Morgunblaðið - 23.10.1990, Síða 8
1990
ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTOBER
BLAÐ
-B
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI BIKARHAFA
„Hlaupum okkur
til hita^
- sagði Johan Cruyff, þjálfari Barcelona, eftir kulda-
lega æfingu á Laugardalsvellinum
LEIKMENN Barcelona voru hálf
kuldalegir á æfingu á Laugardals-
vellinum í gær. Rok og rigning-
arsuddi er nokkuð sem þeir eiga
ekki að venjast og Johan Cruyff,
þjálfari liðsins, sem einnig tók þátt
í æfingunni til að halda á sér hita,
sagðist vonast eftir logni, að öðru
leyti væri hann sáttur við veður og
aðstæður. „Þetta kemur okkur
kannski til góða og við verðum að
hlaupa okkur til hita," sagði Cruyff.
Hann sagðist vera bjartsýnn fyrir
veturinn enda Barcelona sjaldan
bytjað svo vel. Liðið er í efsta sæti deild-
arinnar og sigraði Sporting Gijon á
heimavelli 3:2 um helgina. „Liðið lék
ótrúlega vel og þetta var líklega besti
fyrri hálfleikinn sem ég hef séð hjá því
síðan ég kom til Barceiona. Við hefðum
átt að gera sex eða sjö mörk en náðum
aðeins einu. Það er líka heldur óvanalegt
að áhorfendur klappi fyrir liðinu þegar
Johan Cruyff
Fæddur 25. apríl 1947 í
Amsterdam.
Lið: Ajax Amsterdam (Holl-
andi 64-73), Barcelona
(Spáni 73-78), Los Angeles
Aztecs (Bandaríkjunum
78- 79), Washington Diplo-
mats (Bandaríkjunum
79- 80), Levante (Spáni 81),
Ajax Amsterdam (81-83),
Feyenoord (Hollandi 83-84).
Titlar: Atta sinnum hol-
lenskur meistari með Ajax
(66-68, 70-73, 82-83) og
einu sinni með Feyenoord
(84), þrisvar Evrópumeistari
með Ajax (71-73) og sigraði
með liðinu í heimsmeistara-
keppni félagsliða (72).
Spánskur meistari með Barc-
elona (74) og bikarmeistari
með liðinu (78).
Titlar sem þjáífari: Meistari
með Ajax (85), bikarmeistari
með liðinu (86-87) og Evr-
ópumeistari bikarhafa (87.)
Bikarmeistari með Barcelona
(88 og 90) og Evrópumeist-
ari bikarhafa (89).
Með iandsliði: Lék fyrsta
landsleik sinn 19 ára gamall
gegn Ungveijalandi 1966.
Var í silfurliði Hollands í
heimsmeistarakeppninni
1974. Gerði 33 mörk fyrir
landsliðið.
það gengur útaf í hálfleik án þess að
vera yfir. En það er ómögulegt að segja
um hvort við náum slíkum leik gegn
Fram,“ sagði Cruyff.
Hann sagðist hafa séð landsleik ís-
lands og Spánar í Sevilla og fundist
íslenska liðið leika mjög vel. „Spánveijar
léku ekki eins og þeir hefðu átt að gera
og voru alltof rólegir í sókninni. Enda
var það yfirleitt svo að íslenska vörnin
var tilbúinn þegar Spánveijar byrjuðu
að sækja,“ sagði Cruyff.
Verðum að skora
Cruyff sagðist eiga von á sigri en vildi
ekki segja hve stórum. „Við byijum á
núlli og þurfum að skora, því fyrr því'
betra. Það er ekki gott að segja hvernig
mínir menn fara í leikinn og það er að
vissu leyti erfítt að fara beint úr toppbar-
áttunni á Spáni í Evrópuleik á íslandi,"
sagði Cruyff.
Hann sagði að ein breyting yrði á lið-
inu, búlgarski landsliðsmaðurinn Hristo
Stoichkov kæmi að nýju inní liðið en
hann var ekki í byrjunarliðinu gegn
Sporting Gijon. „Hann lék með landslið-
inu gegn Rúmenum og var nýkominn
úr erfiðu ferðalagi. Mér fannst því betra
að hvíla hann og hann verður með gegn
Fram,“ sagði Cruyff.
„Deilduímeðtíu"
Barcelona er ekkert venjulegt félag
og Cruyff tekur undir það. Hann segir
það hinsvegar af og frá að líkja því við
fyrirtæki: „Ef svo væri hefði liðið ekki
náð svo langt. Það er sterkur andi hjá
liðinú og auðvitað má búast við allskyns
sögum um lið á borð við Barcelona. Það
er ein góð regla við þessum sögum:
Deildu í þær með tíu! Og það á við allt,
jafnvel peninga," sagði Cruyff brosandi.
