Morgunblaðið - 06.10.1990, Side 1
MENNING
USTIR
B
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
LAUGARDAGUR 6. OKTOBER 1990
BLAÐ
Imogen Cunningham: „Form blóms“, 1925.
— œvistarf i Ijósmyndun
YFIRLITSSYNING á verkum bandaríska ljósmyndarans Imog-
en Cunningham verður opnuð á Kjarvalsstöðum í dag. Mynd-
irnar spanna fulla sjö áratugi, sú elsta er tekin 1906 og sú
yngsta 1976, en síðar það sama ár lést listakonan, ní'tíu og
þriggja ára gömul. Imogen Cunningham gekk í gegnum mörg
skeið á listferli sínum og upplifði gífurlegar breytingar í heimi
ljósmyndunarinnar. Hún var vel skóluð, nam meðal annars í
Þýskalandi. Við upphaf ferils síns einbeitti hún sér aðallega
að mannamyndum en ljóðrænn stíll hennar og næm formræn
tilfinning leiddu hana einnig inn á tilraunakenndari og form-
rænni brautir.
A
háskólaárum sínum ákvað Imogen
Cunningham að verða ljósmyndari
og frá því hvikaði hún ekki, sama
á hveiju gekk. Elsta mynd hennar
er frá námsárunum í Washington-
háskólanum, viðkvæmnisleg mynd
af henni sjálfri liggjandi í grasi, frá
1906. Hún dáðist af myndum og
tækni Edwards Curtis og hafði
einnig kynnst verkum Þjóðveijans
Gertrude Kásebier, ljóðrænum og
björtum stemmingum af fólki, og
hrifist af. Því kemur ekki á óvart
að Imogen hafi kosið að stunda
framhaldsnám í Þýskalandi. Ljóð-
ræn og næm formskynjun hennar
féll mun betur að þeim straumum
sem þá voru kraftmestir í Evrópu,
meðan kaldari og harðari stíll réð
lögum og lofum í heimalandi henn-
ar.
Við heimkomuna árið 1910 sett-
ist hún að í Seattle og kom sér upp
ljósmyndastofu sem var einstæð á
þeim tíma. Hún einbeitti sér að
mannamyndum þar sem hún reyndi
að túlka persónuleika fyrirsætanna,
þekktra sem óþekktra, og meðvitað
reyndi hún að sigrast á öllu því sem
hefðbundið mátti kallast. Um miðj-
an annan áratug aldarinnar giftist
Imogen Cunn-
ingham:
„Sjálfsmynd",
1974.
Imogen grafíklistamanninum Roi
Patridge og nokkru síðar fluttu þau
til San Francisco. Barnauppeldi og
amstur á heimilinu tók sinn tíma,
en 1921 var hún aftur farin að
vinna. Nú rýndi hún í það smáa í
náttúrunni og gerði einnig tilraunir
með samsettar ljósmyndir og yfir-
stækkanir. Hún myndaði likams-
SJÁ NÆSTU SÍÐU