Morgunblaðið - 23.10.1990, Page 5
4 B
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞRKXJUDAGUR 23. OKTÓBER 1990
KNATTSPYRNA
Gunnar Gíslason lék vel eftir að hafa verið frá vegna meiðsla í sex vikur.
Gunnar kom
Hacken á
bragðið
Skoraði fyrsta markið þegar félagið vann fyrri
úrslitaleikinn gegn Sundsvall, 4:2
GUNIMAR Gíslason kom, sá og
sigraði þegar hann lék á ný
með Hácken eftir að hafa
meiðstá landsliðsæfingu 28.
ágúst. Gunnar kom félaginu á
bragðið þegar það vann, 4:2,
GIF Sundsvall í fyrri úrslitaleik
liðanna um sæti í úrvalsdeild-
inni á næsta ári. Gunnar átti
mjög góðan leik og skoraði
hann fyrsta mark leiksins, sem
var hans fimm'ta mark í fjórtán
leikjum. '
Hacken gat loksins stillt upp
sínu sterkasta liði, en nokkrir
lykilmenn liðsins hafa verið meiddir
að undanfömu. Gunnar og félagar
hans voru betri aðil-
inn í leiknum og
voru komnir í, 4:1,
um miðjan seinni
hálfleik, en Sund-
Þorsteinn
Gunnarsson
skritarfrá
Sviþjóö
Verður Teiti boðið lands-
liðsþjálfarastarf IMoregs?
Teitur Þórðarson er einn þeirra
manna sem hefur verið
nefndur í sambandi við landsliðs-
þjálfarastarf Noregs. Landsliðs-
þjálfarinn Ingvar Stadheims var
látinn taka poka sinn í sl. viku
og verður eftirmaður hans ráðinn
1. janúar.
Teitur hefur verið nefndur eftir
að hafa unnið gott starf hjá
Brann, en blaðið Aftenposten seg-
ir að það það geti skemmt fyrir
Teiti að hann rauf samning sinn
við Brann og gerðist þjálfari hjá
Lyn. Aðrir þjálfarar sem hafa
verið nefndir eru Benny Lennarts-
son, Egil „Drillo" Olsen, Olle
Nordin, sem var þjálfari sænska
landsliðsins í HM á Ítalíu, Arne
Larsen Ökland og Englendingur-
inn Bob Houghton.
svall náði að minnka muninn í 4:2.
Liðin mætast aftur í Sundsvall á
sunnudaginn.
„Sigur okkar hefði hæglega get-
að orðið stærri, en við fórum illa
með mörg góð tækifæri," sagði
Gunnar í samtali við Morgunblaðið
eftir leikinn. „Tveggja marka for-
skot okkar ætti að duga. Það gæti
þó sett strik í reikninginn ef það
færi að snjóa í vikunni í Sundsvall.
Þá yrði leikið á gervigrasi, en við
höfum ekkert æft á gervigrasi.“
Gunnar var ánægður með að
meiðslin tóku sig ekki upp eins og
hann var hræddur um. „Eg er klár
í slaginn í Sundsvall."
Gunnar á nú eitt ár eftir á samn-
ingi sínum hjá Hécken. „Það yrði
gaman að ljúka verunni hér með
því að leika eitt ár í úrvalsdeild-
inni. Að öllu óbreyttu flyt ég síðan
heim til Akureyrar og geng til liðs
við mitt gamla félag, KA,“ sagði
Gunnar.
IFK Gautaborg og Norrköping
leika til úrslita um sænska meistar-
atitlinn. Gautaborgarliðið, sem er
núverandi meistari, lagði Örebro að
velli, 2:1, eftir að jafntefli, 1:1,
varð í fyrri leik liðanna. Norrköping
komst í úrslit á fleiri mörkum skor-
uðum á útivelli, en félagið vann
Öster heima, 2:1, um helgina, en
aftur á móti vann Öster fyrri leik-
inn, 4:3.
Ruud Gullit skoraði sitt fyrsta mark fyrir AC Mílan í nítján mánuði..
Evrópuboltinn:
„Mínir menn
getaekki
leikid betur“
- sagði Johann Cruyff, þjálfari Barcelona, sem
heldur sínu striki á Spáni. Mílanóliðið efst á Ítalíu
LEIKMENN Barcelona áttu
mjög góðan leik þegar þeir
lögðu Sporting Gijon að velli,
3:2. „Mínir menn geta ekki leik-
ið betur en þeir gerðu í fyrri
hálfleiknum," sagði Johann
Cruyff, þjálfari Barcelona. 80
þús. áhorfendur sáu Gijon
komast tvisvar yfir, en Amor
jafnaði ítvígang og Ronald
Koemans skoraði sigurmarkið
úr vítaspyrnu. Barcelona er í
efsta sæti á Spáni - hefur unn-
ið sjö leiki, en gert eitt jafntefli.
