Morgunblaðið - 02.11.1990, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1990
Þetta er ótrúlegur vetrarforði sem hann safnar að sér.
Maður gæti haldið að það yrði kaldur vetur.
HÖGNI HREKKVISI
„ HANN HEFUlS VE&IÐ FK££A1 UFZ PAUFOZ
OG SlNNULAOS unpanf~arie>."
Tími til kominn að tengja betur
Til Velvakanda.
Enn á ný er hafin umræða um
gallað strætisvagnakerfi
Reykjavíkurborgar í 'dálkum Vel-
vakanda. Nokkuð finnst mér nú í
mikið ráðist að beijast fyrir neðan-
jarðarlestum, enda munu þær víst
óalgengar í 100 þúsund manna
borgum erlendis, þótt víða séu þær
á 10-100 sinnum stærri stöðum.
En að ósekju mætti bæta kerfi
SVR verulega. Undanfarin 20 ár
hafa hverfin austan Elliðaáa
byggst upp og ætla ég að meira
en helmingur höfuðborgarbúa
byggi þau. Þó er eins og enn sé
verið að bjarga fyrir horn í strætó-
málunum, einkum í þeim hverfum
sem byggst hafa upp á síðastliðn-
um 6-7 árum. Þarf ekki annað en
að líta á leiðanúmerin, 15 A-B-C,
100, 111, o.s.frv. Ýmis þjónusta
hefur verið sett á laggirnar í Breið-
holti, verslunarhverfi í Mjódd,
sundlaug, bókasafn og sérskólar.
íbúar hverfanna sjá sér leik á
borði að sleppa í ríkum mæli „bæj-
arferðum“ en nýta sér þess í stað
þjónustuna í Breiðholti. Þó er þar
einn hængur á. Þrátt fyrir lang-
þráða skiptistöð í Mjódd, sem öllu
Til Velvakanda.
Talið er að olía sem orkugjafi
muni ekki endast í marga áratugi
úr þessu. Þúsundir vísindamanna
með óhemju mikið ijármagn gera
tilraunir með nýja orkugjafa en
seint gengur samt.
Ég tel að fljótlega mætti leysa
orkuvandamálið fyrir skip af ýms-
um gerðum. Skip mætti hanna með
vindmyllum til að hlaða rafgeyma
og þrýstiloftskúta til að knýja afl-
vélar skipsins, auk þess að fram-
leiða raforku til almennra nota um
borð í skipinu. Spaðar vindmyllunn-
átti *áð breyta til betri vegar, eru
enn stopular ferðir milli þessara
nýju hverfa innbyrðis. Aðeins ein
leið SVR tengir svæðin frá Grafar-
vogi, uni iðnaðarhverfið á Ártúns-
höfða, Ártúnsholt, og einungis á
ar virkuðu sem segl og væru hluti
driforku skipsins. Hvort sem skipið
væri á siglingu eða í höfn gætu
vindmyllurnar haldið áfram að
hlaða rafgeymana og þrýstikútana.
Skipin yrðu hönnuð sérstaklega eft-
ir því hvort um fiskiskip, farþega-
skip, flutpingaskip eða skemmti-
ferðaskip væri að ræða. Skip með
þrýstiloftskútum væri ósökkvandi.
Rafgeymarnir yrðu um leið ballest
í skipinu. Þúsundir manna fengju
atvinnu við að smíða vindmylluskip,
og vindmyllur, rafgeyma og þrýsti-
loftskúta.
Oskar Jensen
klukkutímafresti. Nokkuð oftar er
hægt með alls konar Ieiðum að
komast úr þessum nýju hverfum
í nafla alheimsins, miðbæinn, þótt
allir fari vagnarnir um Miklubraut
og Suðurlandsbraut, en enginn um
Elliðavog, sem þó er í næsta ná-
grenni vestan Elliðaánna. Úr Ár-
túnsholti í Breiðholt er t.d. um 4
km leið, en til þess að vera mætt-
ur í Breiðholt á heila tímanum
vegna skólahalds, eða bíóferðar,
þarf að leggja af stað um 55
mínútum fyrr, vel að merkja með
allt að hálftíma bið á ákvörðunar-
stað. Þess má geta að heldur
styttri tíma tekur að ganga þessa
leið. Mætti segja mér að fólki á
Melunum þætti súrt í broti að
verða að ganga t.d. 4 km leið upp
í Hlíðar eða leggja af stað nær
klukkutíma fyrir áætlaðan kom-
utíma ella.
