Morgunblaðið - 13.01.1991, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.01.1991, Qupperneq 1
1400 íbúðir 1200 1000 200 1971 1975 1980 1985 Ibúðasmíði í Reykjavík 1971-1990 (íbúðir í smíðum í byrjun hvers árs) Nýsmíði ibúóar- húsnæðis Fjöldi nýrra íbúða í smíðum í Reykjavík undanfarin 20 ár hefur verið á biljnu 795- 1.509 árlega og er þá miðað við fjöldann í byrjun hvers árs. Náði fjöldi íbúða í smíðum hámarki árið 1977 en fæstar urðu þær árið 1981. í byrjun síðastliðins árs nam fjöldi íbúða í smíðum 1.118 og hafði farið vaxandi frá árinu 1988 eins og sést á kortinu hér til hliðar. Kortið sýnir glögglega að miklar sveiflur hafa átt sér stað í byggingu íbúðarhús- næðis á undanförnum árum. Um þessar mundir er alimik- ið af nýbyggðu íbúðarhúsnæði óselt á höfðuðborgarsvæðinu og hefur því verið haldið fram að verktakafyrirtæki eigi 500-600 íbúðir sem ekki hafi tekizt að selja. f viðtali hér í blaðinu í dag við Armann Örn Armannsson, forstjóra bygg- ingarfyrirtækisins Armanns- fells hf., kemur fram að fyrir- tækið hafi nú ákveðið að lækka verð á nýjum íbúðum í Ásholti um 200-1.200 þúsund krónur. Jaf nframt tekur fyrirtækið á sig 40% kaupverðs í húsbréfum án affalla. 2 SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1991 BLAÐ Handrióá tröppur og stéttar Þeir sem ungir eru og liðug- ir, veita því síður athygli, ef hált er úti en hinir, sem finna strax til öryggisleysis og þora tæpast út. Mikil bót er af því að festa þá góðan handlista á húsvegginn. Kostnaður við þess háttar úrbætur þarf ekki að vera mikill, enda mun oftar vanta framkvæmdina fremur en þær krónur, sem handrið kostar. Þannig kemst Bjarni Ólafs- son m. a. að orði í þætti sínum Smiðjan hér í blaðinu i dag, en þar fjallar hann um handrið á útitröppur, frágang við útidyr og stéttar hjá húsum. Þar sem ætlunin er að setja handrið meðfram stétt heim að húsi, þarf auðvitað að festa stoðir niður. Stuðningsborð eða handlista þarf síðan að festa efst á þessar stoðir. Svona handrið við gangstétt getur veitt mikið öryggi ívondu göngufæri. 2 Fasteigna- tryggingar Enginn þykist oftryggður, þegar tjón verður. I viðtali hér í blaðinu í dag gerir Ólafur Björgvinsson, afgreiðslustjóri hjá Sjóvá-Almennum hf., grein fyrir helztu þáttum fasteigna- tryggingar (húseigendatrygg- ingar). Þar kemur m a. fram, að tjón af innbrotum er mun meira nú en áður. Fíkniefna- neytendurnir steli ekki bara öllu því, sem koma má í pen- inga til fíkniefnakaupa, heldur eiga þeir til að skemma og það mikið. Þeir skera niður mál- verk, stífla salerni og láta vatn flæða út. Ólafur telur, að vaxandi skilningur sé hjá almenningi á nauðsyn fasteigna- og fjöl- skyldutrygginga. Tjón hafi farið vaxandi á undanförnum árum og taxtarnir á þessum trygg- ingum séu ekki háir mið- að við tjónin, sem þær eiga að mæta. Vatnsskaðar eru t. d. mjög algengir í sumum hverfum borgarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.