Morgunblaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 5
4 B
MORGUNBLAÐE) IÞROTTiR ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990
B 5
FIMLEIKAR / BIKARMOT FSI
■
Bryndís Guðmundsdóttir úr
Ármanni, í stökki.
mBi uggan sigur en þær
Frosti tefldu fram reyndu
Eiðsson liði, og áttu þrjá
skrifar stigahæstu kepp-
enduma. Bryndís
Guðmundsdóttir fékk hæstu ein-
kunn í samanlögðu; 35 stig, en Pjóla
Ólafsdóttir fékk hæstu einkunn á
áhaldi, 9,10 fyrir stökk sem kallast
„yfirslag, framheljarstökk.“
Frjálsar æfingar karla
Tvö félög tóku þátt í fijálsum
æfíngum karla, Ármann og Gerpla,
og keppt var í sex greinum, gólfæf-
ingum, bogahringjum, _ hringjum,
stökki, tvíslá og svifrá. Ármenning-
ar báru sigur úr býtum eftir mjög
'jafna keppni, en aðeins munaði
þremur og hálfu stigi á liðunum.
Jóhannes Níels Sigurðsson, Ár-
manni, fékk hæstu einkunn saman-
lagt, 45 stig og hæstu einkunn í
einstakri grein, 8,80 fyrir æfingar
á bogahringjum.
í þriðja þrepi kvenna vann Björk
í kvennaflolkki en ekki var keppt í
þessu þrepi hjá körlum.
Alls senda tíu lið flokka til keppni
í fjórða þxepi kvenna þar sem
Gerpla varð sigurvegari. Félagið
sigraði einnig í karlaflokki og virð-
ist líklegt til að ná upp sterku liði
eftir mikla lægð á síðustu árum.
Alls voru 323 keppendur skráðir
á mótið, frá níu félögum. Fram-
kvæmd var á vegum Fimleikafé-
lagsins Bjarkar og því til sóma, þó
að full mikill seinagangur væri í
keppni í karlaflokki.
Berglind Pétursdóttir,
þjálfari Ármanns
„Ég er ánægð með stelpumar
og tel þær flestar hafa staðið vel
fyrir sínu. Þær eru allar 16-17 ára
og því á hátindi ferilsins, þær geta
þó alltaf gert betur en það kostar
vinnu. Það sem er brýnast hjá okk-
ur í Ármanni er þó að fá fleiri mót
erlendis. Þessar stúlkur hafa keppt
á þessum sömu mótum í mörg ár
■ Úrslit / B6
, TvöfaH hjá
Armenningum
Morgunblaöið/Sverrir
ÁRMANN er enn sterkasta fim-
leikafélagið hérá landi en bilið
minnkar óðfluga. Á sunnudag-
inn var bikarmótið í f imleikum
haldið. Keppt var íþremur
flokkum, frjálsum æfingum,
þriðja þrepi og fjórða þrepi.
Sterkustu keppendurnir
kepptu ífrjálsum æfingum og
íþeim sigruðu Ármenningar,
bæði í karla- og kvennaflokki.
Ifijálsum æfingum kvenna var
keppt í fjórum greinum, í gólfæf-
ingum, slá og tvíslá og í stökki.
Ármannsstúlkur unnu nokkuð ör-
Fjórar hressar stúlkur úr Björk. Erla Þorleifsdóttir, Nína Björk Magnús-
dóttir, Þórey Elísdóttir og Steinunn Ketilsdóttir.
Ellefu ára og
stórfengleg!
Eg var sex ára þegar ég mætti með vinkonu minni á æfíngu, hún hætti
síðan fljótlega en ég hélt áfram. Ég sé ekki eftir því enda hef ég brenn-
andi áhuga á fimieikum og þá sérstaklega á æfingum á tvíslá,“ sagði Nína
Björk Magnúsdóttir, Björk, sem náði frábæmm árangri á mótinu.
Nína Björk sem er aðeins ellefu ára fékk yftr átta í einkunn á þremur af
fjómm æfingum sínum og hækkaði stigafjöidann hjá liði sínu verulega.
og þær vantar eitthvað nýtt til að
stefna að.
