Morgunblaðið - 08.12.1990, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
B 7
Blásarakvintett Reykjavíkur ásamt félögum.
víðreist á þessu ári við góðan
orðstír; haldið eina tíu tónleika í
Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi og
tók þátt í tónlistarhátíðum i, Bret-
landi og Belgíu. Þá lék kvintettinn
í beinni útsendingu frá tónlistarhá-
tíðinni í Cheltenham á Englandi
fyrir breska útvarpið BBC og sagði
Einar að þeir félagar væru náttúru-
lega stoltir af því að þeirra tónleik-
ar voru valdir fyrir þessa útsend-
ingu. „Annað veifið síðan höfum
við verið að fá aura í pósti frá BBC
þegar þeir eru að endurflytja upp-
tökuna með okkur. Það er auðvitað
ánægjulegt.“
Tónlistarhátíðin í Belgíu, kennd
við Flandern, er ein hin stærsta sem
haldin er í Evrópu; hún stendur í
tvo mánuði og átriðin eru nær 300t-
alsins. „Það var afskaplega gaman
hve vel var gert við okkur á þess-
ari hátíð. Við vorum nánast bornir
á guhstól þann tíma sem við vorum
Morgunblaðið/Einar Falur
þarna og séð fyrir öllum þörfum
okkar. Þetta er auðvitað mjög gott
og gerir manni kleift að beina öllum
kröftunum að flutningi tónlistarinn-
ar.“ Aðspurður hvoit þetta sé til-
marks um að Blásarakvintett
Reykjavíkur sé að öðlast alþjóðlega
viðurkenningu segir Einar að vissu-
löga megi túlka aukinn fjölda fyrir-
spurna og tilboða um tónleikahald
víðsvegar í heiminum á þann veg
að kvintettinn sé að skapa sér al-
þjóðlegt orð í tónlistarheiminum.
„Okkur barst nýlega ósk frá sænsk-
um kvintett sem ■ óskaði eftir því
að koma og nema af okkur í svoköll-
uðum masterclass. Við urðum svo
hrærðir og hissa að við gátum
ómöglega neitað þessu og líklega
koma þeir hingað á næsta ári og
leika með okkur á tónleikum, auk
annars.“
Ekki er hægt að segja Blásara-
kvintettinn sé einhæfur í verkefna-
vali og að sögn Einars bregða þeir
sér í allra kvikinda líki á tónleikum.
„Við erum með um fimmtfu verk á
takteinum og getum því breytt efn-
isskrá milli tónleika með stuttum
fyrirvara núorðið. Til dæniis vorum
við með nýja efnisskrá á hveijum
þpssara tíu tónleika sem við héldum
erlendis í sumar og haust. Við sér-
hæfum okkur ekki í flutningi á
neinni ákveðinni tegund tónlistar
en þó má segja að við höfum lagt
sérstaka rækt við að flytja ný
íslensk verk. Annars spilum við allt,
frá því elsta til hins nýjasta." Til
marks um víðfeðma efnisskrá má
nefna tónleika sem kvintettinn hélt
í Þorlákshafnarkirkju á dögunum;
þar léku þeir fyrst verk eftir Beet-
hoven ásamt Jónasi Ingimundarsyni
píanóleikara, síðan Bleika Pardus-
inn eftir Mancini, þá Ragtime eftir
Joplin og loks krefjandi nútímaverk
eftir Ligety. „Krefjandi fyrir bæði
áheyrendur og flytjendur," segir
Einar.
En það eru hljómþýðar og bjartar
kvöldlokkur sem eru næstar á efnis-
skránni hjá Blásarakvintett
Reykjavíkur í Seltjarnarnesskirkju
næsta þriðjudagskvöld klukkan
20.30.
Texti: Hávar Sigurjónsson
S
Barokktónlist i
■ • ■ • Jolatonleikar
Seltiarnarneskirk|u &^mmarZiT
KAMMERSVEIT
Seltjarnarness heldur
jólatónleika sína í Sel-
Ijarnarneskirkju annað
kvöld klukkan 20.30.
Efnisskráin er sótt í smiðju
meistara
kammertónlistarinnar;
verk eftir
barokktónskáldin J.S.
Bach, G.F. Hándel og
Antonio Vivaldi.
