Morgunblaðið - 13.01.1991, Síða 2

Morgunblaðið - 13.01.1991, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1991 Höggvió áhns- bréfíilmíilimi? Armannsfell lældcar verd i Ásholti - Tekur 40% lcauprerós i húsbréfum án affalla ÁRMANNSFELL hf. hefur ákveðið að lækka verð á íbúðutn þejm, sem fyrirtækið er nú að fullgera í Ásholti í Reykjavík. Lækkunin nemur 200.000-1.200.000 kr. á íbúð eða raðhús en algeng lækkun er um 500.000 kr. Jafnframt býðst Ármannsfell til þess að taka sem greiðslu húsbréf allt að 40% kaupverðs án nokkurra affalla. Kemur þetta fram í viðtali því við Ármann Orn Ármannsson, forstjóra Ár- mannsfells, sem hér fer á eftir. Þið eru að auglýsa íbúðir í Ás- holti með sérstökum kjörum. — Já, það er rétt, við erum á endasprettinum við að ljúka þessu ve^ki og við höfum enn ekki selt allar íbúðirnar þarna, en við viljum bæði okkur ágætu viðskiptavina vegna og okkar sjálfra, ljúka verk- inu og koma íbúðunum í notkun nú þegar. Þið bjóðið íbúðir á sérstöku verði, eða á lægra verði en áður, hvað kemur til? — Það er nú svo með okkur bygg- ingamenn að við höfum yfirleitt haft tilhneigingu til þess að miða okkar söluverð við framleiðslu- kostnað að viðbættum eðlilegum hagnaði,.en í byggingariðnaði eins og í annarri framleiðslu, ráða mark- aðsöfl aðstæðum hveiju sinni. Þau hafa ekki verið sérstaklega hagstæð í nýbyggingariðnaði um alllangt skeið og þess vegna einfaldiega lög- um við okkur að markaðsaðstæð- um. Við ákváðum að leita til þeirra sem við töldum hæfasta, Eignamiðl- unarinnar hf., til þess að verðmeta þessar íbúðir. Niðurstaða þeirra er sú að það verð sem sett var á íbúð- irnar í upphafi, fyrir tveimur árum, sé nú í hærri kantinum, þannig að við einfaldlega lögum okkur að markaðnum, nú um sinn, og þannig teljum yið að þessar íbúðir muni seljast á mjög skömmum tíma. Að mínu áliti á raunverð nýrra íbúða eftir að hækka fljótlega aftur. Þið hafið þá tekið mið af mati Eignamiðlunar, fimm hundruð þús*- und til milljón króna lækkun á hveija íbúð. Á það að auðvelda söl- una. — Lækkunin er nokkuð misjöfn eftir íbúðum. Það sem ýmsir mundu telja kannski dýrustu eignirnar, eru sumar seldar. Við vorum kannski of bundnir framleiðsluverði í okkar verðmati upphaflega og nú má segja að það sé gerður meiri verð- munur á eignum. Hitt er svo aftur annað mál, að ég er jafn sannfærð- ur og ég var þegar við hófum þessa byggingu í Ási að allar þessar íbúð- ir eru afar góðar og þetta er ein- stakt sérbýli í sambýli. Nú afhendið þið þessar eignir fullbúnar, og lóð er þegar fullfrá- gengín og flestar íbúðirnar fullbún- ar nú þegar eða í næsta mánuði. Er það ykkar mat að það sé heppi- legra að selja íbúðir fullbúnar held- ur en t.d. tilbúnar undir tréverk? — Það má segja að það sé ekki bara okkar mat heldur er það nán- ast allra sem stunda iðnað að vilja afhenda fullbúnar vörur, ef þeir eru ekki að afhenda vöruna til einhvers annars sem fullgerir hana. Við höf- um talið að íslenskur byggingariðn- aður ætti ekki að vera heimilisiðn- aður. Stjórnvöld hafa aftur á móti, alla þessa öld, gjarnan viljað við- halda þeirri baðstofumenningu að byggingariðnaðurinn væri heimilis- iðnaður. Við höfum nú viljað halda öðru fram, að þetta væri fram- leiðsluiðnaður eins og hann er í öll- um nágrannalöndum okkar. Hvað fylgir svo þessum íbúðum og hvernig innréttingar eru þarna, fylgja bílastæði hverri íbúð og hvernig em gólfefni, efni í innrétt- ingum og hvað er svona sérstakt við sameign, frágang á lóð og öðru? Geturðu nefnt einhveija þætti? — Mjög margir hafa séð þessar íbúðir og þessa sameign. Það er dálítið flókið mál að útskýra. En það má segja að fyrir okkur hafi vakað að gera þarna nútímalega sameign, þar sem séð væri fyrir þörfum borgarbúans. Það fylgir hverri íbúð sérmerkt bílastæði í upphitaðri bílageymslu sem er und- ir byggðinni. Hægt er að kaupa viðbótar bílastæði fyrir þá sem eru með tvo eða fleiri bíla. Þar er sér þvottpðstaða með tækjum, og sjálfsogðu sjálfvirk opnun inn í bíla- geymsluna. Þarna er húsvarðaríbúð og er gert ráð fyrir að húsvörður sjái um rekstur hússins. Auk þess er leikherbergi, sameiginlegur einkagarður með upphituðum göngustígum og gervihnattadiskur svo að eitthvað sé nefnt. En sjón er sögu ríkari. Ég fullyrði eftir sem áður að þetta er byggð sem ekki á sér sinn líka annars staðar á þessu landi. Þið bjóðist til að taka á