Morgunblaðið - 02.12.1990, Side 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR ■SUNNUDAGUE" 2: DESEMBEK TTOO
-4
r
Sumarbústaðalóðir
Til leigu eru stórar sumarbústaðalóðir á kyrrlátum, skógi
vöxnum stað, í landi Stóra-Áss í Borgarfirði. Heitt vatn.
Afhendingartími fyrri hluta árs 1991.
Upplýsingar veittar í símum 93-51394 allan daginn og
91-30835 eftir kl. 18.
FASTEIGIMASALA
Suðurlandsbraut 10
Opið í dag kl. 13-15
Ábyrgð - Reynsla - Öryggi
SÍMAR: 687828, 687808
BRÁÐVANTAR ALLAR STÆRÐIR FASTEIGNA
SELJENDUR VINSAMLEGAST HAFIÐ SAMBAND
VIÐ SÖLUMENN OKKAR.
VERSLUNAR- OG/EÐA ÞJÓNUSTUHÚSNÆÐI
Til sölu stórgl. húsnæði í nýlegu verslunar- og þjónustuhúsi
innarlega við Laugaveg. Húsið stendur milli 2ja gatna og er
aðkoma að húsinu frá báðum götum. Húsnæðið er á tveimur
hæðum. Efri hæðinni, sem er 357 fm er nú skipt í þrjár ein-
ingar 97, 113 og 147 fm. Neðri hæðin er 171 fm verslunar-
eða þjónustuhúsn. 7 bílastæði í lokuðu bílastæði fylgja eign-
Einbýli/parhús
HFJ. - NORÐURBÆR
Til sölu stórglæsil. einbh. í hraunjaðrin-
um I Noröurbæ Hafnarfj. Húsið er á
tveimur hæðum m. bílsk. samtals 335
fm. Allgóð lán óhv.
2JA ÍBÚÐA HÚS
Til sölu timburhús með tveimur íb. við
Bræðraborgarstíg. Húsið er kj., hæð
og ris, samtals 190 fm. ( kj. eru 2 stof-
ur, 2 herb., eldh. og bað. Á hæðinni
eru 2 stofur, 1 herb. og eldh. í risi 2
herb. baðherb., þvottahús og geymsla.
Mjög góð lóð.
KEFLAVÍK V. 3,3 M.
2ja herb. 62 fm nýl. íb. á 3. hæð. Áhv.
2,0 millj. frá húsnstj.
I smíðum
VESTURBÆR V. 7550 Þ.
Höfum til sölu tvær 3ja herb. íb. á 1.
og 2. hæð í fjórbh. við Smyrilsveg. íb.
hafa.sérinng. Áfh. tilb. u. trév. með frág.
sameign og lóð. Til afh. strax.
HJALLAVEGUR
V. 8,9 M.
Vorum að fá f sölu parh. kj., hæð
og ris samt. 140 fm. Mjög stórar
svalir. Laust fljótl.
NYTT HUSNSTJLAN
Höfum til sölu 110 fm (br) íb. á
4. hæð í lyftuh. við Klapparstíg.
Frábært útsýni. Stæði í lokuðu
. bílahúsi. Til afh. strax. Rúmg. tilb.
u. trév. og máln.
Raðhús
FUÓTASEL V. 13 M.
Til sölu raðhús á þremur hæðum sam-
tals 240 fm auk bílsk. Gert er ráð fyrir
íb. í kj. Skipti á sérhæð í Hlíöum æskil.
Sérhaeðir
GRETTISGATA
100 fm sérhæð (götuhæð). Selst tilb.
u. trév. Til afh. strax. Góð greiðslukjör.
ÞRASTARGATA - EINB.
Höfum til sölu tvö einbhús sem eru hæð
og ris 143 fm. V. 10750 þús. og 116 fm.
V. 8950 þús. Húsin afh. fljótl. tilb. u. trév.
að innan en fullfrág. að utan. Lóð frág.
