Morgunblaðið - 29.09.1990, Qupperneq 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGVR 29, SEPTEMBER 1990
MARKMIÐIÐ ER
A$ OPNA,
HASKOLAISLANDS
ENN EREKAR
EN NU ER ORÐIÐ
í október og nóvember hefjast í Háskóla íslands námskeið sem
opin eru öllu áhugafólki. Að námskeiðunum standa heimspeki-
deild háskólans og endurmenntunarnefnd og hafa þau hlotið
heitið „Menningarnámskeið“. Á haustönn verður boðið upp á sex
námskeið: Þann 11. október hefst námskeið sem ber heitið „Nokkr-
ir þættir úr heimspeki," þar sem Mikael M. Karlsson, dósent í
heimspeki, verður leiðbeinandi. Þann 3. október hefst námskeið
nefnist „Klassísk tónlist: Aukinn skilningur og aukin ánægja.“
Leiðbeinandi á því námskeiði er Guðmundur Emilsson, hljómsveit-
arstjóri. „Straumhvörf í íslenskri nútímamyndlist," nefnist nám-
skeið sem hefst 13. nóvember, undir Ieiðsögn Aðalsteins Ingólfs-
sonar, listfræðings. „Reykjavík fyrri tíma“ er námskeið þar sem
farið verður yfir helstu þætti í sögu Reykjavíkur, einkum á tímabil-
inu 1870-1940. Leiðbeinandi verður Guðjón Friðriksson BA, sagn-
fræðingur, auk gestafyrirlesara. Námskeiðið hefst4. október.
Gísli Ágúst Gunnlaugsson, Iektor, Gunnar Karlsson, prófessor,
Einar Már Jónsson, háskólakennari við Sorbonne og Gísli Gunn-
arsson, dósent verða fyrirlesarar á námskeiði sem ber heitið
„Straumar og stefnur í sagnfræði eftir 1970“, og á haustönn
verður fyrri hluti þess námskeiðs. Það hefst 1. október og fjallað
verður um þróun ýmissa greina sagnfræðirannsókna eftir 1970.
Að lokum verður haldið námskeið, sem ber heitið „Nútímabók-
menntir: Sagnalist samtímans", þar sem nokkrar skáldsögur
verða lesnar og ræddar, þar á meðal sögur sem koma út nú í
haust. Leiðbeinandi verður Ástráður Eysteinsson, dósent við heim-
spekideild, og hefst námskeiðið 9. október.
Rætt vió Margréti
Björnsdóttur, end-
urmenntunarstjóra,
um menningarnám-
skeió Háskólans
Margrét Björnsdóttir
Morgunblaðið/Einar Falur
Þetta nýmæli hefur mælst
vel fyrir og nú þegar er
fullbókað á námskeið um
klassíska tónlist og nám
skeið um heimspeki er að fyllast.
Engin próf verða í lok námskeið-
anna og til að forvitnast nánar um
tilgang þeirra sneri blaðamaður
Morgunblaðsins sértil Margrétar
Björnsdóttur, endurmenntunar-
stjóra háskóians.
„Fram að þessu hefur endur-
menntunarnefnd háskólans boðið
upp á starfstengd endurmenntun-
arnámskeið," sagði Margrét, „en
fleiri og fleiri hafa óskað eftir því
við okkur að við byðum upp á nám-
skeið sem tengjast áhugamálum
fólks. Þar sem við álitum að efni
væri aðallega að finna í heimspeki-
deild háskólans leituðum við til
hennar um að standa að þessu. Við
förum síðan af stað með þessi sex
námskeið til að kanna hvort mark-
aður er fyrir þau.
Við reyndum að velja viðfangs-
efni sem við héldum að svöruðu
áhugá almennings og reyndum að
velja leiðbeinendur með það í huga
að þeir gætu komið fræðigrein sinni
til skilatil áhugafólks. Hvertnám-
skeið stendur yfir í tvær klukku-
stundir í senn og er einu sinni í
viku, allt frá fimm og upp í fjórtán
skipti, eftir námskeiðum og við
reynum að taka ekki nema 20-25
manns á hvert námskeið."
Nú eru öll námskeiðin sem þið
auglýsið á haustönn. Verður þessu
haldið áfram á vorönn?
„Já, við erum með langa lista af
hugmyndum, sem gengið verður frá
í október. Reyndar höfum við ekki
hugsað okkur þetta þannig að þau
verði framhald af þéim námskeiðum
sem við höldum á haustönn, heldur
höofum við hugsað okkur að hvert
námskeið sé sjálfstætt. Undantekn-
ing frá þessu er sagnfræðinám-
skeiðið. Fyrri hluti þess verður hald-
inn fyrir áramót og seinni hlutinn
á vorönn.“
Hafið þið sett ykkur einhver
langtímamarkmið með þessum
námskeiðum?
„Ekki önnur en þau að opna há-
skólann, frekar en þegar hefur ver-
ið gert, fyrir almenningi, með því
að gefa kost á námskeiðum af
þessu tagi fyrir utan vinnutíma
fólks. Innan háskólans er hinsvegar
nú þegar farið að ræða hugmyndir
um öldungadeild innan veggja hans
— og má segja að þetta séu allt
hugmyndir af sama meiði. Það
gæti að vísu tekið langan tíma að
koma öldungadeild á laggirnar, að-
allega vegna kostnaðar."
Hvernig eru námskeiðin fjár-
mögnuð?
