Morgunblaðið - 23.10.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.10.1990, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR ÞRHDJUDAGUR 23. OKTÓBER 1990 ■ SVEINNBjörnsson, sem hefur verið forseti ÍSI frá 1980, var kjör- inn til næstu tveggja ára með dynj- andi lófaklappi. Friðjón B. Frið- jónsson fékk ámóta kosningu í gj aldkeraembættið. ■ ELLERT B. Schram fékk 92 atkvæði í embætti varaforseta, Július Hafstein 88 og Guðmundur Kr. Jónsson 48 atkvæði. Eftir kjörið tilkynnti Guðmundur að hann gæfi ekki kost á sér áfram sem meðstjórnandi. ■ HERMANN Sigtryggsson fékk 205 atkvæði í kjöri sex með- stjórnenda. Hannes Þ. Sigurðsson, sem tilkynnti á laugardag að hann gæfi ekki kost á sér áfram sem varaforseti, fékk 201 atkvæði, Lovísa Einarsdóttir 193, Jón Ár- mann Héðinsson 162, Sigurður * Jóakimsson 137 og Katrín Gunn- arsdóttir 130 atkvæði. Fimm fyrst töldu voru í fráfarandi stjórn. Auk þess voru í kjöri Árni Þór Árnason (128 atkv.), Hreggviður Þor- steinsson, 96 atkv., og Pétur Sveinbjarnarson, 76 atkvæði. ■ TILLAGA kjörstjórnar um varastjórn var einróma samþykkt. Hana skipa Árni Þór Árnason, Unnur Stefánsdóttir, Hreggviður Þorsteinsson, Sigurlaug Her- mannsdóttir og Ingimundur Ingi- mundarson. ■ ÁRNI H. Bjarnason og Sæ- mundur Gíslason voru kjörnir end- urskoðendur. ■ VICTOR Björnsson og Tryggvi Geirsson voru kjörnir varaendurskoðendur. ■ ÓLAFUR Eiríksson var sér- staklega heiðraður af ÍSÍ í þingbyrj- un — fékk bikar sem viðurkenningu fyrir frábæran árangur á Heims- leikum fatlaðra, sem fram fóru í Hollandi í sumar, en þar setti hann þijú heimsmet í sínum flokki. ■ 229 fulltrúar höfðu atkvæðis- rétt á þessu 60. þingi ÍSÍ. Að auki voru um 40 gestir. ■ FJÓRIR einstaklingar voru kjörnior heiðursfélagar ÍSÍ: Baldur Möller, Reykjavík, Einar Sæmunds- son, Reykjavík, Jóhannes Sig- mundsson, Syðra Langholti, Árnes- sýslu, og Jón Egilsson, Hafnar- firði. ■ FJÓRIR forystumenn í sveitar- félögum voru sæmdir gullmerki ISI; Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, Páll Guðjónsson, bæjarstjóri í Mosfells- bæ, Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, og Logi Krisljánsson, formaður UBK, en sambandið varð 40 ára fyrir skömmu. Ríkharður Jónsson þakkar. ■ RÍKHARÐ UR Jónsson var sæmdur heiðursorðu ÍSÍ á sunnu- dag. Sömu viðurkenningu fengu Davíð Oddsson, borgarstjóri, og Svavar Gestsson, menntamálaráð- herra, en þeir voru heiðraðir í síðustu viku. Þungt í vöfum Dagskrá þingsins fór strax úr skorðum og þótti mörgum of mikill tími fara í skýrslu stjórnar og reikn- inga, en fundarstjórn Hermanns Guðmundssonar og Alfreðs Þor- steinssonar var röggsöm. Sveinn sagði að þing ÍSÍ hefði aldrei verið eins fjölmennt, það væri skylda framkvæmdastjórnar að afgreiða öll mál og það tæki sinn tíma. „Skipulagning þingsins var með þessu móti, en nú var samþykkt að senda öll gögn varðandi þingið út til aðila ISI eigi síðar en tveimur vikum fyrir þing og því ætti þetta að ganga betur fyrir sig næst.“ Hann bætti við að þingin í Noregi og Svíþjóð tæku þijá daga, en Dan- ir afgreiddu sín mál á tveimur tímum, enda sendu þeir út öll gögn með góðum fyrirvara. Sveinn sagði að hér eftir sem hingað til yrði unnið að eflingu íþrótta. Þingið hefði verið rólegt og málefnalegt, en mörg verkefni lægju fyrir og fyrst yrði gengið á fund ljárveitingarvaldsins. ÍÞRÓTTAÞING ísL °CUR 79-' 1990 Ellert B. Schram: Hagsmunir hreyfing- arinnar fyrir öllu Ellert B. Schram, heiðursforseti Knattspyrnusambands íslands og stjórnarmaður í Knattspyrnu- sambandi Evrópu, var kjörinn vara- forseti ÍSÍ. „Ég hef áhuga á þessu starfi,“ sagði hann m.a. þegar hann tilkynnti að hann hefði ákveðið að verða við tilmælum forystumanna um að gefa kost á sér. „Ég fann fýrir þing að ég hafði góðan með- byr og maður fer í keppni til að sigra,“ sagði hann við Morgunblað- ið, þegar úrslit kosninganna lágu fyrir. Ellert sagði að íþróttir færu vax- andi í nútíma þjóðfélagi og standa þyrfti vörð um þær. Breytingar ættu sér ávallt stað með nýjum mönnum, „en ég læt alla hagsmuni íþróttahreyfingarinnar ráða verkum mínum. ÍSÍ á að vera vaxtarbrodd- ur og bakhjarl, þetta er spumingin um andlitið á okkur öllum og ég vonast-til að geta orðið að Iiði.