygging fyrir liverii yfirfærslu íbúóareign íslendinga á Spáni á cllir a<> auKasl — segir Guómundur Óskarsson, forstjóri Orlofshúsa sf. Nú um mánaðamótin gengu í gildi nýjar reglur hér á landi um kaup á fasteignum erlendis, þar sem heimildir á þessu sviði voru verulega rýmkaðar. Fram til þessa hafa einungis félög með að minnsta kosti 50 meðlimum getað keypt fasteignir í útlöndum, en eftirleiðis geta bæði einstaklingar og félög eignazt þær. Kaupverð hlutaðeigandi fasteignar má þó ekki vera hærra en 3.750.000 kr. en hcimilt er að veita rýmri heimildir, ef sérstaklega stendur á. Þetta hámark á svo að hækka í 5.625.000 kr. 1. janúar nk., í 7.500.000 kr. 1. janúar 1992 og falla loks alveg niður 1. janúar 1993. En þrátt fyrir að það hafi verið takmörkunum bundið að eign- ast fasteignir erlendis, hafa íslend- ingar byijað að kaupa íbúðarhús- næði í sólarlöndum á undanförnum árum og’hér hafa verið stofnuð fyr- irtæki til þess að greiða fyrir slíkum kaupum. Eitt þeirra er Orlofshús sf., sem eru um- boðsaðili fyrir fasteignir á Spáni, en hefur aðsetur að Laugavegi 18 í Reykjavík. — Eg á von á því að áhuginn hjá fólki hér á íbúðarhúsnæði á Spáni aukist til muna, eftir að ein- staklingar hafa fengið heimild til að kaupa fasteignir erlendis, sagði Guðmundur Óskarsson, forstjóri Orlofshúsa sf. í viðtali við Morgun- blaðið. — Verðið nú má þó eigi vera hærra en 3,750.000 kr., en fyrir þá fjárhæð fást ágætis eignir á Spáni og verð flestra þeirra eigna, sem við hér höfum selt, er undir þessum mörkum. Þetta hámarks- verð á líka að fara hækkandi, eins og getið er hér að framan og falla loks niður eftir rúm tvö ár. Guðmundur Óskarsson er fæddur 1932 í Vík í Mýrdal. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og varð stúdent þaðan 1952. Eftir það lá leið hans í Háskóla íslands, þar sem hann lagði stund á verkfræði og síðan til Kaupmannahafnar, en þar lauk hann prófi 1958 sem verkfræð- ingur frá Tækniháskóla Danmerk- ur. Sérgrein hans þar var burðarþol bygginga og hitalagnir. Eftir heim- komuna starfaði hann í sex ár hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli og var síðan bæjarverkfræðingur í Hafnarfirði í þrjú ár. Þá stofnaði hann eigin verkfræðistofu, sem hann rekur enn að Laugavegi 18 samhliða sölustarfseminni á fast- eignum á Spáni. Costa Blanca ákjósanlegur staður — Orlofshús sf. var stofnað 1986. Þá var fyrir skömmu orðið heimilt að kaupa hús erlendis en með skilyrðum þó, heldur Ouð- mundur áfram. — Kaupendur urðu að vera félög með eigi færri en 50 meðlimum. Það voru því félög en ekki einstaklingar, sem máttu kaupa. Sjálfur hafði ég hitt marga útlendinga á Spáni, sem áttu sín hús þar sjálfir. Eg gerði mér síðan ferð frá Costa Brava suður til Costa del Sol til þess að skoða svæði, sem væru heppileg og staðnæmdist við Costa Blanca. Á því svæði eru mun hreinni strendur en víðast hvar annars staðar, enda mun minna um fjöldaferðamennsku þar en á Costa del Sol. Þá var það kostur, að leigu- flug er héðan til Costa Blanca, það er að segja á Benidorm. Flugstöðin þar heitir Alicante, en Costa Blanca ströndin er um 150 km löng. — Þeir sem hafa áhuga á að kaupa, fara með í svokaliaða sölu- ferð suður til Spánar og skoða þar allt, sem í boði er og ganga þar frá samningi, segir Guðmundur enn- fremur. — Þeir fá endurgreidda ferðina, ef þeir kaupa. Ef félag er kaupandi, eru kaupin borin undir