„Við verðum að fjármagna þau
algerlega á þátttökugjöldum — sem
eru á bilinu 6.500 til 8.800 krónur
eftir námskeiðum. Fyrir þá sem
hafa áhuga á að taka þátt í þeim,
þá er frekari upplýsingar að fá á
skrifstofu endurmenntunamefndar
Háskóla íslands." ssv
TONLEIKAR I OKTOBER
Sunnudaginn 30.
september
Háskólabíó kl. 14.00
Sinfóníuhljómsveit æskunnar
Stj. Paul Zukofsky
Debussy: Síðdegi skógarpúk-
ans
Dukas: Lærisveinn galdra-
meistarans
Stravinský: Orfeus
Satie: Parade
Bústaðakirkja kl. 20.30
Kammermúsikklúbburinn
Þórhallur Birgiáson og
Cathleeen Bearden, fíðlur
Helga Þórarinsdóttir, lágfíðla
Nora Komblueh, selló
Óskar Ingólfsson, klarinett
Schubert: Strengjakvartett
í G-dúr op. 161
Mozart: Klarinettkvintett
í A-dúr K. 581
Mióvikudaginn 3.
október
Skólabær, Suðurgötu 26, kl.
20.00
Klassísk tónlist - námskeið
fyrir tónlistaráhugafólk.
Kynning á verkum sem flutt
verða á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands 18. októ-
ber.
Leiðbeinandi: Guðmundur
Emilsson
Sunnudaginn 7.
október
Listasafn Siguijóns Ólafsson-
ar
kl. 20.30
Sellótónleikar á vegum
Caput-hópsins og Goethe
Institut
Matias De Uliveira Pinto,
selló
Mióvikudaginn 10.
október
Skólabær, Suðurgötu 26, kl.
20.00
Klassísk tónlist - námskeið
fyrir tónlistaráhugafólk.
Kynning á verkum sem flutt
verða á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands 18. októ-
ber.
Leiðbeinandi: Guðmundur
Emilsson
Fimmtudaginn 1 1.
október
Háskólabíó kl. 20.00
Sinfóníuhljómsveit íslands
(gulir)
Einsöngvari Soile Isokoski
Stjómandi Petri Sakari
Árni Bjömsson: Strengjasvíta
Sibelius: Luonnotar
Mendelssohn: Fingals hellir
Sallinen: 4 Songs of Dreams
Brahms: Sinfónía nr. 4
Laugardaginn 1 3.
október
Gerðuberg kl. 17.00
Keith Reed, bariton
Ólafur Vignir Albertsson,
píanó
Lög eftir Beethoven, Sibelius,
Stanford, Ireland, Brahms og
íslenska höfunda.
Grundaríjarðarkirkja.
M-hátíð - Píanótónleikar
Jónas Ingimundarson
Mióvikudaginn 1 7.
október
Skólabær, Suðurgötu 26, kl.
20.00
Klassísk tónlist - námskeið
fyrir tónlistaráhugafólk.
Kynning á verkum sem flutt
verða á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands 18. októ-
ber.
Leiðbeinandi: Guðmundur
Emilsson
Bústaðakirkja kl. 20.30
Kammermúsikklúbburinn
Erling Bl. Bengtsson, selló
J.S. Bach: Tvær selló svítur
Atli H. Sveinsson: Nýttverk
Fimmtudaginn 18.
október
Háskólabíó kl. 20.00
Sinfóníuhljómsveit Íslands
(rauðir)
Einl. Erling Blöndal Bengts-
son
Stj. Petri Sakari
Þorkell Sigurbjömsson:
Triphonia
Saint-Saéns: Sellókonsert nr.
1
Rachmaninoff: Sinfónía nr. 2
Föstudaginn 19.
október
og laugardaqinn
27. október
Sinfóníuhljómsveit íslands
verður á ferðalagi um Norð-
urlönd og mun halda 5 tón-
leika og auk þess leika við
opnun Listahátíðar í Tampere
í Finnlandi 20. október.
Sunnudaginn 21.
október
Listasafn Siguijóns Ólafsson-
ar
kl. 20.30
Afmælistónleikar Siguijóns
og safnsins
Hlíf Siguijónsdóttir, fíðla
David Tutt, píanó
Verk eftir Jónas Tómasson
(frumfl.), Jón Nordal, César
Franck og Debussy
Mónudaginn 22.
október
Gerðuberg kl. 20.30
Ljóðatónleikar
Marta G. Halldórsdóttir,
sópran
Jónas Ingimundarson
Lög eftir Bizet, Glissre,
Gretschaninov, Rachman-
inov, Poulenc, Barber, Joaqu-
in Nin ____________
Mióvikudaginn 24.
október
Logaland, Borgarfirði, kl.
20.30
Símon ívarsson, gítar
Dr. Orthulf Prunner, klavi-
kord
Verk e. Dowland, J.S. Bach,
Beethoven, Boccherini,
Manuel de Falla
Sunnudaginn 28.
október
íslenska óperan kl. 16.00
Debut-tónleikar
Eva Mjöll Ingólfsdóttir, fíðla
Douglas Boggioli, píanó
Verk e. J.S. Bach, Bartok,
Kreisler, Wieniawski, Ravel,
Brahms
Mónudaginn 29.
október
íslenska óperan kl. 20.30
EPTA-píanótónleikar
Þorsteinn Gauti Sigurðsson
Verk. e. Scriabin og Rachm-
aninoff
Tónleikaskrá þessi er unn-
in á skrifstofu Samtaka um
byggingu tónlistarhúss og
byggist á upplýsingum sem
berast í tæka tíð, bréflega eða
í síma 29107. Auk þess sem
skráin birtist hér í blaðinu í
upphafi hvers mánaðar er
henni einnig dreift víðar, m.a.
til fjölmiðla.
Tónlistardeild Ríkisút-
varpsins hefur óskað eftir að
fram komi, að lesið er beint
upp úr þessari skrá í útvarps-
þáttum deildarinnar. Skráin
er birt með fyrirvara um
breytingar.