Morgunblaðið - 02.12.1990, Page 2

Morgunblaðið - 02.12.1990, Page 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR sÚNNúbÍGÚR2 DESEMBER 1990 Hagstæðast að láta hús- bréf ganga upp í aðra cign -— §egir Árni Haraldsson I fa§tcigna§ölunni Fa§teign. NOKKUR deyfð virðist vera yfir fasteignamarkaðinum nú. Svipt- ingarnar vegna húsbréfanna í fyrri viku hafa valdið nokkurri óvissu og þegar svo er, þá heldur fólk gjarnan að sér höndum. Oft dregur líka úr fasteignasölu, þegar nær dregur jólum. — Ég tel, að húsbréfakerfið verði farið að virka betur eftir áramótin en verið hefur að undanförnu og að reikna megi með að markaður- inn verði þá búinn að jafna sig, sagði Arni Haraldsson, löggiltur fasteignasali í fasteignasölunni Fasteign, í viðtali við Morgunblaðið. Arni Haraldsson og Hilmar Baldursson hdl., löggiltir fasteignasalar i fasteignasölunni Fasteign, sem stofnuð var fyrir skömmu og hefur aðsetur að Armúla 8 í Reykjavík. Húsbréfin eru uppistaðan í kaupverði íbúðarhúsnæðis nú, sagði Árni ennfremur. — Utan húsbréfakerfisins er varla nokkur markaður til. Húsbréfakerfið hef- ur virkað svo illa, sem raun ber vitni af mörgum ástæðum. Ein ástæðan er sú, að ávöxtunar- krafan hefur verið á stöðugri upp- leið. Önnur að markaðsverð bréf- anna var ekki viðurkennt til skamms tíma og í þriðja lagi hefur framkvæmdin ekki verið nógu góð. Nú er þetta vonandi að breyt- ast. — Hugmyndin að baki hús- bréfakerfinu er mjög góð en fram- kvæmdin virðist vera vandamálið. Framkvæmdin getur virkað vel einn daginn en illa þann næsta. Ávöxtunarkrafan var fyrst 6,55%, en er nú 7,30%. Þegar hún var 6,55%, samsvaraði hún innbyggð- um afföllum markaðarins. Þar af leiðandi gekk allt vel. Síðar þegar afföllin á húsbréfunumn fara hærra en innbyggt er í markaðs- verð eigna, segir markaðurinn hingað og ekki lengra. Einhver verður að greiða þennan mismun og það hlýtur að verða kaupand- inn. Sú spurning vaknar, hvort sé eðlilegra að kaupandinn eða selj- andinn taki afföllunum í nýbygg- ingum. — Það er óeðlilegt, að kaupandinn taki öll afföllin, sagði Ámi. — í fyrsta lagi fær bygginga- meistarinn ríkistryggt skuldabréf og í öðru lagi fær hann greiðslur mun hraðar en ella og losnar þann- ig við fjármagnskostnað. Þess vegna er eðlilegt að hann taki á sig hluta af afföllunum. Spurning- in er bara hve mikið? Ég hef heyrt nokkur dæmi þess að seljandi og kaupandi mætist þar á miðri leið. Ég reikna þó með, að markaðurinn muni haga sér þannig, að kaup- andinn taki 60-70% affallanna vegna húsbréfa út af nýsmíði en byggingameistarinn það sem eftir er. Byggingameistarar geta vel gert samþykkt um að þeir ætli ekki að taka neinum afföllum. Þá er það bara spurninginn, hvort fasteignamarkaðurinn sættir sig við það og hvort þeir sitji þá ekki uppi með eignirnar. — Sá sem eignast húsbréf, fær mikil afföll á þau með því að selja þau en með því að láta þau ganga áfram upp í kaup á annarri fas- teign, fær hann lítil afföll en þó einhver, sagði Árni Haraldsson að lokum. — Það besta, sem eigandi húsbréfa gerir við bréfin er því að láta þau upp í aðra eign. Þó að hann geri það ekki strax, held-' ur þurfi bíða eitthvað, kemur það ekki að sök, vegna þess að í fyrsta lagi fær hann verðbætur og vexti, í öðru lagi hefur hann möguleika á gengishagnaði, vegna