KIRKJUTEIGUR
Vorum að fá til sölu efri hæð og
óinnr. ris. Á hæðinni eru 2 stof-
ur, 2 svefnherb. (geta veriö 3),
eldhús og bað. Stór bílsk.
BÆJARGIL - GBÆ
Einbhús, hæð og ris 194 fm með
30 fm sérbyggðum bflsk. Selst
fokh. frág. að utan. Óvenjulega
skemmtil. hönnun.
HÆÐ OG RIS V. 8,5 M.
Til sölu við Miðtún hæð og ris mikiö
endurn. íb. Á hæö eru stofur, herb.,
eldh. með nýl. innr. og snyrting. i risi
eru 4 góð herb. og svalir. Skipti á minni
eign mögul.
4ra—6 herb.
TAKIÐ EFTIR
Erum með í sölu vandaða 4ra herb.
endaíb. á 3. hæð við Jörfabakka. Gott
hverfi. Áhv. ca 1100 þús. Laus fljótl.
3ja herb.
HVERFISGATA
Góð 3ja herb. 90 fm íb. á 2. hæð m/16
fm aukaherb. í kj. Mikið endurn. eign.
ROFABÆR
Góð 3ja herb. ib. á 2. hæð. Suöursval-
ir. Góð sameign.
HVERFISGATA V. 5,3 M.
3ja herb. 90 fm ib. í steinh. Laus strax.
HVANNARIMI V.7.5M.
Vorum aö fá nokkur raöhús v/Hvanna-
rima til sölu. Hús þessi eru að grfl.
106,61 fm ásamt 44,74 fm risi svo og
25,63 fm innb. bílsk. Seljast fokh. en
fullfrág. að utan. Tilb. til afh. í jan. 1991.
Byggaðili: Mótás hf., Bergþór Jónsson.
FAGRIHJALLI
Parh. með innb. bílsk. samt. 200 fm.
Selst fokh. að innan fróg. að utan. .
STAKKHAMRAR
V. 8,5 M.
Vorum að fá í sölu 155 fm einbhús með
26 fm bílsk. Húsið er fokhelt en fullfrág.
aö utan. Teikn. á skrifst.
GARÐHÚS
4ra, 5 og 7 herb. íbúðir. Skilast tilb. u.
trév. og máln. fljótl.
TRÖNUHJALLI - 4RA
Nú eru aðeins eftir tvær endaíb.
í þessu stórskemmtil. húsi sem
stendur frábærl. vel í Suöur-
hlíðum Kóp. Afh. tilb. u. trév. og
máln. Sameign fullfrág. Vandað-
ur sameignarfrág. Til afh. strax.
2ja herb.
FRAMNESV. V. 3,9 M.
Vorum að fá í sölu 2ja herb. 62 fm íb.
á 3. hæð. Suðursvalir.
BERGSTAÐASTR.
V. 4 M.
Erum með í sölu mjög notalega
íb. í timburh. sem er hæð og ris.
Á hæðinni eru tvær saml. stofur,
eldh., bað og svefnherb. Risið
er nýtt sem svefnloft. Áhv. 1250
þús frá hússtj.
VESTURGATA
Ágæt 50 fm íb. á 3. hæð í steinh. Áhv.
2,0 millj. frá húsnstj.
LAUGAVEGUR V. 2,9 M.
2ja herb. 50 fm íb. á 2. hæð.
Atvinnuhúsnæði
SKEMMUVEGUR
V. 22,0 M.
Erum með í sölu 560 fm iðnhúsnæði á
einni hæö. Mögul. er á að selja í tveim-
ur einingum.
FISKISLÓÐ
Höfum til sölu atvhúsnæði á tveimur
hæðum samt. 264 fm.
ÁLFABAKKI
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Erum með í sölu skrifstofuhúsn. á 2.
og 3. hæð samtals um 380 fm. Húsið
er nú þegar tilb. u. trév. og til afh. Góð
bílastæði. Greiðslukj. 2 millj. út, eftirst.
lánaðar til 7 ára.
Hilmar Valdimarsson, jm
Sigmundur Böðvarsson hdl.
