Morgunblaðið - 09.09.1990, Síða 27

Morgunblaðið - 09.09.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR áUNNUDÁ'GUR 9. SEPTEMBER 1990 B 27 ■ SKULDABRÉF - Stimpilgjald skuldabréfa er 1,5% af höfuðstóli (heildarupphæð) bréfanna eða 1.500 kr. af hveijum 100.000 kr. Kaupandi greiðir þinglýsingar- og stimpilgjald útgefinna skuldabréfa vegna kaupanna, en seljandi lætur þinglýsa bréfunum. ■ STIMPILSEKTIR — Stimpil- skyld skjöl, sem ekki eru stimpluð innan 2ja mánaða frá útgáfudegi, fá á sig stimpilsekt. Hún er 10% af stimpilgjaldi fýrir hveija byijaða viku. Sektin ferþó aldrei yfir 50%. L\r\i\KiJvinR ■ NÝBYGGING — Hámarkslán Byggingarsjóðs ríkisins vegna nýrra íbúða nema nú — jan-marz — kr. 4.284.000,- fyrir fyrstu íbúð en kr. 2.999.000,- fyrir seinni íbúð. Skilyrði er að umsækjandi hafi ver- ið virkur félagi í lífeyrissjóði í amk. 20 af síðustu 24 mánuðum og að hlutaðeigandi lífeyrissjóðir hafi keypt skuldabréf af byggingarsjóði ríkisins fyrir amk. 55% af ráðstöf- urnarfé sínu til að fullt lán fáist. Þremur mánuðum fyrir lánveitingu þurfa eftirtalin gögn að liggja fyrir: — Samþykki byggingarnefndar — Fokheldisvottorð byggingarfull- trúa. Aðeins þarf að skila einu vott- orði fyrir húsið eðastigaganginn. — Kaupsamningur. — Brunabótamat eða smíðatrygg- ing, ef húsið er í smíðum. ■ ELDRA HÚSNÆÐI — Lán til kaupa á notaðri íbúð nemur nú kr. 2.999.000.-, ef um er að ræða fyrstu íbúð en 2.099.000.- fyrir seinni íbúð. Umsækjandi þarf að uppfylla sömu skilyrði varðandi lánshæfni og gilda um nýbygging- arlán, sem rakin eru hér á undan. Þremur mánuðum fyrir lánveitingu þurfa eftirtalin gögn að liggja fyrir: — Kaupsamningur vegna íbúðar- innar. — Samþykki byggingarnefndar, ef um kjallara eða ris er að ræða, þ.e. samþykktar teikningar. — Brunabótamat. ■ LÁNSKJÖR — Lánstími hús- næðislána er 40 ár og ársvextir af nýjum lánum 4,5%. Gjalddagar eru 1. febrúar, 1. maí, 1. ágústog 1. nóvember ár hvert. Lán eru afborg- unarlaus fyrstu tvö árin og greiðast þá einungis vextir og verðbætur á þá. ■ ÖNNUR LÁN — Húsnæðis- stofnun veitir einnig ýmiss sérlán, svo sem lán til byggingar leiguíbúða eða heimila fyrir aldraða, lán til meiriháttar endurnýjunar og endur- bóta eða viðbyggingar við eldra íbúðarhúsnæði, svo og lán til útrým- ingar á heilsuspillandi húsnæði. Innan Húsnæðisstofnunar er einnig Byggingarsjóður verkamanna, sem veitir lán til eignaríbúða í verka- mannabústöðum, lán til leiguíbúða sveitarfélaga, stofnana á vegum ríkisins og félagasamtaka. Margir lífeyrissjóðir veita einnig lán til fé- laga sinna vegna húsnæðiskaupa, svo að rétt er fyrir hvern og einn að kanna rétt sinn þar. HtSBYGGJE1\Dl]R ■ LÓÐAUMSÓKN — Eftir birt- ingu auglýsingar um ný byggingar- svæði geta væntanlegir umsækj- endur kynnt sér þau hverfi og lóðir sem til úthlutunar eru á hveijum tíma hjá byggingaryfirvöldum í við- komandi bæjar- eða sveitarfélögum — í Reykjavík á skrifstofu borgar- verkfræðings, Skúlagötu 2. Skil- málar eru þar afhentir gegn gjaldi, ef tilbúnir eru. Umsækjendur skulu fylla út nákvæmlega þar til gert eyðublað og senda aftur til viðkom- andi skrifstofu. 