þess að ávöxtunarkrafan er á niðurleið og hann fær þá meira fyrir bréfin ef henn selur þau seinna. í þriðja lagi fækkar gjalddögum sem eftir eru á bréfunum og gengi þeirra hækkar vegna þess og í fjórða lagi eru húsbréf eignarskattsfijáls og ríkistryggð. í fimmta lagi fær hann tekjur af bréfunum á þriggja mánaða fresti, ef bréfin eru í mörgum smáum einingum. Síðasta atriðið er mjög þýðing- armikið. Fyrir fólk sem er að fara að taka húsbréfatilboði, en ætlar ekki að kaupa áfram, þá er mjög æskilegt, að fá húsbréfin í mörg- um smáum einingum. Þessu veldur útdráttarfyrirkomulagið. Tökum sem dæmi að seljandi að 8 millj. kr. eign fái af uppreiknuðu verði 5,2 millj. kr. í húsbréfum í mörgum smáum einingum. Þá fengi hann að jafnaði útdregin um 100.000 kr. á þriggja mánaða fresti. JÓIAGJÖF HVERNIG líst þér á að smíða nú jólagjafir og gefa þær góðum vin- um? Jólafastan er að hefjast með fyrsta sunnudegi í aðventu. Mér þykir því sennilegt að enn sé nægur tími til stefnu til að búa til einn eða tvo hluti sem glatt gætu vin á jólum, barn eða fullorðinn. Margir eru þannig gerðir, að þeir gleðjast jafnvel við þá hugsun eina að hugur gefandans var hjá þeim við undirbúning og gerð jóla- gjafar fyrir jólin. Lítið rúm fyrir brúðu að kann að skipta máli hvort barn fær brúðurúm eða vöggu til að leika sér með. Rúmið er fyrst og fremst til að búa um brúðuna í, breiða yfir hana o.s.frv., en vagg- an gefur baminu lengri leiktíma við að svæfa brúðuna. Ég valdi því að láta fylgja teikn- ingu af brúðu- vöggu með þessari smiðjugrein. Það er þá líka auðvelt að taka bogann neðan af göflunum og smíða þann- ig rúm í staðinn. Efnið: Fallegast er að nota þunn furu- leikföng. Best er að kaupa hefluð borð um 10 mm þykk og 100 til 200 mm breið. Gaflarnir: 210 210 mm, 2 stk. Stokkarnir: 50 360 mm, 2 stk. Botninn: 110 162 mm, 3 stk. í gaflana þarf að líma saman tvær borðbreiddir og er best að láta liggja þversum í þeim, þ.e. iárétt. Smíðin: Enda þótt þessi teikning af göfl- um fylgi hérna með, þá er hún fyrst og fremst til þess að gefa mönnum hugmynd. Hér er t.d. ekki stíll sem hæfir hinum svokölluðu „barbí“- brúðum. Auðvelt er að saga út lögun gafl- anna með útsögunarsög (laufsög). Síðan þarf auðvitað að tálga, hefla, sverfa og pússa. Vel má skrúfa stokkana við gaflana með tveimur koparskrúfum í hvorn enda. Til þess að síður springi út frá skrúfun- um þarf að bora fyrir þeim og einn- ig að láta enda stokkanna koma svo sem 2-3 mm út fyrir gaflana. Það er bæði sterkara og fallegra. Botn- fjalirnar má síðan líma og negla eftir Bjarna Olafsson undir stokkana. Munið að pússa vel hvert stykki fyrir sig og gera brún- ir svolítið ávalar. Notið sandpappír nr. 80 og 120. Sendibíll, — vörubíll Það er ljóst að „stóru bömin“ vilja eiga sportbíla eða jeppa. Á starfsaldri litlu barnanna þurfa bíl- ar helst að hafa eitthvert starfrænt hlutverk. Þurfa að geta flutt eitt- hvað, verið lögreglubílar, slökkvibíl- ar eða vörubílar o.s.frv. Hversu stór leikföngin eiga að vera ákvarðast einnig mikið af aldri barnsins sem eignast hlutinn. Lítil börn, eins og hálfs árs til tveggja ára, vilja draga eða ýta stórum hlut- um. Þriggja til fimm ára vilja einn- ig oft hafa fremur stór leikföng og fer þá að bera á löngun til að prófa alskonar takka, Ijósrofa, takka