atkvæði hér heima, eftir að sá sem fer út, kemur heim og lýsir því, sem hann hefur skoðað. Síðan er sótt um yfirfærslu hjá Seðlabankanum og gengið frá greiðslum. í þeirri umsókn er þess getið, að búið sé að skoða ákveðna eign og óskað eftir því að kaupa hana, hvort sem það er íbúð eða hús. Orlofshús sf. kaupa ekki eignirn- eftir Magnús Sigurðsson Raðhúsasamstæða nærri Torrevija. Yzta raðhúsið til hægri er í eigu Starfsmannafélags Garðabæjar. ar til að selja þær aftur, en eru einungis umboðsaðili. Guðmundur tekur fram, að öll séu þessi hús ný og segir: — Þau eru hlaðin úr hol- steini og mjög vel byggð að mínum dómi, enda reynslan af þeim góð. Innréttingar eru líka mjög vandaðar t. d. eru þarna fulningshurðir og skápar í eldhúsi úr sama efni. Verð- ið er að sjálfsögðu mi§munandi éft- ir stærð. Svonefndar stúdíóíbúðir eru á bilinu 1,6-1,8 millj. kr. Þær eru um 30 fermetrar og eru ein stór stofa með eldhúskrók og baði. Síðan fara íbúðirnar smástækk- andi. Tveggja herbergja íbúð, það er stofa og eitt svefnherbergi um 40 fermetrar að stærð kostar um 2,2-2,5 millj. kr. Þriggja herb. íbúð er 45-50 fermetrar og kostar 3-3,2 millj. kr. í hefðbundnum raðhúsum getur stærðin á 3ja herb. íbúð farið upp í 60-80 fermetra. Einnig er hægt að fá einbýlishús, en þá hækkar verðið að sjálfsögðu, því að lóðin kostar sitt. Einbýlishús um 70-80 y fermetrar að stærð kostar 5-6 millj. kr, en þau geta að sjálfsögðu verið þaðan af stærri og dýrari allt eftir því, hvað fólk ræður yfir miklum peningum. Verðin eru líka mjög breytileg, eftir því hvar staðsetningin er. Ef verið er aðeins frá ströndinni, er húsnæðið ódýrara, en hækkar svo eftir því sem nálgast hana. Hæst er það út við ströndina með sjóinn framundan, þar sem útsýnið er mest. Greiðsluskilmálar eru yfirleitt þannig, að helmingur kaupverðsins greiðist mjög fljótlega eða innan 6 mánaða, en unnt er að semja um greiðslu á hinum helmingnum í sumum tilfellum. í öðrum tilfellum verður að borga hann allan eftir þessa sex mánuði. Sjálfur er Guðmundur umboðs- maður, sem kemur viðskiptunum á. Hann leiðbeinir því fólki um allt, sem það þarf að vita í sambandi við kaupin og þann rekstrarkostn- ‘ að, sem þarf að greiða. Þar undir falla fastéignagjöld, allar trygging- ar, umsjón með eigninni, því að á henni er stöðug gæzla, garðvinna, fastagjald rafmagns og fastagjald , fyrir vatn svipað og hér. Raðhúsaþyrping við Torrevija. Margar af íbúðunum þarna eru í eigu íslendinga. Hvað fylgir með og hvað ekki? Þá þarf einnig að upplýsa fólk um aðra kostnaðarliði. Hús eru yfir- leitt aldrei afhent með húsgögnum og því þarf að útskýra fyrir fólki, hvað venjuleg húsgögn kosta í þessa og þessa stærð af húsi. Yfir- leitt fylgir þvottavél ekki og stund- um fylgir ísskápur með og stundum ekki. Eins er um eldavél. Þetta fer eftir því, hvaða fyrirtæki er seljandi. Þegar tekið er við húsinu, éru ennfremur greidd tengigjöld vegna vatns og rafmagns og gerður gas- samningur. Þá eru iíka greidd fyrstu gjöld í sambandi'við afsals- gerð. Það tekur síðan nokkurn tíma að fá afsali þinglýst, því að á Spáni þurfa öll afsöl að fara fyrst til fóg- eta og síðan til aðalskrifstofu í Madrid. Afsalsgerð getur því tekið 3-5 mánuði og í sumum tilfellum lengri tíma. Þegar afsalið kemur til baka, er svo greidd lokagreiðsla fyrir þinglýsinguna. Þarna er um

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.