Morgunblaðið - 13.01.1991, Side 12

Morgunblaðið - 13.01.1991, Side 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGIMIR SUNNUDAGUR 13. JANUAR 1991 35 ára reynsla tryggiröruggaþjónustu Símatími kl. 1-3 Vantar 3ja herb. Höfum traustan kaupanda aö góöri 3ja herb. íbúð. Vegna mikillar sölu vant- ar okkur eignir af öllum stærðum á söluskrá. Dúfnahólar - 3ja Falleg 3ja herb. íb. á 7. hæð. Suðursv. Einkasala. Verð 5,5 millj. Grettisgata - 3ja 3ja herb. góð íb. á 1. hæð í steinh. Sérhiti. Verð 4,9 millj. Sigtún - 4ra Ca 90 fm lítið niðurgrafin og björt kj.íb. Tvöf. verksm.gler. Sér hiti sérinng. Verð 4,9 millj. Grettisgata - í smíðum 100 fm íb. tilb. u. trév. á götuhæð. Sérinng. Til afh. strax. 2 einkabílastæöi fylgja. Verð 5,8 millj. Grenimelur - sérh. Glæsil. ca 160 fm sérh. (1. hæð) í þríbhúsi. 2 herb. ásamt bað- herb. í kj. fylgja. Bílsk. Einkasala. kAgnar Gústafsson hrl.,j Eiríksgötu 4 Málflutnings- og fasteignastofa E Fasteignasalon EIGNABORG sf. - 641500 - Opið í dag kl. 13-15 Bráðvantar íbúðir 4ra og 5 herb. íbúðir. Suðurhlíðar — 2ja 60 fm á 2. hæð. Suðursv. Tilb. u. trév. Til afh. strax. Fagrabrekka — 2ja 50 fm íb. í tvíb. Sérinng. Verð 3,8 millj. Engihjalli — 3ja 90 fm á 4. hæð F-íb. Suðursvalir. Nýmál. Laus strax. Þvottah. á hæö. Verð 5,’8 millj. Áhv. 1,7 millj. Laus strax. Álfhólsvegur — 3ja 87 fm jarðh. m. sérinng. Nýjar innr. Lítið áhv. Mikið útsýni. Laugavegur — 3ja 100 fm á 2. hæð í steinsteyptu húsi. Stór stofa. Sérbílast. Nýtt þak. Eign í góðu ástandi. Laust 1. mars. Kársnesbraut — 3ja 70 fm íb. á 1. hæð í fjórbýli. Suð- ursv. Flísar á baði. Aukaherb. í kj. Verð 6 millj. Ásbraut — 4ra 100 fm á 3. hæð, endaíb. Suðursv. Lítið áhv. Verð 5,8 millj. Efstihjalli — 4ra 100 fm á 1. hæð í 2ja hæða húsi. Suöursvalir. Parket. Vandaðar innr. Einkasala. Suðurhlíðar — Kóp. 4ra herb. íb. á 2. hæð. Afh. tilb. u. trév. fullfrág. utan, strax. Fagrihjalli — parh. Eigum eftir nokkur hús þegar upp- steypt. Til afh. strax. Hagst. verð. Hrauntunga — raðh. Sigvaldahús á tveimur hæðum. Á jarðh.'er 2ja herb. íb. Innb. bílsk. Ýmis skipti mögul. Birkigrund — raðhús 198 fm, tvær hæðir ásamt ki. í stein- steyptu húsi. 5 svefnherb. Ahv. veð- deild 2,8 millj. Bílskréttur. Sviðsholtsvör — einb. 220 fm á Álftanesi, 4-5 svefnherb. Timburhús byggt á staðnum. Fullfrág. utan. Ræktuö lóð. Tvöf. bílskúr. Áhv. veðdeild 2,1 millj. Suðurlandsbraut 22 288 fm verslhúsn. á jarðhæð. Tilb. undir máln. í dag. Ýmis greiðslukj. Hlíðarhjalli — tvíb. 260 fm 2 íb. önnur 3ja herb., hin 6 herb. Afh. rúml. fokh. Allt gler komiö og útihuröir. Hitalögn frág. Lóö tyrfö og bílaplan steypt. Tíl afh. strax. EFasfeignasalan EIGNABORG sf. Hamraborg 12. s. 641500 Sölumenn: || Vilhjálmur Einarsson, hs. 41190, Jóhann Hálfdánarson, lögg. fasteigna- og skipasali, s. 72057. Hús okkar og licimili verda seint oftryggð — segir Ólafur Björgtinsson hjá Sjóvá-Almennum VÁTRYGGINGAR eru miklu algengari og víðtækari nú en áður gegn margvíslegu tjóni t.d. af völdum bruna, vatnsskaða