1 stöku tilfelli þarf í umsókn að gera tillögu að hús- hönnuði en slíkra sérupplýsinga er þá getið í skipulagsskilmálum og á umsóknareyðublöðum. ■ LÓÐAÚTHLUTUN — Þeim sem úthlutað er lóð, fá um það skriflega tilkynningu, úthlutunar- bréf og þár er þeim gefinn kostur á að staðfesta úthlutunina innan tilskilins tima, sem venjulega er um 1 mánuður. Þar koma einnig fram upplýsingar um upphæðir gjalda o.fl. Skilyrði þess að lóðaúthlutun taki gildi eru að áætluð gatnagerð- argjöld o.fl. séu greidd á réttum tíma. Við staðfestingu lóðaúthlut- unar fá lóðarhafar afhent nauðsyn- þó nefna að í Reykjavik eru gatna- gerðargjöld fyi;ir 650 rúmmetra ein býlishús nú kr. 1.145.911.-oghei- mæðargjalda um kr. 60.000.-. Sömu gjöld fyrir 550 rúm. raðhús eru kr. 623.326.- og um kr. 30.000.-. Fyrir fjölbýlishús eru sömugjöld 175.000.-ogum 10.000 á hveija íbúð. Þessi gjöld ber að greiða þannig: '/3 innan mánaðar frá úthlutun, síðan 'A innan 3 mán- aða frá úthlutun og loks 'h innan 6 mánaða frá úthlutun. ■ FRAMKVÆMDIR — Áður en unnt er að hefjast handa um fram- kvæmdir þarf framkvæmdaleyfi. í því felst byggingaleyfi og til að fá það þurfa bygginganefndarteikn- ingar að vera samþykktar og stimplaðar og eftirstöðvar gatna- gerðargjalds og önnur gjöld að vera greidd. Einnigþarf að liggja fyrir bréf um lóðarafhendingu, sem kem- ur þegar byggingarleyfi er fengið og nauðsynlegum framkvæmdum sveitarfélags er lokið, svo sem gatna- og holræsaframkvæmdum. I þriðja lagi þarf að liggja fyrir stað- setningarmæling bygginga á lóð en þá þarf einnig byggingarleyfi að leggögn, svo sem mæliblað í tvíriti, svo og hæðarblað í tvíriti og skal annað þeirra fylgja leyfisumsókn til byggingarnefndar, auk frekari gagna ef því er að skipta. ■ GJÖLD — Gatnagerðargjöld eru mismunandi eftir bæjar- og sveitarfélögum. Til viðmiðunar má liggja fyrir, lóðarafhending að hafa farið fram og meistarar að hafa skrifað upp á teikningar hjá bygg- ingarfulltrúa. Fylla þarf út umsókn um vinnuheimtaugarleyfi til raf- magnsveitu og með þeirri umsókn þarf að fylgja byggingarleyfi, af- stöðumynd sem fylgir byggingar- nefndarteikningu og umsókn um raforku með undirskrift rafverk- taka og húsbyggjanda. Umsækj- anda er tilkynnt hvort hann uppfyll- ir skilyrði rafmagnsveitu og stað- festir þá leyfið með því að greiða heimtaugargjald. Fljótlega þarf að leggja fram sökklateikningar hjá byggingarfulltrúa og fá þær stimpl- aðar en að því búnu geta fram- kvæmdir við sökkla hafist. Þá þarf úttektir á ýmsym stigum fram- kvæmda og sjá meistarar um að fá byggingafulltrúa til að framkvæma þær. ■ FOKHELT — Fokheldisvott- orð, skilmálavottorð og lóðasamn- ingur eru mikilvæg plögg fyrir hús- byggjendur og t.a.m. er fyrsta út- borgun húsnæðislána bundin því að fokheldisvottorð liggi fyrir. Bygg- ingarfulltrúar gefa út fokheldisvott- orð og skilmálavottorð og til að þau fáist þarf hús að vera fokhelt, lóðar- úttekt að hafa farið fram og öil gjöld, sem þá eru gjaldfallin að hafa verið greidd. Skrifstofur bæja- og sveitarfélaga (i Reykjavík skrif- stofa borgarstjóra) gera lóðarsamn- ing við lóðarleigjanda að uppfylltum ýmsum skilyrðum, sem getá verið breytileg eftir tíma og aðstæðum. Þegar lóðarsamningi hefur verið þinglýst, getur lóðarhafi veðsett mannvirki á lóðinni. FASTEIGIMASALA Suðurlandsbraut 10 Ábyrgð - Reynsla - Öryggi SÍMAR: 687828, 687808 Opið frá kl. 13-15 OKKUR VANTAR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ - SKOÐUM OG VERÐMETUM SAMDÆGURS Einbýli BERGHOLT - MOSBÆ Erum með í sölu glæsil. 