Það eru miklar framfarir í fim-
leikunum og ungu stelpurnar em
alltaf til í að reyna við erfiðar æfing-
ar. Það munar öllu að fá gryljur,
áður þurftum við að vera með fullt
af fólki til að taka á móti en með
gryfjunum er það óþarfi. Ingibjörg
(Sigfúsdóttir) reyndi til að mynda
eitt stökk á hesti sem ekki hefur
verið framkvæmt á móti hérlendis,
svokallað „yusinkovstökk“.“
Fjóla Ólafsdóttir, Ármanni
„Okkur hefur farið mikið fram
og við emm farnar að standa í hin-
um Norðurlandaþjóðunum. Þær
sem eru að byrja núna koma eflaust
til með að ná lengra því að betri
aðstaða er fljót að skila sér.
Við hjá Ármanni æfum 5-6 sinn-
um í viku í tvo til fjóra tíma í senn.
Það er mjög góður félagsskapur í
kringum þetta en keppnistíminn er
mjög stuttur, stúlkur byija yfirleitt
í fimleikum 6-7 ára og byija að
keppa í fijálsum æfingum 12-13
ára. Við sem erum orðnar 16-17
ára emm alveg í það elsta enda
þarf að fórna miklum tíma í æfing-
ar ætli maður að standa sig...“
Höfum lagt mest upp
úr skyldunni
„Það er orðið mjótt á mununum.
Reyndar höfum við lagt mest upp
úr skylduæfingum og því er liðið
ekki í toppformi núna. Þá var það
slæmt fyrir okkur að missa Guðjón
Guðmundsson sem er handleggs-
brotinn og þurfti fljótlega að hætta
kepni,“ sagði Jörgen Tellnor, þjálf-
ari Ármanns í karlaflokki. Við Ár-
menningar þurfum ekki að kvíða
neinu, við eigum mikið af ungum
strákum sem eiga eftir að láta að
sér kveða.“
Fjóla Ólafsdóttir úr Ármanni í æfingu á tvíslá.
n
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
„Meiri breidd"
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik gerði góða ferð til
Danmerkur um helgina og sigr-
aði ífjögurra þjóða móti, sem
lauk á sunnudag. „Ég er mjög
ánægður með frammistöð-
una,“ sagði Þorbergur Aðal-
steinsson, landsliðsþjálfari.
„Við höfum leikið sjö leiki á 10
dögum án taps og stígandinn
er greinilegur. Við byrjuðum á
mjög erfiðum leik gegn Frökk-
um, en létum Dani ekki slá
okkur út af iaginu á laugardag
og fullkomnuðum verkið gegn
Bandaríkjamönnum á sunnu-
dag.“
Eftir góðan sigur gegn Frökkum,
25:20, var leikið gegn heima-
mönnum og lauk viðureigninni með
jafntefli, 24:24. „Danirnir skipu-
lögðu mótið og ætluðu að taka okk-
ur þreytta, en annað kom á dajg-
inn,“ sagði landsliðsþjálfarinn. Is-
lenska liðið var tveimur mörkum
yfir í hálfleik, 13:11, Danir náðu
að jafna og komust í 19:17, en
strákarnir gáfust ekki upp og kom-
ust yfir á ný. „Við vorum með pál-
rhann í höndunum, vörðumst vel,
en Danir jöfnuðu með kolóleglegu
marki á síðustu sekúndunum.“
ísland vann síðan Bandaríkin
25:17, Frakkland vann Danmörku
26:22 og Bandaríkin 27:22, og
Danmörk vann Bandaríkin 30:17.
Júlíus í sérflokki
Þorbergur sagði að Júlíus Jónas-
son hefði blómstrað í keppninni og
sýnt hvern stórleikinn á eftir öðrum.
