Morgunblaðið - 02.12.1990, Page 1
Simóum
jólagjafir
JÓLAFASTAN hefst með
fyrsta sunnudegi í að-
ventu. Sennilega er enn
tími til stefnu til að búa til
einn eða tvo hluti, sem glatt
gætu vin á jólum, barn eða
fullorðinn. Margireru
þannig, að þeir gleðjast
jafnvel við þá hugsun eina
að hugur gefandans var hjá
þeim við undirbúning og
gerð jólagjafar fyrir jólin.
Þettakemur fram hjá
Bjarna Ólafssyni í þættin-
um Smiðjan hér f blaðinu í
dag. Þar lýsir Bjarni því í
máli og myndum, hvernig
smíða má brúðurúm eða
vöggu og síðan bíl. Hann
telur upp efnið og segir, að
heppilegast sé að nota
þunn furuborð
í svona
leikföng.
SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1990
BLAÐ
Ibúóarhúsnæöi
76,3% 75,6%
60,7 þús.kr.
100%
Utborgunar-
hlutfall
Verömun
Husfelög
og fjöl-
býlishús
68,0%
43,7 þús.kr.
72,0%
42,6 þús.kr.
70,2%
Nvæöum
Ibúðarhúsnæði í Reykjavík var
um 40% dýrara að meðaltali
en húsnæði á Suðurnesjum og
Akureyri á seinni helmingi
síðasta árs samkvæmt upplýs-
ingum í nýju fréttabréf i Fast-
eignamats ríkisins. Á myndinni
hér til hliðar sést verð og út-
borgunarhlutfall á þessum
þremur stærstu markaðs-
svæðum íbúðarhúsnæðis.
Verðið var svipað á Akureyri
og Suðurnesjum eða um 43
þúsund krónur á fermetra.
Verðmunur á íbúðarhús-
næði hefurfarið vaxandi milli
Reykjavíkur og Akureyrar frá
árinu 1987 þegar verð á fer-
metra á Akureyri var 79,8% af
verði á Reykjavík. Árið 1988 var
hlutfallið 73,2% en var á seinni
helmingi síðasta árs komið í
72%. Á sama tíma hafa Suður-
nesin eflst í samanburði við
Reykjavík en íbúðarverð þar
var aðeins 60,1% af verðinu i
Reykjavík 1988 en var 70,2% á
seinni helmingi síðasta árs.
íbúðarverð á fermetra hækkaði
um 31,1% frá síðara árshelm-
ingi 1988tilsama tíma 1989.
Lágt útborgunarhlutfall ein-
kenndi íbúðamarkaðinn á Suð-
urnesjum eins og sést á með-
fylgjandi mynd en það var svip-
að á Akureyri og í Reykjavík á
þessum tíma. ~
AKUREYRI
ÞAÐ er mjög misjafnt, hve
stjórnir húsfélaga í fjölbýl-
ishúsum eru virkar. Sumum
húsfélögum er stjórnað af
röggsemi, bæði að því er varð-
ar fjárhag og þau verkefni, sem
ráðist er í. í öðrum er stjórnin
lakari og lítil festa í öllum hlut-
um.
Þetta kemur f ram í viðtali vð
Ástu Magnúsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Húseigendafé-
lagsins, hér í blaðinu í dag. —
Ólíklegustu hlutir geta orðið
ásteytingarefni í húsfélögum,
segir Ásta. Gróf dæmi um
misklíðarefni í fjölbýlishúsum
felast gjarnan í því, að einn
aðili þar tekur upp á því upp á
sitt eindæmi að breyta útliti
hússins að einhverju leyti t. d.
mála sinn hluta hússins í öðr-
um lit eða breyta útliti glugga.
Það er samt einkum þrennt,
sem fólk vill fá upplýsingar um,
hvort heimilt sé í fjölbýlishús-
^um: Dýrahald,
hljófæraleikur
Bt. og dagvistun barna.
REYKJAVIK
KEFLAVIK
Söluverö
kr./m2