Barcelona er með fimmán stig, en
Sevilla er með þrettán stig. Leik-
menn Barcelona sögðu áður en þeir
héldu til íslands - til að leika gegn
Fram, að þeir óttuðust kuldann mest.
„Gullit brosir," var fyrirsögnin á
leik Napolí og AC Mílanó T'La Gaz-
zetta deho Sport í gær - þegar blaðið
sagði frá jafnteflisleik, 1:1, félaganna
í Napolí. Gullit skoraði jöfnunarmarkið
rétt fyrir leikslok - hans fyrsta mark
fyrir AC Mílanó í nítján mánuði, en
áður hafði Diego Maradona skorað
fyrir Napolí úr vítaspyrnu. Brasilíu-
maðurinn Cereca hjá Napolí meiddist
og mun missa af Evrópuleik liðsins
gegn Spartak Moskvu á morgun.
AC Mílanó, sem hefur ekki tapað
leik, er í efsta sæti á Ítalíu, en Inter
Mílanó er í öðru sæti. Aldo Serena
skoraði þijú mörk fyrir Inter sem vann
Písa, 6:3.
Marseille máttu þola sitt annað tap
í flórum leikjum undir stjórn Franz
Beckanbauer. Sochaux lagði Mar-
seille, 2:1. „Við lékum alla ekki illa,
en aftur á móti áttu leikmenn Sochaux
frábæran leik,“ sagði Beckenbauer.
Papin skoraði mgrk Marseille og er
markahæstur í Frakklandi með tíu
mörk.
Belgíski leikmaðurinn Pascal de
Wilde slasaðist alvarlega í bifreiða-
slysi um helgina. Tveir dóu og tveir
aðrir meiddust alvarlega.
Jupp Heynckes herti á æfingum hjá
leikmönnum Bayern Múnchen eftir
tapið, 0:4, gegn Köln á dögunum og
þá messaði hann yfir sínum mönnum.
Það bar árangur því að Bayem vann
stórsigur, 6:1, á Hamburger SV á
laugardaginn. Bayern náði aftur efsta
sætinu þar sem Kaiserslautern mátti
þola tap, 2:4, fyrir Karlsruhe.
■ Úrslit / B7
■ Staðan / B7
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1990
B 5
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Barátta,
harkaog
nöldur
Það gekk mikið á íþróttaahúsi
Vals á laugardaginn. Þar
mættust Valur og Stjarnan í spenn-
andi leik í 1. deildinni í handknatt-
leik. Valsmenn sigruðu og eru efst-
ir í deildinni ásamt Víkingum en
Stjarnan hefur nú tapað þremur
leikjum í röð.
A myndunum hér í opnunni má
sjá að ýmislegt gekk á, menn börð-
ust af hörku inná vellinum og gáfu
sér svo tíma til að nöldra við dómar-
ana þegar mest gekk á.
Víkingur sigraði KA á föstudags-
kvöldið og er með fullt hús eins og
Valur, KR og Fram gerðu jafntefli
í Laugardalshöllinni, FH sigraði ÍR,
Haukar unnu Selfyssinga og Vest-
mannaeyingar sóttu tvö stig gegn
Gróttu.
■ ÚRSLIT / B6
■ STAÐAN / B6
MYNDIR:
JÚLÍUS SIGURJÓNSSON
SVERRIR VILHELMSSON
I stórum hring á móti sól
Brynjar Harðarson framkvæmdi afskaplega athygliverða tilraun í leiknum. Hann lék inní hornið og sneri svo við inní teiginn; í
stórum hring á móti sól. Því miður gekk þetta ekki upp og Brynjar Kvaran sá við honum.
■F' ■:■ /
v.,v 4'
Eyjólfur Bragason, þjálfari Stjörnunnar,
var ekki ýkja hress með sína menn. Þeg-
ar hér var komið til sögu hafði hann enda
ríka ástæðu til þess.
Sigurður Bjarnason virðist ekki sáttur við faðmlög Inga Rafns
Jónssonar og ætlar greinilega á eftir boltanum . . .
Dómararnir, Guðmundarnir Stefáns- og Lárusson, voru býsna oft ósammála. En hér leikur enginn vafi á því Áhorfendur voru vel með á nótun-
að vítakast er réttur dómur. um og létu heyra í sér . . .
... og það gerði Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals, einnig.
Hér spjallar hann við Valdimar Grímsson, þungur á brún.
í
i
I
\
j
j
í