eða inn- brota, enda þykist enginn oftryggður, þegar tjón verður. ÖIl hús hér á landi eru skyldutryggð gegn bruna, í höfuðborginni hjá Húsatrygg- ingum Reykjavíkur og annars staðar hjá þeim vátryggingarfélögum, sem viðkomandi sveitarstjórnir semja við. Svokallaðar fasteigna- tryggingar og fjölskyldutryggingar (heimilistrygingar) eru aftur á móti fijálsar. Þeim er ætlað að tryggja gegn margvíslegu öðru tjóni, sem orðið geta á húsi og heimili, eins og allir þekkja. En er það svo víst, að allir geri sér næga grein fyrir því, hvað er tryggt og hvað ekki? — Ég hef lúmskan grun um, að viðskiptavin- urinn, sem kemur hér inn og kaupir sér fasteignatryggingu, lesi ekki skilmálana, sagði Ólafur Björgvinsson afgreiðslustjóri hjá Sjóvá-Almennum hf. í viðtali við Morgunblaðið. — Það er samt nauð- synlegt, að hann lesi þá vandlega. Það nægir ekki, að sölumaðurinn útskýri það stuttlega fyrir honum, hvað fasteignatryggingin vátrygg- ir. Sama máli gegnir að sjálfsögðu um fjölskyldutrygginguna. Ólafur er fæddur 1942 og alinn upp í Reykjavík. Hann hóf störf þjá Almennum tryggingum 1961, en fór síðan til Englands 1962, þar sem hann lagði stund á vátryggingar við verzlunarskóla. Eftir heim- komuna hélt hann áfram starfi sínu hjá Almennum tryggingum og síðan hjá Sjóvá-AJmennum, en þessi fyrirtæki sameinuðust fyrir tveimur árum sem kunnugt er. Ólafur hefur fengizt við nánast allar greinar trygginga, en þó lengst af við fasteigna- og heimilistrygging- ar. Þá fauk allt, sem fokið gat Gamla húseigendatryggingin átti sér ekki langa sögu, heldur Ólafur áfram. — Hún var fyrst tek- in upp 1969, þegar Elna fór yfir Reykjavík, en Elna var leifamar af aaHBBBIIIi hvirfilvindi. Breið- holtið varð hvað verst úti í þessu ofsaveðri. Þar fauk allt sem fokið gat eins og þök, bílar o. fl. Þessi trygging var að vísu komin þá og við byijaðir að eftir Magnús Sigurósson auglýsa hana. Þeir sem höfðu þessa vátryggingu, fengu tjón sitt bætt en aðrir ekki. Margir hlutu þarna slæman skaða, því að þetta var heljar mikill hvellur. Þessi húseigendatrygging fól í sér vátryggingu gegn vatnsskaða, foki, innbroti, gleri, sótfalli, húsa- leigutapi og ennfremur ábyrgðar- tryggingu. Í nýju fasteignatrygg- ingunni er búið er að bæta inn að auki vátryggingu gegn skýfalli og asahláku, tjóni af völdum frostspr- ungna og snjóþyngsla, hreinlætis- tækjatryggingu o. fl. Það er stöðugt verið að auka við trygginguna og gera hana víðtækari. Ólafur víkur síðan að einstökum liðum fasteignatryggingarinnar og segir: — Hún felur í fyrsta lagi í sér vatnstjónstryggingu, það er þau tjón, sem verða á fasteigninni af völdum vatnsskaða. Oft springur rör í húsum. Þá þarf að bijóta nið- ur að því, laga það, múra upp og mála. Öft hlýzt mikið tjón af vatns- flóðinu. Þess eru dæmi, að rör hafi sprungið efst í blokkum og vatn runnið niður eftir öllum hæðum og alla leið ofan í kjallara. Þá er hægt að ímynda sér tjónið, en allt saman verður að bæta, því að þetta er i/átryggt. - Trygging gegn