Ásgeir Guðnason, hs. 611548. ■■
Húsfélögin þurfa
a<> veia viili til aö
koma að gagni
— segir Ásta Hlagnúsdóttir, framkræmdastjóri Húseigendafélagsins.
í öllum fjölbýlishúsum eiga að
starfa húsfélög. Þeim er ætlað
að annast rekstur og taka
ákvarðanir varðandi sameignina,
en sem kunnugt er skiptist eign
í fjölbýlishúsi í tvennt, séreign
og sameign. íbúðirnar sjálfar eru
séreign íbúðareigenda en aðrir
hlutar eru sameign, þar með
taldar lóðir. Mjög er það mis-
jafnt, hve stjórnir húsfélaganna
eru virkar. Sumum þeirra er
stjórnað af röggsemi, bæði að
því er varðar fjárhag og þau
verkefni, sem ráðist er í. I öðrum
er stjórnin lakari og lítil festa í
öllum hlutum.
Olíklegustu hlutir geta orðið
ásteytingarefni í fjölbýlishús-
um, sagði Ásta Magnúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Húseigendafélagsins
í viðtali við Morgunblaðið. — Gróf
dæmi um misklíð-
arefni í fjölbýlis-
húsi felast gjarnan
í því, að einn aðili
tekur upp á því
upp á sitt eindæmi
að breyta útliti
hússins að ein-
hverju leyti t. d.
að mála sinn hluta
hússins í öðrum lit eða breyta útliti
glugga.
Þetta er ekki heimilt. Allir íbúð-
areigendur fjölbýlishúss hafa rétt
til ákvörðunar um útlit hússins. Því
er óheimilt að breyta upphaflegu
útliti þess nema í samráði við aðra
eigendur og stundum þarf einnig
leyfí byggingaryfirvalda. Það sem
kemur helzt til kasta okkar ’hjá
Húseigendafélaginu varðandi hús-
félög í fjölbýlishúsum og innbyrðis
samskipti íbúanna er einmitt
ákvarðanataka af þessu tagi, en það
er mjög algengt, að ekki sé rétt
staðið að ákvörðanatöku um fram-
kvæmdir. Sem betur fer leitar fólk
oft til okkar áður en ráðizt er í fram-
kvæmdir, en stundum ekki fyrr en
eftir á. Þau mál eru gjaman mjög
erfið viðureignar.
Ásta Magnúsdóttir er fædd 1963
og alin upp í Garðinum. Hún gekk
í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í
Keflavík. Eftir stúdentspróf lá leið
hennar í Hásskóla íslands, þar sem
hún lagði stund á lögfræði. Hún
lauk embættisprófí á síðasta ári og
eftir Mognús
Sigurðsson
starfaði síðan í nokkra mánuði hjá
bæjarfógetaembættinu í 'Keflavik,
en réðst svo til Húseigendafélagsins
sem framkvæmdastjóri í október í
fyrra.
ítarleg fundarboð
— Það verður að leggja ríka
áherzlu á, að fundarboð fyrir fundi
húsfélaga séu rétt og ítarleg, heldur
Ásta áfram. — Þar þarf að vera
nákvæmlega tilgreind dagskrá
fundarins og hvaða ákvarðanir eigi
að taka, svo að fólk geti gert sér
grein fyrir því, hvort því finnist
ástæða til að mæta á fundinum eða
ekki. En því er ekki að neita að
stjórnir húsfélaga kvarta oft yfir
lélegum mætingum á húsfundum,
þrátt fyrir ítarlegar fundarboðanir
með góðum fyrirvara.
Við hjá Húseigendafélaginu þjón-
um aðallega hagsmunum sameign-
arinnar, að því er varðar fasteignina
sjálfa, viðhald, umgengni, rekstur
og allt þess háttar. En við starf-
rækjum ekki sérstaka húsfélaga-
þjónustu. Við leggjum okkur fyrst
og fremst fram við að svara þeim
fyrirspurnum, sem koma frá húsfé-
lögum og veitum þeim eftir megni
hvers konar.upplýsingar, þegar þau
leita eftir því. Gjaldið fyrir þessa
þjónustu er 1.400 kr. og panta þarf
tíma fyrirfram, en skrifstofa okkar
að Síðumúla 29 er opin frá kl. 9-2
frá mánudegi til föstudags.