178 fm einb- hús á einni hæð. Innb. bílsk. Einstakur verðlaunagarður með nuddlaug. Verð 12,8 millj. REYKJAFOLD 200 fm einbhús á einni hæð. Bilsk. Sérlega vel hannaðar innr. Verð 15 millj. Raðhús HVERAGERÐI - RAÐHÚS V/Borgarheiði 115 fm raðh. á einni hæð ásamt bílsk. og sól- stofu. Húsið er laust nú þegar. Verð 5,6 millj. Skipti á ódýrari eign í Reykjavík mögul. Sérhæðir MIÐTÚN Hæð og ris. Á hæð eru stofur, herb., eldhús og snyrtiherb: í risi eru 4 góð herb. + baðherb. Verð 8,5 millj. ÁLFHEIMAR Sér 1. hæð 5-6 herb. 132 fm auk 30 fm bílsk. Verð 9,7 millj. 4ra—6 herb. FÁLKAGATA Vorum að fá í sölu 4ra-5 herb. 116 fm íb. á 3. hæð. íb. fylgir stór útigeymsla. Verð 7,5 millj. JÖRFABAKKI Erum með í sölu vandaða 4ra herb. endaib. á 3. hæð. Gott hverfi. Áhv. ca 1100 þús. Verö 6,5 millj. 3ja herb. BOGAHLÍÐ Vorum að fá í sölu 3ja herb. 80 fm íb. á 3. hæð i Bogahlíð. Áhv. eru kr. 2.360 þús. í hagst. lánum. íb. er laus nú þegar. V. kr. 6,5 millj. VÍÐIMELUR 3ja herb. 100 fm efri hæð ásamt byggrétti ofaná húsið. Parket á gólfum og góðar suðvestursv. Verð 7,8 millj. 2ja herb. ORRAHÓLAR Vorum að fá í sölu 66 fm 2ja herb. góða íb. á 7. hæð í lyftubl. Stórar suður- svalir. Vérð 4,8 millj. Áhv. 1350 þús. íb. er laus nú þegar. Atvinnuhúsnæð SKEMMUVEGUR Erum með í sölu 560 fm iðnhúsnæði á einni hæð. Mögul. er á að selja í tveim- ur einingum. Verð 22,0 millj. ÁLFABAKKI Erum með í sölu á 2. og 3. hæð skrifst- húsnæði samtals um 380 fm. Húsið er nú þegar tilb. u. trév. Góð bílastæði. Greiöslukjör 2,0 millj. út, eftirstöðvar lánaðar til 7 ára. I smíðum SMYRILSVEGUR Erum meö í sölu tvær 3ja herb. íb. á 1. og 2. hæð í fjórbhúsi. íb. afh. tilb. u. trév. og máln., frág. að utan. Verð 7550 þús. ÞRASTARGATA Vorum að fá í sölu tvö einbýlis- hús sem eru hæö og ris 143 fm brúttó og 116 fm brúttó. Húsin afh. frág. að utan, tilb. u. trév. og máln. að innan. Verð 8950 og 10750 þús. HVANNARIMI Vorum að fá nokkur raðhús við Hvannarima til sölu. Hús þessi eru að grfl. 106,61 fm ásamt 44,74 fm risi svo og 25,63 fm innb. bílsk. Seljast fokh. en fullfrág. að utan. Tilbúin til afh. í janúar 1991. Verð 7,5 millj. Bygg- . aðili: Mótáshf., BergþórJónsson. STAKKHAMRAR Vorum að fá í sölu 155 fm einbhús með 26 fm bílsk. Húsið er fokhelt en fullfrág. að utan. Teikn. á skrifst. Verð 8,5 millj. GARÐHÚS 4ra, 5 og 7 herb. íbúðir. Skilast tilb. u. trév. og máln. fljótl. TRÖNUHJALLI - KÓP. Eigum aðeins eftir tvær 4ra herb. íb. Afh. tilb. u. trév. og máln. í sept. Bygg- ingaaðili: Óskar Ingvason, bygginga- meistari. Hilmar Valdimarsson, Sigmundur Böðvarsson hdl. Ásgeir Guðnason, hs. 628010.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.