Morgunblaðið - 28.09.1990, Side 1
VIKUNA 29. SEPTEMBER —
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1990
5 OKTOBER
BLAÐ
Skuggi
Sunnudagsmynd Stöðvar 2 er að þessu sinni fjölskyldumyndin Skuggi (Casey’s Shadow).
Walter Matthau er hér í hlutverki hestatamningamanns sem alið hefur upp þrjá syni einn
og tekist sæmilega. Elsta syni hans er falið að fara og kaupa ódýran veðreiðahest á öðru
almanaksári. Þegar strákur kemur til baka með fylfulla meri er faðir hans mjög óhress.
En strákur er ánægður með viðskiptin og því ættartala merarinnar er mjög góð. Merin
deyt þegar hún hefur kastað folaldi sem nefnt er í höfðuðið á yngsta syninum. Þar kemur
að þessi hestur á að keppa á veðreiðum og er talinn sigurstranglegur. En þá meiðist hann
á fæti og er úrskurðaður ófær. Miklir peningar eru hins vegar í húfi og vill sá gamli að
hesturinn keppi þrátt fyrir meiðslin.
Maltin:^^'/^
Höfuð Hydru
Leikrit vikunnar á Rás 1 er að þessu sinni Höfuð Hydru eftir Carlos Fuentes og er það á dagskrá
nk. þriðjudag. Útvarpsleikhúsið mun í vetur kynna suður-amerískar bókmenntir og hefst sú kynning
í október með flutningi spennu- og njósnaleikritsins Höfuð Hydru. Böðvar Guðmundsson þýddi
verkið og María Kristjánsdóttir leikstýrir. Leikendur eru tuttugu, en aðalhlutverk eru í höndum
Arnars Jónssonar og Sigurðar Skúlasonar.
Verkið er flutt í fjórum þáttum. Þar segir frá hagfræðingnum Felix Maldonado starfsmanni í mex-
íkanska iðnaðarmálaráðuneytinu, hann stígur einn morgun inn í leigubíl á einni aðalgötu Mexíkó-
borgar og ekur inn í nýtt líf. Verkið er einkennandi fyrir furðuheim suður-ameríkra bókmennta, þar
sem skilin milli ævintýrsins og veruleikans eru óljós, harmleikurinn og farsinn upphefja hvorn annan.
Ný tungl
Nýjaldarspekin svokallaða hefur á síðustu áratugum rutt sér æ meir
til rúms í vestrænum þjóðfélögum, samfara aukinni efnishyggju og
lífsgæðakapphlaupi. Þeir, er speki þessa aðhyllast, leitast við að tileinka
sér nýja lífssýn og lífsháttu er í senn mætti nefna náttúrulega og heim-
spekilega. Ýmsar kenningar, hreyfingar og hugtök hafa borist -hingað
til lands í kjölfar hippahreyfingarinnar svonefndu, og eiga sér nú
formælendur víða.
í þættinum Ný tungl, sem er á dagskrá Sjónvarps nk. sunnudagskvöld,
verður fjallað um þessi mál og er þetta fyrsti þátturinn af fjórum. Leitað
verður til áhangenda nýjaldarhreyfinga og fræðst nánar um inntak þeirra
fræða er iðkuð eru í nafni hinna nýju vísinda. Einnig verða skrif hinna
fyrri tíðar meistara, Dr. Helga Pjeturs og Þórbergs Þórðarssonar, til
umfjöllunar og hippatímabilið verður skoðað í sögulegu Ijósi. Þá verður
rætt við sálfræðinga, leiðbeinendur og fylgismann indversks gúrús, svo
nokkuð sé nefnt.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8
Útvarpsdagskrá bls. 2-8
Hvað er að gerast? bls. 3-5
Myndbönd bls. 5
Bíóin í borginni bls. 6