Morgunblaðið - 06.01.1991, Síða 1

Morgunblaðið - 06.01.1991, Síða 1
HEIMILI {Htfgnsifrlafrtfe SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1991 BLAÐ Verkfæri fyr- ir heimiUó Flestum fellur vel að taka sér verkfæri í hönd til þess að smíða, mála eða laga eitthvað, sem þarf að lagfæra og slík verk eru ekki lengur bundin við að vera karlmannsstörf. Stað- reyndin er sú, að við þurfum á margvíslegum verkfærum að halda, en þess verður að gæta að kaupa vönduð og góð verk- færi. Þetta kemur m. a. fram í smiðjuþætti Bjarna Ólafssonar hér í blaðinu í dag. Hann telur síðan upp 20 verkfæri, allt frá klaufhamri til brýnis og segir, að iengi sé hægt að telja upp ýmis verkfæri, en það fari eftir áhugasviði og viðgerðarþörf á heimilinu, hvað við veljum. Þar sem oft þarf að grípa í bílvið- gerð, er auðvitað þörf á úrvali topplykla og misstórra fastra lykla. O Mýbyggínga- lán 1955-1990 Lengst af hafa lán Hús- næðisstof nunar ríkisins til nýbygginga skipað hæstan sess i útlánum hennar. Þetta breyttist þó eftir tilkomu þess lánakerfis, sem komið var á fót 1986, því að á síðustu 3-4 árum hafa lán til kaupa á eidri íbúð- um verið stærsti lánaf lokkur Byggingarsjóðs ríkisins og reyndar stofnunarinnar í heild. Lánveitingar hennartil kaupa á notuðum íbúðum hófust eftir lagabreytingu 1970. Á meðfylgjandi skýringar- mynd er sýnt, hvernig nýbygg- ingalán Húsnæðisstofnunar- innar hafa þróazt frá upphafi vega. Fjárhæðir hvers árs eru framreiknaðar til verðlags í jan- úar 1991, miðað við bygging- arvísitölu. Tölur frá og með 1981 eru miðaðar við há- markslán á þriðja ársfjórðungi hvers árs, júlí-september. Ekki er reiknað með rýrnun lánanna vegna verðbólgu á útborgun- artíma á þeim árum, sem ein- stakir lánshlutar voru óverð- tryggðir (þ.e. fram til lagabreyt- ingarinnar 1986). (Heimild: Fréttabréf Hús- næðisstofnunar.) Það eru mörg atriði, sem taka þarf tillit til, þegar fas- teignir eru metnar, en mats- verðið þarf umfram allt að end- urspegla markaðsverð þeirra. Þetta kemur fram í viðtali við Sverri Kristinsson, fasteigna- sala í Eignamiðluninni, hér i blaðinu í dag. Sverrir segir svipaðan rhun vera á verði gamals og nýs húsnæðis og áður og enn sem fyrr séu sum hverfi eftirsóttari en önnur. Vesturbærinn er og hef ur alltaf verið vinsæll og eignir þar selj- ast yfirleitt fljótt og vel. Ónnur eftirsótt hverfi í Reykjavík eru Fossvogur, Háa- leitishverfi og ákveðnir hlutar í Breiðholti. Af nýjum hverf um er Grafarvogurinn mjög vin- sæll. Það eykur á eftirspurn eftir íbúðum í nýju hverfunum, að þær eru gjarnan með nýjum húsnæðislánum. Við kaup á þeim þarf því ekki að greiða mjög háa útborgun. ^ ^ Hámarkslán til nýbygginga 1955-90 Hámarkslán Byggingarsjóös rtkisins tii nýbygginga á föstu ve jan 1991 1.000 1955'56 '58 '60 ’62 '64 '66 ’68 70 72 74 76 78 '80 '82 '84 '86 '88 '90 MblJGól Heimild: Fréttabréf Húsnæðisstofnunar ríkisins Mat á lasl-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.