Morgunblaðið - 23.11.1990, Blaðsíða 1
VIKUNA 24. — 30. NÓVEMBER
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FOSTUDAGUR 23. NOVEMBER 1990
BLAÐ
Ragnhildur Jónasdóttir og Jónas Árnason á þeim tíma
sem sagan var rituð.
Undirfönn
Á þriðjudaginn hefst lestur nýrrar útvarpssögu á Rás 1.
Sagan heitir Undir fönn - um gleði og sorgir dýra og
manna og er skráð af Jónasi Árnasyni. I bókinni segir frá
ævi Ragnhildar Jónasdóttur sem var Vopnfirðingur að ætt
og uppruna. Mestan part ævi sinnar bjó hún í Norðfirði,
nánar tiltekið að Fannadal, sem er innsti bær í dalnum,
en heiti bókarinnar er dregið af jökli nokkrum sem trónir
yfir dalbotninum. [ bókinni segir Ragnhildur sögur af ýmsum
dýrum og samferðamönnum sínum á óborganlegan hátt
og einnig er þar að finna fjölda af vísum Ragnhildar. Lesar-
ar eru Jónas Árnason og Sigríður Hagalín.
Derrick
Fyrsti þáttur í nýrri Derrick syrpu er á dagskrá Sjónvarps
í kvöld. Mozart og dauðinn nefnist þessi þáttu og segir
af Marion, 17 ára fiðluleikara sem verður fyrir fólskulegri
árás sauðdrukkins illþýðis í neðanjarðarlestinni, þá er hún
er á heimleið úr kennslustund. Vinur hennar og kennari,
Justus Roth, sem er í för með henni, hreppir hinar verstu
misþyrmingar af hendi árásarmannanna.
Derrick kemst á snoðir um árásina og grunar að árásar-
mennirnir tengist öðru máli og áþekku, þar sem fórnarlamb-
ið beið bana af. Rannsóknin reynist honum þó erfiðari en
haldið var í fyrstu.
í aðalhlutverkum eru góðkunningjar okkar, Horst Tap-
pert og Fritz Wepper.
Hoover gegn
Kennedy
Framhaldsmynd í þremur hlutum, Hoover gegn Kennedy,
er á dagskrá Stöðvar 2 25., 26. og 27. nóvember. J. Edgar
Hoover var æðsti maður alríkislögreglunnar og sextíu og
fimm ára gamall þegar John F. Kennedy varð forseti Banda-
ríkjanna árið 1960. Eftir þrjátíu og sex ára starf í þágu fimm
forseta heyrði hann undir hinn þrjátíu og fimm ára gamla
dómsmálaráðherra Robert Kennedy. Það dró til tíðinda
þegar Kennedyarnir þrýstu á alríkislögregluna að taka þátt
í og viðurkenna mannréttindastefnu þeirra og sömuleiðis
að halda mafíunni í skefjum.
Hoover kemur sér hjá þessum skipunum, en lætur þess í
stað njósna um einkalíf forsetans og annara frammá-
manna. Þegar forsetinn ýtir á eftir Hoover hótar hann að
koma upp um ástasambönd forsetans við Marilyn Monroe
og Judith Campbell, en sú síðarnefnda var unnusta ill-
ræmds mafíuforingja í Chicago. Samhliða þessu vinnur
Hoover að því að eyðileggja mannorð og störf Martins
Luthers King. Þegar Hoover fréttir að bandaríska leyniþjón-
ustan hefur gert samning við mafíuna um að myrða Fidel
Castro flettir hann ofan af leyndarmáli sem forsetinn hefur
ekki einu sinni sagt bróður sínum frá.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8
Útvarpsdagskrá bls. 2-8
Hvað er að gerast? bls. 3-5
Myndbönd bls. 5
Bíóin í borginni bls. 6
Vinsælustu myndböndin 8