Það bráðvantar sem sagt betri
tengingu milli hverfa í austurborg-
inni og mun tíðari ferðir til þess
að strætisvagnarnir nýtist þar til
daglegra nota og þá fyrst má
fækka einkabílum. Þetta er dýrt
fyrir borgina, en það eru einka-
bílamir líka.
Elín Konráðsdóttir
Vindmylluskip í
framtíðinni?
Víkverji skrifar
Víkveiji skrapp út fyrir land-
steinana fyrir skömmu og var
farþegi á Saga-class farrými Flug-
leiða (sem því miður er alltof sjald-
gæft!). Er skemmst frá því að segja
að þjónusta öll var til hreinnar fyrir-
myndar. Víkverit hefui' flogjð með
ýmsum flugfélögum bæði á dýrum
og ódýrum farrýmum og fullyrðir
að þjónustan sem hann fékk nú er
sú bezta sem hann hefur kynnzt.
Eina umkvörtunarefnið er það að
boðið var uppá kvikmyndasýningar
en á svo litlum skermum að ekkert
gagn var af. Þessu hlýtur að vera
hægt að kippa auðveldlega í liðinn.
Víkveiji er þess fullviss að Flugleið-
ir geta náð umtalsverðum viðskipt-
um fullborgandi farþega með þjón-
ustu í þessum gæðaflokki.
1 ferðinni flaug Víkveiji á innan-
landsleiðum í Bandaríkjunum og
voru viðbrigðin mikil. Flugvélarnar
voru gamlar og þreyttar og þjónust-
an eins og menn sætu við færi-
band. Mikið var Víkverji fegínn
þegar hann var sestur að nýju upp
í Fiugleiðavélina á leiðinni heim.
XXX
Reykjavík er orðin mikil heims-
borg. Um það sannfærðist
Víkveiji þegar hann dvaldi ásamt
fleiri íslendingum í bandarísku
borginni Charleston í Suður-
Karólínufylki, sem er eitt Suðurríkj-
anna. Hópurinn hafði hug á að
heyra alvöru Suðurríkjablús eða
goðaii ja.zz. En skemnisi. éf ifá pvi
að segja að í þessari borg, sem tel-
ur 300 þúsund manns með útborg-
um, var ekki að finna einn einasta
stað sem þauð upp á þessa tegund
tónlistar! í Reykjavík er hins vegar
hægt að hlusta á blús og jazz á
mörgum veitingastöðum.
xxx
Asholt heitir byggðakjarni sem
Ármannsfell hefur byggt efst
við Laugaveginn. Ásholt var al-
menningi til sýnis tvær síðustu
helgar. Bjuggust forráðamenn Ár-
mannsfells við ca. 2.000 manns en
reyndin varð sú að 14-15.000
manns komu til að skoða nýju íbúð-
irnar! Það þarf ekki að spyija að
Islendingum ef eitthvað áhugavert
er í boði, þeir flykkja á staðinn!
Stjarnan í Garðabæ á 30 ára
afmæli um þessar mundir.
Ekki fór mikið fyrir þessu félagi
framan af en á síðustu árum hefur
Stjarnan skipað sér í fremstu röð
íslenzkra íþróttafélaga. Það er fyrst
ög írSffist gðð Uf áfángúf á íþfótta-
sviðinu sem skapað hefur Stjörn-
unni nafn í íþróttaheiminum- en
einnig hefur vakið athygli og að-
dáun hve vel er haldið um stjórn-
taumana hjá félaginu.
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur
stutt dyggilega við bakið á Stjörnu-
mönnum og mætti það verða fyrir-
mynd öðrum bæjarfélögum. Mynd-
arleg íþróttamannvirki hafa risið á
síðustu árum sem öll eru mikið
notuð af æskunni í bænum. Víkveiji
horfði á leik Stjörnunnar og Víkings
í nýrri íþróttahöll sl. miðvikudag.
Þetta er hið glæsilegasta mann-
virki. Það eina sem spillti gleði
Víkveija var ærandi trumbusláttur
nokkurra ungmenna. Fyrir venju-
lega áhorfendur er svona hávaði
óþolandi. Þokulúðrar hafa verið
bannaðir í flestum húsum og trumb-
urnar þarf að banna líka svo vært
verði í húsunum.