skýfalli og asahláku er nýlega komin inn í fast- eignatrygginguna, heldur Ólafur áfram. — Það hefur oft gerzt í stór- rigningum eftir frosta- og snjóa- kafla, að það flæðir inn í kjallara. Þetta hafa gjarnan verið býsna þung tjón fyrir fólk. Áður var utan- aðkomandi vatn ekki bótaskylt heldur einungis vatn úr leiðslukerfi innanhúss. Þetta er því nýtt. Rétt er samt að benda á, að tjón af völd- um sjávarfalla eða grunnvatns er ekki bætt. Frostsprungutrygging er einnig nýr liður í fasteignatryggingunni. Hún bætir tjón vegna frostspr- ungna á vatnsleiðslukerfi innan- húss, sem verður við það að hita- kerfí hússins bilar skyndilega. Tjón af völdum vatns er bætt úr vatns- tjónstiyggingunni, sem greint var frá hér á undan. Fok- og óveðursstryggingin á að ná yfir tjón, sem verður vegna ofsa- veðurs er þök, veggir og gluggar §úka eða brotna. Þá "er miðað við 11 vindstig og upplýsingar veður- stofunnar um vindhraða. Enda þótt veðurstofan' gefí ekki upp nema 9-10 vindstig, þá vitum við það samt af reynslu, að á vissum stöðum á höfuðborgarsvæðinu er vindhrað- inn mun meiri t.d. í Álfheimum, efst í Breiðholti og síðast en ekki sízt í Engihjalla í Kópavogi. Það getur verið ofsastormur á þessum stöðum, þó að veðurstofan mæli ekki nema 9-10 vindstig annars staðar. Ólafur segir óveðurstjónin ein- mitt mjög algeng og að eftir þann veðurofsa, sem gengið hefur yfír mikinn hluta landsins að undan- förnu, megi búast við miklum tjóna- kröfum út á þessa óveðurstrygg- ingu. Víða hafí t.d. þök fokið, svo að stórtjón hafí hlotizt af. Brottflutnings og húsaleigu- trygging nefnist enn einn liður fast- eignatryggingarinnar. — Henni er ætlað að bæta það tjón, sem hlýzt af því, að ekki er hægt að búa í íbúð, á meðan verið er að gera við hana vegna vegna skemmda af völdum t.d. vatnskaða eða annars, sem bótaskylt er samkvæmt fast- eignatryggingunni, segir Ólafur. — Stundum eru skemmdirnar það miklar, að fólkið verður að flytja annað um stundarsakir. Þá verður að leigja fyrir það húsnæði t.d. aðra íbúð og jafnvel á hótel, ef aðrir kostir eru ekki fyrir hendi. Bætur greiðast þó ekki fyrir lengri tíma en 6 mánuði, enda á viðgerð þá að vera lokið á húsnæðinu, þar sem tjónið varð. Við höfum við- gerðamenn á okkar vegum og þeir ganga ávallt rösklega til verks við að gera við hið skemmda húsnæði. Meira tjón af innbrotum en áður Innbrotstryggingin er mjög mik- ilvæg að mati Ólafs. — Innbrots- þjófarnir hafa valdið munum meiri skemmdum á fasteignum á undan- fömum árum en áður, segir hann. — Hér áður-fyrr vom innbrotsþjóf- arnir kannski bara fyllibyttur og þegar húseigandi kom heim, lá inn- brotsþjófurinn þar sofandi og hafði ekki gert annað af sér en að tæma úr viskíflösku, sem hann fann í vínskáp. Nú er komin til sögunnar önnur tegund af innbrotsþjófum. Það eru fíkniefnaneytendumir. Þeir stela öllu, sem hægt er að selja til að eiga fyrir einhverju, sem þeir þurfa að nota. Þeir stela sjónvarps- tækjum, hljómflutningstækjum og yfirleitt öllu, "sem þeir