„Hann hefur haft mjög gott af dvöl-
inni í Frakklandi og er orðinn leik-
maður í fremstu röð. Þjálfarinn
hrósaði einnig Guðmundi Hrafn-
kelssyni og Hrafni Margeirssyni,
markvörðum. Þá sagði hann að Jón
Kristjánsson hefði staðið sig vel á
miðjunni sem og Sigurður Bjarna-
son, sem hefði lagt sig allan fram
Júlíus Jónasson blómstraði í keppninni og sýndi hvern stórleikinn á eftir
öðrum. Hann gerði samtals 26 mörk í þremur leikjum.
fyrir liðið. „Annars var ég tiltölu-
lega ánægður með liðsheildina og
liðsandann. Vörnin var frábær í
öllum leikjunum, en við þurfum að
nýta hraðaupphlaupin betur.“
Þorbergur sagði að hann væri
með ungt lið á uppleið og jiað væri
gaman, þegar vel gengi. I meðbyr
væri stuðningur utan vallar greini-
legur og sagðist hann vona að menn
sneru ekki baki við liðinu, þó á
móti blési. „Þetta er liður í undir-
búningnum fyrir B-keppnina 1992
og ljóst er að við eigum eftir að fá
skelli á leiðinni. Ég hef verið
óhræddur við að hvíla menn og því
reynt marga, en það er mögulegt
með meiri breidd.“
ísland - Bandaríkin25:17
ísland: Júlíus Jónasson 8/4, Sigurður Bjarnason
5, Jakob Sigurðsson 3, Birgir Sigurðsson 3,
Konráð Olavson 2, Valdimar Grímsson 2, Jón
Kristjánsson 1, Bjarki Sigurðsson 1.
Markverðir: Hrafn Margeirsson, Guðmundur
Hrafnkelsson, Bergsveinn Bergsveinsson.
GLIMA / LANDSLIÐIÐ
ísland - Danmörk 24:24
ísland: Júlíus Jónasson 11/5, Konráð Olavson
6, Sigurður Bjarnason 3, Geir Sveinsson 1, Jón
Kristjánsson 1, Valdimar Grímsson 1, Birgir
Sigurðsson, Héðinn. Gilsson 1, Jakob Sigurðsson,
Einar Sigurðsson.
Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson, Berg-
sveinn Bergsveinsson.
Keppni á Kanaríeyjum
Islenska landsliðið í glímu keppir í fangbrögðum við
úrvalslið Kanaríeyja í Las Palmas 6. desember og
hélt utan í gær. Sex glímumenn mæta kanarískum
fangbragðaköppum í sömu þyngdarflokkum og verður
keppt í tveimur lotum; aðra í glímu og hina í Lucha
Canaria, en svo nefnast fangbrögð heimamanna. Verði
jafnt ræður hlutkesti hvor íþróttin verður fyrir valinu
í oddalotu.
Fangbrögð heimamanna minna á glímu og bylta
ræður úrslitum, en þar má bola tröllslega og nota
buxnatök, en buxurnar eru úr sterkum segldúk.
Ferðamálaráð Kanaríeyja bauð glímusambandinu
til keppninnar. Jón M. ívarsson er þjálfari íslenska
liðsins. Auk hans fóru Garðar Erlendsson, glímudóm-
ari, og Rögnvaldur Ólafsson, formaður GLI, en eftir-
taldir skipa landsliðið:
Ólafur H. Ólafsson, KR, Orri Björnsson, KR, Ás-
geir Víglundsson, KR, Hilmar Ágústsson, HSÞ, Arn-
geir Friðriksson, HSÞ, og Jóhannes Sveinbjörnsson,
HSK.
Glímumót sænskra í Svíþjóð
Sænskur fangbragðakappi, Lars Enoksen, hefur tekið
miklu ástfóstri við ísjensku glímuna og hefur stofnað.
glímufélag í Malmö. Á laugardag var þar haldið glímu-
mót og voru allir keppendur sænskir, en Sigurður Jóns-
son, glímuþjálfari, hefur verið í Malmö að undanförnu og
veitt heimamönnum tilsögn í íþróttinni.
Á næsta ári verður glíman tekin inn sem keppnisgrein
innan sænska fangbragðasambandsins og verða þá vænt-
anlega haldin sænsk meistaramót í íslenskri glímu.
Ólafur H. Ólafsson keppir á Kanaríeyjum.