ykkur ákveðinn, stóran hluta, af afföllum húsbréfanna. Hvers vegna? — í fyrsta lagi er greiðsla með húsbréfum staðgreiðsla. í öðru lagi teljum við að afföll á húsbréfum séu nú óeðlilega mikil. Við höfum þá trú að það eigi eftir að jafna sig á tiltölulega skömmum tíma. Til þess að sýna að við höfum trú á þessu kerfi, höfum við ákveðið fyrir utan verðlækkun, eða aðlögun að mark- aðsverði, að ef ákveðinn hundraðs- hluti af kaupverði íbúðarinnar er greiddur með húsbréfum, sem er nú alls ekki í öllum tilvikum, þá tökum við þau affallalaust upp að ákveðnu marki. Þetta gerum við í þeirri vissu, eða þeirri trú, að afföll- in muni á tiltölulega skömmum tíma minnka allverulega og við erum ekki greiðslulega þannig staddir að við þurfum að losa okkur við þessi húsbréf, jafn skjótt og við fáum þau. SMIÐJAN llandiió dð útítröppur SENNILEGT er að spara mætti allmikinn kostnað og óþægindi sem árlega hlýst af beinbrotum í hálku, ef víðar væru góð hand- rið og stólpar til að halda í og. styðja sig við hjá tröppum og stéttum. Slíkum slysum fylgja margháttuð óþægindi. Við ættum öll að leita ráða til að fækka þeim. Það er ómældur sársauki sem fylgir slæmri byltu og þeim meiðslum sem margur hlýtur við slæmt fall og er þörf framkvæmd að skera upp herör til þess að færri hljóti tognun, mar og bein- brot. Skoðum tröppurnar Þeir sem ungir eru og liðugir veitá því síður athygli en hinir sem finna strax til öryggisleysis og þora tæpast út, ef hált er úti. Mik- il bót er af því að festa góðan hand- hsta á húsvegginn. Kostnaður við þessháttar úrbæt- ur þarf ekki að vera mikill, enda mun oftar vanta framkvæmdasemi fremur en þær krónur sem hand- rið kostar. eftir Bjarno Ólafsson Á mörgum húsum eru útitröppur með steinsteyptu handriði og kann að vera full þörf á að festa hand- lista á steypta handriðið. Sumar útitröppur hafa ekki nema fá þrep, 1-3 þrep. Samt sem áður er þörf á að setja handlista eða stuðnings- stólpa við svo lágar tröppur. Lög eða reglugerð Ég tel vera vöntun á skýrum ákvæðum um frágang við útidyr og stéttar hjá húsum. Við búum í landi fólksins sem byggir húsin sín sjálft og það er oft undir hælinn lagt hvort nokkurt útihandrið er við inngang húsanna. Byggingareglur gera fyrst og fremst ráð fyrir að handrið séu til þess að varna því að fólk falli út af stigum eða pöll- um, svölum og tröppum. Handfestu til stuðnings fyrir óörugga fætur sem ganga þurfa upp eða niður, má ekki vanta. Úttektarmenn gæti þess. Lagasmiðir eða reglugerða hafa' vafalítið talið erfitt að setja ákveðnar reglur um snjómokstur við hús. Veðráttan er svo breytileg og umhleypingasöm hjá okkur og bæjar- og sveitarfélög sem láta ryðja snjó af götum leigja til þess vörubíla með snjóplóga, sem aka oft hratt um göturnar og ryðja snjónum upp á gangstéttir. Þeim sem eru þá inni í íbúðum sínum, er oft alveg ómögulegt að komast frá húsinu. Það er tími til kominn að hanna betri tæki sem geta t.d. mokað snjónum upp á eigin flutnin- gapall og ekið honum strax á brott. Slík framkvæmd mundi auðvelda gangandi vegfarendum að komast leiðar sinnar og fækka stórlega meiðslum fólks. Þesskonar ruðn- ingstæki ættu ekki að vera miklu seinvirkari, ef hönnun þeirra væir góð. Hér hefur góður handlisti verið festur á húsvegginn. Sandpoki Ekki má gleyma sandpokanum sem þarf að vera til taks við hveij- ar útidyr. Það er léttara að strá sandkornum á hálkuna en að þurfa á slysavarðsstofu. Hvar á þá að afla sandsins? Vafalaust verða ein- hveijir til þess að pakka sandi í litl- ar umbúðir _sem fólk getur borið heim til sín. í sumum bæjarfélögum sjá gatnagerðarmenn um að útvega fólki sandpoka. Hvernig festum við handlista? í sumum járnvöruverslunum er hægt að fá keyptar ágætar festing- ar fyrir handlista. Einnig er hægt að leysa þann vanda með því að semja við smið, járnsmið eða tré- smið. Festingar geta einnig verið úr tré. Þar sem ætlunin er að setja handrið meðfram stéttinni heim að húsinu, þarf auðvitað að festa stoð- ir niður. Sumstaðar má trúlega skrúfa slíkar stoðir á jaðar gang- stéttarinnar, en annarsstaðar þarf að reka stoðirnarí jörðu. Stuðnings- borð eða handlista þarf síðan að festa efst á þessar stoðir. Hæfileg hæð uppá handlistann mun vera 80 til 85 cm frá stéttinni. Svona handrið við gangstétt get- ur veitt mikið öryggi í vondu göngu- færi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.