“ Ellert þakkaði mótframbjóðend- um fyrir hlý orð í sinn garð. „Ég veit að þeir hafa mikið fylgi og mun taka tillit til þess.“ Morgunblaðið/KGA Færeyingar heiðruðu Svein Heðin Mortensen, formaður íþróttasambands Færeyja, Sverrir Midtjort, varaformaður, og Torleif Sigurdsson, formaður Knattspyrnusambands Færeyja,- voru sérstakir gestir á íþróttaþing- inu. í hádegisverðarboði mennta- málaráðherra á sunnudag, þakkaði Héðinn íslenskri íþróttaforystu fyrir gott samstarf á liðnum árum og sæmdi Svein Bjömsson, forseta ÍSÍ, æðsta heiðursmerki íþrótta- sambands Færeyja. Morgunblaðið/KGA Forystumenn Knattspyrnusambands íslands kampakátir að loknu kjöri varaforseta. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, óskar Ellert B. Schram til hamingju með kjörið. Ríkisframlag til íþrótta: Stefnir í þúsundasta hluta að öllu óbreyttu - sagði Sveinn Björnsson, forseti ÍSÍ. „Rólegt þing" Morgunblaðið/KGA Stjórn ÍSÍ. Fremri röð frá vinstri: Friðjón B. Friðjónsson gjaldkeri, Sveinn Björnsson forseti, og Ellert B. Schram varaforseti. Aftari röð frá vinsti: Hannes Þ. Sigurðsson, Lovísa Einarsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir, Jón Ármann Héðins- son, Hermann Sigtryggsson og Sigurður Jóakimsson. # Sveinn Björnsson, forseti íþróttasambands íslands, gat þess í setningarræðu sinni á 60. íþróttaþingi ÍSÍ, sem fram fór i fé- lagsheimili Kópa- Eftir vogs um helgina, að Steinþór rekstur íþrótta- Guðbjartsson hreyfingarinnar 1989 hefði kostað 1.465 millj., áætlaður kostnaður á þessu ári væri 1.850 millj. og á því næsta tveir milljarðar og fjögur hundruð þúsund. Fjárframlög skv. fjárlögum Alþingis hafa á undan- förnum árum numið um og innan við 2% af rekstrarkostnaði hreyf- ingarinnar „og ef heldur sem horfir hættum við að tala um ríkisframlag í prósentum en ræðum um það í prómillum." Fleiri tóku í sama streng og lýstu yfir áhyggjum sínum með fram- gang mála. Tryggvi Geirsson benti meðal annars á að framlag ríkisins árið 1985 hefði verið 18,2 millj. eða um 60 millj. á núvirði, en væri 24 millj. á þessu ári. Hannes Þ. Sigurðsson sagði að hreyfingin hefði komið Getraunum og Lottói á af eigin frumkvæði, en þingmenn litu á þetta sem lögvernd- aða tekjustofna og hækkuðu því ekki ríkisframlagið, en starfið sýndi að það verðskuldaði mikið meira framlag. „Einhugur" Fjármálin eru ávallt efst á baugi og var Sveinn ánægður með hvern- ig tekið var á þeim, en tillaga um skiptingu Lottóhagnaðar var ein- róma samþykkt. „Lottóið hefur ver- ið bitbein síðan 1986, en nú var einhugur um skiptinguna. Fyrir fjórum árum var rifist um Lottó — sumir voru á því að það myndi ráða hreyfingunni að fullu, en annað hefur komið á daginn. Fyrir tveim- ur árum var deilt um bygginga- framkvæmdir, en nú voru þingfull- trúar samstíga.“ Umtalsverðar breytingar voru samþykktar á lögum sambandsins og sagði Sveinn Björnsson að þetta væru breytingar til batnaðar. „Upp- bygging á sér stað á ýmsum sviðum og ljóst er að á næstu árum fjölgar íþróttasamböndum innan ISÍ. Framkvæmdastjórn mun mjög fljót- lega taka ákvörðun varðandi um- sóknir til að mynda frá danssamtök- um, vélhjólamönnum og félögum akstursíþrótta.“ 60. IÞROTTAÞING IÞROTTASAMBANDS ISLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.