Morgunblaðið - 14.12.1990, Qupperneq 1
VIKUNA 15. — 21. DESEMBER
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990
BLAÐ
Ofsinn
við
hvítu
línuna
Spennumyndin Ofsinn við
hvítu línuna (White Line Fe-
ver) er á dagskrá Stöðvar 2
á laugardagskvöld. Þarsegir
frá Carrol Jo Hummer sem
er fyrrverandi orrustuflug-
maður. Hann kaupir átján
hjóla vörubíl, fer ásamt konu
sinni til Arizona í leit að vinnu
og hittir gamlan félaga sinn,
Duane. Sá útvegar honum
verkefni en þegar Carrol átt-
ar sig á því að hann flytur
ólöglegan varning segir
hann starfi sínu lausu. Það
er ekki vel séð og er hann
laminn til óbóta. Carrol finn-
ur sér löglegan varning til
að flytja en fortíðin lætur
hann ekki í friði. Hótanir og
ofsóknir eru daglegt brauð.
Maltin:-**^
SÚM
Sjónvarpsþáttur um SÚM-hópinn
sem um miðjan sjöunda áratuginn
ruddi braut nýjum viðhorfum á ís-
landi er á dagskrá Sjónvaps nk.
sunnudag. Framm að þeim tíma var
óhlutbundin myndlist (abstrakt) ríkj-
andi hér á landi en tilkoma Súmmara
markaði þáttaskil. Þeir veittu til
landsins ýmsum erlendum hræring-
um í myndlist og breyttu ríkjandi
hugmyndum um hvað væri list með
því að nota ýmis óhefðbundin efni
til listsköpunar og fást við hugmynd-
ir og kenndir sem ekki var venjan að
fást við í myndlist. Enda fór list'
Summara fyrir brjóstið á mörgum og
má þar nefna Heysátu Sigurðar Guð-
mundssonar á gólfinu í Gallerí SÚM
og vörðu úr brauðum sem lögreglan
fjarlægði af Skólavörðuholtinu áð
kröfu heilbrigðisyfirvalda.
í þættinum er rætt við eftirtalda
Súmmara um þetta tímabil: Einar
Guðmundsson, Elisabetu Gunnars-
dóttur, Guðberg Bergsson, Kristján
Guðmundsson, Magnús Tómasson,
Hrein Friðfinnsson og Sigurð Guð-
mundsson. Þá er rætt við Kjartan
Guðjónsson sem var í forsvari fyrir
Felag íslenskra myndlistarmanna en
Súmmarar lentu í hartrömmum deil-
um við þann félagsskap. Umsjónar-
menn eru Björn B. Björnsson og Sig-
urður Hróarsson.
Leikrit vikunnar, sem er á dagskrá Rásar 1
nk. fimmtudag, er nýtt íslenskt verk, „Ský“
eftir Árna Ibsen, sem jafnframt leikstýrir. í
leikritinu segir frá gömlum manni sem glím-
ir við óuppgert mál úr fortíðinni.
Leikendur eru: Rúrík Haraldsson, Bríet Héð-
insdóttir og Tinna Gunnlaugsdóttir.
Árni Ibsen
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8
Utvarpsdagskrá bls. 2-8
Hvað er að gerast? bls. 3-5
Myndbönd bls. 5
Bíóin í borginni bls. 6
Vinsælustu myndböndin 8