á útvarpstækjum, eldavélum o.s.frv. Við getum nefnt það að börnin stundi „takkafræði“. Efnið: Lýsingin á við pallbíl. Hjóla undir bíl eða kerru er stundum erfitt að afla ér, einkum ef enginn kostur er á að komast í rennibekk. í vélaverslunum er þó nokkurt úrval lítilla hjóla, einnig í sumum byggingavöruverslunum. Svo er auðvitað hugsanlegt að sum- ir smiðjugestir þekki einhvern sem getur rennt fyrir þá hjól undir bíl. Eins og í vögguna, legg ég til að notuð verði þunn furuborð í bíl- inn. Botninn má vera 16-20 mm þykkur, 145 mm breiður og 250 mm langur. Bak í stýrishús: Hæð 102 mm, breidd 165 mm og þykkt 10 mm. Þak á stýrishúsi: Lengd 63 mm, breidd 165 mm og þykkt 10 mm. Hliðar stýrishúss: 2 stk. 119 mm á hæð, 30 mm breið og 10 mm þykk. Framstykki stýrishúss: Lengd 145 mm, breidd 43 mm og þykkt 10 mm. Hliðar utan á vörupall: 2 stk. SMIÐJAN 160 mm langar, 50 mm breiðar og 10 mm þykkar. Hurðir. 2 stk. hæð 60 mm 45 mm og 10 mm þykkar. Öxlar: 2 stk. dýlaefni 170 mm 45 mm og 10 mm. Smíðin: í efnislistanum er botninn nefnd- ur fyrst, smíðin hefst líka með því að sníða til og pússa botnplötuna. Það er hægðarleikur að lengja þennan bíl með því að bæta t.d. 50 mm við lengd botnplötu og hliðar- borðanna. Botnplatan á að vera hefluð og vel pússuð. Endar hennar verða stuðarar bílsins. 90 mm frá fram- enda botnplötunnar er rétt að strika þvert yfir plötuna eftir vinkli. Ann- að strik á að koma 10 mm frá fram- endanum. Bakið í stýrishúsinu á að falla yfir botnplötuna báðum megin og þarf að taka úr bakinu hæfilega mikið fyrir þykkt botnsins. Einnig má skera úr fyrir glugga í bak- stykkið. Hliðarstykkin er best að hafa með teiknuðum glugga. Þakið þarf að þynna dálítið fram. Síðan má negla þakið á bakið með 38 mm löngum nöglum og bera einnig lím undir samskeytin. Eins og greinilega sést á teikningunni koma hliðarstykki stýrishússins 10 mm niður fyrir botninn. Áríðandi er að hliðarstykkin séu sniðin til eins og teikningin sýnir. Hægt er að sníða þau til með útsögunarsög og hefli, spoijárni, þjöl og sandpappír. Að því Ioknu má festa húsið sam- an ofan á botninn og festa svo fram- stykkið á milli hliðarstykkjanna. Hurðimar koma síðast í stýrishúsið. Vel má festa hurðirnar á hliðar- stykkin með 30 mm löngum kantlömum. Ef tréhjól verða notuð, þá þarf að bora 10 mm víð göt í miðju þeirra. Dýlarnir tveir sem nefndir eru í efnislistanum, eiga að leika lausir í gróp undir botnplötunni. Dýlarnir eiga nefnilega að geta snúist með hjólunum og má ekki vera þröngt um þá. Gott er að líma lista með gróp fyrir dýlana, neðan á botninn. Þegar öxlar og hjól eru komin á sinn stað, má sníða pall- borðin og saga hæfilega úr þeim fyrir hjólunum. Svo verða þau límd og negld utan á botninn. Öll stykk- in þarf að pússa vel og rækilega. Þak yfir sendibíl: Það eykur notagildi þessa bíls ef honum fylgir yfirbygging yfir pallinn, eins og teikningin sýnir. Má þá láta framgafl yfirbyggingar- innar ná niður að botnplötu og smella á milli hliðarborðanna. Að aftan verða listar, eða bakhlið að gegna því hlutverki. Hreyfitakkar o.fl.: Allir möguleikar á notkun, sem hægt er að bæta við þessa lýsingu, koma að notum í leik. Hjólin hreyf- ast, e.t.v. hurðirnar, gírstöng, sæti o.s.frv.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.