Ásta telur það ekki mjög al-
gengt, að ítarlegar umgengnisregl-
ur séu settar um sameignina í fjöl-
býlishúsum. — Ég verð þess oft
vör, að ekki er farið eftir neinum
settum reglum, segir hún. — Það
færist samt í aukana, að fólk spyij-
ist fyrir um slíkar reglur hjá okk-
ur. Húseigendafélagið hefur látið
semja ítarlegan bækling með sam-
þykktum fyrir húsfélög og við bend-
um þeim á að hagnýta sér það úr
þessum reglum, sem hentar. Síðan
getur húsfélagsfundur samþykkt
þær og látið þær reglur gilda. Flest-
ir virðast þó láta hina opinberu
reglugerð félagsmálaráðuneytisins
nægja, en hún gildir, ef sérstök
húsfélagssamþykkt hefur ekki verið
gerð.
— Oft kemur nýting á sameign-
inni til okkar kasta, heldur Ásta
áfram. — Það getur verið með þeim
hætti, að einhver ein íbúð hafí helg-
að sér hluta af sameigninni. Einnig
stendur fólk oft í þeirri trú, að úr
því að kostnað af sameign, bæði
rekstri og viðhaldi, á að greiða í
samræmi við eignarhlutfall, þá eigi
notkunarrétturinn að samsvara
eignarhlutdeildinni. Sem dæmi má
nefna, að 100 snúrur séu í þvotta-
húsi og einn íbúanná eigi 10% í
sameigninni, þá megi hann bara
nota 10 snúrur.
En þetta er ekki rétt. Sérhver
íbúi hefur umgengisrétt um sam-
eignina óháð eignarhlutfallinu, að
svo miklu leyti sem hann er ekki
öðrum til tjóns eða trafala. Því er
þýðingarmikið að ná samkomulagi
um notkunartíma á þeim hluta sam-
eignarinnar, sem margir þurfa að
nota eins og þvottahús.
Að sögn Ástu geta deilur í fjölbýl-
ishúsum orðið mjög hatrammar og
tekið á sig fráleitar myndir. Sem
dæmi má nefna, að fyrir nokkrum
árum ásökuðu íbúarnir í einni íbúð
fólkið í íbúðinni fyrir ofan um að
leiða óþef frá salerni niður með
rafmagnsleiðslum. Það kæmi þess
konar ólykt út úr rafmagnsinnst-
ungum í íbúðinni fyrir neðan og
ekki væri unnt að útskýra þess ólykt
öðru vísi en með þessum hætti.
Sáttfýsi nauðsynleg
— Mér finnst stundum, sem fólk
mætti vera sáttfúsara og tillitssam-
ara, segir Ásta. — Einungis á þann
hátt er unnt að leysa þau fjölmörgu
og ólíku deilumál, sem upp geta
komið í fjölbýlishúsum.
í stórum húsfélögum rís yfirleitt
ekki sams konar ágreiningur og í
tvfbýlishúsum og hann er yfirleitt
ekki eins persónulegur. — Fólk ger-
ir þar einfaldlega ekki þá hluti, sem
það kannski gerir í tvíbýlishúsum.
Því fínnst einhvern veginn sem það
eigi meira í tvíbýlishúsi. Enginn
myndi t.d. koma fyrir frystikistu í
sameiginlegu þvottahúsi í 40 manna
blokk, enda þótt hann kynni að
gera það í tvíbýlishúsi.
Ásta telur, að margir líti ekki á
tvíbýlishús sem fjölbýlishús og megi
þar af leiðandi haga sér þar öðru
vísi. — En fjölbýlishúsalögin gilda
jafnt um tvíbýlishús sem um stóru
blokkirnar, segir hún. — Samt er