Einleikarar á tónleikunum
eru þær Hlíf
Sigurjónsdóttir
fiðluleikari, Monika
Abendroth hörpuleikari og
Kristín Guðmundsdóttir
flautuleikari og
einsöngvarar eru Elísabet
Eiríksdóttir og Sigrún
Gestsdóttir.
Morgnnblaðið/Einar Falur
Frá æfingu Kammersveitar Seltjarnarness,
| líf Siguijónsdóttir er
konsertmeistari
kammersveitarinn-
ar og það vekur
athygli að enginn
stjómandi stýrir hljómsveitinni
sem telur 19 hljóðfæraleikara.
„Við höfum sama hátt á þessu
núna og hafður var við flutning
kammerverka á barokktímanum
en þá var hljómsveitarstjórinn
ekki kominn til sögunnar. Hann
kom ekki fram á sjónarsviðið
fyrr en á 19. öldinni er hljóm-
sveitirnar stækkuðu og nauðsyn-
legt var að hafa stjórnanda við
flutninginn," segir Hlíf. „Hefðin
var sú að konsertmeistarinn
leiddi kammerhljómsveitina og
við höfum æft fyrir þessa tón-
leika undir minni leiðsögn hvað
viðvíkur innkomum, hraða og
kaflalokum í verkunum. Hljóð-
færaleikur í Kammersveit bygg-
ist á því að nota eyrun vel og
spila saman. Þegar hljómsveitar-
stjórinn er ekki til staðar fyrir
framan mann og gefur slagið
verða hljóðfæraleikarnir að
hlusta miklu betur á hina og
vera meðvirkari. Þetta er hægt
þegar hljómsveitin er ekki stærri.
Tónleikarnir hefjast með Kon-
sert númer 6 í A-moll fyrir fiðlu
og strengjasveit eftir Vivaldi.
n Einleikari er Hlíf Siguqonsdóttir.
„Ég valdi þetta verk af ýmsum
ástæðum. Ein er sú að verkið
er mjög þekkt. Það er mikið
notað við kennslu og nemendur
í fiðluleik hafa allflestir kynnst
því að einhverju leyti í sínu námi.
Það var m.a. þess vegna sem ég
ákvað að spila verkið. Það er
mikilvægt að nemendur heyri
verkin flutt á tónleikum með
hljómsveit í lifandi flutningi. Ég
spilaði þetta fyrst 10 ára gömul
og hef sjálf notað verkið mikið
við kennslu. Þetta er einnig af-
skaplega fallegt verk og rnikið í
því og satt að segja þrælerfitt
ef gera á því góð skil,“ segir
Hlíf. Þá verður fluttur Konsert
í B dúr op. 4/6 fyrir hörpu og
strengjasveit. Einleikari er Mon-
ika Abendroth. Þarnæst eru Aría
og dúett úr hinu þekkta kórverki
Gloríu eftir Vivaldi. Einsöngvar-
ar eru þær Elísabet Eiríksdóttir
og Sigrún Gestsdóttir. Tónleik-
unum lýkur með Svítu nr. 2 í
H-moll fyrir flautu og strengja-
sveit eftir J.S. Bach. Einleikari
er Kristín Guðmundsdóttir.
Jólatónleikar Kammersveitar
Seltjarnarness marka lokin á
öðru starfsári hljómsveitarinnar
og eru þriðju tónleikarnir á
starfsárinu. Hlíf segir að hljóm-
sveitin hafi verið stofnuð til að
auka fjölbreytni í tónleikahaldi
og tónlistarlífi á Seltjarnarnesi
og starf hennar byggist fyrst og
fremst á áhuga og atorku þeirra
sem að henni standa. „Það er
góður kjarni fólks sem stendur
að hljómsveitinni og við höfum
einnig notið stuðnings Seltjarn-
arnesbæjar en hann styrkir
hljómsveitina við þetta tónleika-
hald núna. Allir þeir sem starfa
með hljómsveitinni eru tónlistar-
menn að atvinnu, ýmist með Sin-
fóníuhljómsveit íslands eða
starfa við kennslu í tónlistarskól-
um á Stór-Reykjavíkursvæðinu,“
sagði Hlíf Siguijónsdóttir kon-
sertmeistari Kammersveitarinn-
ar.
T