Johann Cruyff á fullri ferð á Laugardalsveilinum í gær.
Morgunblaðið/Sverrir
FOLK
■ NIU landsliðsmenn eru í liði
Barcelona. Sex leikmenn eru í
spænska landsliðinu og síðan þrír
útlendingar; Daninn Michael
Laudrup, Hoilendingurinn Ron-
ald Koeman og Búlgarinn Hristo
Stoickov.
■ ALBERT Ferrer, sem lék með
spænska U-21 ársliðinu gegn Is-
lendingum á Spáni fyrir hálfum
mánuði, leikur ekki með Barcelona
í dag vegna meiðsla. Hann meiddist
á ökkla í Ieiknum gegn Islending-
um hefur ekki náð sér enn.
■ ROGER Gifford frá Wales
verður dómari leiksins. Línuverðir
verða John Loyd og John Holog-
an. Loyd er þaulreyndur milliríkja-
dómari og hefur áður dæmt hér á
landi. Eftirlitsdómari verður Bent
Nielsen frá Danmörku, en íslensk-
ur umsjónardómari verður Guð-
mundur Haraldsson.
■ FRAMARAR bjóða öllum börn-
um, 14 ára'og yngri, frítt á leikinn.
Miðaverð fyrir fullorðna er 900
krónur, sama í stæði og í stúku.
M LEIKNUM verður sjónvarpað
beint til Spánar. Leiknum verður
einnig lýst beint í útvarpi á 10
stöðvum á Spáni, aðallega í Katal-
óníu. Alls eru um 50 blaðamenn frá
Spáni.
■ 120 stuðningsmenn Barcel-
ona koma hingað til að fylgjast
með leiknum. Auk þess að fara á
völlinn, kynnir þetta fólk sér salt-
fiskverkun á íslandi, fer í skoðun-
arferð og útsýnisflug til Græn-
lands.
■ VEÐURSTOFAN spáir suð-
austan átt, skýjuðu og súld sunnan-
lands og hiti 5 til 11 stig í dag.
■ BRUNS Slot, aðstoðarþjálfari
Barcelona, fylgdist með leik U-21
árs liðsins í Santa María fyrir hálf-
um mánuði. Hann var þar sérstak-
lega til að líta á Framararna,
Steinar Guðgeirsson, Anton
Björn Markússon og Ríkharð
Daðason.
■ Hristo Stoichov, búlgarski
landsliðsmaðurinn í liði Barcelona,
lék aðeins síðari hálfleikinn gegn
Sporting Gion í Barcelona sl.
laugardag. Mikið álag hefur verið
á Stochov að undanförnu vegna
þess að hann lék með búlgarska
landsliðinu í síðustu viku og hefur
því verið á ferða og flugi. Cruyff
vildi því hvíla hann í síðasta leik
fyrir leikinn gegn Fram í dag.
H NIU leikmenn í liði Barcelona
eru að koma til íslands í annað sinn.
Þeir léku með liðinu gegn Fram í
Evrópukeppninni fyrir tveimur
árum. Michael Lauprup er hins
vegar að leika hér í þriðja sinn.
Fyrst með U-21 árs liði Dana og
síðast með Juventus gegn Val í
Evrópukeppninni 1986, en þá gerði
hann tvö marka Juventus í 4:0-
sigri.
■ FRAM leikur í dag 31. leik sinn
í Evrópukeppninni frá upphafi.
Fram hefur leikið sex leiki í Evr-
ópukeppni meistaraliða, einnig sex
í UEFA-keppninni og 18 í Evrópu-
keppni bikarhafa.
■ FRAM og Barcelona mætust
einnig í Evrópukeppni bikarhafa
fyrir tveimur árum. Barcelona
vann báða leikina, 2:0 í Reykjavík
og 5:0 í Barcelona.
■ FRAMARAR verða í dag án
Péturs Ormslevs og Viðars Þor-
kelssonar. Þeir taka báður út leik-
bann hjá UEFA. Pétur fyrir brott-
rekstur af leikvelli í Stokkhólmi
gegn Djurgárden og Viðar fyrir
tvö gul spjöld í 1. umferð keppninn-
ar.
■ LEIKMENN Barcelona komu
til landsins á sunnudagskvöld og
tóku eina stutta æfingu á Laugar-
dalsvelli í gær. Liðið heldur síðan
utan til Spánar strax eftir leik í
kvöld.
GETRAUNIR: X 2 X X22 X11 X21
LOTTO: 20 21 24 33 37 + 30