geta komið í peninga. Svo eiga þeir til að skemma og það mikið. Þeir skera niður dýr málverk, stífla salerni og láta vatn flæða út. í fasteignatryggingunni er enn- fremur glertrygging, það er við broti á rúðum. — Hún felur í sér, að við borgum nýja rúðu og ísetn- ingu hennar, segir Ólafur. — Trygg- ingin nær samt ekki til þess, ef rúður em rispaðar eða skemmdar lítillega, heldur einungis ef þær brotna. Tjón, sem undir þennan lið falla, em töluverð. Oft em stórar og dýrar verzlunarrúður brotnar t.d. í verzlunum í Austurstræti. Svona rúður kosta með ísetningn tugi þúsunda króna. En það má búa til svo sterkar rúður, að jafnvel skriðdrekar komist ekki í gegnum þær. Við hér höfum velt því fyrir okkur, að setja slíkar rúður í þessi hús. Enn hefur þó ekkert orðið úr því. Það gler, sem notað er þarna nú, er samt uiii 8-10 mm þykkt, en stenzt þó ekki brennivínsflöskur og annað, sem í þær er kastað. Svokalluð brots- og hmnstrygg- ing á að bæta tjón, sem verður, ef loftklæðning eða innrétting dettur niður. — Mér er minnisstætt óhapp í íbúð í Breiðholti, sem búið hafði verið f í 12 ár. Allt í einu heyrðust þar skruðningar og þegar fólkið kom á vettvang, þá hafði loftklæðn- ingin fallið niður og ekki nóg með það heldur hafði hún brotið mikið af innbúinu, segir Ólafur. — Eldhús- innréttingar og skápar hafa líka tekið upp á því að hrynja allt í einu niður með þeim afleiðingum, að það leirtau, sem inni í þeim var, möl- brotnaði. Ábyrgðartryggingin felur í sér vátryggingu gegn þeirri skaðabóta- skyldu, sem fallið getur á húseig- andann vegna eignarinnar. — Það skapast oft hættuástand í kringum hús, segir Ólafur. — Fólk dettur fyrir framan þau í hálku og fær grýlukerti í höfuðið, svo að raunhæf dæmi séu nefnd. Snóþyngsli á hús- þökum hafa fallið ofan á fólk og bíla og valdið slysum og tjóni. Bruni er undanskilinn í ábyrgðar- liðnum. — Bmni af völdum íkveikju, þegar krakkar kveikja í, fæst því ekki bættur og það enda þótt for- eldrarnir séu með heimilistryggingu hjá vátryggingafélögunum. Það er oft sem fólk skilur þetta ekki. Krakkar kveikja í sinu, eldurinn teygir sig inn í næsta garð og 40 ára gömul tré þar, há og falleg, em þarmeð ónýt. Eigendurnir, sem em að vonum í öngum sínum, snúa sér að vátrygingarfélaginu og vilja fá trén sín bætt. En þetta er ekki bótaskylt. Foreldrar barnanna, sem kveiktu í, geta verið bótaskyldir vegna þeirra, en vátryggingin er það ekki. Engin brunatrygging í fasteignatryggingunni — Vert er að taka það skýrt fram, að það er engin branatrygging inni í fasteignatryggingunni, segir Ólaf- ur. — Ef það kviknar í íbúðinni eða húsinu, ber að snúa sér til Húsa- trygginga Reykjavíkur og annars staðar til þess vátryggingarfélags, Dæmigert vatnstjón á fasteign. Þarna hefur þurft að mölva allt upp staðinn fyrir þau gömlu. Svo þarf að fylla upp og múra. Nú nýverið sjálfum rörunum, sem ekki var áður. með loftborum og setja ný rör í hefur verið tekin upp trygging á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.